Morgunblaðið - 01.10.2002, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 01.10.2002, Qupperneq 34
UMRÆÐAN 34 ÞRIÐJUDAGUR 1. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ F réttir nýlega af nið- urstöðum tveggja vísindarannsókna eru um margt eft- irtektarverðar, en þó kannski fyrst og fremst það, að þær virðast stangast á við til- teknar hugmyndir sem hafa ver- ið að festast í sessi undanfarna áratugi. Annars vegar er um að ræða rannsóknarniðurstöður sem segja, að karlmönnum sem eru heimavinnandi sé 82% hættara við ótímabæru andláti af völdum hjartasjúkdóma en þeim sem fylgja boði gömlu hefðarinnar og vinna úti. Hin rannsóknin, sem hér er vísað til, leiddi í ljós að þeir sem horfa mikið á sjónvarp eru ekkert síður í and- legu jafnvægi en þeir sem eiga stóran vinahóp. Um þessar síð- arnefndu niðurstöður var haft eftir þróunarsálfræðingnum Sa- toshi Kanazawa, höfundi rann- sóknarinnar, að mannsheilinn hefði jú þróast fyrir tíma sjón- varpsins og undirmeðvitund manns geri því í raun engan greinarmun á mannsandliti á sjónvarpsskjá og andliti mann- eskju sem stendur fyrir framan mann. Fyrrnefnda rannsóknin – þessi um húsfeður og hjarta- sjúkdóma – var gerð fyrir Bandarísku heilbrigðismála- stofnunina (NIH), og CNN hafði eftir höfundinum, Elaine Eaker, fyrr á þessu ári, að niðurstöð- urnar hefðu svo sannarlega kom- ið á óvart. Hún sagðist ekki vita til þess að hugsanlegar orsakir þessa hafi nokkurn tíma verið rannsak- aðar, en gat sér þess til, að or- sakirnar mætti að einhverju leyti rekja til streitu sem maður verð- ur fyrir þegar maður rýfur djúp- stæðar, samfélagslegar hefðir. „Að ganga gegn samfélagslegum væntingum kann að vera slæmt fyrir heilsuna,“ sagði Eaker við CNN. Niðurstöður rannsókna Kan- azawas á áhrifum sjónvarpsgláps voru ekki síður óvæntar, og hafa þar að auki vakið deilur, að því er lesa mátti í The Washington Post fyrir nokkru, og segja aðrir fræðingar að aðferðir hans og ályktanir af niðurstöðum séu vafasamar. Kanazawa komst að því, nánar tiltekið, að konur sem horfa mikið á gamanþætti á borð við Friends, og karlar sem horfa mikið á fréttir, séu ánægðari með vinatengsl sín en annað fólk. Kanazawa, sem byggði rann- sókn sína á gögnum frá Banda- rísku viðhorfsrannsókn- armiðstöðinni (NORC), telur að þarna á milli sé beinlínis orsaka- samhengi. Sjónvarpsáhorfið bæti tengsl fólks við vini og kunn- ingja, og geri að verkum að það fái meira út úr vinaáttuböndum sínum en ella. Það er að segja, ef maður er stelpa, þá er beinlínis hollt að horfa á Friends, og ef maður er strákur, þá er beinlínis hollt að horfa á fréttir. Af þessum tveim ofangreindu rannsóknum má því draga þá ályktun, að það geti verið bein- línis heilsuspillandi fyrir karl- menn að vera heimavinnandi, og hreinlega hollt fyrir fólk að horfa á sjónvarp. Þetta tvennt stang- ast klárlega á við hugmyndir sem ötullega hefur verið reynt að festa í sessi undanfarna ára- tugi. Ennfremur má velta því fyrir sér hvort draga megi almennari ályktanir af þessum rann- sóknum, eins og til dæmis um ágæti gamalla hefða, eða hvort ætla megi að þetta séu bara tvö einangruð frávik, sem ekki séu vísbendingar um víðtækari sann- leika, heldur verði leiðrétt með frekari rannsóknum. En vegna þess hvernig vísindi virka – í þeim er aldrei neitt endanlega sannað heldur miða rannsóknir að því að sýna fram á auknar eða minnkaðar líkur á því að kenningar