Morgunblaðið - 01.10.2002, Page 8

Morgunblaðið - 01.10.2002, Page 8
FRÉTTIR 8 ÞRIÐJUDAGUR 1. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ Að gömlum og góðum sjómannasið eins og venjulega. Námskeið um trúarbragðasögu Flókið þróun- arferli í 3000 ár SAMSKIPTI hinnastóru eingyðistrúar-hópa jarðar, krist- inna manna, múslima og gyðinga hafa sjaldan verið stirðari heldur en síðustu misserin. Ástæðurnar hafa verið taldar flóknar og er bæði að finna í kennisetn- ingunum og afskiptum stjórnmálanna. Námskeið, sem ber heitið Frá Móse til Múhameðs og er nokkurs konar yfirlitsnámskeið í trúarbragðafræði, verður haldið næstu þrjú miðviku- dagskvöld og er fyrsti hluti þess á morgun. Leiðbein- andi og fyrirlesari á nám- skeiðinu er séra Þórhallur Heimisson sóknarprestur í Hafnarfjarðarkirkju. Morgunblaðið ræddi við Þórhall um námskeiðið. – Það er kannski upplagt að byrja á því að þú segir okkur hver það er sem heldur námskeiðið, hvar það verður og klukkan hvað … „Það er Leikmannaskóli kirkj- unnar sem gengst fyrir þessu námskeiði, það hefst annað kvöld klukkan 20 og stendur í tvo tíma. Það verður haldið þrjú næstu mið- vikudagskvöld úti í Háskóla Ís- lands.“ – Þetta er æði stór titill, hvernig verður námskeiðið byggt upp og hver verða efnistökin? „Nafnið, Frá Móse til Múham- eðs, segir nokkuð um innihaldið, en ég mun leitast við að fara í gegnum þróunarferli þessara þrennra stóru eingyðistrúar- bragða, kristni, gyðingdóms og Múhameðstrúar, eða íslams. Ég mun rekja söguna allt að 3000 ár aftur í tímann, skoða þróun þess- ara trúarbragða, bera þær saman, sjá hver gagnkvæm áhrif þær hafa hver á aðra, hvar tengslin liggja. Kastljósinu verður beint að því sem er líkt og ólíkt með þeim m.a. hugmyndum um Guð, afstöðunni til náungans og átökum þeirra í milli.“ – Átök er einmitt það sem flest- um dettur líklega til hugar þegar þessi trúarbrögð eru nefnd í sömu andránni … „Já, því miður, spenna og hatur einkennir samskipti þessara trúarbragða allt of víða og hefur gert alla tíð. Þetta er mikil sorg- arsaga deilna, krossferða, styrj- alda og ofsókna. Það er erfitt að gera söguna upp.“ – Hver er þinn bakgrunnur í þessum efnum? „Ég hef starfað sem sóknar- prestur í Hafnarfirði síðustu árin, en ég er ennfremur lærður í trúar- bragðasögu frá háskólum í Dan- mörku og Svíþjóð og auk þess að starfa sem sóknarprestur, hef ég lengi kennt trúarbragðasögu, m.a. síðustu árin við Kennaraháskóla Íslands. Samhliða náminu og kennslunni hef ég stundað rann- sóknir á trúarbragðasögu um ára- bil.“ – Maður eins og þú, sem hefur kynnt sér málið náið, sérð þú ein- hverja von í stöðunni? „Já, það geri ég, en ef maður skoðar trúar- bragðasöguna þá skín alls staðar í gegn að trúarbrögð hafa verið not- uð í pólitískum tilgangi öll þessi 3000 ár. Ef trúarbrögð og boð- skapur þeirra eru skoðuð í friði fyrir pólitíkinni þá eru sameigin- legir þættir sem tengja þau öll mjög sterkum böndum. Til dæmis náungakærleikur og umhyggja fyrir þeim sem mega sín lítils og minna og fleira í þeim dúr. Um þannig efni geta trúarbrögðin sameinast og gefið hvert öðru.“ – Hvers vegna telur þú að þess- ir hópar hafi ekki séð jafn augljósa hluti í boðskapnum? „Kannski hafa þeir ekki verið svo skýrir fyrir mönnum þar sem þeir liggja svo nálægt hver öðrum og áherslur eru mjög ólíkar. Sjáðu t.d. borgina Jerúsalem. Ekki hef- ur verið barist jafn hatrammlega um nokkra borg aðra og koma þar að allir hóparnir þrír sem um ræð- ir, kristnir, gyðingar og múslimar, sem allir eiga þar sína helgustu bletti. Það eru allir að berjast á nánast sama fermetranum.“ – Hver er tilgangurinn með svona námskeiði? „Vonin um að ástandið batni felst í því að skilningur aukist manna í millum og þá er allt sam- tal af hinu góða. Að menn gefi sér tíma til að rekja málin, kynna sér þau og tala saman um vandamál. Tilgangur þessa námskeiðs er að koma af stað samtali um þetta mikla vandamál.