Morgunblaðið - 01.10.2002, Blaðsíða 23
NEYTENDUR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. OKTÓBER 2002 23
Skipholti 70 • 105 Reykjavík
Pöntunarsími 553 1270
Háaleitisbraut 58-60 • 108 Reykjavík
Pöntunarsími 553 8844
Skrokkurinn sagaður að
eigin ósk á meðan þú bíður.
Slátur og allur innmatur
afgreiddur strax.
• Skrokkur sagaður eins og þú villt..... 639,-
• Lifur................................................... 199,-
• 3 slátur (allt tilbúið).....verð pr /pk......... 2.198,-
• 5 slátur (allt tilbúið)... verð pr/pk ....... 3.628,-
• Hjörtu................................................ 299,-
• Svið..................................................... 399,-
Kr. pr.kg
HÁALEITISBR
AU
TSA
FA
M
ÝR
I
M
IK
LA
BR
AU
T
FE
LL
SM
Ú
LI
KRINGLUMÝRABRAUT
HÁ
TE
IG
SV
.
SKIPH
OL
T
BOLHOLT
BÓLSTAÐARH.
- afurðarsala með gömlu góðu aðferðinni
EINSTAKLINGAR og fyrirtæki
sem verða fyrir barðinu á samráði
stórfyrirtækja ættu að eiga rétt á bót-
um, að mati Marios Monti, sem fer
með samkeppnismál innan fram-
kvæmdastjórnar Evrópusambands-
ins. Danir gegna formennsku í fram-
kvæmdastjórn ESB, sem kunnugt er,
og segir á vefsíðu Politiken að sam-
keppnisreglur Evrópusambandsins
verði endurskoðaðar á haustmánuð-
um. „Að mati Marios Monti væri
„ákjósanlegt“ ef málum yrði svo hátt-
að að neytendur sem bæru skarðan
hlut frá borði vegna fákeppni fengju
uppbót,“ segir Politiken.
Fram kemur að þótt SAS og
Maersk Air hafi verið dæmd til þess
að greiða 400 milljónir danskra króna
í bætur á síðasta ári, um 4,6 milljarða
íslenskra króna, fyrir ólöglegt verð-
samráð, hafi flugfarþegar, sem fyrir
vikið greiddu far-
seðla sína of háu
verði, ekki fengið
mismuninn til-
baka. Þegar upp
var staðið hafi
ekki reynst unnt
að leiðrétta tap
hvers og eins far-
þega á viðskipt-
unum. „Best væri
að neytendur fengju endurgreitt und-
ir þessum kringumstæðum. Vissulega
er erfitt að rekja hvað hver og einn á
inni en að því er markvisst unnið að
gera neytendum kleift að fá peninga
sína tilbaka,“ hefur blaðið eftir Mario
Monti.
Leiðir Politiken getum að því að lið-
ið geti nokkur ár áður en tillögur
Montis verða að veruleika.
Neytendur fylgjast betur með
framferði fyrirtækja
Evrópski samkeppnisdagurinn var
haldinn í Kaupmannahöfn fyrir
skömmu og segir á heimasíðu fram-
kvæmdastjórnar ESB, www.eu-
2002.dk, að evrópskir neytendur velti
samkeppnisstefnu sambandsins lítið
fyrir sér þegar þeir skoði verðlagningu
í stórmörkuðum. „Það ættu þeir hins
vegar að gera. Samkeppnisreglur ráða
miklu um það hvaða vörur enda í hill-
um evrópskra verslana og á hvaða
verði. Samkeppnisreglum er meðal
annars ætlað að koma í veg fyrir að
stór fyrirtæki verði of fyrirferðarmikil
á markaðinum, sem hefur bein áhrif á
verð og vöruval og gæði vöru og þjón-
ustu. Neytendur geta lagt sitt af mörk-
um með því að benda yfirvöldum á
dæmi um samkeppnishömlur. Hefur
fjöldi slíkra mála endað á borði sam-
keppnisyfirvalda í beinu framhaldi af
aðgerðum neytenda sjálfra,“ er haft
eftir Kim Sparlund, aðstoðarforstjóra
Samkeppnisstofnunar Danmerkur.
