Morgunblaðið - 01.10.2002, Side 10

Morgunblaðið - 01.10.2002, Side 10
FRÉTTIR 10 ÞRIÐJUDAGUR 1. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ ÞINGFLOKKUR Samfylkingarinn- ar mun á komandi þingi leggja áherslu á þrjá málaflokka; neytend- ur, velferð fólksins og fyrirtæki, að sögn Bryndísar Hlöðversdóttur, for- manns þingflokks Samfylkingarinn- ar. Hún ásamt Rannveigu Guð- mundsdóttur og Jóhanni Ársælssyni, þingmönnum kynnti áherslumál þingflokksins á blaða- mannafundi í gær. Í máli Bryndísar kom m.a. fram að þingmenn flokksins, með Jó- hönnu Sigurðardóttur, í broddi fylk- ingar væru að undirbúa þingmál um inheimtuaðgerðir. Markmið þing- málsins væri að setja reglur um inn- heimtuaðgerðir til hagsbóta fyrir neytendur. „Það hefur verið hálfgert villta vesturs ástand í þessum efnum hér á landi; lögmönnum er gefið nánast frítt spil með það hvað þeir taka mikið í innheimtukostnað,“ sagði Bryndís. „Við viljum setja um þetta einhverjar reglur eins og tíðk- ast víða í öðrum löndum.“ Samfylkingin hyggst einnig leggja fram á Alþingi, þingsályktun- artillögu sem miðar m.a. að því að finna orsakir mismunandi matvæla- verðs á Norðurlöndunum, en eins og fram komi í skriflegu svari forsætis- ráðherra, á síðasta þingi, við fyrir- spurn Rannveigar Guðmundsdóttur, var matarverð 69% hærra hér á landi, árið 2000 en meðaltal fimmtán landa Evrópusambandsins. Rann- veig sagði á fundinum að Samfylk- ingin teldi að ekki yrði undan því vikist að greina orsakir þessa verð- munar svo unnt yrði að eyða honum og jafna lífskjör. Bryndís kvaðst velta því fyrir sér í þessu sambandi hvort aðild Íslands að ESB gæti haft einhver áhrif í þá átt að jafna lífs- kjör. Þá kom fram á fundinum að þing- flokkurinn hygðist leggja fram til- lögu til þingsályktunar um að Hag- stofa Íslands léti reglulega bera saman matvælaverð á Íslandi við matvælaverð á hinum Norðurlönd- um og í Evrópusambandinu. Virðisaukaskattur felldur niður af nauðsynjavörum Í máli Bryndísar kom jafnframt fram að hún væri að undirbúa þings- ályktunartillögu um að ríkisstjórn- inni yrði falið að kanna möguleika á því að fella niður virðisaukaskatt á nauðsynjavörum barna. „Við teljum mikilvægt að skoða þetta sem lið í því að auðvelda barnafólki fram- færslubyrðina,“ útskýrði Bryndís. Þá er hún að undirbúa tillögu um að leitað verði orsaka á því að vaxta- munurinn hefði verið meira en helm- ingi meiri á Íslandi en í Evrópu, all- an síðasta áratug, samkvæmt úttekt Samtaka iðnaðarins. „Við viljum grafast fyrir um orsakir í þessum efnum og finna síðan leiðir til úr- bóta,“ sagði Bryndís. Þingflokkurinn hyggst einnig leggja fram á þinginu tillögu um skattfrelsi lágtekjufólks og tillögu um aðgerðir gegn ójafnvægi í byggðamálum, svo fleiri dæmi séu nefnd. Fyrsti flutningsmaður síðar- nefndu tillögunnar er Jóhann Ár- sælsson, en í meginefni hennar er lagt til að Alþingi álykti að fela rík- isstjórninni að leggja fyrir Alþingi aðgerðaáætlun sem hefur það að markmiði að draga úr fyrirsjáanlegu ójafnvægi í byggðamálum. Er með ójafnvægi verið að vísa til fyrirhug- aðra álversframkvæmda á Aust- fjörðum. Í greinargerð tillögunnar segir m.a. að það sé ekki sjálfsagt mál að „allir þeir gríðarlegu fjár- munir sem nú stefnir í að fáist fyrir sölu ríkiseigna fari í samgöngu- mannvirki á einu landsvæði.“ Síðan segir: „Þá (fjármunina) má líka nota annars staðar og þá má ekki síður nota í menntamál en samgöngumál.