Morgunblaðið - 01.10.2002, Page 47
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. OKTÓBER 2002 47
þriðjudegi til laugardags
Mörkinni 3, 108 Reykjavík
sími 588 0640
Opið: mán-fös 11-18 • lau 11-15
Útsalafrá
15-60% afsláttur
15% afsláttur af ljósum á meðan á útsölunni stendur
Hönnun
gæði
glæsileiki
UM helgina voru 27 öku-
menn stöðvaðir fyrir of
hraðan akstur og afskipti
höfð af sjö ökumönnum
vegna gruns um ölvun við akstur.
Tími nagladekkjanna er ekki hafinn
en lögreglan þurfti að hafa afskipti
af tveimur ökumönnum sem vildu
vera tímanlega klárir í slaginn fyrir
veturinn.
Tilkynnt var til lögreglu um 33
umferðaróhöpp með eignatjóni um
helgina.
Á laugardag tilkynnti glöggur
vegfarandi að ung börn væru laus í
aftursæti bifreiðar. Þótt ótrúlegt sé
þarf lögreglan enn að hafa afskipti
af kærulausum foreldrum sem
nenna ekki að sjá til þess að börnin
noti bílbelti.
Athygli vekur að langflestir
þeirra sem voru stöðvaðir af lög-
reglu fyrir of hraðan akstur voru
undir tvítugu og nokkrir nýkomnir
með bílpróf. Meðal annars var 17
ára stúlka stöðvuð sl. föstudags-
kvöld á Sæbraut þar sem hún ók á
101 km hraða en þar er hámarks-
hraði 60 km miðaður við bestu að-
stæður. Árla laugardagsmorguns ók
17 ára piltur fram úr lögreglubifreið
á Vesturlandsvegi í Árúnsbrekku.
Ökuhraði hans var mældur og ók
hann á 120 km hraða. Lögreglu-
menn stöðvuðu för hans. Hann
kvaðst ekki hafa tekið eftir að það
var lögreglubifreið sem hann hafði
ekið fram úr.
Ræddu alvarlega við stúlkur
Sérstaklega var fylgst með úti-
vistartíma barna. Snemma á föstu-
dagskvöldinu hafði lögreglan af-
skipti af nokkrum stúlkum í
miðborginni. Ein þeirra var með í
fórum sínum brúsa sem innihélt
landa. Rætt var alvarlega við stúlk-
urnar og haft samband við forráða-
menn.
Sama kvöld barst lögreglu til-
kynning um að hópur ungmenna
væri fyrir utan hús í austurborginni
þar sem foreldralaust unglingapartí
var í gangi. Veislan leystist upp
fljótlega eftir að lögregla mætti á
svæðið. Tilkynningum um foreldra-
laus partí hefur fækkað á undan-
förnum árum og skorar lögreglan á
foreldra að taka höndum saman um
að leyfa ekki börnum að halda teiti
án eftirlits foreldra.
Brotist var inn í nokkrar bifreiðar
um helgina og vill lögreglan nota
tækifærið til að skora á fólk að
freista ekki óvandaðra og skilja ekki
eftir verðmæti eins og t.d. töskur,
sólgleraugu, farsíma eða önnur
verðmæti í bifreiðunum.
Á laugardagskvöldið var lögregla
kölluð í veitingahús í miðborginni
þar sem viðskiptavinur var að reyna
að koma sér undan því að borga fyr-
ir kvöldmáltíðina. Að lokum sættist
maðurinn á að greiða reikninginn en
þá tók lögreglumaður eftir því að
myndin á greiðslukortunum var
gjörólík manninum með veskið.
Maðurinn, sem var ölvaður, gat ekki
gert grein fyrir því hvernig veskið
hafði komist í hans hendur og gisti
því fangageymslu lögreglunnar.
Úr dagbók lögreglu 27.–30. september
Aðallega ungt fólk
stöðvað fyrir hraðakstur
Rangt nafn
Rangt var farið með nafn blaðsins
Byggiðn í blaðinu sl. miðvikudag og
er beðist velvirðingar á því.
Bakkatjörn
Í viðtali við Sigurgeir Sigurðsson
s.l. sunnudag var farið rangt með
heiti Bakkatjarnar og er beðist vel-
virðingar á því.
LEIÐRÉTT
STÚDENTAR frá Flensborgar-
skóla 1977, sem var þriðji stúd-
entshópur skólans, fögnuðu 25 ára
stúdentsafmæli sínu í vor. Sú hug-
mynd vaknaði að stofna félag, sem
jafnframt því að verða tengiliður
gamalla nemenda við skólannn,
gæti verið stuðningsaðili við
Flensborgarskólann og í dag, 1.
október, þegar skólinn fagnar því
að 120 ár eru liðin síðan skólinn
var settur í fyrsta sinn, verður
stofnfundur að Hollvinasamtök-
um Flensborgarskólans haldinn,
segir í fréttatilkynningu.
