Morgunblaðið - 01.10.2002, Blaðsíða 41
hans. Þetta þótti mér vænt um, en
það var ekki létt verk að taka við
af honum þar sem hann hafði verið
mjög farsæll í sínum störfum.
Kaupmannasamtök Íslands þökk-
uðu Hirti Jónssyni störf hans í
þágu kaupmanna og hve trúr og
heilsteyptur hann var í sínum
störfum með því að sæma hann
gullmerki samtakanna.
Ég vil að leiðarlokum þakka
Hirti samstarfið til margra ára. Ég
sendi eiginkonu, börnum þeirra
hjóna og öðrum ástvinum hug-
heilar samúðarkveðjur. Blessuð sé
minning Hjartar Jónssonar.
Gunnar Snorrason.
Hjörtur Jónsson, Haukanesi 18,
var nágranni okkar í 23 ár en lóðir
okkar liggja saman, nr. 16 og 18.
Hjörtur var þægilegur nágranni og
naut þess að búa við Kópavoginn
og njóta útsýnisins, sérstaklega á
kvöldin þegar Snæfellsjökull reis
úr hafi við sjóndeildarhring bað-
aður í roða kvöldsólar. Hann hafði
oft orð á því þegar vogurinn var
spegilsléttur og þá gaf hann gaum
að því lífi sem hann geymdi, far-
fuglum á leið sinni til Grænlands
og þeim sem dvöldu sumarlangt og
lengur. Og Hjörtur hlúði að öllum
gróðri hversu smár sem hann var,
af alúð.
Hjörtur gat rætt um landbún-
aðarmál mjög ítarlega, var hafsjór
af fróðleik, hefði orðið farsæll
bóndi. Smekkur hans var þrosk-
aður og fastmótaður í öllu sam-
anber hús þeirra hjóna að Hauka-
nesi 18. Ekki breyttust skoðanir
hans í pólitík öll þessi ár sem við
þekktumst, hann var vinur ein-
staklingsins og vildi veg hans sem
mestan, að hann nyti þess erfiðis
sem hann legði á sig því að hann
er uppspretta að meiru. Hann gat
tekið það nærri sér þegar „flokk-
urinn“ gekk of langt í „skriffinnsk-
unni“ og verst þótti honum hvað
illa er farið með gamla fólkið, fólk-
ið sem bjó það til sem menn njóta í
dag.
Gatan verður ekki söm.
Við vottum aðstandendum inni-
lega samúð.
Haukur Sveinbjarnarson
og Margrét.
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. OKTÓBER 2002 41
ekki svo á óvart, bæði vegna aldurs
hans og heilsu. Guðmundur, mað-
urinn með gullhjartað sem hún Rut
og börnin eignuðust var dásamleg-
ur. Síðan eignuðust þau mörg
barnabörn sem ekki elskuðu afa
sinn minna, og svo komum við vin-
irnir. Gleðistundirnar voru margar.
Fyrsta ferðin kringum landið, í
dásamlegu veðri, og löngu seinna til
Ameríku og til eyja í Karabíska haf-
inu, ótrúlegt ævintýri sem við búum
að til æviloka. Spilað að minnsta
kosti einu sinni í viku, ekki voru allt-
af allir sáttir við makker sinn og
sumir alveg ótrúlega þráir og var
enginn bakkgír í sögnum.
Í tæplega 50 ár vorum við vinirnir
saman bæði á annan í jólum, og á
gamlárskvöld og það var fjörugt á
meðan börnin voru lítil og að vaxa
úr grasi, en aldrei haggaðist Guð-
mundur.
Elsku Ruth mín og þið öll fjöl-
skyldan, mikið vorum við hamingju-
söm þegar þið ákváðuð að ganga
saman og að þið voruð svo heppin að
finna hvort annað. Það var mikið
gæfuspor. Elsku Ruth og fjölskylda,
við Viggó sendum okkar innilegustu
samúðarkveðjur og þakkir fyrir allt.
