Morgunblaðið - 01.10.2002, Page 26
ERLENT
26 ÞRIÐJUDAGUR 1. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Gerðu þér mat úr menntun
ENDURMENNTUN HÁSKÓLA ÍSLANDS
GÖRAN Persson, forsætisráð-
herra Svíþjóðar, kann í þessari
viku að fá á sig atkvæða-
greiðslu um vantraust á þingi,
ef honum tekst ekki að leysa
ágreining við Græningja, sem
eru ekki sáttir við framgang
viðræðna um að þeir og þing-
menn Vinstriflokksins haldi á
nýhöfnu kjörtímabili áfram að
styðja minnihlutastjórn jafn-
aðarmanna Perssons. Þykir
líklegast að vantrauststillaga
Hægriflokksins verði borin
upp strax á morgun, miðviku-
dag, en þingið kemur saman í
fyrsta sinn í dag eftir þing-
kosningarnar sem fram fóru
fyrir hálfum mánuði.
Túnis-Svíi
látinn laus
KERIM Chatty, 29 ára sænsk-
ur ríkisborgari sem handtek-
inn var á Västerås-flugvelli í
Svíþjóð hinn 29. ágúst sl. með
hlaðna byssu í handfarangri og
talið var hugsanlegt að hafi
ætlað sér að fremja flugrán,
var í gær látinn laus úr varð-
haldi eftir að saksóknari komst
að þeirri niðurstöðu að grund-
völlur fyrir ákæru væri ekki
nægilega traustur. Saksóknar-
inn Thomas Häggström vísaði
á bug frásögnum þess efnis að
Chatty, sem er fæddur í Sví-
þjóð en ættaður frá Túnis,
hefði ætlað sér að ræna far-
þegaþotu og brotlenda henni á
bandarísku sendiráði í Evr-
ópu.
ETA hótar
flokkum
ETA, hryðjuverkasamtök að-
skilnaðarsinnaðra Baska, lýstu
því yfir í tilkynningu sem birt
var í basknesku dagblaði á
sunnudag að þau litu nú svo á
að skrifstofur spænskra
stjórnmálaflokka, einkum og
sér í lagi Þjóðarflokks Jose
Maria Aznars forsætisráð-
herra og Sósíalistaflokksins
PSOE, sem er stærsti spænski
stjórnarandstöðuflokkurinn og
var áður lengi við völd í land-
inu, væru lögmætt skotmark
árása af hálfu samtakanna. Er
þessi yfirlýsing túlkuð sem
svar ETA við því að starfsemi
Herri Batasuna, hins meinta
pólitíska arms ETA, var bönn-
uð og skrifstofum flokksins
lokað. Spænska lögreglan
handtók á sunnudag þrjá
menn í baskneska héraðinu
Guipuzkoa á Norður-Spáni,
sem taldir eru hafa verið að
undirbúa sprengjutilræði.
Eiturbyrlari
dæmdur
EIGANDI skyndibitabúðar í
borginni Nanking í austur-
hluta Kína var í gær dæmdur
til dauða fyrir að hafa orðið 42
manns að bana með því að hafa
sett eitur í mat sem keppinaut-
ur hins dæmda seldi. Maður-
inn, Chen Zhenping, var hand-
tekinn fyrir hálfum mánuði
eftir að hundruð manna veikt-
ust af því að hafa borðað morg-
unmat sem fólkið keypti í búð í
Tangshan-hverfi í Nanking.
Samkvæmt fréttum ríkisfjöl-
miðla í Kína játaði Zhenping
að hafa sett eitur í matinn
vegna þess að hann gat ekki
unað keppinautinum vel-
gengninnar sem hann naut.
STUTT
Vantraust
á Persson?
SJÖ ríkjum úr Mið- og Austur-Evr-
ópu verður boðin aðild að Atlants-
hafsbandalaginu (NATO) á leiðtoga-
fundi þess í Prag í Tékklandi í
nóvember. Um þetta hefur nú verið
tekin ákvörðun, að því er fullyrt er, og
verða aðildarríki bandalagsins alls 26
talsins á eftir. Ríkin sjö, sem boðin
verður aðild, eru Búlgaría, Eistland,
Lettland, Litháen, Rúmenía, Slóvakía
og Slóvenía.
