Morgunblaðið - 01.10.2002, Side 20
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
20 ÞRIÐJUDAGUR 1. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Leiðsögunám
Hnitmiðað og skemmtilegt nám fyrir þá, sem vilja kynnast
Íslandi í máli og myndum. Námið er opið öllum þeim, sem
áhuga hafa á að læra hvernig standa skal að leiðsögn erlendra
ferðamanna á ferð um Ísland.
Stuðst er við námsskrá menntmálaráðuneytisins um
viðurkennt leiðsögunám.
Helstu námsgreinar:
Ferðalandafræði Íslands. Helstu viðkomustaðir ferðamanna
í máli og myndum.
Saga landsins, atvinnuvegir, stjórnmál, bókmenntir
og listir.
Mannleg samskipti og hópasálfræði.
Skipulagðar ferðir, afþreyingaferðir og margt fleira.
Leiðbeinendur eru þaulvanir leiðsögumenn og sérfræðingar á
hinum ýmsu sviðum.
Kennt er 3 kvöld í viku, en auk þess er farið í vettvangsferðir á
laugardögum.
Bíldshöfða 18, sími 567 1466
Opið til kl. 22:00
BAUGUR-Ísland hefur fært út kví-
arnar, en fyrirtækið hefur opnað
nýja Debenhams-verslun í stærstu
verslunargötu Stokkhólms. For-
svarsmenn verslunarinnar fögnuðu
opnuninni með pompi og pragt í gær,
og svo virðist sem íbúum Stokk-
hólms lítist vel á þessa bresk-ís-
lensku viðbót í verslunarlíf borgar-
innar. Sjálfir keppinautarnir í
götunni bjóða Debenhams velkomna
í hópinn.
Åke Hellqvist á mikið verk fyrir
höndum, og viðurkennir það fúslega.
Á næstu mánuðum þarf hann að laða
íbúa Stokkhólms að nýju Deben-
hams-versluninni á Drottningar-
götu. Þeir hljóta að teljast hagvanir í
gamalgrónu stórverslununum sem
eru fyrir í götunni, því Debenhams
er fyrsta stórverslunin sem er opnuð
í Stokkhólmi í 98 ár.
„Mér líður eins og ég þurfi að
ganga tvisvar sinnum á Everest-
fjall,“ segir Hellqvist, sem hefur ver-
ið ráðinn verslunarstjóri nýju versl-
unarinnar. „Búðin er tilbúin eftir
margra mánaða undirbúning og við
erum komin á tindinn. Á morgun
verðum við allt í einu komin aftur
niður á jafnsléttu og þurfum að berj-
ast alla leiðina upp að nýju. Við eig-
um nefnilega eftir að ávinna okkur
traust viðskiptavina okkar og fá
verslunina til að verða arðvænlega.“
Hann kveðst þó bjartsýnn á að
verkefnið takist, þótt það geti tekið
nokkurn tíma að laða stóran og stöð-
ugan hóp viðskiptavina að verslun-
inni. „Mér skilst að það hafi tekið
meira en ár fyrir Debenhams-versl-
unina á Íslandi að komast á réttan
kjöl, en það tókst,“ segir hann. „Hér
í Drottningargötu eiga 65.000 manns
leið framhjá búðinni okkar á hverj-
um degi. Það eru næstum því jafn-
margir og búa í Reykjavík, þannig að
ég er ekki í nokkrum vafa um að við
berum erindi sem erfiði.“
Vegfarendur um Drottningargötu
virtust á sama máli og sýndu Deben-
hams mikinn áhuga í gær, þótt enn
væri búðin óopnuð. Margir námu
staðar fyrir utan og virtu starfsfólkið
fyrir sér inn um gluggana, þar sem
það flýtti sér að leggja lokahönd á
undirbúninginn.
