Morgunblaðið - 01.10.2002, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 01.10.2002, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. OKTÓBER 2002 31 FRÁ því að hryðjuverkaárásir voru gerðar á Bandaríkin 11. september fyrir rúmu ári hafa öll vestræn ríki tekið öryggismál sín og varnir til gagngerrar skoðun- ar. Íslensk stjórnvöld eru þar ekki undanskilin og fóru marg- víslegar athuganir í gang hjá flestum ráðuneytum og mörgum opinberum stofnunum í kjölfarið. Meginniðurstaðan úr athugunum íslenskra yfirvalda er sú að í stórum dráttum er staðið með viðunandi hætti að öryggismálum hjá þeim aðilum sem á því bera ábyrgð. Engu að síður hefur kom- ið fram að boðleiðir mætti skerpa og skýra í ákveðnum tilvikum, treysta mætti samskipti mismun- andi björgunaraðila og fleira mætti nefna. Að þessum mark- miðum hefur verið unnið og verð- ur þeirri vinnu haldið áfram. Eitt af því sem fjallað hefur verið um í tengslum við umfjöllun um öryggismál ríkisins er spurn- ingin um það sem kalla mætti leyniþjónustustarfsemi íslenska ríkisins. Umræða um þetta hefur flogið víða á undanförnum vikum og oft farið um víðan völl. Þórunn Sveinbjarnardóttir alþingismaður er ein af þeim sem kvatt hafa sér hljóðs í þessari umræðu og gerir að umtalsefni í Morgunblaðinu sl. laugardag hvort þörf sé fyrir slíka starfsemi hér á landi. Marg- ar af hennar athugasemdum og áréttingum eru því miður á mis- skilningi byggðar, eins og stund- um gerist. Það sem þingmaðurinn athugar ekki þegar hún varpar fram spurningum sínum er að heimildir lögreglu samkvæmt lögreglulög- um til að tryggja almannaöryggi eru skýrar og afdráttalausar. Eitt af meginhlutverkum hennar sam- kvæmt 1. grein lögreglulaga er að gæta almannaöryggis og allsherj- arreglu. Þá segir í 5. grein lög- reglulaga að meðal sérstakra verkefna sem ríkislögreglustjóra beri að hafa með höndum sé að starfrækja lögreglurannsóknar- deild sem rannsaki landráð og brot gegn stjórnskipan ríkisins og æðstu stjórnvöldum þess. Spurn- ingin um það hvort tímabært sé að íslensk lögregluyfirvöld hafi heimildir af þessu tagi er því í besta falli tímaskekkja enda hafa heimildir af þessu tagi verið í ís- lenskum lögum um árabil. Það fyrirkomulag að fela lög- reglu að annast þessa starfsemi er í samræmi við það fyrirkomu- lag sem gildir í nágrannalöndum okkar á Norðurlöndunum. Sá munur er þó á að á hinum Norð- urlöndunum er í gildi sérstök lög- gjöf um þessa starfsemi lögreglu. Þar er meðal annars kveðið nánar á um það í hverju þessi starfsemi skuli fólgin og hvernig eftirliti með henni skuli háttað. Þarna er einmitt komið að kjarna málsins og þess sem ég hef haft fram að færa af þessu til- efni. Margir höfðu af því áhyggj- ur að í kjölfar hryðjuverkaárás- anna á Bandaríkin að stjórnvöld myndu ganga á lagið og nýta það tækifæri til að ganga á sjálfsögð mannréttindi almennings eins og friðhelgi einkalífs og heimilis. At- hugasemdir þær sem ég hef við gildandi fyrirkomulag voru ein- mitt í þá veru að treysta þyrfti réttarstöðu borgaranna, treysta mannréttindi og að til staðar væri virkt eftirlit með því að sjálfsögð mannréttindi væru ekki skert að óþörfu. Í löggjöf nágrannaþjóða okkar er skýrt tekið á þessum þáttum, meðal annars er gert ráð fyrir því að sérstök þingnefnd skuli hafa eftirlit með þessari starfsemi lög- reglunnar, og þar á meðal eftirlit með því að mannréttindi séu virt. Það er enginn vafi í mínum huga að við þurfum að vera undir það búin að geta tekist á við al- þjóðlega hryðjuverkastarfsemi, sem teygir anga sína út um allan heim. Það er barnalegt að halda því fram að Ísland sé af ein- hverjum óútskýrðum ástæðum óhult fyrir slíkri starfsemi. Við getum ekki leyft okkur að reka á reiðanum í þessum efnum og vona það besta. Við þurfum að sama skapi að tryggja að mannréttindi almennings