“ Áhersla verður lögð á heilbrigðisþjónustuna Þingflokkur Samfylkingarinnar hyggst aukinheldur leggja fram á þingi stefnumótun um bætt starfs- skilyrði smáfyrirtækja, en í máli Bryndísar kom fram að nú væri að störfum starfshópur á vegum flokks- ins sem ynni að því að leggja fram tillögur í þessum efnum í lok októ- ber. „Starfshópurinn hefur m.a. það hlutverk að finna leiðir til að ýta undir nýsköpun og frumkvæði í at- vinnulífinu,“ sagði Bryndís. Á blaðamannafundinum í gær kom einnig fram að Samfylkingin hygðist leggja mikla áherslu á mál- efni heilbrigðisþjónustunnar. Ítrek- uð verður beiðni Samfylkingar, frá árinu 2000, um úttekt á umfangi, þróun og rekstri heilbrigðiskerfis- ins, ásamt því að fá samanburð á þjónustu dvalar- og hjúkrunarheim- ila og úttekt á greiðslum til þeirra. Að lokum kom einnig fram í máli Bryndísar að þingflokkurinn myndi leggja fram á þingi eldri þingmál, s.s. þingmál um stjórn fiskveiða, um ábyrgðarmenn og íbúalýðræði. Þingflokkur Samfylkingarinnar kynnir áherslumál sín á komandi þingi Reglur verði settar um innheimtuaðgerðir ÞINGFLOKKUR Vinstrihreyfing- arinnar-græns framboðs hefur und- irbúið tugi þingmála, en leggur fram 10 þingmál þegar Alþingi hefst að nýju í dag, að sögn Ögmundar Jón- assonar, formanns þingflokks VG. Á komandi þingi leggur þingflokk- ur VG áherslu á atvinnu- og velferð- armál, kvenfrelsismál, umhverfis- og náttúruvernd auk þess sem hann mun beita sér í utanríkismálum, en Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG og fulltrúi þingflokksins í utan- ríkismálanefnd Alþingis, ritaði í gær formanni nefndarinnar bréf þar sem hann óskaði eftir fundi í nefndinni til að ræða afstöðu Íslands til yfirvof- andi árása á Írak. Ögmundur segir að unnið hafi ver- ið að undirbúningi fjölmargra þing- mála í sumar auk þess sem þingflokk- urinn hafi óskað eftir utandagskrárumræðum um fjögur mál; velferð barna og unglinga, nið- urstöður heimsþings SÞ í Jóhannes- arborg um sjálfbæra þróun, afstöðu ríkisstjórnar Íslands til yfirvofandi árása á Írak og velferðarþjónustuna með sérstakri áherslu á málefni aldr- aðra og húsnæðismál. Frumvarp til laga um breytingar á lögum um viðskiptabanka og spari- sjóði og níu tillögur til þingsályktun- ar eru í forgangshópnum. Tillögurn- ar eru um að einkavæðingarnefnd verði leyst frá störfum, um verndun íslenska rjúpnastofnsins, um stuðn- ing við smá og meðalstór fyrirtæki, um bætt starfsumhverfi fyrir kvennahreyfinguna á Íslandi, um umbætur í velferðarmálum og þróun velferðarþjónustunnar, um uppbygg- ingu sjúkrahótela, um uppbyggingu endurhæfingarrýma við FSA, um stækkun friðlands í Þjórsárverum og tillaga til þingsályktunar um úttekt á verðmyndun á innfluttu sementi. Varðandi tillöguna um einkavæð- ingarnefnd segir Ögmundur að þing- flokkurinn leggi til að frekari áform- um um einkavæðingu verði slegið á frest þar til ríkisendurskoðun hafi lokið yfirferð sinni á einkavæðingar- ferlinu í samræmi við óskir þing- flokks VG frá því í byrjun árs. Varðandi frumvarp til laga um við- skiptabanka og sparisjóði segir Ög- mundur að þingflokkurinn leggi til að einvörðungu verði heimilt að greiða stofnfjáreigendum nafnverð stofn- fjárbréfa uppfært samkvæmt verð- lagi. Einnig verði heimildarákvæði um hlutafjárvæðingu sparisjóðanna afnumið í lögunum og öll þessi mál tekin til gagngerrar endurskoðunar. Kolbrún Halldórsdóttir, þingmað- ur VG, segir að tillaga um stuðning við smá og meðalstór fyrirtæki sé lögð fram gegn stóriðjustefnu ríkis- stjórnarinnar. Stóriðjustefnan kosti íslenskt þjóðarbú gífurlega mikla fjármuni en þeim fjármunum sé mun betur varið í annars konar uppbygg- ingu og samfara nýju þingmáli verði endurflutt tillaga um sjálfbæra at- vinnustefnu. Ögmundur segir að þingflokkurinn hafi talið á sínum tíma og telji enn að það hefði verið heppilegt og skyn- samlegt fyrir Íslendinga að sækja um undanþágu frá Evróputilskipuninni um breytingar á raforkubúskapnum, á skipulagi raforkuframleiðslunnar. Nú heyrist úr stjórnarherbúðunum að rétt sé að gera þetta. Raforkumálin mikilvæg Kolbrún segir að þingmenn flokks- ins komi til með að beita sér mikið í umræðunni um raforkumál og vilji fá það á hreint