Morgunblaðið - 01.10.2002, Side 18
SUÐURNES
18 ÞRIÐJUDAGUR 1. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Einföld, þægileg, hnéstýrð
blöndunartæki.
Þar sem ýtrasta hreinlætis
er gætt.
Hagstætt verð.
26. sept.-3. okt. „YKKAR ÆFING - ALLRA ÖRYGGI“
Sjómenn! Í dag höldum við æfingar um borð í skipum okkar!
Tilkynnið þátttöku að æfingu lokinni til Siglingastofnunar Íslands!
GENGIÐ hefur verið frá samkomu-
lagi milli Reykjanesbæjar og
Íþróttabandalags Reykjanesbæjar
um ráðstöfun sjö milljóna króna
fjárframlags sem Reykjanesbær
ákvað að greiða vegna íþróttaþjálf-
unar barna tólf ára og yngri á árinu.
Samningurinn var undirritaður af
Gunnari Oddssyni, formanni Tóm-
stunda- og íþróttaráðs Reykjanes-
bæjar, og Jóhanni B. Magnússyni,
formanni Íþróttabandalags Reykja-
nesbæjar (ÍRB).
Tómstunda- og íþróttaráð fól
ÍRB að leggja fram viðmiðunar-
reglur um úthlutun þjálfarastyrkj-
anna. Öll félög og deildir íþrótta-
bandalagsins fóru í saumana á
starfsemi sinni og markmiðum af
þessu tilefni og niðurstaðan birtist í
gæðahandbók sem þau hafa skilað.
Til hliðsjónar var haft stefnumið
ÍRB um „betra félag – betri deild“
sem tekur mið af stefnumörkun
Íþróttasambands Íslands um „fyr-
irmyndarfélag – fyrirmyndardeild“.
Vel menntaðir og
reyndir þjálfarar
Jóhann Magnússon segir að þessi
vinna hafi leitt í ljós að frábært
starf væri unnið á þessum vett-
vangi, aðeins hafi verið eftir að
setja það niður á blað. Meðal annars
nefnir hann að komið hafi í ljós að
þjálfarar barna 12 ára og yngri
væru nær undantekningarlaust vel
menntaðir og reyndir, en það var
einmitt eitt af skilyrðum Reykja-
nesbæjar fyrir úthlutun styrkj-
anna. Þar sem eitthvað vantaði upp
á menntunina væri gerð áætlun um
hvernig úr því yrði bætt.
Nærri því eitt þúsund börn 12 ára
og yngri æfa íþróttir í Reykja-
nesbæ. Er það hátt hlutfall, að sögn
Jóhanns. Við skiptingu fjárveiting-
arinnar er tekið tillit til starfstíma
og fjölda iðkenda á þessum aldri.
Tólf félög og deildir fá stuðning til
þjálfunar barna. Hæsti styrkurinn
kemur í hlut knattspyrnudeildar
Keflavíkur, liðlega 1500 þúsund kr.
Næst á eftir koma fimleikadeild
Keflavíkur með tæpa milljón,
körfuknattleiksdeild Keflavíkur
með liðlega 800 þúsund, Knatt-
spyrnudeild Njarðvíkur sem fær
766 þúsund og körfuknattleiksdeild
Njarðvíkur með liðlega 600 þúsund
kr.
Jóhann tekur fram að greiðslan
frá Reykjanesbæ dugi fyrir tæpum
helmingi þjálfunarkostnaðar. Og
þótt innheimtum æfingagjöldum sé
bætt við vantar enn upp á tekjur.
Segir Jóhann að styrkirnir komi sér
eigi að síður afar vel og minnki þörf
stjórnarmanna deildanna á fjáröfl-
un.
Jóhann lýsir þeirri skoðun sinni
að næsta skrefið ætti að vera að
skoða yngriflokkastarf félaganna í
heild. Margir hætti íþróttaiðkun
eftir tólf ára aldur og þörf væri á að
styðja þjálfun táninga, eins og
barna. Hvetur hann bæjaryfirvöld
til að huga að því í framhaldinu.
Samkomulag
um úthlutun
þjálfunarstyrkja
Ljósmynd/Víkurfréttir
Jóhann B. Magnússon, formaður íþróttabandalagsins, og Gunnar Odds-
son, formaður TÍR, skrifa undir samning um stuðning við þjálfun barna.
Reykjanesbær
STJÓRN Hitaveitu Suðurnesja hef-
ur ákveðið að láta bora nýja rann-
sóknarholu á háhitasvæðinu á
Reykjanesi og verður það tólfta
borholan á svæðinu. Holan er boruð
til undirbúnings virkjunar vegna
orkuöflunar fyrir stækkun álvers
Norðuráls.
Hitaveita Suðurnesja hefur verið
að undirbúa gufuaflsvirkjun á há-
hitasvæðinu á Reykjanesi með bor-
un rannsóknaholna. Virkjunin
myndi framleiða rafmagn til að nota
í álveri Norðuráls á Grundartanga,
sem fyrirhugað er að stækka, ásamt
orku frá Landsvirkjun og Orkuveitu
Reykjavíkur. Hola 11 var boruð fyrr
á þessu ári og hleypt upp um miðj-
an septembermánuð. Kom hún vel
út.
