Morgunblaðið - 01.10.2002, Page 14

Morgunblaðið - 01.10.2002, Page 14
AKUREYRI 14 ÞRIÐJUDAGUR 1. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ Hægt er a› skrá sig á siminn.is e›a senda póst á netfang: radstefna@siminn.is. Einnig er hægt a› hringja í síma 800 4000. Skráningar flurfa a› hafa borist fyrir hádegi 2. október. Skrá›u flig núna, takmarka› sætaframbo›. Enginn a›gangseyrir. Síminn stendur fyrir rá›stefnu 3. október undir yfirskriftinni Í snertingu vi› GSM. Kynntar ver›a farsímalausnir sem auka verulega notagildi farsíma; n‡jungar sem gera fyrirtækjum kleift a› auka hagræ›i í rekstri og styrkja samskiptanet sín, bæ›i innbyr›is og gagnvart vi›skiptavinum. Einnig ver›a kynntar framtí›arhorfur farsíma-og fjarskiptamála. Markmi›i› er a› kynna hvernig fyrirtæki geta hagn‡tt sér farsíma- lausnir dags daglega en ekki a› kafa djúpt í tæknilegar undirstö›ur fleirra. Bo›i› ver›ur upp á laufléttar veitingar a› rá›stefnu lokinni. Rá›gjafar frá fyrirtækjalausnum Símans ver›a á sta›num og a›sto›a vi› uppsetningu á GSM-símum, t.d. fyrir GPRS og WAP, og svara spurningum flátttakenda. Dagskrá rá›stefnunnar er a› finna á siminn.is. N O N N I O G M A N N I I Y D D A • N M 0 7 4 2 7 • s ia .i s Ferskir straumar í GSM- samskiptum fyrirtækja Rá›stefna á vegum Símans 3. október 2002 kl. 15.00–17.00 í húsi Leikfélags Akureyrar. www.islandia.is/~heilsuhorn Hver tafla inniheldur yfir 1 milljarð L-Bulgaris, L-Acidophilus og L-Bifidus. PÓSTSENDUM Glerártorgi, Akureyri, sími 462 1889. Fæst m.a. í Lífsins lind í Hagkaupum, Árnesapóteki, Selfossi og Yggdrasil, Kárastíg 1. Nauðsynlegt fyrir góða meltingu Fulltrúakjör Kjör fulltrúa Sjómannafélags Eyjafjarðar á ársfund ASÍ, sem haldinn verður 31. október og 1. nóvember 2002 í Reykjavík og kjör fulltrúa á 23. þing SSÍ sem haldið verður 14. og 15. nóvember 2002, einnig í Reykjavík, fer fram að viðhafðri allsherjaratkvæðagreiðslu. Framboðslistum til ársfundar ASÍ með nöfnum tveggja aðalfulltrúa og tveggja til vara og framboðslistum til þings SSÍ með sex aðalfulltrúum og sex til vara skal skila til skrifstofu félagsins, Skipagötu 14, Akureyri, eigi síðar en kl. 16.00 þriðjudaginn 8. október nk. Hverjum framboðslista skal fylgja meðmæli 52 fullgildra félaga. Akureyri, 30. september 2002 Stjórn Sjómannafélags Eyjafjarðar LEIKARAR í leiksýningunni Haml- et brugðu sér á hestbak fyrir sér- staka hátíðarsýningu á verkinu hjá Leikfélagi Akureyrar á laug- ardagskvöld. Tilefnið var margfalt afmæli, þess var minnst að Leik- félag Akureyrar er 85 ára, Ak- ureyrarbær 140 ára og 400 ár eru frá því William Shakespeare skrif- aði þetta frægasta verk leik- bókmenntanna. Fóru leikarar af þessu tilefni ríðandi frá Samkomu- húsinu, eftir Drottningarbraut, Strandgötu og göngugötunni í Hafnarstræti að Samkomuhúsinu þar sem þeim var við komuna ákaft fagnað af áhorfendum og fleira fólki sem fylgdist með. Frumsýning var á föstudagskvöld og hátíðarsýn- ingin á laugardag, en Hamlet verð- ur svo sýndur í Samkomuhúsinu um komandi helgi. Þá verða sýningar tvær næstu helgar en alls eru fyr- irhugaðar sex sýningar á verkinu. