Morgunblaðið - 01.10.2002, Síða 42

Morgunblaðið - 01.10.2002, Síða 42
MINNINGAR 42 ÞRIÐJUDAGUR 1. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ Ég kynntist Sullu fyrir rúmum áratug, þegar ég hóf störf sem flugfreyja hjá Flugleið- um. Sulla var afbragðs- flugfreyja og einstaklega góð fyrir- mynd fyrir okkur sem vorum að stíga okkar fyrstu skref í starfi sem er ólíkt öðrum störfum. Með Sullu sér við hlið varð flugið og umbúnaður þess ekki eins framandlegt og kvíð- vænlegt og annars. Að sama skapi varð flugfreyjustarfið miklu skemmtilegra og einfaldara þegar Sulla var í áhöfninni, það sem máli skipti í hennar huga var það eitt að vera góð við farþegana og í kjölfarið yrði allt annað lítið mál. Sulla kom þannig fram við alla sem jafningja og engu breytti þótt hún væri ósammála og teldi sig vita betur, Sulla var alltaf söm við sig. Virðing mín fyrir Sullu óx við það að vera í þeirri aðstöðu að vera ósammála henni, þá kenndi hún mér að þrátt fyrir ólíkar skoðanir á einstökum hlutum, á að hafa í háveg- um virðingu, umburðarlyndi og taka sjálfa sig og aðra mátulega alvarlega. Betri fyrirmynd í lífi og starfi en Sullu er erfitt að finna í þeim fá- menna hópi sem flugfreyjur eru. Verður „flugið“ aldrei það sama í mínum huga. Að leiðarlokum kveð ég mína kæru Sullu og þakka fyrir að hafa fengið tækifæri til þess að kynnast henni og eiga hana sem vinkonu. Fjölskyldu hennar, Fúsa, dætrum og öðrum ást- vinum, sendi ég innilegar samúðar- kveðjur. Guðrún Björg Birgisdóttir. Barátta Sólveigar Brynjólfsdótt- ur, Sullu, við ólæknandi sjúkdóm var snörp og óvægin. Sjúkdómsstríð hennar stóð í um átta mánuði. Allir sem kynntust Sullu eiga ein- ungis um hana bjartar minningar og syrgja hana sárt nú þegar hún er lát- in langt um aldur fram einungis 52 ára að aldri. Sjálf missti Sulla móður sína, Klöru, aðeins 17 ára að aldri og tregaði hana mjög. Faðir hennar, Brynjólfur Brynjólfsson, veitinga- maður, átti fagurt ævikvöld ekki síst í ástríku skjóli Sullu og Vigfúsar. Sulla hafði í ríkum mæli þann eig- inleika að láta fólki líða vel í návist sinni. Hún var glaðvær kona sem ekki mælti hnjóðsyrði í garð sinna samferðamanna en sá gjarnan spaugilegu hliðarnar í fari fólks og þá ekki síður í sínu eigin. Jákvætt við- mót hennar og samviskusemi skap- aði henni vinsældir í starfi sem flug- freygja hjá Flugleiðum en þar starfaði hún í 32 ár. Gestrisni var Sullu í blóð borin og þau voru ófá heimboðin þar sem hún naut sín hlutverki gestgjafans og veitti af rausn í stórum vinahópi. Samband Sullu og Vigfúsar var af- ar sterkt og þau voru miklir vinir og félagar. Þau voru gift í 29 ár og áttu saman tvær myndarlegar dætur. Í erfiðum veikindum Sullu undanfarna mánuði kom glöggt fram gagnkvæm- ur styrkur þeirra og samheldni. Mikill harmur er nú kveðinn að SÓLVEIG BRYNJÓLFSDÓTTIR ✝ Sólveig Brynj-ólfsdóttir fædd- ist í Reykjavík 30. ágúst 1950. Hún lést á krabbameinsdeild Landspítalans 17. september síðastlið- inn og var útför hennar gerð frá Hallgrímskirkju 27. september. vini mínum Vigfúsi Ás- geirssyni og dætrun- um, Ágústu og Klöru, sem og Viktori og öðr- um ástvinum. Ég bið góðan guð að varðveita þau og styrkja í þeirra miklu sorg. Einlægar samúðar- kveðjur flyt ég frá okk- ur Birnu, börnum okk- ar og fjölskyldunni allri. Blessuð sé minning Sólveigar Brynjólfs- dóttur. Einar Sveinsson. Enn á ný erum við minnt á það með óþyrmilegum hætti að lífið er hverfult. Kær vinkona mín og félagi í leik og starfi er á brott kölluð úr þessum heimi eftir erfiða baráttu við krabbamein. Þá baráttu háði hún eins og hennar var von og vísa með æðruleysi og hetjuskap. Barlómur var þá sem endranær ekki til í henn- ar fari. Sulla eins og hún var jafnan kölluð, var einstaklega hress og skemmtileg. Allt þar til hún veiktist á miðjum síð- asta vetri geislaði hún af lífsgleði og atorku. Sulla var með afbrigðum dugleg og greiðvikin. Þá var hún gædd mikilli kímnigáfu, orðheppin og átti oft mjög skemmtileg tilsvör. Eins og góðum