séu ekki skert nema brýna nauðsyn beri til. Það var mitt mat að nauðsynlegt væri að vekja máls á þessu og skapa þannig umræðu um þetta áður en ákvarðanir um næstu skref yrðu teknar. Núverandi fyrirkomulag veitir lögreglu fullnægjandi heimildir til að sinna þessu mikilvæga verk- efni. Það er ekki síður mikilvægt að almenningur geti verið viss um að lögregla fari vel með þessar mikilvægu heimildir og að virkt eftirlit sé til staðar. Það er hlut- verk mitt sem dómsmálaráðherra að gæta öryggis almennings og að gæta þess að mannréttindi al- mennings séu ekki skert. Bæði þessi verkefni eru gríðarlega mik- ilvæg og báðum þarf að sinna af fullri alvöru. Er þörf á því að tryggja mannréttindi? Eftir Sólveigu Pétursdóttur Höfundur er dómsmálaráðherra. „Það er hlutverk mitt sem dóms- málaráð- herra að gæta öryggis almennings og að gæta þess að mann- réttindi almennings séu ekki skert.“ verk gagnvart þáverandi forstöðu- manni, þá fór hann aftur á Litla-Hraun, síðan á Sogn í Ölfusi, en þaðan var hann útskrifaður af geð- lækni í janúarbyrjun 2002. Síðan þá hefur hann verið í áfengismerðferð í Byrginu, sem ekki hefur gengið betur en svo að hann er einnig búinn að brenna allar brýr að baki sér þar með erfiðu háttalagi og ofbeldi, þrátt fyrir ítrekað fengin tækifæri. Hann er með sykursýki og lifrarbólgu til viðbótar við annað. Steinn á enga vini, enga kunningja nema samfanga, fíkla og útigangsmenn. Hann kann ekkert á líf- ið utan fangelsismúranna og hefur engan félagslegan þroska til að takast á við það. Steinn er geðveikur, gefur sér forsendur samkvæmt sínum eigin óbeisluðu tilfinningum, hann er lækn- islaus og hefur verið án sérhæfðrar meðferðar og geðlyfja síðan hann var á Sogni. Mér finnst reyndar óforsvar- anlegt að hann skuli hafa verið útskrif- aður þaðan, en sérhæft mat hlýtur þó að liggja þar að baki. Ég vil taka það fram að Steinn er ennþá skráður með lögheimili að Sogni í Ölfusi. Hann er nú á götunni og ég óttast að hann kunni að vinna einhver voðaverk, sem ekki verða bætt. Enginn vill fá hann, enginn vill sjá hann Fjölskyldan og aðrir aðstandendur eru langþreyttir, hræddir, raunar úr- kula vonar og hafa reynt allt sem í þeirra valdi stendur til að aðstoða og leita úrlausnar. Til margra sérhæfðra aðila og stofnana hefur verið leitað, en ennþá án árangurs. Enginn vill fá hann, enginn vill sjá hann. Ég vil ekki nefna nöfn, en það eru orðnir tugir lækna, geðlækna, ráðgjafa, forsvars- manna, stjóra og embættismanna, sem talað hefur verið við að undanförnu. Allir þeir sem leitað hefur verið til ým- ist neita eða segjast ekki geta að- stoðað, ætla að hringja aftur en gera ekki, svara ekki síma þegar þeir fá að vita um hvað málið snýst eða vísa á einhvern annan. Málið virðist enn- fremur stranda á skörun milli ráðu- neyta ykkar. Steinn hefur lýst sig reiðubúinn til að fara aftur í Gunnarsholt. Þar leið honum vel og fékk að vera þátttakandi í ýmsum störfum. Einnig hefur hann sagt að aðrir staðir komi vel til greina, svo framarlega sem þeir séu ekki hér í borginni (sollinum) og hann fái viðeig- andi lyfjameðferð og atlæti undir eft- irliti ábyrgra sérfróðra aðila. Nú bið ég ykkur að reyna að finna tafarlaust viðunandi langtímalausn.“ ur í mörg ár reynt að finna lausn á málum sonar síns st að sonur nni að vinna egt voðaverk Morgunblaðið/Júlíus sið á Klapparstíg, þar sem voðaverkið var framið síðastliðinn fimmtudag. ns Ármanns Stefánssonar bréf til ráðherra dóms-, heil- kaði þess að fundin yrði viðunandi langtímalausn á máli st að sonur sinn kynni að vinna einhver voðaverk, sem m á götunni. Hann biður um skjótar úrbætur yfirvalda í em standi í svipuðum sporum og sonur sinn. ausnir og t að hefja koma upp nings- og m koma að elsismála- ru ýmsar á þær og ni uneytisins na úrræði fi leitt til Jón, en á ergi fékk ðandi