séu sannar – er sennilega affarasælast að ganga ekki lengra en svo að segja að þessar tvær rannsóknir dragi úr líkunum á því að það sé einhlítt, sem mikið er og hefur verið klif- að á, að sjónvarpsgláp sé óhollt og það sé mikil nauðsyn að breyta hefðbundnum kynhlut- verkum. (Þessi sama rannsókn á vegum NIH leiddi líka í ljós að konum í ábyrgðarstöðum er þrisvar sinn- um hættara við hjartasjúkdóm- um en konum sem sinna störfum þar sem ábyrgðin er minni. Vís- indamennirnir telja líka að þarna sé meðal annars um að kenna stressinu sem fylgi því að ganga gegn ríkjandi hefð.) Það er í hæsta máta ólíklegt að þessar tvær rannsóknir muni hafa hin minnstu áhrif á ríkjandi hugmyndir um áhrif sjónvarps- gláps á börn eða á jafnrétt- isumræðuna. Þær hugmyndir og sú umræða eru komnar í allt of fastar og djúpar skorður til að tvær litlar rannsóknir fái rótað þeim. Það væri líka, frá vís- indalegu sjónarmiði, óeðlilegt að mikið upphlaup yrði út af tveim rannsóknum sem hafa ekki einu sinni – það séð verður – verið endurteknar. Samt eru niðurstöður þessara rannsókna forvitnilegar, og þá kannski einkum fyrir tvennt. Í fyrsta lagi gefa þær þeirri hugs- un undir fótinn, að ríkjandi hug- myndir séu að einhverju leyti af ætt trúarlegrar kreddu en ekki bara vísindalegra staðreynda. Þannig eru þessar niðurstöður dálítill eldsmatur fyrir efasemd- ir, sem eru nauðsynlegar til að hugmyndaheimurinn tréni ekki. Í öðru lagi er gaman að þess- um niðurstöðum vegna þess að þær virðast taka undir með óyf- irveguðum löngunum og gömlum hefðum. Það er ekki oft sem vís- indarannsóknir eru hliðhollar sjónvarpsglápi og gömlum kyn- hlutverkum. Og það sem meira er, þær tilteknu rannsóknarnið- urstöður sem hér hafa verið gerðar að umtalsefni geta jafnvel orðið kveikjan að þeirri spurn- ingu hvort hefðum sé kannski stundum kastað fyrir róða af helst til miklu offorsi, bara af því að þær eru gamlar. Húsfeður og sjónvarp Af þessum tveim rannsóknum má því draga þá ályktun, að það geti verið beinlínis heilsuspillandi fyrir karlmenn að vera heimavinnandi, og hreinlega hollt fyrir fólk að horfa á sjónvarp. VIÐHORF Eftir Kristján G. Arngrímsson kga@mbl.is NÝLEGA opnaðist sá möguleiki að lenda flugvél með farþega á set- hjalla vestan við Jöklu og gefa fólki kost á að skoða óviðjafnanlegt svæðið norðan Vatnajökuls sem marga dreymir um að gera að þjóðgarði. Allmargt fólk hefur nýtt sér þennan möguleika og komið hugfangið til baka, sannfærðara en nokkru sinni um réttmæti þess að vernda þetta svæði um ókomin ár. Sú von lifir enn að þjóðin beri gæfu til að eignast þarna alvöru þjóðgarð á heimsmælikvarða í stað þeirrar eyðileggingar sem við blas- ir ef Kárahnjúkavirkjun verður að veruleika. Því miður er núverandi ríkisstjórn á móti þeirri framtíð- arsýn og vinnur markvisst gegn henni. Hættuleg undanlátssemi Með atbeina ríkisstjórnarinnar er nú unnið að stórfelldum fram- kvæmdum á ósnortnum víðernum landsins norðan Vatnajökuls til undirbúnings Kárahnjúkavirkjun þrátt fyrir að ekki er ennþá ljóst hvort af virkjuninni verður. „Það er einfaldlega allt undir Alcoa komið,“ fullyrti einn af stjórnar- mönnum Landsvirkjunar fyrir ör- fáum dögum. Enn er óljóst hvort Alcoa er tilbúið til að greiða það verð fyrir raforkuna frá Kára- hnjúkavirkjun sem þarf til að virkjunin gæti talist arðbær. Það verður að teljast ólíklegt enda þarf mikið til, en hins vegar er ástæða til að óttast