húmorista sæmir gerði hún ekki síst grín að sjálfri sér. Hún var jafnan hlý í viðmóti og lét sér annt um hag annarra, hvort sem var í gleði eða sorg. Umhyggju henn- ar fékk elsta barn mitt að njóta í rík- um mæli, er við bjuggum í sama stigagangi fyrstu búskaparárin á Dunhaganum, en heimili Sullu stóð dóttur okkar Lárusar ávallt opið. Sulla var mikill fagurkeri og bar hún sjálf og heimili hennar glöggt vitni þar um. Á stund sem þessari leita ósjálf- rátt á hugann ótalmargar og ljúfar minningar um samverustundir, sem ég og fjölskylda mín höfum átt á liðn- um árum og áratugum með Sullu, Vigfúsi og dætrum þeirra, ekki síst á Dunhaganum og í ferðum með vina- hópnum. Of langt mál yrði að rifja þær upp í þessum stuttu kveðjuorð- um, en minningarnar mun ég geyma um ókomin ár. Að leiðarlokum vil ég og fjölskylda mín þakka einstök kynni sem aldrei munu gleymast og bið ég góðan Guð að halda verndar- hendi sinni yfir vinkonu minni. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sig.) Elsku Vigfús, Ágústa, Klara, Vikt- or og ástvinir hennar allir, megi Guð vernda ykkur og styrkja á þessum erfiða tíma. Hildigunnur Sigurðardóttir. Þó styttist dagur daprist ljós og dimmi meir og meir, ég þekki ljós sem logar skært, það er ljós er aldrei deyr. (Margrét Jónsdóttir.) Hjartkær vinkona mín, Sulla, hef- ur kvatt okkur og er nú farin inn í ljósið. Það er sárara en orð fá lýst að fá ekki lengur notið samvista við hana, að heyra aldrei framar glaðlega röddina hennar í símanum, að við getum ekki hlegið okkur máttlausar yfir einhverju sem oftar en ekki var sprottið af hennar hárfínu athuga- semdum. Oft hef ég þakkað fyrir það í þá rúmu þrjá áratugi sem liðnir eru frá því að leiðir okkar lágu fyrst saman, að hafa átt hana að vini. Það hefur ekki aðeins verið mér ómetanlegt heldur einnig eiginmanni mínum og börnum, en þeim var hún líka kær vinkona. Hún var einmitt þeirrar gerðar að ná svo vel til barna og ung- linga með hnyttnum tilsvörum, hjálp- semi og skemmtilegheitum, að hún var bæði af mínum börnum og öðrum óskyldum kölluð „Sulla frænka“. Í vinahópnum var hún ævinlega hrókur alls fagnaðar og enginn gat betur kitlað hláturtaugarnar. En það var fleira sem einkenndi hana en glaðværðin og gott skaplyndi. Þar ber hæst hjálpsemina og ræktarsemina sem hún sýndi sam- ferðafólkinu í hvívetna. Það var allt gert af heilum hug og var henni svo eðlilegt. Það var einfaldlega allt svo sjálfsagt. Hún var mikil og myndar- leg húsmóðir og naut þess að veita gestum á fallegu heimili sínu. En ástin og kærleikurinn sem hún miðlaði til Vigfúsar og dætranna var einstakur og skilaði sér svo fallega í erfiðum veikindum hennar undan- farna mánuði. Það var yndislegt að fylgjast með því hversu vel þau og fjölskyldan öll hjálpuðust að við að létta henni sjúkdómsstríðið. Það er eitthvað sem aldrei gleymist þeim er á horfðu. En nú hefur dauðinn knúið dyra svo óvæginn og svo allt of fljótt. Við stöndum eftir vanmáttug og skynjum sem aldrei fyrr hversu litlu við ráðum í raun. Elsku Vigfús, Klara, Ágústa, Jó- hannes, Viktor, Erna og aðrir ástvin- ir, við hér í Birkihlíðinni biðjum góð- an Guð að geyma hana Sullu okkar og að veita ykkur og ástvinum styrk í sorginni. Vertu kært kvödd, yndislega vin- kona. Sigurbjörg (Systa). Það getur oft verið erfitt að byrja á nýjum vinnustað og eignast nýja samstarfsfélaga. Sólveig Brynjólfs- dóttir eða Sulla var einn af þessum nýju vinnufélögum er ég kynntist er ég hóf störf sem flugþjónn hjá Flug- leiðum. Hún var gædd miklum persónu- töfrum og einu því stærsta og hlýj- asta hjarta sem maður hefur kynnst á lífsleiðinni. Hún var alltaf til staðar fyrir mig, bæði í vinnu sem og utan, tilbúin að aðstoða þessa litlu sál í þessum stóra heimi sem flugheimur- inn og stórborgir erlendis eru. Ljúfa röddin hennar og fas voru með eindæmum, rödd sem aldrei gleymist. Hjartagullið mitt var það sem hún kallaði mig þegar ég byrjaði að vinna, grænn á bak við eyrun. Þetta er orð sem mun aldrei gleymast