Skólinn á sér langa sögu og fjöl-
margir hafa stundað nám við skól-
ann. Allir þeir sem stundað hafa
nám við skólann geta verið félagar
sem og aðrir þeir sem vilja veg
skólans sem mestan. Á þessum
fyrsta stofnfundi verður lögð fram
tillaga að lögum félagsins og
bráðabirgðastjórn en allir sem
gerast félagar fram til áramóta
teljast stofnfélagar. Til að létta yf-
ir dagskránni mun kór Flensborg-
arskólans taka nokkur lög.
Stofnframlag til hollvinasam-
takanna er fjárhæð sem stúdents-
árgangurinn frá 1977 lagði til, en
væntanlegum félögum verður gef-
inn kostur á að leggja fé til rekst-
urs þeirra með lágu félagsgjaldi.
Upplýsingar um Hollvinasam-
tökin verða á nýrri heimasíðu
Flensborgarskólans sem verður
opnuð innan skamms en fram að
því verður hægt að skrá sig í fé-
lagið á www.fjardarposturinn.is/
hollvinir Fundurinn verður hald-
inn í sal Flensborgarskólans
þriðjudaginn 1. október og hefst
kl. 20:00.
Hollvinasamtök
Flensborgar-
skóla stofnuð Í REYKJAVÍKUR akademíunni,JL-húsinu við Hringbraut, verðurmálþing um heimspeki verðandinnar
í kvöld, þriðjudagskvöld, kl. 20.30.
Málþingið er í tengslum við vænt-
anlega útkomu nýrrar bókar, Heim-
speki verðandinnar - Rísóm, sifjar og
innrætt siðfræði. Bókin er í rit-
röðinni Atvik. Efni bókarinnar er
„Rísóm“, inngangurinn að Mille
Plateaux eftir Gilles Deleuze og Fél-
ix Guattari í þýðingu Hjörleifs
Finnssonar og ritgerðin „Hvers er
Nietzsche megnugur? Um íslenska
siðfræði og franska sifjafræði“ eftir
Davíð Kristinsson og Hjörleif Finns-
son. Ritstjóri bókarinnar er Geir
Svansson.
Pallborð málþingsins skipa:
Hjálmar Sveinsson, stjórnandi, Mar-
grét Elísabet Ólafsdóttir stunda-
kennari við LHÍ, Hjörleifur Finns-
son heimspekingur og þýðandi
„Rísóm“, Halldór Gíslason deildar-
forseti hönnunardeildar LHÍ og
Halldór Björn Runólfsson lektor og
kennari við LHÍ.
Málþing um
heimspeki
verðandinnar
MIÐVIKUDAGINN 2. október
standa Þekkingarmiðlun ehf. og
Saga Heilsa – Saga Spa – heilsu-
vernd og endurhæfing fyrir ráð-
stefnu um heilbrigði á íslenskum
vinnustöðum. Ráðstefnan ber heit-
ið Vinna – Vellíðan – Velgengni.
Fyrirlesarar eru fjölmargir, inn-
lendir og érlendir.
Ráðstefnuna setur Ari Edwald,
formaður Samtaka atvinnulífsins,
og ráðstefnustjórn er í höndum Jó-
hönnu Vigdísar Hjaltadóttur
fréttamanns. Ráðstefnan verður
haldin á Grand Hóteli, Reykjavík
og hefst kl. 12.10 á miðvikudag,
ráðstefnuslit eru áætluð kl. 16.45.
Frekari upplýsingar um ráð-
stefnuna og skráningar á ing-
rid@thekkingarmidlun.is og sa-
ga@sagaspa.is. Nánari
upplýsingar: www.thekkingarmidl-
un.is og www.sagaspa.is
Ráðstefna
um heilbrigði
á vinnustöðum
NÁMSKEIÐ Skipulags og skjala
ehf. „Inngangur að skjalastjórnun“
verður haldið mánudaginn 14. og
þriðjudaginn 15. október nk. frá
13:00–16:30 báða dagana. Nám-
skeiðið er öllum opið.
„Á námskeiðinu er farið í grunn-
hugtök skjalastjórnunar; lífshlaup
skjals, virk skjöl, óvirk skjöl,
skjalaáætlun og skjalalykil. Greint
er frá því hvernig leysa má skjala-
vanda íslenskra vinnustaða með
því að taka upp skjalastjórnun.
