Morgunblaðið - 01.10.2002, Blaðsíða 27
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. OKTÓBER 2002 27
Ný sending
Teg. 1426
Litir: Svartur, beige
Verð 8.990
Teg. 1422701
Litur: Svartur
Verð 13.990
Teg. 1426101
Litur: Svartur
Verð 12.990
Kringlan, s. 533 1727
Laugavegur, s. 511 1727
2 fyrir 1 til
Prag
frá kr. 19.250
14. október
Heimsferðir bjóða nú ótrúlegt tilboð á síðustu sætunum til Prag
þann 14. október. Þú bókar 2 flugsæti, en greiðir aðeins fyrir 1 og
getur kynnst þessari fegurstu borg Evrópu á einstökum kjörum.
Og þú getur valið um úrval góðra hótela í
hjarta Prag og að sjálfsögðu nýtur þú traustrar
þjónustu fararstjóra Heimsferða í
Prag allan tímann.
7. okt. – 11 sæti
14. okt – 23 sæti
Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is
Verð kr. 19.250
Flugsæti til Prag, út 14. okt, heim 17.
okt. Almennt verð með sköttum.
Verð kr. 3.900
Verð fyrir mann, m.v. 2 í herbergi,
Quality, per nótt með morgunmat.
Völ um góð 3ja og 4 stjörnu hótel.
Ferðir til og frá flugvelli, kr. 1.800.
Á HANDRITASÝNINGUNNI sem
opnuð verður í Þjóðmenningarhús-
inu í byrjun október er mikið lagt
upp úr því að íslensku handritin
verði vel sýnileg almenningi án þess
að þeim sjálfum sé teflt í hættu. Eins
og fram hefur komið verða miklar
öryggisráðstafanir viðhafðar á sýn-
ingunni til að vernda handritin. Pét-
ur Ingi Arnarson iðnhönnuður hjá
Ofnasmiðjunni/Rými hefur haft um-
sjón með smíði sérstakra örygg-
isskápa sem handritin verða í á sýn-
ingunni. „Það kom upp sú ósk að við
smíðuðum skápa undir handritin, og
það var strax ljóst að þetta væri ein-
stakt verkefni sem krefðist sér-
stakra lausna,“ segir Pétur Ingi.
„Vandamálin voru margs konar;
sneru bæði að því að koma skáp-
unum fyrir inni í því litla rými sem
þeim var ætlað; að því að koma
handritunum fyrir í skápunum, og
svo að því að standast þær örygg-
iskröfur sem gerðar voru, til dæmis
þær, að skáparnir yrðu 90% loftþétt-
ir.“ Pétur Ingi segir að skáparnir
þurfi auk þessa að vera rammgerðir
og traustir og geta staðið í tíu ár.
Tvöfalt öryggisgler er notað í efri
hluta þeirra; rammarnir eru úr stál-
prófílum og neðri hluti skápanna úr
stáli. Stálið er dufthúðað með epox-
ylakki, sem tryggir að ekki gufi upp
af þeim eiturefni sem skemmt gætu
handritin. Rammgerðar öryggislæs-
ingar verða á skápunum. „Þetta á
allt að vera mjög traust, og eins
traust og hægt er.“
Pétur Ingi segir að smíði skáp-
anna fyrir handritin hafi verið ein-
stakt verkefni fyrir Ofnasmiðjuna
og ólíkt öðrum sem fyrirtækið hefur
fengist við. „Við fengum ákveðnar
hugmyndir frá aðstandendum sýn-
ingarinnar og höfðum sjálfir góða
fagmenn á okkar snærum. Í samein-
ingu fundum við lausnir sem gengu
upp á hagkvæman og viðráðanlegan
hátt.“ Aðspurður um það hvort þeir
Ofnasmiðjumenn hafi fundið til þess
að þeir væru að vinna með þjóð-
argersemar segir Pétur Ingi að svo
hafi vissulega verið. „Við höfum ver-
ið mjög uppveðraðir af verkefninu
og höfum reynt að leggja mikið und-
ir að allt yrði í lagi. Við öfluðum
allra gagna um þau efni sem við not-
um; s.s. þéttiefni og kítti og upp-
gufun þeirra og lögðum á okkur
mikla undirbúningsvinnu. Skáparnir
voru fyrst settir upp í verksmiðjunni
hjá okkur og prófaðir í þaula, en svo
teknir í sundur, fluttir hingað í ein-
ingum og settir saman aftur.“
Handritin hvíla í vöggum
Steinþór Sigurðsson listmálari og
leikmyndateiknari er hönnuður sýn-
ingarinnar, en Hersteinn Brynjólfs-
son handritaforvörður hefur umsjón
með uppsetningu handritanna á sýn-
ingunni. Eftir að gestir hafa skoðað
ítarupplýsingar um handritin er
gengið inn í fyrri handritaklefann,
þar sem ekkert er annað en skáp-
urinn sem handritin geymir. Þar
hvíla handritin á því sem Steinþór
kallar vöggur. Með því að sýna
handritin í þar til gerðum örygg-
isskápum geta handritin staðið
óhreyfð dag og nótt við bestu að-
stæður. „Skáparnir hafa sitt eigið
loftslag,“ segir Steinþór, og Her-
steinn bætir því við að rakanum sé
stjórnað með sérstökum rakakas-
settum, sem halda rakanum alltaf
við fyrirfram ákveðið rakastig.
Handritaherbergin eru hönnuð
þannig að í þeim er algjört myrkur,
en um leið og einhver gengur inn
kvikna ljós.