Um er að ræða stærstu stækk-
unina í 53 ára sögu NATO en með
henni eykst fjöldi þess fólks, sem
framvegis fellur undir öryggis- og
varnarnet bandalagsins, um 40 millj-
ónir. Þá mun NATO hafa innanborðs
ríki sem liggja að Svartahafinu og
Eystrasalti, ríki sem flest tilheyrðu
austurblokkinni á tímum kalda stríðs-
ins. Ljóst er því að miklar breytingar
hafa orðið á NATO frá þeim tímum er
Evrópa skiptist í áhrifasvæði Banda-
ríkjanna og Sovétríkjanna.
Á vettvangi NATO hefur verið
ákveðið að tilkynna ekki formlega um
stækkunina fyrr en á fundinum í
Prag. „Það er þegar búið að taka póli-
tíska ákvörðun um þetta,“ sagði
Wlodzimierz Cimoszewicz, utanríkis-
ráðherra Póllands, hins vegar fyrir
helgi.
Ákvörðun um Slóvakíu
var tekin seinast
Þrjú ný ríki – Pólland, Ungverja-
land og Tékkland – fengu aðild að
NATO árið 1999. Lengi hefur verið
rætt um frekari stækkun bandalags-
ins en margir hafa þó átt bágt með að
trúa að Rúmeníu og Búlgaríu yrði
boðin aðild. Hafa margir efasemdir
um að í þessum löndum séu menn
nægilega trúir lýðræðishugsjónum
þeim, sem jafnan hafa verið settar í
forgrunn hjá NATO. Hryðjuverka-
árásirnar á Bandaríkin í fyrra breyttu
hins vegar hugsunarhætti manna
vestra og leggja Bandaríkjamenn nú
allt kapp á að tryggja sér bandamenn
sem víðast í baráttunni við alþjóðleg
hryðjuverk.
Þykja átökin í Afganistan hafa gef-
ið þjóðum eins og Búlgaríu og Rúm-
eníu tækifæri til að sýna og sanna vin-
arhug sinn – en bæði Búlgarar og
Rúmenar buðu Bandaríkjunum að-
stoð sína í herförinni gegn talibönum
og liðsmönnum al-Qaeda.
Ákvörðun um að bjóða Slóvakíu að-
ild að NATO var tekin seinast, enda
vildu menn sjá hver yrðu úrslit þing-
kosninga þar í landi, sem haldnar
voru nýverið. Nú þegar ljóst þykir, að
þjóðernissinninn Vladímír Meciar
kemst ekki aftur til valda, telja menn
óhætt að bjóða Slóvökum einnig aðild
að bandalaginu.
Sjö ríkjum
verður boðin
NATO-aðild
Rúmenía, Búlgaría og Slóvakía
meðal nýrra aðildarlanda
Varsjá. The Washington Post.
!""#$%&'(&)"*+)+%,-($.,!/
#'(+*01+*2)+*"3)+ 4
"'*+&15)6!23*0)23)")5%*2%$
27%&)/42!+* )(*%#1#'(+)
)+*"3)(($.*21(+*289'*2%15
:;('(%<2&
="")23>;..")23
15 25#'(,)")23
5'25!*22?@@@
$.*2%,-
%'/2A#'(+!(
01+*2)+*"3
#
$
%&
FLEST bendir til, að
kjósendur í Brasilíu
muni halla sér til
vinstri í forsetakosn-
ingunum næsta sunnu-
dag í fyrsta sinn í fjóra
áratugi. Hefur Luiz
Inacio Lula da Silva,
frambjóðandi Verka-
mannaflokksins, mikið
forskot á aðra fram-
bjóðendur samkvæmt
skoðanakönnunum og
þarf ekki að bæta
miklu við sig til að
sigra í fyrri umferð
kosninganna.