Sparlund segir ennfremur að þegar
sú ákvörðun hafi verið tekin að efna
reglulega til Evrópska samkeppnis-
dagsins hafi samkeppnismál ekki ver-
ið ofarlega í huga almennings. „Nú
hefur þetta breyst í mörgum löndum,
meðal annars Danmörku, og er það
ekki síst fyrir tilstilli aukinnar vitund-
ar fjölmiðla um samkeppnisreglur
sem leitt hefur til aukinnar umfjöll-
unar um samkeppnishindranir. Ekki
er orðið óalgengt að fyrirtæki þurfi að
réttlæta starfsemi sína á opinberum
vettvangi ef grunur kviknar um fá-
keppni eða verðsamráð,“ segir Spar-
lund að síðustu.
Mario Monti
Rætt um bætur vegna
brota á samkeppnisreglum
HÉR er stiklað á stóru í meg-
ináherslum Neytendasamtakanna
2002–2004.
„Neytendasamtökin gera þá
kröfu að íslenskir neytendur búi
við sömu kjör og neytendur í okk-
ar heimshluta og fylgi henni eftir.
Góð kjör byggjast ekki eingöngu á
þeim launum sem greidd eru. Verð
á vöru og þjónustu skiptir þar
einnig miklu máli. Neytenda-
samtökin ætlast til þess að íslensk-
ir neytendur búi við sömu mark-
aðsaðstæður og aðrir neytendur á
Evrópska efnahagssvæðinu.
Aðild Íslands að Evrópska efna-
hagssvæðinu var mjög mikilvæg
fyrir íslenska neytendur. Fjölmörg
baráttumál Neytendasamtakanna
náðu fram að ganga vegna sameig-
inlegrar evrópskrar löggjafar og
þeirrar kröfu Evrópusambandsins
að tryggð væru ákveðin lágmarks-
réttindi neytenda. Í mörgum til-
vikum var um að ræða löggjöf sem
íslensk stjórnvöld höfðu verið á
móti. Margt bendir til að það gæti
þjónað hagsmunum íslenskra neyt-
enda að Ísland gangi í Evrópusam-
bandið og felur þing Neytenda-
samtakanna stjórn samtakanna að
gangast þegar í stað fyrir ítarlegri
athugun og umræðu um gildi að-
ildar að Evrópusambandinu fyrir
íslenska neytendur.
Þing Neytendasamtakanna
bendir á að virk samkeppni stuðlar
að lægra verði á vöru og þjónustu
til neytenda. Stjórnvöldum ber því
að tryggja að samkeppni sé sem
virkust og forðast að grípa til að-
gerða sem raska eðlilegum mark-
aðsaðstæðum og markaðsþróun.
Neytendsamtökin gera þá kröfu
að starfsemi Samkeppnisstofnunar
verði styrkt og gerð skilvirkari,
m.a. með því að leggja niður sam-
keppnisráð.
Til að tryggja stöðu innlends
grænmetis var ákveðið að taka
upp beingreiðslur til grænmet-
isframleiðenda. Þessi aðgerð hefur
skilað sér í lækkuðu verði til neyt-
enda og hefur skilað árangri mið-
að við þá stöðu sem þessi grein var
komin í. Beingreiðslurnar koma
hins vegar úr skattfé almennings,
sem á þann hátt kostar tollalækk-
unina. Neytendasamtökin eru ekki
hlynnt föstum styrkjum til ein-
stakra atvinnugreina. Slíkar styrk-
veitingar skekkja verðlag og ýta
undir óhagkvæmi.
Neytendasamtökin vilja að ís-
lenskur markaður verði opnaður
og allar innflutningshömlur af-
lagðar, þar á meðal á matvælum.
Með því tækju Íslendingar forystu
um frjálsa markaðsstarfsemi í
heiminum. Fá ríki hafa eins ríka
hagsmuni og Ísland af frjálsum
heimsmarkaðsviðskiptum, en þau
mundu skapa hagkvæman sam-
keppnismarkað til hagsbóta fyrir
neytendur.
Þing Neytendasamtakanna ætl-
ast til að fjármálastarfsemi fyrir
neytendur verði hér sambærileg
við önnur ríki í okkar heimshluta,
og að látið verði af stefnu hárra
raunvaxta og þjónustugjalda sem
þrautpínir íslenskar fjölskyldur.“
Áherslur NS
næstu tvö ár