Guð veri með ykkur öllum.
Þú sæla heimsins svalalind,
ó, silfurskæra tár,
er allri svalar ýtakind
og ótal læknar sár.
Æ, hverf þú ei af auga mér,
þú ástarblíða tár,
er sorgir heims í burtu ber,
þótt blæði hjartans sár.
Mér himneskt ljós í hjarta skín
í hvert sinn, er ég græt,
því Drottinn telur tárin mín –
ég trúi, og huggast læt.
(Kristján Jónsson)
Hvíl þú í friði, kæri vinur.
Kolbrún.
Allt
Í staðinn hugsar maður
um eitthvað sem er fext
og hvernig því fari vindur
í faxi
en við skulum ekki nota orð
fyrir alla lifandi muni ekki orð
ég bara hangi í hárinu á þér
og sjórinn er fyrir neðan
(S.H.G.)
Einu sinni dreymdi mig Stefán
Hörð. Í draumnum var hann hávax-
inn og tígulegur en annars var hann
lágvaxinn og orðinn dálítið hokinn
með aldrinum. Hann gekk inn um
vængjahurðina að Gyllta salnum á
Hótel Borg en sú hurð var þá venju-
lega lokuð. Í salnum var svo mikil
birta að hann sýndist baðaður skín-
andi ljósi. Ég horfði á eftir honum en
fór innum dyrnar hinum megin þar
sem ég fékk ferskjugraut að borða í
fatahenginu.
Sama dag átti að afhenda Íslensku
bókmenntaverðlaunin í fyrsta sinn
og ég þóttist vita að draumurinn
táknaði að Stefán hlyti þau en var
ekki jafnviss um hvað ferskjugraut-
urinn táknaði. Mágur minn hélt að
ég myndi á einhvern hátt njóta
ávaxtanna. Það gekk eftir. Stefán
Hörður fékk bókmenntaverðlaunin
sem þá voru milljón krónur og gaf
mér einn tíunda hluta.
Hann hafði þann háttinn á að rétta
mér tíu eða tuttugu þúsund og sagði:
Þetta er fyrir bensíni. Á þessum
tíma vorum við Stefán Hörður nefni-
lega alltaf í bíltúrum. Fátt virtist
gleðja hann jafn mikið og að fara í
bíltúr, við rúntuðum um bæinn og
fórum út úr bænum, við keyrðum til
Þingvalla um nótt og það var þoka
yfir heiðinni og allt hljótt á Þingvöll-
um, það heyrðist aðeins í Öxarárfossi
og einni lóu. Við stóðum þarna í
álagakenndri tilbeiðslu, fossinn eins-
og himnesk slæða og lóan einsog
flauta guðs, og löngu seinna skynja
ég að landið var í honum, einhver
óstjórnleg ást á landinu sem var
endalaus efniviður í ljóð og hann batt
kirfilega niður einsog könguló sem
spinnur vef sinn í Almannagjá.
Hann sagðist ungur hafa flakkað
um landið með Unni konunni sinni,
þau lágu í tjaldi heilt sumar og sjálf-
ur fór hann oft einn síns liðs. Hann
sagði mér frá því þegar hann var sjó-
maður og sundkennari, hann hafði
þekkt Stein Steinarr og Ástu Sigurð-
ardóttur, hann hélt mikið uppá af-
mælisdaginn sinn og dýrkaði
mömmu sína. Og hann var svo góður
við strákana mína þegar þeir komu
með í heimsókn. Við sátum í íbúðinni
hans í háhýsinu og töluðum og töl-
uðum.