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Sigurður Þ. Líndal og Arnbjörg Valsdóttir leggja af stað í reiðtúrinn. Komu ríðandi á hátíðarsýningu á Hamlet Aðalfundur Haldinn verður aðal- fundur Tónlistarfélagsins á Ak- ureyri verður haldinn í sal Tónlist- arskólans annað kvöld, miðviku- dagskvöldið 2. október, kl. 20.30. Á fundinum verður m.a. fjallað um framtíð félagsins og tillögur að breyttu rekstrar- og starfsfyr- irkomulagi lagðar fram sem grund- völlur umræðna um það málefni. Tónlistarfélagið á Akureyri var stofnað árið 1943 og er því ein elsta menningarstofnun sinnar teg- undar sem enn starfar á landinu. Nýhafið starfsár er það 59. í röð- inni þannig að senn líður að merk- um tímamótum í starfinu. Breyttar aðstæður til tónleika- halds á síðustu áratugum hafa m.a. orðið til þess að mjög hefur hallað undan fæti í rekstri félagsins síð- ustu ár. Aðalfundurinn er því mik- ilvægur vettvangur fyrir fé- lagsmenn til að tjá hug sinn um hvaða stefnu beri að taka varðandi framtíð félagsins, segir í tilkynn- ingu. Á MORGUN YNGVI, kenndur við Hafnarbúðina, Loftsson hefur rekið verslun á sama stað við Skipagötu á Akureyri í tæp- an aldarfjórðung. Byrjaði í verslun- arrekstri strax eftir stúdentspróf frá Menntaskólanum á Akureyri 1957 þegar hann opnaði Ferðanesti gegnt Akureyrarflugvelli, en síðar var Hafnarbúin opnuð og um tíma voru útibú rekin á Hjalteyri og við Græn- umýri á Akureyri. „Ég svona flækt- ist inn í þetta, hafði ekki efni á að halda áfram námi. Ég hef haft gam- an af þessu, þetta er líflegt og gef- andi starf, ég myndi hiklaust velja verslunarstarfið aftur gæfist mér kostur á því,“ segir Yngvi. Hin síðari ár hefur hann einkum verslað með víngerðarefni, „og það er dúndursala,“ segir hann, „þetta er víst betra en í ríkinu.“ Auk þess þjónustar hann starfsfólk í miðbæ Akureyrar með nauðsynjavörur. „Yngvi er síðasti faktorinn í bæn- um,“ segir Egill Egilsson sem leit inn í verslunina í gærmorgun, hefur enda verið fastagestur frá ’58 að eig- in sögn. Það er engin lognmolla í þessari litlu verslun í miðbænum og fasta- gestirnir eru margir. „Hér í eina tíð voru bæjarstjórnarfundir eiginlega haldnir hér í búðinni, þeir komu hérna við fulltrúarnir, allra flokka kvikindi, og fóru yfir málin. Það var verst að maður seldi svo lítið á með- an þeir voru að rífast,“ segir Yngvi. Rekstur Hafnarbúðarinnar gekk ljómandi vel fyrstu áratugina, en með tilkomu stórmarkaða í bænum um miðjan níunda áratuginn breytt- ist verslunarmynstrið og þá fór að halla undan fæti. „Fólkið hætti mikið til að kaupa dagvörurnar hér og flutti sig yfir í stórmarkaði,“ segir Yngvi. Verslunin hafði líka verið nokkurs konar félagsmálastofnun til fjölda ára, þeir sem fáa aura áttu í budd- unni áttu vísa úttekt í Hafnarbúðinni og var þolinmæði Yngva þegar að skuldadögum kom viðbrugðið. „Mað- ur hefði auðvitað átt að hætta að skrifa þarna í óðaverðbólgunni, 1.000 kallinn hafði kannski hrapað niður um 300 kall þegar hann var borgaður þremur mánuðum seinna,“ segir Yngvi sem fór flatt á þessari góð- gerðarstarfsemi sem og tilkomu stórmarkaða. „Fór bara á hausinn,“ segir hann og missti þrjár húseignir í kjölfarið. „Ég byrjaði svo fljótlega aftur, með minna en ekki neitt, á nýrri kennitölu.“ Eftir það hefur verslunin heitið Hólabúðin. Yngvi verður sjötugur í næsta mánuði og segist verða innanbúðar í Hólabúðinni næstu 20 árin. „Maður fer svo að hægja á ferðinni eftir það, verður kannski bara með opið hálfan daginn.“ Enginn bilbugur á síðasta kaupmanninum á horninu Byrjaði með tvær hendur meira en tómar Morgunblaðið/Kristján Starf kaupmannsins er líflegt og gefandi, segir Yngvi Loftsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.