undanlátssemi stjórn- valda sem vilja fyrir hvern mun koma þessu gæluverkefni sínu á koppinn fyrir komandi kosningar. Bandaríska álfyrirtækið Alcoa, sem hefur að undirförnu verið að loka álverksmiðjum í Bandaríkj- unum sem því finnst ekki lengur færa sér nægilegan gróða og ber við auknum launakostnaði og um- hverfisvandamálum, hefur það sem sagt í hendi sér hvort af óbæt- anlegum náttúruspjöllum verður á hálendi Íslands eða ekki. Ímynd stefnt í voða Á sama tíma og stórvirkar vinnuvélar rista í sundur ósnortin víðernin norðan Vatnajökuls er þrýst á um gerð Norðlingaöldu- veitu sunnan Hofsjökuls. Sá þrýst- ingur er á vissan hátt skiljanlegri Kárahnjúkatryllingnum í ljósi fjár- hagslegrar hagkvæmni og í ljósi niðurstöðu Skipulagsstofnunar í mati á umhverfisáhrifum vegna Norðlingaölduveitu. Sú niðurstaða vakti hins vegar mikla furðu og vonbrigði margra. Niðurstaðan gekk þvert á fullyrðingar stofn- unarinnar í úrskurðinum sjálfum þar sem ítrekað var sagt að Norð- lingaöldulón hefði í för með sér mikil óafturkræf umhverfisáhrif. Af öllum gögnum að dæma yrði um að ræða verulega röskun á frið- landinu í Þjórsárverum, enda hef- ur umhverfisráðherra nú til með- ferðar fjölda kærna vegna þessa úrskurðar Skipulagsstofnunar. Hvor tveggja þessara aðgerða, skerðing Þjórsárvera og spjöllin við Kárahnjúka, setur orðstír lands og þjóðar í hættu og stefnir í voða þeirri ímynd sem við byggjum svo margt á bæði í atvinnulífi lands- manna og ekki síður í vitund þjóð- arinnar. Hernaðurinn gegn landinu Grá fyrir járnum böðlast Lands- virkjun þannig áfram í skjóli nú- verandi ríkisstjórnar. Þeim liggur svo á að skemma þessi mikilvægu svæði að það er ekki hægt að bíða og sjá hvort yfirleitt verður af virkjun. Og þeir þykjast ekki geta beðið eftir endanlegri gerð Rammaáætlunar um vernd og nýt- ingu vatnsfalla sem ríkisstjórnin hratt af stað fyrir nokkrum árum. Þeir hlusta ekki einu sinni á það sem fram kemur í áfangaskýrslu Rammaáætlunar um helstu virkj- unarkosti, að það er verið að ráð- ast á þau svæði sem hæst nátt- úruverndargildi hafa, þau svæði sem okkur ber fyrst og fremst að vernda. Á það hlustar ekki Lands- virkjun og enn síður ríkisstjórnin. Hernaðurinn gegn landinu, sem Halldór Laxness skrifaði um víð- fræga grein fyrir rúmum 30 árum, er efstur á forgangslista ríkis- stjórnar og gælufyrirtækis hennar, Landsvirkjunar. Andspænis þessu ofbeldi í skjóli auðs og valds stendur fólk vaktina fyrir náttúru landsins með nokkra hundraðkalla, hugmyndaflug og heitar tilfinningar að vopni. Hve- nær og hvernig á þessu ofbeldi að linna? Við þurfum alvöru þjóðgarð Vinstri grænir hafa ítrekað flutt tillögur um verndun mikilvægra landssvæða á hálendinu. Þeir hafa lagt til stækkun friðlandsins í Þjórsárverum og stofnun raun- verulegs þjóðgarðs – ekki virkj- anaþjóðgarðs – norðan Vatnajök- uls í stað þeirra hrikalegu náttúruspjalla sem virkjun við Kárahnjúka hefði í för með sér. Stór hluti þjóðarinnar tekur undir þau sjónarmið, en því miður hefur núverandi ríkisstjórn lagst gegn þeirri stefnu. Ekkert er þó fjær náttúruvernd- arsinnum en að missa móðinn. Enn er ekki endanlega frágengið að virkjað verði við Kárahnjúka og enn er ekki allur skaðinn skeður þrátt fyrir óskammfeilið framferði Landsvirkjunar í skjóli ríkisstjórn- arinnar. Enn er því ekki úti um þann möguleika að stofna raun- verulegan þjóðgarð á heimsmæli- kvarða á þessu einstæða