Upphaflega kynntist ég Stefáni
Herði þegar hann hringdi eftir að
fyrsta bókin mín kom út. Hann þakk-
aði fyrir og nefndi sérstaklega eitt
ljóð sem ég hafði ætlað að sleppa. Ég
þóttist himin höndum hafa tekið að
fá lof og prís frá sjálfum Stefáni
Herði, þetta var einsog ævintýri. Og
reyndar var hann svolítið ævintýra-
legur þótt hann væri svo dulur, ein-
rænn og fáskiptinn að hann meirað-
segja dó á afmælisdegi Gretu Garbo
en til marks um ævintýramennskuna
birtist hann einn daginn í Austur-
strætinu þar sem ég var að selja
bækur og hafði þá keypt upp lag-
erinn af bókinni minni í Eymunds-
son. Tildrög þess voru að sama dag
hafði birst dómur um bókina í DV
þar sem hún var sölluð niður. Stefán
Hörður fór í búðina og nefndi nafn
gagnrýnandans við afgreiðslustúlk-
una og sagði: Fyrst að þessi maður
skrifar illa um þessa bók hlýtur hún
STEFÁN HÖRÐUR
GRÍMSSON
✝ Stefán HörðurGrímsson skáld
fæddist í Hafnarfirði
31. mars 1919. Hann
lést á Hrafnistu í
Reykjavík 18. sept-
ember síðastliðinn
og var útför hans
gerð frá Dómkirkj-
unni 30. september.
að vera góð. Ég ætla að
fá allar bækurnar sem
til eru.
Þvílíkt örlæti, hug-
myndaflug, húmor;
eitthvað sem hitti beint
í mark. Það er eitthvað
svona sem sjómenn
gera, sýna stuðning
sinn í verki, og með
stæl. En við fengum
okkur kaffi á Hressó og
þessi tinandi maður
með sína lágu rödd svo
leggja varð eyrun við
og augu sem sveifluð-
ust á milli þess að vera
glettin og hvöss varð vinur minn og
vildi allt fyrir mig gera.
Svo endurtók sig sagan um það að
einhver kemur inn í líf manns, svo
fjarar sú heimsókn út, og maður
hugsar um að endurnýja kynnin en
lendir í því enn og aftur að skamma
sjálfan sig fyrir að hafa ekki sam-
band og hvað þurfi til að það gerist.
Ég fletti upp í ljóðabók Stefáns
Harðar Tengsl til að fá svar við þess-
ari spurningu og þá opnaðist bókin á
eftirfarandi ljóði
Tilbrigði við langa festi
Haltu áfram dís sem kemur ekki nema þú
sért farin, sem verður ekki nema þú haldir
áfram. Haltu áfram í slæðunum þínum sjö.
Það sem stendur eftir er þakklæti
fyrir hvað kynni okkar voru
skemmtileg og ljóðin standa eftir,
hann hafði einhverja stærðfræði-
hugsun sem var svo algerlega lógísk
að hún varð absúrd og þá aftur lógísk
o.s.frv. Þessari makalausu tækni
beitti hann svo á viðfangsefni sín af
óspilltri ástríðu.
Stundum er einsog ljóð Stefáns
Harðar gerist öll í tjaldi í lyng-
brekku gamals draums. Og það er lík
í tjaldinu en veröldin syngur.
Elísabet K. Jökulsdóttir.
Stefán Hörður Grímsson var tæp-
lega þrítugur þegar hann orti ljóðin í
Svartálfadansi. Þau voru ungu fólki
fagnaðarefni og tákn um nýja tíma
þegar bókin kom út árið 1951. Í titil-
ljóði bókarinnar stendur m.a.:
Kvöldið réttir að nóttinni strengjaspil
tímans
við lyftum glösum
og drekkum stundarskál.
Atómskáldin birtust á sviðinu um
þetta leyti. Stefán Hörður var eitt
þeirra og nú hljómuðu nýir tónar úr
strengjum:
Eftir hjartslætti tímans
fölskum blóðtónum stundar
stígum við bálvígðan dansinn.
