Morgunblaðið - 01.10.2002, Page 49

Morgunblaðið - 01.10.2002, Page 49
KIRKJUSTARF MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. OKTÓBER 2002 49 Áskirkja. Opið hús fyrir alla aldurshópa kl. 10–14 í neðri safnaðarsal kirkjunnar. Byrj- að á kaffisopa og kl. 10.30 er boðið upp á skemmtigöngu um Laugardalinn eða upp- lestur úr góðum bókum fyrir þá sem ekki treysta sér í gönguna. Bæna- og fyrirbæna- stund kl. 12. Fólk sem býr eða starfar í sókninni er hvatt til að koma og eiga kyrrð- arstund í önnum dagsins. Fyrirbænum má koma til starfsfólks kirkjunnar. Að lokinni bænastund gefst þátttakendum kostur á léttum hádegisverði. Opinn 12 spora fund- ur í kvöld kl. 19. Bústaðakirkja. TTT-æskulýðsstarf fyrir 10– 12 ára kl. 17. Grensáskirkja. Kyrrðarstund í hádegi kl. 12. Orgelleikur, ritningarlestur, altaris- ganga, fyrirbænir. Léttur hádegisverður að samverustund lokinni. Hallgrímskirkja. Fyrirbænaguðsþjónusta kl. 10.30. Beðið fyrir sjúkum. Laugarneskirkja. Bænanámskeið kl. 20. Sr. Bjarni Karlsson fræðir um bænina. Eng- in skráning. Þægilegt að vera með. Gengið inn um dyr á austurgafli kirkjunnar. Þriðju- dagur með Þorvaldi kl. 21. Lofgjörðarstund þar sem Þorvaldur Halldórsson leiðir söng- inn við undirleik Gunnars Gunnarssonar, en sóknarprestur flytur guðs orð og bæn. Fyr- irbænaþjónusta kl. 21.30 í umsjá Mar- grétar Scheving sálgæsluþjóns og hennar samstarfsfólks. (Sjá síðu 650 í Textavarpi.) Neskirkja. Litli kórinn – kór eldri borgara kl. 16.30. Stjórnandi Inga J. Backman. Allir velkomnir. Alfa-námskeið kl. 19. Umsjón sr. Örn Bárður Jónsson. Foreldramorgnar mið- vikudag kl. 10–12. Kaffi og spjall. Umsjón Elínborg Lárusdóttir. Seltjarnarneskirkja. Foreldramorgunn kl. 10. Kirkjuprakkarar (7–9 ára) kl. 16. Kirkju- starf TTT (10–12 ára) kl. 17.30. Óháði söfnuðurinn. Tólf sporin, andlegt ferðalag. Kynningarfundur á Tólf spora nám- skeiði vetrarins kl. 18. Árbæjarkirkja. Foreldramorgunn í safnað- arheimilinu kl. 10–12. Hittumst, kynnumst, fræðumst. Breiðholtskirkja. Bænaguðsþjónusta með altarisgöngu kl. 18.30. Bænaefnum má koma til sóknarprests í viðtalstímum hans. Fella og Hólakirkja. Foreldrastund í safn- aðarheimili á þriðjudagsmorgun kl. 10–12 í umsjón Kristínar Axelsdóttur, hjúkrunar- fræðings og djáknanema. Kaffi og notaleg- heit þar sem heimavinnandi foreldrar hitt- ast í góðu umhverfi kirkjunnar. Starf fyrir 11–12 ára stúlkur kl. 16.30. Digraneskirkja. Kirkjustarf aldraðra hefst kl. 11.15 með leikfimi ÍAK. Léttur málsverð- ur. Helgistund. Samvera. KFUM & KFUK í Digraneskirkju fyrir 10–12 ára krakka kl. 17–18.15. Fræðslusalur opinn fyrir leiki frá 16.30. Unglingakór Digraneskirkju kl. 17– 19. Alfa-námskeið kl. 19. Kvöldverður, fræðsla, umræðuhópar. Kennari sr. Magn- ús B. Björnsson. Grafarvogskirkja. Opið hús fyrir eldri borgara kl. 13.30–16. Helgistund, handa- vinna, spil og spjall. Kaffiveitingar og alltaf eitthvað gott með kaffinu. Æskulýðsfélag fyrir unglinga í 8. bekk Rimaskóla kl. 20– 22. Æskulýðsfélag fyrir unglinga í 9. og 10. bekk í Grafarvogskirkju kl. 20–22. Hjallakirkja. Bæna- og kyrrðarstund kl. 18. Kópavogskirkja. Foreldramorgunn í dag kl. 10–12 í safnaðarheimilinu Borgum. Seljakirkja. Mömmumorgunn. Opið hús kl. 10–12. Kaffi og spjall. Æskulýðsfundur fyrir 13 ára unglinga (fermingarbörn) kl. 20. Vídalínskirkja. Opið hús fyrir eldri borgara í safnaðarheimilinu, Kirkjuhvoli, kl. 13–16. Spilað og spjallað. Blöðin liggja frammi og heitt á könnunni. Stutt ferð á vegum starfs- ins einu sinni í mánuði í sumar. Allir vel- komnir. Víðistaðakirkja. Barnastarf fyrir 8–9 ára börn í dag kl. 17. Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús fyrir 10–12 ára börn í safnaðarheimilinu Strandbergi, Vonarhöfn frá kl. 17–18.30. Fríkirkjan í Hafnarfirði. Opið hús fyrir 7–9 ára börn kl. 16.30–18. Æskulýðsstarf, 8. og 9. bekkur, kl. 20–22. Landakirkja í Vestmannaeyjum. Kl. 15 kirkjuprakkarar, kirkjustarf 6–8 ára krakka. sr. Þorvaldur, Ingveldur og leiðtogarnir. Ytri-Njarðvíkurkirkja. Kór kirkjunnar, æfing í dag, þriðjudag, kl. 20.30. Sóknarprestur. Njarðvíkurkirkja (Innri-Njarðvík): Foreldra- morgunn í safnaðarheimilinu miðvikudag kl. 10.30 í umsjá Kötlu Ólafsdóttur og Petr- ínu Sigurðardóttur. Sóknarprestur. Grindavíkurkirkja. Foreldramorgnar alla þriðjudaga kl. 10–12. Hveragerðiskirkja. Foreldramorgnar þriðju- dagsmorgna kl. 10–11.30. Borgarneskirkja. TTT tíu til tólf ára starf alla þriðjudaga kl. 17–18. Helgistund í kirkj- unni sömu daga kl. 18.15–19. Þorlákskirkja. Fermingarfræðsla í dag kl. 13.40. Krossinn. Almenn samkoma kl. 20.30 í Hlíðasmára 5. Allir velkomnir. Kefas. Brauðsbrotning og bænastund kl. 20.30. Allir velkomnir. AD KFUK. Fyrsti fundur vetrarins verður haldinn í Vindáshlíð í kvöld. Kvöldverður, kvöldvaka, nýi skálinn skoðaður. Rútuferð frá Holtavegi 28 kl. 18. Akureyrarkirkja. Morgunsöngur kl. 9. Safnaðarstarf FIMMTUDAGINN 3. október kl. 14 hefjast í safnaðarheimili Háteigs- kirkju samverustundir sem bera nafnið vinafundir. Á vinafundum hjálpast fólk að við að vekja upp gamlar og góðar minningar, endur- uppgötva gleymdar tilfinningar og gildi s.s. nægjusemi, undrun og traust. Horft verður til þess hvort dýpstu uppsprettu gleðinnar sé ekki að finna í alhversdagslegustu at- burðum, félagsskap góðra vina, því að kynnast einhverjum óvænt, vor- kvöldi, hreiðri mófuglsins, berja- tínslu, stjörnubjörtum vetrarnótt- um, börnum og englum. Gef mér augnablik af hamingju og ég mun gera úr því heila ævi, var sagt einu sinni. Þannig getum við komið hvert inn í líf annars með ljós og gleði. Það eru allir velkomnir. Nánari upplýsingar gefa sr. Tóm- as Sveinsson og Þórdís Ásgeirsdóttir í Háteigskirkju í síma 511 5400. Trú og líf í Langholtskirkju MIÐVIKUDAGINN 2. október hefst í Langholtskirkju samvera frá kl. 18–19 undir yfirskriftinni Trú og líf. Kl. 18–18.15 verða kvöldbænir eða sungnar kvöldtíðir. Kl. 18.15–19 verður fræðsla og umræður um ýmsa þætti kristinnar trúar (s.s. bænina, Biblíuna, sakramentin, messuna, heimilisguðrækni o.s.frv.) sem og þau málefni sem ofarlega eru á baugi hverju sinni og snerta trúna. Samræða þátttakenda verður þungamiðjan í samverunni. Sr. Jón Helgi Þórarinsson og sr. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir leiða bæna- gjörð og samveru á eftir. Góðir gest- ir munu einnig koma stöku sinnum og miðla okkur af fróðleik sínum. Öllum er velkomið að taka þátt í dagskránni, og einnig að taka ann- aðhvort þátt í bænagjörðinni eða fræðslunni. Þessar stundir verða í október og nóvember. Augnablik hamingjunnar Sveit Guðmundar Sv. Her- mannssonar sigraði í bikarkeppni Bridssambandsins sem lauk á ní- unda tímanum í fyrrakvöld. Sveitin spilaði til úrslita við sveit Orkuveitu Reykjavíkur og vann sannfærandi 161,5 gegn 95,5. Mótið hefir staðið yfir í allt sumar en alls hófu 39 sveitir víðs vegar að af landinu keppni. Í undanúrslitum sl. laugardag spilaði sveit Orkuveitu Reykjavíkur gegn sveit Subaru. Hinir síðar- nefndu náðu sér aldrei á strik og urðu að játa sig sigraða eftir 48 spil en leikurinn endaði 114–89. Sveit Guðmundar Sv. spilaði gegn sveit Þórólfs Jónassonar. Norðanmenn byrjuðu mun betur í fyrstu lotu og unnu hana 49–18. Næsta leik átti sveit Guðmundar sem vann næstu lotu 45–3 og þessum tökum slepptu hún ekki og vann 130–112. Í fyrradag var svo spilaður 64 spila leikur og til að gera langa sögu stutta hafði sveit Guðmundar Sv. undirtök- in allan leikinn og vann sannfærandi 161,5 gegn 95,5. Í sigursveitinni eru ásamt fyrirliðanum þeir Helgi Jó- hannsson, Björn Eysteinsson, Guð- mundur Páll Arnarson og síðast en ekki sízt Ásmundur Pálsson. Ásmundur lætur engan bilbug á sér finna þótt hann sé kominn vel yf- ir sjötugt. Hann hefir unnið þennan bikar fjórum sinnum áður fyrst 1980 þá 1984, 1989, 1998 og svo nú 2002. Bikarinn sem spilað er um fór í umferð 1977. Gefandi er Magnús Aspelund og það var sveit Ármanns J. Lárussonar sem hampaði bikarn- um fyrst. Morgunblaðið/Arnór Ragnarsson Bikarmeistararnir hampa bikarnum í mótslok. Frá vinstri: Guðmundur Páll Arnarson, Ásmundur Pálsson, Helgi Jóhannsson, Björn Eysteinsson og Guðmundur Sveinn Hermannsson. BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson Sveit Guðmundar Sveins vann bikarkeppni Bridssambandsins Haustferð að virkjanasvæðunum 5. október Sjálfstæðisfélögin í Reykjavík hafa undanfarin ár efnt til haustlita- eða haustferða um nágrenni borgarinnar. Að þessu sinni verður farið ögn lengra en undanfarin haust. Verður nú haldið að virkjanasvæðunum á Suðurlandi. Tilhögun ferðarinnar verður í stórum dráttum á þann veg að lagt verður af stað frá Valhöll við Háaleitisbraut kl. 10.00 og ekið sem leið liggur upp í Þjórsárdal og að Búrfellsvirkjun. Þaðan verður svo haldið að virkjanasvæðunum við Sigöldu og Hrauneyjafoss og upp í Vatnsfell, þar sem vel sést yfir svæðið í góðu skyggni. Leiðsögumaður frá Landsvirkjun verður með í för. Um hádegisbil verður snæddur léttur hádegisverður og boðið upp á kaffiveitingar um eftirmiðdaginn. Reiknað er með að komið verði í bæinn um kl. 18.30. Umsjón með ferðinni hefur að vanda Sjálf- stæðisfélagið í Nes- og Melahverfi. Þeir sem vilja taka þátt eru vinsamlega beðnir að skrá sig í síma 515 1700 eða með tölvupósti xd@xd.is og kostar ferðin kr. 1.000 og er þá allt innifalið. Frítt er fyrir börn yngri en 12 ára. Allir velkomnir. Sjálfstæðisfélögin í Reykjavík. Ertu með mat á heilanum? Get bætt við mig nokkrum í einkatíma Þetta gætu verið fyrstu sporin til varanlegs bata. Stuðst er við 12 spora kerfi. Upplýsingar gefur Inga Bjarnason í síma 552 3132 og 866 1659 Upplýsingar gefur Martin í síma 567 4991 eða 897 8190 Um er að ræða 4ra ára nám sem byrjar í haust á vegum College of Practical Homoeopathy í Bretlandi. Mæting 10 helgar á ári í Reykjavík. Spennandi nám. Kennarar með miklu reynslu. Hómópatanám Ertu að lengja sumarið? Sundbolir, bikini, bermudabuxur, kvartbuxur og bolir Meyjarnar, Austurveri, Háaleitisbraut 68, sími 553 3305.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.