Skjalastjórnun er kynnt á nám-
skeiðinu sem liður í samkeppnis-
forskoti fyrirtækja. Fjallað er um
íslensk lög er varða skjalastjórnun
en opinberum vinnustöðum er í
raun skylt að taka upp skjala-
stjórnun eftir setningu stjórn-
sýslulaga, upplýsingalaga og laga
um persónuvernd,“ segir í frétta-
tilkynningu.
Kennari er Sigmar Þormar MA.
Sjá nánar: www.skjalastjornun.is.
Námskeiðsskráning og nánari upp-
lýsingar eru á netfangi: skipulag-
@vortex.is.
Námskeið um
skjalastjórnun
HROSSASMÖLUN og stóðréttir
verða í Víðidal, Húnaþingi vestra, 4.
og 5. október næstkomandi. Smalað
verður þann 4. október og réttað
daginn eftir.
Áhugasömum gefst tækifæri til að
taka þátt í Gaflsmölun 4. okt. Skrán-
ing fer fram á Kolugili ekki seinna en
mánudagskvöld 28. sept. Öllum er
velkomið að taka þátt og líta augum
gæðingsefni Víðdælinga.
Opið hús verður í kjölfar smölunar
í reiðhöllinni á Gauksmýri 4. október
kl. 20 – 23 og síðan skemmtun í Víði-
gerði þar sem Rúnar Júlíusson og
Þórir Baldursson skemmta.
Þeir sem hafa áhuga á að koma
hrossum á sölusýningar í tengslum
vð stóðréttir í Víðidal eru beðnir að
hafa samband við Magnús Ólafsson á
Sveinsstöðum.
Hrossasmölun og
stóðréttir í Víðidal
STOFNFUNDUR Félags aldraðra í
Mosfellsbæ og nágrenni verður
haldinn í Hlégarði, Mosfellsbæ, 1.
október 2002 og hefst fundurinn kl.
20.
Fyrr á árinu var komið á undir-
búningsnefnd að stofnun Félags
aldraðra í Mosfellsbæ og nágrenni.
Undirbúningi er nú lokið og boðað er
til fundar í Hlégarði. Allir áhuga-
menn um hagsmuni aldraðra eru vel-
komnir á fundinn en félagsaðild er
miðuð við 60 ára og eldri.
Félag aldraðra
stofnað í
Mosfellsbæ
HELGI Skúli Kjartansson sagn-
fræðingur flytur fyrirlestur sem
nefnist Samvinnuhreyfingin í sögu
Íslands í húsi Sögufélags, Fischer-
sundi 3 í Reykjavík þriðjudaginn 1.
október nk. klukkan 20.15. Þá leggur
Gunnar Karlsson prófessor mat á
umfjöllun hans. Á eftir verða al-
mennar umræður. Í upphafi flytur
Gerður Steinþórsdóttir oddviti
Áhugahóps um samvinnusögu ávarp.
Fundar- og umræðustjóri verður
Hulda Sigtryggsdóttir sagnfræðing-
ur. Léttar veitingar. Fyrirlesturinn
er á vegum Áhugahóps um sam-
vinnusögu og Sögufélags og er þetta
fyrsta fyrirlestrakvöldið af fimm um
samvinnuhreyfinguna.
Samvinnu-
hreyfingin í
sögu Íslands
Í OKTÓBER mun Mímir-Tóm-
stundaskólinn halda námskeið í sam-
vinnu við Reykjavíkurakademíuna
um ferðir Guðríðar Símonardóttur.
Kennari er Steinunn Jóhannesdótt-
ir, höfundur bókarinnar Reisubók
Guðríðar Símonardóttur, Skáldsaga
byggð á heimildum, sem kom út í
nóvember 2001 hjá Máli og menn-
ingu.
Námskeiðið verður haldið á mið-
vikudögum kl. 20–21.30 frá 2. októ-
ber og stendur í 4 vikur. Skráning
fer fram hjá Mími-Tómstundaskól-
anum eða á mimir.is.
Fræðst um ferðir
Guðríðar
Símonardóttur
FÉLAGSFUNDUR Lífssýnar
verður haldinn í kvöld, þriðjudag-
inn 1. október, kl. 20.30. Fyrirles-
ari er Erla Stefánsdóttir og mun
hún lesa valda kafla úr nýskrifaðri
bók sinni.
Fundirnir eru opnir öllum og er
aðgangseyrir 500 kr.
Félagsfundur
hjá Lífssýn
Bossakremið
frá WELEDA engu líkt
Þumalína, Lyf og Heilsa,
Lyfja, Heilsuhúsið