Með ljóðum atómskáldanna stað-
festust tímamót í íslenskri ljóðagerð
og sá sem hér steig fram á sviðið var
sjómaður sem frá barnsaldri hafði
stritað við fiskveiðar og landbúnað-
arstörf en notið sáralítillar skóla-
göngu. Skáldskapargyðjan hafði
vitjað Stefáns Harðar snemma þrátt
fyrir óblítt umhverfi og í Svartálfa-
dansi var skáldþroski hans orðinn
ævintýri líkastur. En hann átti eftir
að sanna hæfileika sína enn frekar;
hann varð eitt af höfuðskáldum okk-
ar á tuttugustu öld. Og þegar hann
hlaut Íslensku bókmenntaverðlaun-
in í fyrsta sinn sem þau voru veitt,
árið 1990, fyrir síðustu ljóðabók sína,
Yfir heiðan morgun, var það í raun
söguleg stund í íslenskri ljóðlistar-
sögu. Atómkveðskapurinn hafði
reynst íslenskri ljóðagerð þörf end-
urnýjun og aflvaki.
Ungur að árum orti Stefán Hörð-
ur líka um Van Gogh; hann hafði alla
tíð mætur á verkum hans og fann til
vissrar samkenndar með hinum
ógæfusama listmálara: „Einförum lít
ég til suðurs / vin minn um glóandi
starir / halda í eld og sól“. Ævi Stef-
áns Harðar var ekki heldur sigling á
dauðum sjó. Lífsbaráttan var stund-
um erfið; leiðir hins sunnlenska
flökkumanns lágu víða, hann stund-
aði margskonar störf meðan heilsan
entist en sjálfur hlúði hann ekki allt-
af að henni sem skyldi. Hann var
hraustmenni á unga aldri en var þó
ekki gamall er hann kenndi krans-
æðasjúkdóms sem varð að lokum
hans banamein. Þótt heilsu hans hafi
hrakað hin síðustu ár, var hugurinn
skýr til hinstu stundar. Allt fram á
síðasta dag ræddum við saman um
skáldskapinn og tilveruna. Viðhorf
hans voru jafnan einörð: vandlátar
kröfur til bókmennta og óbeit á
hverskonar grimmd, náttúruspjöll-
um og ójöfnuði.
Stefán Hörður var ekki afkasta-
mikill í ljóðagerðinni; hann var mjög
vandvirkur og lét ekkert frá sér fara
nema það sem stóðst stranga gagn-
rýni hans sjálfs. Eftir hann liggja
einungis sex ljóðakver. Þau komu út
í veglegri heildarútgáfu fyrir tveim-
ur árum. Stefán Hörður meðhöndlar
yrkisefni sín af alúð og ástríðu. Ljóð
hans vitna um heilan hug og heitt
hjarta. Náttúruverðmætin, ástin,
fallvaltleikinn og framferði mann-
skepnunnar, eru hugðarefnin sem
hann fjallar um á sinn sérstæða hátt.
Tengsl manns og náttúru voru
honum afar hugleikin. Náttúran er
lífgjafi mannsins og uppspretta feg-
urðar. Hann var náttúruverndar-
sinni og deildi stundum vægðarlaust
á rányrkju mannsins í ríki náttúr-
unnar og á græðgi hans og stríðs-
rekstur.
Ástarljóð hans eru mörg og eft-
irminnileg; í þeim ríkja sterkar til-
finningar og þakklæti hjartans þó að
ástin sé jafnan fallvölt. Þessi ljóð eru
án hávaðasamra játninga og gjör-
sneydd allri tilfinningasemi þótt
ástríða ólgi undir niðri.
Stefán Hörður var skarpskyggn
maður og skemmtilegur í góðra vina
hópi. En hann var hlédrægur og vildi
aldrei láta á sér bera; hann forðaðist
sviðsljós fjölmiðlanna. Hann var ein-
arður í skoðunum, stundum hrjúfur
á yfirborðinu en í raun viðkvæm sál í
kuldans viðjum. Og núna þegar Stef-
án Hörður hverfur frá tæmdum
stundaglösum er gott að minnast
vináttunnar við hann og uppbyggi-
legra samræðna sem oft voru með
glettnu ívafi. Með ljóðum sínum gaf
hann okkur veganesti í lífsgönguna
og í þeim geymum við líka minn-
inguna um manninn og skáldið.