svæði. Slíkur þjóðgarður væri ekki aðeins mikilvægur frá sjónarhóli náttúru- verndar, heldur yrði veruleg lyfti- stöng fyrir atvinnulíf í fjórðungn- um og raunar á landinu öllu. Slíkur þjóðgarður legði traustari grunn að þróun íslensks atvinnulífs og framtíð afkomenda okkar en þau hervirki sem felast í stefnu rík- isstjórnarinnar. Þjóðgarður norðan Vatnajökuls Eftir Kristínu Halldórsdóttur „Enn er því ekki úti um þann mögu- leika að stofna raun- verulegan þjóðgarð á heimsmælikvarða á þessu einstæða svæði.“ Höfundur er framkvæmdastjóri VG. ÁRIÐ 1995 var gerð smávægileg breyting á setningu í lögum um al- mannatryggingar varðandi hag elli- lífeyrisþega. Setningunni um að „ellilaun eigi að fylgja launaþróun“ var breytt á þann veg að „ellilaun ættu að taka mið af launaþróun“. Eftir þessa breytingu hafa kjör elli- lífeyrisþega rýrnað mikið. Hlutfallið milli ellilauna (grunnlífeyrir, tekju- tryggingar og eingreiðsla) og lægstu launa lækkaði um 17%. Kaupmáttur lágmarkslauna hefur aukist um tæp 44% en kaupmáttur lífeyrisgreiðslna aldraðra 13,5% á árunum 1995–2002. Hér er ekki tek- ið tillit til hækkunar tekjuskatta á lægri laun á síðustu árum. Samkvæmt yfirlýsingum ríkis- stjórnarinnar skal lögð áhersla á að tryggja sérstaklega kjör öryrkja, fatlaðra og aldraðra sem lægstar tekjur hafa. En ríkisstjórnin hefur sneitt framhjá aðaldeilumálinu um að bæta öryrkjum og öldruðum mis- mun á hækkun grunnlífeyris og tekjutryggingar og hækkun á dag- vinnulaunum að meðaltali frá 1995. Aftur á móti vill stjórnin greiða fyrir aukna atvinnuþátttöku öryrkja og aldraðra og m.a. með smávægilegri lækkun tekjutengingar hjá þeim verst settu. En hvernig er staða þeirra verst settu? Samkv. skoðana- könnun heilbrigðis- og trygginga- málaráðuneytisins frá árinu 2000 er FEB hefur m.a. unnið úr kemur í ljós að um fjórðungur aldraðra á aldrinum 65–80 ára er nokkuð oft eða mjög oft veikur. Verulegur hluti þeirra hefur legið tvisvar eða oftar á sjúkrahúsi á árinu en tæp 40% taka fimm eða fleiri tegundir af lyfjum. Um 89% hafa ekki launaða vinnu og tæp 80% maka þeirra eru ekki í launaðri vinnu. Ef miðað er við ör- yrkja kemur í ljós að á aldrinum 17– 50 ára eru 20% í launaðri vinnu. Á aldrinum 51–60 ára innan við 25% og 15% á aldrinum 61 árs og eldri. Vinnuvika þeirra yngri en fimmtugt er 30 klst. á viku en 61 árs og eldri tæpar 17 klst. Hér er stuðst við upp- lýsingar frá „Veikir meðal aldraðra og öryrkja“ FEB 2001 og „Fé- lagsleg aðstaða öryrkja 1999 TR“. Hvernig eiga þessir hópar að bæta við sig vinnu sem einhverju nemur? Óskað er svars við þessari spurn- ingu. Nú hefur ríkisstjórn kallað eldri borgara til fundar og stofnað hefur verið til nefndarstarfa til að vinna að úrbótum á næstu tveimur til þremur árum. Samkvæmt orðum forsætis- ráðherra „skal stíga verulegt spor til úrbóta og árangur skal sjást í næstu fjárlögum“. Meginkrafa okk- ar er að öll ellilaun fylgi almennri launaþróun frá 1990 og sú hækkun sé ekki tekin til baka með sköttum. Þar er við treystum orðum forsætis- ráðherra um að verulegt spor verði stigið í þessum málum tökum við þátt í nefndarstörfum. Ef þetta tekst ekki verður að grípa til ann- arra og harðari aðgerða. Ellilaun eiga að fylgja en ekki taka mið af launaþróun Eftir Ólaf Ólafsson „Hvernig eiga þessir hópar að bæta við sig vinnu sem einhverju nemur?“ Höfundur er formaður Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.