Morgunblaðið - 01.10.2002, Side 45

Morgunblaðið - 01.10.2002, Side 45
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. OKTÓBER 2002 45 TIL SÖLU H J varahlutir ehf. Varahlutir í Lada-bifreiðar. Bremsuhlutir í flesta bíla. Getum útvegað varahluti í Ssang Yong Family. Krókhálsi 10  110 Reykjavík s. 568 1050  Verkstæðissími 587 2595. Lagerútsalan — tilboð Þessa viku bjóðum við verkfærakassa með 20% afslætti. Tilboð verður á leikföngum í hverri viku til jóla. Þessa viku bjóðum við 20% afslátt af gæsaveiðitækinu góða. Lítið við og gerið góð kaup. Opið er frá kl. 10.00—12.00 og frá kl. 13.00— 17.00 alla daga, lokað kl. 16.00 föstudaga. I. Guðmundsson ehf., Skipholti 25, 105 Reykjavík. STYRKIR SAMIK Samstarf Íslands og Græn- lands um ferðamál SAMIK auglýsir hér með eftir umsóknum um styrki til verkefna sem aukið gætu samstarf Íslands og Grænlands á sviði ferðaþjónustu og skyldra verkefna. Styrkirnir geta aldrei numið nema 50% af heild- arkostnaði viðkomandi verkefnis. Umsóknir skulu sendar samgönguráðuneytinu — merktar SAMIK — fyrir 1. nóvember nk. á eyðublöðum sem þar fást. Eyðublöðin er einnig að finna á heimasíðu ráðuneytisins. All- ar upplýsingar þurfa að vera á dönsku eða ensku. Nauðsynlegt er að leggja fram kostnaðaráætl- un þess verkefnis sem sótt er um styrk til auk nákvæmra upplýsinga um umsækjendur, verk- efnið og tilgang þess. Stefnt er að því að ákvörðun um úthlutun styrkjanna liggi fyrir um miðjan nóvember. Fyrri helmingur styrksins er að jafnaði greiddur út þegar ákvörðun um styrkveitingu liggur fyrir og seinni helmingur þegar viðkomandi verk- efni er lokið. Nánari upplýsingar veitir Birgir Þorgilsson, stjórnarmaður í SAMIK í síma 553 9799. SAMIK, Samgönguráðuneytinu, Hafnarhúsinu v. Tryggvagötu, 150 Reykjavík. www.samgonguraduneyti.is KENNSLA Þarftu aðstoð við að grennast? Er að bæta við nýjum aðhaldshópi! Upplýsingar í síma 847 9118. Guðrún Þóra, næringarráðgjafi. Gersveppaóþol Kenni fólki að matbúa og baka brauð, sem inniheldur ekki hveiti, sykur, ger né þriðja krydd. Betri heilsa, burt með aukakílóin. Námskeiðið stendur í 4 kvöld. Elín Gústafsdóttir, sími 557 4776. SMÁAUGLÝSINGAR TILKYNNINGAR Sálarrannsóknarfélag Íslands, stofnað 1918, Garðastræti 8, Reykjavík Miðlarnir og huglæknarnir: Birgitta Hreiðarsdóttir, Erna Jó- hannsdóttir, Guðrún Hjörleifs- dóttir, Hafsteinn Guðbjörnsson, Kristín Karlsdóttir, Laufey Héð- insdóttir, María Sigurðardóttir, Oddbjörg Sigfúsdóttir, Rósa Ólafsdóttir, Skúli Lórenzson og Þórunn Maggý Guðmundsdóttir starfa hjá félaginu og bjóða upp á einkatíma. Einnig dulspek- ingurinn Amy Engilberts. Frið- björg Óskarsdóttir heldur utan um mannræktar-, bæna- og þróunarhringi. Tekið er á móti fyrirbænum. Upplýsingar og bókanir eru í síma 551 8130. Einnig er hægt að senda fax, s. 561 8130 eða á netfang srfi@isholf.is . Opnun- artími skrifstofu í Garðastræti 8 er frá kl. 9—16 alla virka daga. SRFÍ. KENNSLA  www.nudd.is FÉLAGSLÍF  Hamar 6002100119 I Fjhst.  HLÍN 6002100119 IV/V I.O.O.F.Rb.4  1521018-81/2. III* mbl.is ATVINNA FFA – fræðsla fyrir fatlaða og að- standendur – stendur að fyrirlestra- röð nú á haustönn, þar sem íslensk- ir fræðimenn kynna rannsóknir sínar á lífi og starfi fatlaðra barna og ungmenna. Fyrirlesarar munu kynna í stuttu máli niðurstöður og/ eða hugmyndir af rannsóknum sín- um og síðan gefst fundarmönnum tækifæri til þess að ræða umræðu- efni kvöldsins. Ráðgert er að í þess- ari fyrirlestraröð verði 5 fyrirlestr- ar annan hvern miðvikudag, og verður sá fyrsti miðvikudaginn 2. október í húsnæði Landssamtak- anna Þroskahjálpar, Suðurlans- dbraut 22, og hefst kl. 20. Dóra Bjarnason, dósent í félagsfræði við KHÍ, segir frá rannsókn sinni sem ber heitið: Getur maður orðið full- orðinn ef maður er fatlaður? Rannsókn þessi fjallar um hvern- ig ungu fötluðu fólki á Ísland, með ýmiskonar fötlun, gengur að takast á við