Eysteinn Þorvaldsson.
Það var bjartan haustdag árið
1958 að ég hitti Stefán Hörð í fyrsta
sinn á stéttinni fyrir utan Laugaveg
11. Ég man enn eftir fötunum sem
hann var í, einkum frakkanum, því
hann gekk í þeim næstu árin. Átti
víst ekki annað en hugsaði greinilega
vel um þau. Við hittumst stundum á
götum og torgum eða kaffihúsum
næstu árin og gjarnan í kunningja-
húsum t.d. í Unuhúsi hjá Einari
Braga og Kristínu, en þar var á þess-
um árum samkomustaður skálda og
fleiri listamanna. Stefán var þægi-
legur í umgengni°, oftast og hlýr og
skemmtilegur í tali, en fór stundum á
flug yfir kaffibolla ef umhverfið
leyfði. Hann þagnaði jafnan ef talið
barst að honum sjálfum. Á þessum
árum bjó Stefán í risherbergi við
Hjarðarhaga og Ragnar í Smára
borgaði leiguna. Það voru reyndar
Stefán og kunningi okkar Helgi
Kristinsson sem kenndu mér á
Ragnar í Smára. Galdurinn var að
mæta við Sundhöllina kl. sjö að
morgni og bíða við jeppann. Þetta
brást ekki og í kaupbæti fylgdu
margar jeppaferðir og stundum
þriðji maður tekinn uppí. Meðal ann-
arra man ég eftir Kjarval og Tómasi
Guðmundssyni.
Skömmu eftir 1960 var ég einn
vetur næturvörður á Hótel Skjald-
breið. Ég hafði þá kynnst ýmsu mið-
bæjarfólki sem gjarnan heimsótti
mig á vaktina. Það voru m.a. skáld og
listamenn, íþróttamenn, lausgopar,
kaupmenn og úrsmiðir. Meðal tíðra
gesta voru skáldbræðurnir Stefán
Hörður og Jónas E. Svafár.
Í kompu næturvarðar var kæli-
skápur þarsem vistir voru geymdar
til næturinnar. Ef Jónas kom fékk
hann oftast bitann en Stefán þáði
aldrei annað en kaffi. Eina nóttina
var Stefán í óvenjulegu stuði. Gekk
hratt um lítið herbergisgólfið svo
frakkinn sveiflaðist. Skyndilega nam
hann staðar, leit á mig og sagði; á ég
að fara með ljóð fyrir þig? Því var að
sjálfsögðu fagnað og greikkaði Stef-
án þá sporið og tók að þylja uppúr
sér ljóð og hvílíkt ljóð. Aldrei, hvorki
fyrr né síðar, hef ég heyrt annað
eins. Loftið varð rafmagnað og fyrir
augum mér flugu marglitar örvar
fram og aftur, svo sterk voru áhrifin.
Ég sakna þess enn að upptökutæki
var ekki við höndina en vonlaust að
reyna handskrift. Enn í dag get ég
kallað fram áhrifin af þessu ævintýri,
en ég er viss um að Stefán orti ljóðið
um leið og hann flutti það. Þarna
upplifði ég hver Stefán var í raun og
veru, en þær bækur sem frá houm
komu síðar eru fyrir mér sem endur-
ómur frá þessu næturljóði svo ágæt-
ar sem þær eru.
Uppruninn var Stefáni viðkvæmt
mál. Jafnvel fæðingarárið var á reiki.
Eina nóttina tókst mér þó að leiða
talið að þessu. Hann fæddist í Hafn-
arfirði en foreldrar hans bjuggu ann-
ars á Álftanesi. Faðir hans var sjó-
maður og drukknaði ungur. Móðir
hans veiktist uppúr því og var á spít-
ala eftir það. Borgar eldri bróðir
Stefáns veiktist barnungur af berkl-
um og dó á Vífilsstöðum 18 ára gam-
all. Borgar Grímsson ætlaði að verða
skáld og byrjaði snemma að yrkja.