Þrátt fyrir óvissu með orkuöflun
Landsvirkjunar, vegna deilna um
Norðlingaölduveitu, heldur Hita-
veita Suðurnesja rannsóknum sín-
um áfram og er hola 12 sem fyr-
irhugað er að hefja borun á síðar í
þessum mánuði liður í því. Júlíus
Jónsson forstjóri segir að það komi
að því að svæðið verði virkjað,
spurningin sé hvenær en ekki hvort.
Auk borunar er unnið að mati á
stærðarhagkvæmni virkjunarkosta,
kostnaðaráætlunum, rannsóknum á
jarðhitavökvanum, heppilegustu
fjármögnunarleiðum og fleiru. Von-
ast er til að svör við stærstu spurn-
ingunum liggi fyrir um áramót svo
þá verði hægt að taka vel grundaða
ákvörðun um virkjun með skömm-
um fyrirvara og ráðast fljótt í fram-
kvæmdir. Júlíus segir að fyrirtækið
hafi lýst því yfir að það geti afhent
raforkuna þremur árum eftir að
ákvörðun er tekin en vonast til að
hægt verði að stytta þann tíma með
góðum undirbúningi.
Ákveðið
að bora
holu 12
Reykjanes
Áfram unnið að
undirbúningi virkjunar
á Reykjanesi
„ÉG geri þetta til að losna við
viðhald hússins. Það er alltaf að
koma eitthvað upp og ég er orð-
inn þreyttur á því,“ segir Sæþór
Þorláksson sem flytur ásamt konu
sinni, Fjólu Díu Einarsdóttur, inn
í eina af sex íbúðum sem Búmenn
hafa afhent í Grindavík. Eru
þetta fyrstu íbúðirnar sem Bú-
menn láta byggja í Grindavík.
Húsnæðissamvinnufélagið Bú-
menn er fyrir fólk fimmtíu ára og
eldra. Það er með marga fé-
lagsmenn á Suðurnesjum og hef-
ur áður byggt íbúðir í Garði og
Sandgerði. Íbúarnir greiða 10%
eða 30% af byggingarkostnaði en
Búmenn taka hinn hluta kostn-
aðarins að láni. Íbúarnir greiða
síðan mánaðarlegt gjald og eru
öll gjöld og viðhald innifalin í því.
Sæþór segir að vaxandi áhugi
sé á þessu fyrirkomulagi í
Grindavík. Enn sé fólk að hringja
til að spyrjast fyrir, en Sæþór er
einmitt í stjórn Suðurnesjadeildar
Búmanna.
Íbúðirnar sex eru í þremur par-
húsum við Skipastíg, í fallegu
hraunlandslagi efst í bænum. Tré-
smiðjan Grindin hf. byggði húsin
og er fyrirtækið byrjað á fjórum
íbúðum til viðbótar sem ganga til
Búmanna þegar lánsloforð fást
hjá Íbúðalánasjóði.
Sæþór er sextugur og sagðist
ekki vera maður til að standa í
viðhaldi eigin íbúðarhúss lengur.
Taldi hann að það sjónarmið væri
ríkjandi hjá fólkinu sem sækist
eftir að komast að hjá Búmönn-
um. Þarna kæmist fólk í nýjar og
huggulegar íbúðir og losnaði við
áhyggjurnar.
Sæþór og Fjóla hafa búið í ein-
býlishúsi á góðum stað í Grinda-
vík í fimmtán ár og sagði hann að
vissulega væri ákveðin eftirsjá að
því, sérstaklega garðinum, sem
væri orðinn fallegur. En fólk sæi
alltaf eftir einhverju þegar það
flytti og nefndi sem dæmi að
hann hefði saknað ýmislegs úr
foreldrahúsum þegar hann fór
sjálfur að búa, þá kominn á fimm-
tugsaldur.
Sæþór vinnur í loðnubræðslunni
í Grindavík og er þekktur sem
réttastjóri í Þórkötlustaðarétt.
Hann sagðist vera með fáar kind-
ur. Keypti hey og væri í félagi
með systkinum sínum og fleirum
um daglega umhirðu þess. „Þetta
er svo sem ekki fundið fé en við
höfum gaman af búskapnum enda
búin að vera í þessu síðan við vor-
um krakkar,“ segir Sæþór.
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Fjóla Día Einarsdóttir og Sæþór Þorláksson eru ánægð með nýja heim-
ilið í hrauninu. Þau segja að húsið sé huggulegt og þægilegt.
Hinir nýju Búmenn í Grindavík fyrir framan eitt af nýju húsunum við Skipastíg ásamt Magnúsi Guðmundssyni, verktaka hjá Grindinni hf.
Orðinn
þreyttur
á við-
haldi
hússins
Grindavík
Viltu léttast
núna
Símar 557 5446 og 891 8902