Að sögn Steinþórs eru þetta ljós-
leiðaraljós, og ekkert rafmagn í
skápunum sjálfum, aðeins utan við
þá. Nemar og myndavélar af ýmsu
tagi fylgjast með handritunum og
ástandi þeirra. „Það er reynt að
segja það sem segja þarf í fremri
salnum, en hér inni verður ekkert
nema handritin og örlítill texti um
þau. Þetta er eins og að koma inn í
það allra helgasta,“ segir Steinþór.
Mikil vinna hefur verið lögð í
textarannsóknir á handritum hér á
landi. Hersteinn Brynjólfsson segir
þó að rannsóknir á þeim þáttum sem
snúa að forvörslu handritanna og
verndun séu nánast engar. „Menn
hafa verið að stúdera texta og aftur
texta, en ekki fyrr en á seinni árum
að farið er að sinna forvörsluþáttum
handritanna og rannsaka hvað þau
þola mikið álag. Allt sem er orðið
200 ára gamalt er úr organískum
efnum sem brotna niður. Við hverja
flettingu á bókinni er verið að reyna
á trefjar hennar sem eru orðnar lún-
ar og þola helst ekki neitt álag.
Raka- og hitastig hefur líka áhrif á
trefjar handritanna. Þær þenjast út
og dragast saman við minnstu breyt-
ingar, þannig að það er nóg álag í
sjálfu sér. Því er svo nauðsynlegt að
halda hita- og rakastigi jöfnu.“ Her-
steinn segir að til séu alþjóðlegir
staðlar um kjörloftslag handrita og
að þeir séu notaðir hér. „Reyndar er
það svo með okkar handrit, að þau
hafa verið geymd síðasta áratuginn
við örlítið annan hita en staðallinn
segir til um, eða um 18 stig, og raka-
stigið á þeim hefur verið um 50. Við
reynum að halda á sýningunni sama
hita- og rakastigi og handritin hafa
þegar lagað sig að til að breytingar
verði sem minnstar.“ Alls verða um
fimmtán handrit sýnd á sýningunni.
Öryggisskápar smíðaðir utan um handritin á sýningu í Þjóðmenningarhúsi
„Upp-
veðraðir
af verk-
efninu“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Unnið að uppsetningu á öryggisskápum fyrir handritasýninguna í Þjóðmenningarhúsinu.
ÞAÐ dylst engum sem sér þessa
mynd hversu mikið sameiginlegt
Xander Cage á með kollega sínum
James Bond. En segja mætti að
xXx sé tískuútgáfan af 007, í þessari
grófu tattú og túttu tísku sem
tröllríður öllu. Og þótt að eflaust
eigi eftir að koma fleiri myndir með
xXx, efast ég stórlega um að honum
takist að riðja 007 úr sessi, ekki eft-
ir áratuga vinsældir.
Xander Cage er þekktur áhættu-
íþróttaiðkandi og smákrimmi með
eigin sjónvarpsþátt. Bandarísku
leyniþjónustunni finnst hann upp-
lagður til að komast inn hjá tékk-
neskum hópi sem vill heimsyfirráð
og dauða, þar sem hann er af álíka
sauðahúsi og þau.
Þótt að Bond-formúlan sé tekin
upp og endurskrifuð vantar ekki
bara reisn heldur líka frumleika og
andagift í þessa mynd. Sagan er
barnslega þunn og ekki sérlega
spennandi í heildina, þótt áhættu-
atriðin séu oft spenandi eitt og sér,
og yfir höfuð mjög flott, sérstaklega
snjóflóðaatriðið. Það verður ekki
tekið frá Rob Cohen að hann kunni
að leikstýra áhættuatriðum en
skemmtilegra hefði verið að sjá
Xander nota meira sérstaka
áhættuíþróttakunnáttu sína í has-
arariðunum – og vera þannig frum-
legur og eitthvað alveg nýtt – held-
ur en að sjá bíla- og bátaatriði sem
við höfum svo oft, oft séð áður.
Brettaatriðið í Prag var alltof stutt
og einfalt.
Vin Diesel er helv … flottur gaur,
og smellpassar í hlutverk hasar-
hetju. Það er ekki spurning að hann
hann muni taka við af Stallone og
Schwartzenegger, sem nú eru
komnir til ára sinna. Mér fannst
hann reyndar fínn leikari í Boiler
Room hér um árið, en xXx er hann
álíka góður og fyrirrennarar hans,
kannki aðeins liprari í máli. Flestir
aðrir karakterar eru fullklisjóttar
og jafnvel gamaldags.
Það verður helst sagt xXx til hóls
að manni leiðist ekki, og að í henni
eru nokkrir góðir punktar. Uppfinn-
ingamaðurinn finnst mér fín týpa,
ef ekki sú frumlegasta í myndinni,
svo er líka gaman sjá hvernig farið
er með James gamla Bond. Ekki
síst í lokaatriðinu. Þá er ekki laust
við að maður spyrji sig: er verið að
gera grín að Bond, eða á þetta að
vera virðingarvottur?
KVIKMYNDIR
Regnboginn, Smárabíó, Laug-
arásbíó og Borgarbíó Ak.
Leikstjórn: Rob Cohen. Handrit: Rick
Wilkes. Kvikm.taka: Dean Semler. brell-
ur: John Frazier og BoPo. Aðalhlutverk:
Vin Diesel, Asia Argento, Marton Csok-
as, Michael Roof og Samuel L. Jackson.
124 mín. USA. Columbia TriStar 2202.
xXx Góður, en enginn Bond
Hildur Loftsdóttir