ein- ningur er koma að. essu í sínu ðunar. Ég unar hafa knum ein- hafi fyrir m frá lög- i mál. ði ekki illa ykkt var í smálaráð- a þriggja í ð á fót að ál ALLIR ráðherrarnir þrír semfengu bréf Stefáns Aðalsteinsson- ar, föður Steins Ármanns Stefáns- sonar, sem grunaður er um að hafa orðið manni að bana á fimmtudag, segja að gripið hafi verið til ráð- stafana innan ráðuneyta sinna vegna málsins. Í bréfinu, sem sent var fyrir fjórum mánuðum, biður Stefán ráðherrana að finna viðun- andi langtímalausn á málum sonar síns og segist óttast að verði ekkert að gert geti hann unnið einhver voðaverk, sem ekki verði bætt. „Við gerðum ráðstafanir til að skoða þetta mál og vorum í sam- bandi við Sogn út af þessu máli,“ segir Jón Kristjánsson heilbrigðis- ráðherra. „Ég svaraði honum og það fóru á milli orðsendingar um þetta í sumar. Embættismenn voru að vinna í þessu máli eins og svo mörgum öðrum varðandi erfiða einstaklinga. Þetta mál er afar erf- itt, eins og fram hefur komið. Þarna var búið að reyna ýmis úr- ræði. Ég svaraði þessu bréfi og sagði honum að ég myndi láta skoða þetta mál og gerði það reyndar. Því miður var ekki búið að finna úrræði sem dugðu,“ segir Jón. Páll Pétursson félagsmálaráð- herra segir að hann hafi fengið málið í hendur Birki Jóni Jónssyni, aðstoðarmanni sínum. Birkir segir að hann hafi verið í sambandi við föðurinn símleiðis, þá hafði Steinn Ármann fengið inni á Sogni. „Ég tjáði honum að ef hagir hans myndu breytast á verri veg væri honum velkomið að hafa samband við ráðuneytið aftur og þá mynd- um við reyna að liðsinna honum og fjölskyldunni eftir fremsta megni,“ segir Birkir. „Þetta er hræðilegt sem hugsast getur. Þetta er mjög átakanlegt bréf, við tókum þetta mjög alvarlega,“ segir Páll og bendir á að stofnanirnar sem um ræðir heyri ekki undir hans ráðu- neyti. Þær upplýsingar fengust í dóms- málaráðuneytinu að málið hefði verið tekið til skoðunar og embætt- ismenn ráðuneytisins hefðu sett sig í samband við þær stofnanir sem málinu tengdust og heyrðu undir ráðuneytið. Þá hefði virst sem mál- ið hefði verið í ákveðnum farvegi í stofnunum heilbrigðisráðuneytis- ins. Ráðuneytin segjast öll hafa gripið til ráðstafana MAGNÚS Skúlason geðlæknir segir að skýringin á því að Steinn Ár- mann Stefánsson sé skráður með lögheimili á Sogni sé að hann hafi verið skráður þar tímabundið þar sem hann var heimilislaus og einnig til að gera Steini Ármanni auðveldara að sækja um búsetuúrræði á svæðinu. Af óviðráðanlegum orsökum hafi ekki tekist að nýta þessi úr- ræði. Í kjölfarið hafi síðan orðið sá formgalli að afskráning á heim- ilisfanginu fórst fyrir. Í yfirlýsingu, sem ættingjar Steins Ármanns sendu frá sér í gær, var sett fram sú spurning, hvort eðlilegt væri að maður með lögheimili á Réttargeðdeildinni á Sogni skuli á sama tíma vera í haldi lögreglu grunaður um morð. Magnús segir, að Steinn Ármann hafi verið vist- aður á Sogni sem sakhæfur fangi í afplánun en ekki sem ósakhæfur. Því hafi ekki gilt um hann sömu reglur varðandi afléttingu vistunar- dóms með viðeigandi eftirfylgni. Átti að greiða fyrir búsetuúrræðum LÖGREGLAN í Reykjavík hand- tók á föstudagskvöld par sem hafði greitt fyrir hótelgistingu í tvær nætur með því að gefa upp númer á greiðslukorti sem hvorugt þeirra átti. Númerið sáu þau á greiðslu- kortakvittun sem annað þeirra fann á förnum vegi. Parið hafði gist eina nótt á hótelinu þegar svikin komust upp. Að sögn Ómars Smára Ármanns- sonar, aðstoðaryfirlögregluþjóns í Reykjavík, er of algengt að látið sé nægja að fá uppgefið númer greiðslukorts en ekki krafist að kortinu sé framvísað. Þá gangi þeir sem taka við greiðslunni ekki úr skugga um að sá sem gefur upp númerið sé raunverulegur eigandi kortsins. Númerið á greiðslu- kortinu nægði

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.