“ – Fyrir hverja er þetta nám- skeið? „Það er fyrir alla sem hafa áhuga á málefninu. Hér á landi eru auk kristinna manna bæði músl- imar og gyðingar og ég vonast til þess að fá sem flesta á námskeiðið og að menn mæti með opnum hug og enn- fremur að sem flest sjónarmið allra hópa verði lögð á borðið og fái ýtarlega umræðu.“ – Hvernig ætlarðu að koma efn- inu til skila? „Ég flyt fyrirlestra og síðan verða umræður. Ég hef skrifað fjórar bækur um trúarbragða- fræði sem gefnar verða út á veg- um Skálholtsútgáfunnar á næst- unni. Ein þessara bóka er helguð efni þessa námskeiðs og verður efni úr henni dreift á námskeiðinu og notað sem lesefni.“ Þórhallur Heimisson  Þórhallur Heimisson fæddist 30. júlí 1961. Hann lauk embætt- isprófi í guðfræði árið 1988 og starfaði síðan í afleysingum við Langholtskirkju í eitt ár. Trúar- bragðafræði nam hann við danska og sænska háskóla 1993 til 1996 og starfaði hann sem prestur við sænsku kirkjuna á sama tíma. 1996 var hann ráðinn sóknarprestur við Hafnarfjarð- arkirkju. Samhliða hefur hann kennt trúarbragðasögu á fram- haldsskólastiginu og haldið nám- skeið og síðustu árin hefur hann kennt trúarbragðasögu við Kennaraháskóla Íslands. Þór- hallur er giftur Ingileif Malm- berg sjúkrahúspresti og eiga þau dæturnar Dóru Erlu, Rakel og Hlín sem eru á bilinu 15 til 9 ára. … þeir liggja svo nálægt hver öðrum JÓN Krisjánsson heilbrigðisráð- herra segir að það sé kosningalykt af gagnrýni Össurar Skarphéðins- sonar, formanns Samfylkingarinn- ar, á stöðu heilbrigðismála. „Og það er greinilegt að Össur er bú- inn að velja sér andstæðinga í kosningabaráttunni,“ segir Jón. Össur vék sérstaklega að stöðu heilbrigðismála í ræðu sinni við upphaf flokksstjórnarfundar Sam- fylkingarinnar á laugardag. Sagði Össur að þau mál og ferill Fram- sóknarflokksins í þeim yrðu óhjá- kvæmilega eitt af kosningamálum vetrarins. Um þau ummæli Össurar að heilbrigðisráðherrar Framsóknar- flokksins hafi tekið ranga ákvörð- un er þeir tóku upp fastlaunakerfi í heilsugæslunni segir heilbrigð- isráðherra að fastlaunakerfinu hafi verið komið á að frumkvæði félags heilsugæslulækna eftir harða vinnudeilu árið 1996. „Þá vísuðu heilsugæslulæknar málum sínum til kjaranefndar, sem ákvað fast- launakerfið,“ segir ráðherra. „Hitt er svo annað mál að ég hef tekið undir tillögu um að losað sé um það kerfi og tekið upp blandað kerfi. Málefni heilsugæslulækna eru þó enn í höndum kjaranefndar og á ég von á að kveðinn verði upp úrskurður í þeim málum eftir mjög skamman tíma.“ Hvatvísleg ummæli Össur sagði ennfremur á flokks- stjórnarfundinum að heilbrigðis- ráðherrar Framsóknarflokksins hefðu einnig tekið ranga ákvörðun er þeir ákváðu að takmarka ekki aðgang að sérfræðilæknum. Um þessa gagnrýni segir heilbrigðis- ráðherra m.a. að unnið hafi verið að því innan ráðuneytisins að end- urskipulegja samninga við sér- fræðingana. Undir forystu forseta kjaradóms hafi verið unnið mikið starf að því að kortleggja þessi mál. „Mér finnst því þessi gagnrýni vera svolítið hvatvísleg og ekki studd mjög veigamiklum rökum,“ segir ráðherra og vísar í umrædda gagnrýni Össurar. „Það eru alltaf uppi einhver vandamál í heilbrigð- iskerfinu og þau verða þar áfram þrátt fyrir slíkar upphrópanir,“ segir ráðherra og bætir því við að vandamálin séu til að takast á við þau. „En ég hef ekki trú á að Öss- ur hafi neinar patentlausnir á þessu. Hann er að þjappa saman sínu fólki fyrir kosningarnar og það er athyglisvert að hann skuli nota þennan málaflokk til þess.“ Jón Kristjánsson um gagnrýni formanns Samfylkingarinnar Hefur valið sér andstæð- inga í kosningabaráttunni

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.