líf sitt og aðstæður. Rann- sóknin byggist á viðtölum við 36 einstaklinga 16–24 ára, foreldra þeirra, vini og kennara, segir í fréttatilkynningu. Aðgangur er ókeypis – kaffiveit- ingar verða gegn vægu gjaldi. Fyrirlestur fyrir fatlaða og aðstand- endur Fyrirlestur um háskólastarf Dr. SANDRA Acker, prófessor við Ontario Institute for Studies in Education, heldur fyrirlestur á veg- um Rannsóknarstofnunar KHÍ næstkomandi miðvikudag 2. október kl. 16.15. Fyrirlesturinn verður hald- inn í sal 2 í nýbyggingu Kennarahá- skóla Íslands v/Stakkahlíð og er öll- um opinn. Í fyrirlestrinum notar Sandra 16 valin viðtöl úr kanadískri rannsókn sem nefnist Það skiptir máli: Kven- væðing og breytingar í starfsmennt- un á háskólastigi. Hún skoðar hvern- ig háskólamenntað fólk í kennslu, félagsráðgjöf, lyfjafræði og tann- lækningum sér fyrir sér háskóla- starfið. Erindi um fötlunarfræði MIÐVIKUDAGINN 2. október kl. 12–13 heldur dr. Rannveig Trausta- dóttir erindi sem hún nefnir Hvað er fötlunarfræði? Fyrirlesturinn er haldinn í stofu 101 í Odda, Háskóla Íslands og er öllum opinn. „Fötlunarfræði er ung fræðigrein sem hefur farið mjög vaxandi und- anfarin ár. Þessi fræðilega þróun endurspeglar vaxandi áhuga á fötlun sem samfélagslegu fyrirbæri og mik- ilvægum þætti í lífi okkar allra, enda líta fræðimenn í auknum mæli á fötl- un sem ögrandi og spennandi fræði- legt viðfangsefni,“ segir í fréttatil- kynningu. Námskeið gestakennara KHÍ Dr. ANDREA Honigsfeld er Ful- bright-gestakennari við Kenn- araháskóla Íslands nú á haust- misseri. Hún kennir á meistaranámssviði í Molloy Coll- ege, Rockville Centre, New York. Sérgreinar Andreu eru á sviði fjöl- menningarkennslu þar sem áhersl- an er á mismunandi menningaleg- an bakgrunn fólks og ólík tungumál og hún sér um samhæf- ingu námskeiða í MSc-náminu TESOL. Andrea hefur hlotið viðurkenn- ingar fyrir alþjóðlegar samanburð- arrannsóknir sínar á námsvenjum unglinga, segir í fréttatilkynningu. Hún hefur birt ýmsar greinar tengdar því að vinna með ensku sem annað tungumál og gefið leið- beiningar um hvernig hægt er að bjóða upp á einstaklingsmiðaða kennslu með tilliti til námsvenja hvers og eins. Andrea heldur á næstunni nokk- ur námskeið á vegum Símennt- unarstofnunar Kennaraháskóla Ís- lands og er hægt að nálgast upplýsingar um þau á slóðinni http://simennt.khi.is. Jafnframt er hún tilbúin að koma með sérsniðin námskeið eða fyrirlestra. Þeir sem áhuga hafa á því að fá dr. Andreu Honigsfeld á fræðslufundi eða fyr- irlestra snúi sér til Símenntunar- stofnunar Kennaraháskóla Íslands (simennt.khi.isog er hægt að senda tölvupóst á simennt@khi.is Námskeið í markaðsfræði og stjórnun TVEGGJA vikna skóli í rekstri, markaðsfræðum, stjórnun og stefnu- mótun hefst 3. október á Öngulstöð- um III í Eyjafirði. Skólinn er sniðinn að þörfum þeirra sem ekki hafa lang- skólamenntun á sviði viðskipta, en eru í stjórnunarstörfum í litlum eða millistórum fyrirtækjum. „Kennt er í tveimur vikulöngum lotum og fá þátttakendur innsýn í ís- lenskt efnahagskerfi og „nýju hag- fræðina“. Lögð er áhersla á samspil atvinnurekstrar við aðra þætti í þjóðlífinu eins og menningu og mannlíf og lýkur kennsludögum með heimsókn þjóðþekktra einstaklinga sem fjalla um málefni tengd viðskipt- um og mannlífi. Meðal kennara í At- vinnulífsinsskóla eru Kristján Jó- hannsson, lektor við viðskipta- og hagfræðideild HÍ, Þórður Víkingur Friðgeirsson, sérfræðingur í rafræn- um viðskiptum og verkefnastjórnun, Gylfi Dalmann Aðalsteinsson, lektor, og Runólfur Smári Steinþórsson, dósent við viðskipta- og hagfræði- deild HÍ. Ítarleg lýsing með dagskrá og sundurliðun kennsluefnis er á vef- síðunum www.endurmenntun.is og þar er jafnframt hægt að skrá sig,“ segir í fréttatilkynningu. Gjafabrjóstahöld Meðgöngufatnaður í úrvali Þumalína, Skólavörðustíg 41

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.