„Við hlökkum mikið til þess að
verslunin verði opnuð,“ sagði Ingrid
Ström, sem átti leið hjá versluninni
ásamt samstarfskonum sínum, og
gægðist inn um gluggana. „Hér hafa
verið framkvæmdir í mörg ár og hús-
næðið staðið autt, og svo kemur allt í
einu glæný búð.“ Hún kvaðst aldrei
hafa heyrt um Debenhams áður, en
sagðist ætla að líta þangað inn áður
en langt um liði.
„Svíþjóð aldrei söm eftir þetta“
Baugur-Ísland á réttinn að Deb-
enhams-verslununum á Norðurlönd-
unum, sem nú eru tvær; í Smáranum
í Kópavogi og í Stokkhólmi. Keðjan
er þó upprunnin í Bretlandi og lang-
sterkust fyrir þar, því af 107 Deben-
hams-verslunum í heiminum eru 97
starfræktar í heimalandinu. For-
svarsmenn verslunarinnar eru stolt-
ir af uppruna hennar, og um gjör-
vallan Stokkhólm er
Debenhams-verslunin auglýst með
myndum af erkisænskum trékloss-
um og prjónavettlingum í bresku
fánalitunum: „Svíþjóð verður aldrei
söm eftir þetta,“ er yfirskriftin á
ensku.
Það var þó ekki upphaflega hug-
myndin. Svíarnir vildu í fyrstu aug-
lýsa verslunina með myndum af
nöktum manni á hlaupum yfir fót-
boltavöll, en það er sagt brenna við á
enskum fótboltaleikjum þegar
stuðningsmönnum liðanna hitnar um
of í hamsi. Hugmyndin mun ekki
hafa fallið í kramið hjá ímyndarsmið-
um Debenhams í Bretlandi og var
slegin af.
Kostnaður nærri
einn milljarður
Belinda Earl, forstjóri Deben-
hams Plc. í Bretlandi, tók til máls við
opnunina og bauð Stokkhólmsversl-
unina velkomna í stórfjölskylduna.
Hún teygir anga sína víða, því Deb-
enhams áformar að opna verslanir í
Miðausturlöndum, Ungverjalandi,
Tékklandi og Indónesíu.
„Þetta eru mikil tímamót fyrir
Debenhams,“ sagði hún síðar. „Þetta
er stærsta Debenhams-verslunin
sem er opnuð utan Bretlands, og er
til marks um það að við rekum fyrsta
flokks stórverslunarkeðju.“
Jón Ásgeir Jóhannesson, stjórnar-
formaður Baugs, kvaðst ánægður
með áfangann. „Það er góð tilfinning
að opna verslunina, enda búin að
vera mikil vinna,“ sagði hann og
kvaðst hvergi banginn um framtíð
fyrirtækisins í Stokkhólmi. „Þetta er
öðruvísi stíll en gengur og gerist hér,
og frískar áreiðanlega upp á mark-
aðinn.“
Spurður að því hvernig hann teldi
að Svíar brygðust við breskum
merkjum og stíl Debenhams, sagði
Jón Ásgeir það ævinlega nákvæmn-
isverk að laga vöruframboð að
smekk viðskiptavinanna.
„Það kemur í ljós með tímanum
hvernig til tekst,“ sagði hann. „Við
höfum líka brugðist við með því að
hafa talsvert af skandinavískum
merkjum á boðstólum, og eigum ekki
von á öðru en að okkur verði vel tek-
ið.“
Jón Ásgeir sagði kostnaðinn við
verslunina liggja nærri einum millj-
arði íslenskra króna. „Ég hef sagt að
verslunin kosti um það bil á við hálf-
an skuttogara,“ sagði hann.
Útþenslu á Norðurlöndum
ekki lokið
Debenhams-verslunin í Stokk-
hólmi er um 9.500 fermetrar. Þar af
eru 7.500 fermetrar nýttir undir
sjálfa verslunina, en afgangurinn
fyrir geymslur og skrifstofur. Versl-
unin er því um tvöfalt stærri en sú í
Smáranum.