Kært var með þeim bræðrum og
tregaði Stefán þennan bróður sinn
alla ævi. Einsog þetta sýnir varð
Stefán Hörður alger einstæðingur
strax á barnsaldri. Var honum þá
komið í fóstur að Selkoti undir Eyja-
fjöllum þar sem hann ólst upp sem
tökudrengur hjá vandalausu fólki.
Hann naut hefðbundins barnaskóla-
náms að hætti þess tíma, en var ann-
ars haldið að vinnu. Tökubörn í sveit
áttu sjaldan sjö dagana sæla. Ekki
hafði Stefán mörg orð um þetta
æskuheimili en víst er að hann sakn-
aði þess ekki. Hann bjó sér til
draumheim með rætur í fjölbreyttu
landslaginu og við ystu sjónrönd
sáust Eyjarnar bláar í safírsænum
og þangað hélt hann þegar hann
losnaði. Hann gekk í hvaða störf sem
var, enda vanur að vinna. Auk land-
vinnu var hann á síldarbátum, ver-
tíðarbátum og á farskipi um skeið, en
dreymdi um skólanám og komst einn
vetur í Laugarvatnsskóla. Þar komst
hann í bækur og orti. Í Eyjum
kynntist hann Ása í Bæ og félögum
hans og hélst vinskapur þeirra Ása
meðan báðir lifðu. Þegar Ási fluttist
til Reykjavíkur endurnýjaðist sam-
band þeirra, enda Stefán löngu
strandaður hér. Ási eignaðist bíl og
fóru þeir félagar þá víða og bar
gjarnan hratt á. Ég hafði þá stofnað
heimili nálægt miðbænum og þangað
komu þeir félagar oft og voru au-
fúsugestir og vinir barnanna minna.
Svo gerðist það ævintýri að Stefán
hóf sambúð með Unni Eiríksdóttur
skáldkonu frá Réttarholti í Reykja-
vík. Gaman var að fá þau í heimsókn
og sjá hvernig þau ljómuðu. Þá losn-
aði Stefán úr ruglinu sem hafði lam-
að getu hans og tók að yrkja á ný.
Aðdáendur Stefáns eiga Unni Ei-
ríksdóttur mikið að þakka. En allt
tekur enda og Unnur lést eftir sjö
ára sambúð. Þá varð Stefán einstæð-
ingur á ný, en var kominn á örorku-
bætur og fékk inni í húsum Öryrkja-
bandalagsins uns hann fluttist á
Hrafnistu fyrir nokkrum misserum
illa farinn og þreyttur.
Stefán hlaut verðlaun og viður-
kenningar fyrir skáldskap sinn á
seinni árum. Hann talaði aldrei um
það, en ég veit að þetta var honum
dýrmætt. Það var staðfesting þess
að hann þurfti ekki að biðjast afsök-
unar á tilveru sinni. Hann bjó alla tíð
að brenglaðri sjálfsmynd töku-
drengsins. Hann tók því t.d. illa ef
ung skáld vildu gera sér erindi við
hann og hleypti þeim ekki inn. Ég
skildi það er ég heimsótti hann, inni
hjá honum var ekkert nema her-
bergi. Ég man ekki einu sinni eftir
ritvél. Stefán mátti ekki til þess
hugsa að unga fólkið sæi einstæð-
ingsskapinn og fátæktina. Ég var
honum ekki sammála, því mér finnst
það einsog hvert annað ævintýri að
tökudrengurinn frá Selkoti skyldi
falla frá sem eitt af höfuðskáldum
þjóðarinnar. Ég fjalla ekki hér um
skáldskap Stefáns, það eru nógir til
þess, en maðurinn sjálfur er mér
minnisstæður og ég sakna þess að
eignast ekki með honum fleiri góðar
og gjöfular stundir.
Jón frá Pálmholti.