að almenningsveiturnar greiði ekki niður orku til stóriðju. Orkuverð til stóriðju sé leyndarmál en flokkurinn hafi mótmælt þessari leynd og telji nauðsynlegt að sjá allar tölur í þessu sambandi til að tryggja að farið sé að lögum. Hún segir að VG telji það vera efnahagslega arðbært fyrir þjóðarbúið ef Landsvirkjun greiddi upp allar sínar skuldir á 16 árum frekar en að fara í auknar fram- kvæmdir. Þuríður Backman, varaformaður þingflokksins, segir að þar með sé ekki sagt að ekki megi virkja en á um- ræddu tímabili verði frekar litið til innanlandsmarkaðarins og stóriðju sem sé fyrir hendi og það myndi muna miklu fyrir fyrirtækin og heim- ilin í landinu að fá raforkuna á lægra verði. Heilbrigðis- og velferðarmálin verða í hávegum höfð hjá þingflokkn- um, að sögn Þuríðar. Þar sem áherslur og ákvarðanir hafi ekki ver- ið réttar í heilbrigðismálum ríki alger upplausn í þessum málaflokki. Rekst- ur stóru sjúkrahúsanna hafi verið erfiður fjárhagslega og faglega og fjórðungssjúkrahús úti á landi séu ekki betur sett. Brýnt sé að finna lausn á skipulagi heilsugæslunnar og kjaramálum lækna en í óefni stefni nú á haustdögum. Öldrunarþjónust- an þurfi einnig aukið fjármagn. VG leggur fram 10 mál í þingbyrjun RÚMLEGA 3.700 gestir sóttu heim Alþingishúsið og nýjan þjón- ustuskála Alþingis á laugardaginn, en þá var opið hús í þessum bygg- ingum frá kl. tíu til fjögur. Friðrik Ólafsson, skrifstofustjóri Alþingis, segir að dagurinn hafi verið mjög vel heppnaður. „Við urðum þess áskynja að fólk var ánægt og leist mjög vel á nýja þjónustuskálann,“ segir hann. Fólki fannst einnig, að sögn Friðriks, að nýi skálinn pass- aði vel við Alþingishúsið. Starfsfólk Alþingis var á staðn- um og leiðbeindi gestum og veitti þeim upplýsingar um húsakynni þingsins. „Það var mikið spurt enda höfðu margir eflaust ekki komið áð- ur á Alþingi. Við munum örugglega hafa opið hús oftar,“ sagði Friðrik. Morgunblaðið/Kristinn Fjölmenni heimsótti nýjan þjónustuskála um helgina. Halldór Blöndal þingforseti fræddi gesti. Fjöl- menni heimsótti Alþingi ALÞINGI Íslendinga, 128. löggjaf- arþing, verður sett í dag, þriðjudag, en þingsetningarathöfnin hefst með guðsþjónustu í Dómkirkjunni kl. 13.30. Þingið verður óvenju stutt að þessu sinni vegna þingkosninganna 10. maí nk. Miðað er við að þingfrest- un verði um miðjan mars nk. Fjárlagafrumvarpinu verður út- býtt kl. 16 í dag en stefnt er að því að fyrsta umræða um frumvarpið fari fram á föstudag. Þá er gert ráð fyrir því að Davíð Oddsson forsætisráð- herra flytji stefnuræðu sína á Al- þingi annað kvöld kl. 19.50. Sýnt verður beint í Sjónvarpinu frá stefnuræðunni og umræðunum sem fylgja á eftir. Stefnuræða forsætis- ráðherra annað kvöld Alþingi sett í dag FYLGI Samfylkingarinnar mælist nú í fyrsta sinn meira en í kosn- ingunum árið 1999 en fylgi flokks- ins var þá 26,8% en mældist tæp 29% í símakönnun Gallup sem gerð var dagana 29. ágúst til 25. september. Fylgi Sjálfstæðisflokksins í könnuninni var tæplega 38% og hefur ekki verið minna frá því júní í fyrra en það var 40,7% í kosning- unum 1999. Fylgi Framsóknar- flokks mælist liðlega 17% en var 18,4% í kosningunum og fylgi Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs mælist nú rúmlega 14% en var 9,1% í síðustu kosningum. Fylgi Frjálslynda flokksins mælist nú vera 1% en var 4,2% árið 1999. Ríkisstjórnin nýtur nú fylgis 58% en stuðningurinn var 63% í síðustu könnun. Tekið skal fram að rúmur fimmtungur vissi ekki eða neitaði að gefa upp hvað hann myndi kjósa og tæp 6% söguðust myndu skila auðu eða kjósa ekki. Úrtak könnunar Gallup var 2.476 manns á aldrinum 18 til 75 ára. Svarhlutfall var tæplega 70% en vikmörk í könnuninni eru 1 til 3%. Samfylk- ingin með meira fylgi en í kosn- ingum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.