Síðasta könnun Vox
Populi-stofnunarinnar,
sem birt var í gær, sýnir að Lula hef-
ur stuðning 43% kjósenda og er það
tveimur prósentustigum meira fylgi
en hann hefur mælst með síðustu
vikur. Jose Serra, frambjóðandi
ríkisstjórnarinnar, fékk aðeins 18%
og prósentustiginu minna en fyrir
viku. Anthony Garotinho, fyrrver-
andi ríkisstjóri í Rio de Janeiro, var
með 15% og Ciro Gomes, fv. fjár-
málaráðherra, með 13%. Í annarri
könnun um þarsíðustu helgi fékk
Lula 44% en það þýðir, að teknu til-
liti til ógildra atkvæða í kosningum,
að hann þyrfti ekki að bæta við sig
nema tveimur prósentustigum til að
sigra í fyrri umferð. Nái hann því
ekki verður kosið á
milli tveggja efstu
manna 27. október.
Lula, sem er fyrr-
verandi starfsmaður í
bifreiðasmiðju og
verkalýðsforingi, hef-
ur þrisvar áður boðið
sig fram í forsetakosn-
ingum. 1989 tapaði
hann fyrir hægrimann-
inum Fernando Collor
de Mello en hann var
sviptur forsetaembætt-
inu tveimur árum síðar
vegna spillingar. Lula
tapaði síðan fyrir
Fernando Henrique
Cardoso 1994 og 1998.
Stjórnmálaskýrendur segja nú, að
fátt virðist geta komið í veg fyrir
sigur Lula enda standa nú jafnvel að
baki honum atvinnurekendur, sem
áður óttuðust hann. Hann hefur líka
sagt skilið við mestu róttæknina, vill
til dæmis ekki lengur hætta afborg-
unum af erlendum skuldum og til-
lögur hans um skiptingu jarðeigna
eru miklu hógværari en kröfur sam-
taka landlausra bænda.
Fréttaskýrendur spá því, að hugs-
anleg stjórn Lula verði mjög ólík
vinstristjórn Joao Goulart forseta
1964 en henni var þá steypt af stóli í
valdaráni hersins. Fór herinn síðan
með öll völd í Brasilíu í 21 ár. Stjórn-
málaskýrandinn Villas-Boas Correa
telur, að ekki verði mikill munur á
stjórn Lula og stjórn Cardosos nú
enda verði hann að leita málamiðl-
ana á þingi.
Andvígur fríverslunar-
stefnu Bush
Vinstrisigur í Brasilíu mun samt
hafa mikil áhrif um alla Suður-
Ameríku enda er hagkerfi landsins
það stærsta í álfunni og það níunda
stærsta í heimi. Sigur Lula gæti t.d.
komið í veg fyrir þá stefnu Bush að
koma á fríverslun í allri Ameríku,
allt frá Kanada til Argentínu. Lula
er andvígur henni og kallar hana
„innlimun Rómönsku Ameríku í
Bandaríkin“.
Sumir fréttaskýrendur segja, að
vinsældir Lula endurspegli mikla
óánægju landsmanna með ástandið.
Stefan Salej, fv. formaður einna
samtaka iðnaðarins, varar hins veg-
ar við óraunhæfum væntingum eins
og því loforði Lula að hækka lág-
markslaunin, sem nú eru innan við
5.000 krónur íslenskar. „Eitt er að
boða breytingar,“ segir hann. „Ann-
að að gera þær kleifar.“
Vinstrimaður sigurstranglegur í forsetakjöri í Brasilíu
Gæti haft mikil áhrif í
allri Suður-Ameríku
Rio de Janeiro. AP.
’ Lula hefur sagtskilið við mestu
róttæknina. ‘
Luiz Inacio Lula
da Silva
ÞRJÁTÍU og sjö ára gamall Norð-
maður skaut á sunnudag sambýlis-
konu sína, tvö börn þeirra, 11 ára
telpu og 6 ára dreng, og að lokum
sjálfan sig í sumarhúsi á Græsberget
nærri Kongsvinger í Austur-Noregi.
Maðurinn var meðlimur í heima-
varnarliðinu (Hemmeværnet) og
notaði AG3-hríðskotariffil sinn við
verknaðinn. Telur lögregla að tilefni
ódæðisins hafi verið að konan hafi
viljað slíta sambandinu við manninn.
Harmleikur
í Noregi