í mínu minni og lýsir hennar hjarta svo vel, gerðu úr gulli. Hvað hún nennti að dröslast með okkur ungliðana er við komum á nýja staði og urðum við að sjá og rata um helstu stórborgir því að annað var ekki hægt ef við skyld- um finna okkur þar ein einhvern dag- inn. Hún treysti mér og hafði fulla trú að ég myndi fljótt læra öll hand- tökin er ég þyrfti að kunna og erlend- um matarvenjum kynnti hún mig fyr- ir eins og kræklingunum í Halifax sem ég hafði aldrei smakkað áður og ætlaði aldrei að þora í. Hún kenndi mér einnig að hlusta ekki á kjafta- gang og sjá það góða í fólki, trúa engu sem þú heyrir og helmingnum af því sem þú sérð. Árin liðu en alltaf var vinskapurinn sá sami. Vænt þótti mér um að sjá að hún átti ennþá þakkargjöfina sem ég gaf henni einn daginn er við vorum saman í Halifax. Ég varð þeirrar gæfu aðnjótandi að fara til Búdapest á síðasta ári og hafði Sulla komið þangað áður og hringdi í mig og sagði hvert við ætt- um að fara og borða og að í óperuna yrðum við að fara. Var þetta í eitt af síðustu skiptum er ég talaði við Sullu, hvern hefði grunað að hún færi svona snemma. En þeir fara oft fyrstir sem hafa gullslegið hjarta og er ég viss um að nærveru hennar hefur verið óskað á æðri stað en hér meðal okk- ar, svo sárt sem það er að hugsa til. Ég veit að vel hefur verið tekið á móti Sullu minni þar, jafn vel eins og hún tók á móti mér og öllum öðrum. Fjöldskyldu hennar votta ég inni- lega samúð og bið góðan Guð að styrkja þau. Elsku Sulla, hjartagullið mitt, góða ferð þar til við sjáumst aftur. Þinn flugþjónn Kristján Jóhann Steinsson. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SIGFÚS SIGFÚSSON, Gröf, Víðidal, lést á Heilbrigðisstofnuninni á Blönduósi sunndaginn 29. september. Jarðarförin auglýst síðar. Fyrir hönd aðstandenda, Helga Sigfúsdóttir, Helgi Ingólfsson, Benedikt Sigfússon, Skúli Sigfússon, Jóhanna Sigfúsdóttir, Erlendur Sigtryggsson, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir okkar, KATRÍN ÞORSTEINSDÓTTIR, Fellskoti, lést á Sjúkrahúsi Selfoss miðvikudaginn 25. september sl. Jarðarförin mun fara fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Þeir, sem vilja minnast hennar, eru beðnir að láta Kvenfélag Biskupstungna njóta þess. Katrín Þórarinsdóttir, María Þórarinsdóttir, Guðlaugur Þórarinsson, Þorsteinn Þórarinsson, Eyvindur Þórarinsson. Ástkær systir mín, mágkona og föðursystir okkar, KRISTJANA ALEXANDERSDÓTTIR, frá Neðri—Miðvík, Aðalvík, lést á Landspítala Landakoti laugardaginn 28. september. Magnús Alexandersson, Eygló Guðjónsdóttir, Grétar Örn Magnússon, Sigríður Halldórsdóttir, Jóna Kristjana Halldórsdóttir, Hrafnhildur Halldórsdóttir, Sólveig Halldórsdóttir. Ástkær faðir, tengdafaðir og afi, JÓN MÁR ÞORVALDSSON prentari, lést á gjörgæsludeild Landspítala, Fossvogi, föstudaginn 27. september. Útför hans verður gerð frá Grafarvogskirkju föstudaginn 11. október kl. 13.30. Finnur Logi Jóhannsson, Oddný Halla Haraldsdóttir, Þorvaldur Ingi Jónsson, Dís Kolbeinsdóttir, Jóhanna Marín Jónsdóttir, Ingibjörg Agnes Jónsdóttir, Engilbert Þórðarson og barnabörn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, JÓHANNA SIGURJÓNSDÓTTIR, frá Kirkjuskógi, Miðdölum, Dalasýslu, Melgerði 6, Reykjavík, lést á líknardeild Landspítala Landakoti sunnu- daginn 29. september. Ása S. Hilmarsdóttir, Hans Kristinsson, Svanhildur Hilmarsdóttir, Ólafur Friðsteinsson, Ósk G. Hilmarsdóttir, Gunnar Harrysson, ömmubörn og langömmubörn. Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disk- lingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin Word og Wordperfect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins í bréfasíma 569 1115, eða á netfang þess (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi. Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við með- allínubil og hæfilega línulengd – eða 2.200 slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnar- nöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.