Húsnæðið á sér ákaflega virðuleg-
ar rætur og hýsti áður sænska póst-
inn. Hann hélt á vit nýtískulegri að-
stæðna annars staðar í borginni fyrir
nokkrum árum, en byggingin sat eft-
ir í hálfgerðu reiðileysi. Jón Björns-
son, framkvæmdastjóri Baugs-Ís-
lands, segir að húsnæðið hafi verið
ein helsta ástæða þess að ákveðið var
að opna Debenhams-verslun í Stokk-
hólmi.
„Stærsta vandamálið við að opna
stórverslanir er að finna húsnæði af
réttri stærð,“ segir hann. „Húsnæð-
isskortur er ein helsta ástæða þess
að ný stórverslun hefur ekki verið
opnuð í Stokkhólmi í 98 ár, en við
vorum svo heppnir að þetta datt inn
á borð hjá okkur fyrir tilviljun.“
Jón segir Baug-Ísland ekki ætla
að láta útþenslunni lokið á Norður-
löndum, því fyrirtækið hyggst opna
aðra Debenhams-verslun í Kaup-
mannahöfn árið 2004, í stórri versl-
unarmiðstöð sem á að rísa í nýja há-
tækni- og verslunarhverfinu Øre-
stad. Auk þess hefur Baugur á
prjónunum að opna ýmsar smærri
Top Shop og Miss Selfridge-verslan-
ir á Norðurlöndum á næstunni.
„Þetta eru mikil tímamót fyrir
okkur,“ sagði Jón. „Við sjáum ekki
fram á mikla uppbyggingu á Íslandi í
framtíðinni, við erum með svo marg-
ar góðar búðir þar. Þetta er fyrsta
stóra búðin sem við opnum erlendis.
Við höfum verið með minni búðir, en
þessi verslun vekur mikla athygli.“
Jón sagði að komið hefði til tals að
Debenhams í Bretlandi tæki þátt í
rekstri verslananna á Norðurlönd-
um. Baugur hefði að ýmsu leyti
breytt áherslum sínum og orðið al-
þjóðlegra fyrirtæki að undanförnu.
Starfsmennirnir í Svíþjóð væru til að
mynda orðnir um 150 talsins, og
væru nær allir Svíar. Það sama yrði
væntanlega uppi á teningnum í Dan-
mörku.
Vel tekið af keppinautum
Debenhams verður opnuð al-
menningi í Stokkhólmi klukkan átta í
dag að íslenskum tíma og stendur
frammi fyrir harðri samkeppni. Hin-
um megin við götuna starfrækir
ódýri fataframleiðandinn Hennes &
Mauritz stóra tískuverslun, vöruhús-
in NK, PUB og Åhléns eru skammt
hjá, auk fjölda smærri verslana.
Keppinautarnir virðast þó taka
nýja keppinautinum með stóískri ró.
Verslunarstjórar stórverslananna
kváðust fagna nýja nágrannanum í
viðtali við Dagens Nyheter í gær, því
hún yki á aðdráttarafl Drottningar-
götu. Adisa Halilovic, verslunar-
stjóri í lítilli tískuverslun gegnt Deb-
enhams-versluninni, tók í sama
streng.
„Ég er bara glöð að þeir skuli
koma hingað,“ sagði hún. „Þetta er
ný og spennandi verslun, og laðar
áreiðanlega að marga viðskiptavini.
Við njótum góðs af því.“
Baugur opnar 9.500 fermetra Debenhams-verslun í Stokkhólmi í Svíþjóð
Debenhams í Stokkhólmi, sem Baugur-Ísland opnaði í gær, er 9.500 fermetrar að stærð á fjórum hæðum. Åke Hellqvist verslunarstjóri hélt ræðu við opnun verslunarinnar í gær.
Stokkhólmi. Morgunblaðið.
Fyrsta stórverslun
í Stokkhólmi í 98 ár