Morgunblaðið - 01.10.2002, Page 50
DAGBÓK
50 ÞRIÐJUDAGUR 1. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Skóg-
arfoss, Stella Lyra, Lóm-
ur og Helgafell koma í
dag.
Hafnarfjarðarhöfn: Sel-
foss kom til Straums-
víkur í gær, Stella Rigel
kom í gær til Straums-
víkur og fer til Reykja-
víkur í dag. Polar Sigir
kom í gær, Sonar kemur
í dag.
Fréttir
Mæðrastyrksnefnd
Kópavogs, Hamraborg
20a. Fataúthlutun þriðju-
daga kl. 17–18.
Mannamót
Aflagrandi 40. Vinnu-
stofa, jóga og leir kl. 9,
enska kl. 10, allir mæti
þá, postulín kl. 13, söng-
stund kl. 14. Mánud. 7.
okt. verður farið á Hafið.
Rútuferð kl. 12.45, skrán-
ing í afgreiðslu, s.
562 2571.
Árskógar 4. Kl. 9–12 op-
in handavinnustofa, kl. 9–
12.30 bókband og öskju-
gerð, kl. 9.30 dans, kl.
9.30–10.30 Íslandsbanki,
kl. 13–16.30 opnar handa-
vinnu- og smíðastofur, kl.
10–16 pútt.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 9–
9.45 leikfimi, kl. 9–16
handavinna, kl. 10–11.30
sund, kl. 13–16 leirlist.
Haustfagnaður verður
fimmtud. 17. okt. Hlað-
borð, salurinn opnaður
kl. 16.30, dagskráin hefst
með borðhaldi kl. 17,
strætókórinn syngur,
dansað, happdrætti,
Skráning á skrifstofu fyr-
ir kl. 12 miðvikud. 16. okt.
Eldri borgarar í Mos-
fellsbæ, Kjalarnesi og
Kjós. Félagsstarfið opið
mánu- og fimmtudaga.
Félagsstarf eldri borg-
ara í Grafarvogi. Þriðjud.
kl. 9.45 og föstud. kl. 9.30
vatnsleikfimi í Graf-
arvogslaug.
Félagsstarfið, Dalbraut
18–20. Kl. 10–11 sam-
verustund, kl. 14 fé-
lagsvist.
Félagsstarfið, Dalbraut
27. Kl. 8–16 opin handa-
vinnustofan, kl. 9–16
vefnaður, kl. 10–13 opin
verslunin, kl. 13.30
myndband.
Félagsstarfið, Furugerði
1. Kl. 9 handavinna og
bókband, kl. 13 spilað.
Mánud. 7. okt. verður
farið að sjá Hafið, lagt af
stað kl. 13. Skráning í s.
553 6040.
Félagsstarfið, Lönguhlíð
3. Kl. 11 leikfimi, kl. 13
föndur og handavinna, kl.
14.45 söngstund í borð-
sal. Enskukennsla hefst
miðvikudaginn 2. okt. og
verður á mánu- og mið-
vikudögum í vetur kl.
13.30.
Félagsstarf aldraðra,
Garðabæ. Þriðjud. kl. 9
vinnuhópur, gler, kl.
10.30 boccia, kl. 11.40
leikfimi karla, kl. 13 mál-
að, kl. 13.30 tréskurður
og spilað í Kirkjuhvoli.
Miðvikud. 2. okt. spilað í
Holtsbúð kl. 13.30.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Leikfimi í
Bjarkarhúsinu kl. 11.30,
handavinna og brids kl.
13.30, púttað á Hrafn-
istuvelli kl. 14–16. Miðvi-
kud.: Tréskurður kl. 9,
myndlist kl. 10–16, línu-
dans kl. 11, glerskurður
kl. 13, pílukast kl. 13.30.
„Opið hús“ verður fimm-
tud. 3. sept. kl. 14, félagar
frá Gerðubergi koma í
heimsókn. Leikhúsferð í
Borgarleikhúsið laugard.
12. okt. að sjá Kryddlegin
hjörtu, skráning í Hraun-
seli s. 555 0142.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði.
Glæsibæ. Ath. kaffistof-
an verður lokuð þessa
viku vegna breytinga í
Glæsibæ. Þriðjud.: Skák
kl. 13, alkort spilað kl.
13.30. Miðvikud.: Göngu-
hrólfar ganga frá
Hlemmi kl. 9.45. Söng-
félag FEB, kóræfing kl.
17. Námskeið í framsögn
kl. 16.15. Upplýsingar á
skrifstofu FEB, s.
588 2111.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Kl. 9–16.30
opin vinnustofa, tré-
skurður, kl. 10 leikfimi,
kl. 12.40 verslunarferð í
Bónus, kl. 13.15–13.45
bókabíllinn.
Gerðuberg, félagsstarf.
Kl. 9–16.30 vinnustofur
opnar, kl. 13. boccia, á
morgun kl. 10.30 byrja
gamlir leikir og dansar,
kl. 13 sýning á postulíns-
munum og skráning á
postulínsnámskeið sem
byrjar mánud. 14. okt.
Fimmmtud. 3. okt heim-
sókn til eldri borgara í
Hraunseli í Hafnarfirði.
Mæting í Gerðubergi kl.
13.30, skráning hafin.
Föstud. 4. okt. kl. 13
byrjar bókband, kl. 20–
23.30 dansleikur. Vetr-
ardagskráin komin.
Gjábakki, Fannborg 8.
Kl. 9.30 glerlist, handa-
vinnustofan opin, leið-
beinandi á staðnum kl.
10–17, kl. 14 þriðjudags-
ganga og boccia, kl. 17.15
kínversk leikfimi.
Gullsmári, Gullsmára 13.
Kl. 9.15 postulínsmálun,
kl. 10 ganga, handa-
vinnustofan opin kl. 13–
16, kl. 17 línudans.
Hvassaleiti 56–58. Kl. 9
boccia, kl. 9.45 banka-
þjónusta, kl. 13 handa-
vinna, kl. 13.30 helgi-
stund.
Háteigskirkja, eldri
borgarar, á morgun, mið-
vikudag, kl. 11 samvera,
fyrirbænastund og stutt
messa í kirkjunni, súpa í
Setrinu kl. 12, spil kl. 13.
Hraunbær 105. Kl. 9
postulínsmálun og gler-
skurður, kl. 10 boccia, kl.
11, leikfimi, kl. 12.15
verslunarferð, kl. 13
myndlist. Föstud. 4. okt.
verður hádegishlaðborð,
borðhald hefst kl. 12.30.
Skráning á skrifstofu eða
í s. 587 2888.
Norðurbrún 1. Kl. 9–
16.45 opin vinnustofa og
tréskurður, kl. 10–11
boccia.
Vesturgata 7. Kl. 9.15–16
bútasaumur, kl. 9.15–
15.30 handavinna, kl. 13–
16 spilað, brids, tvímenn-
ingur, kl. 13.30–14
bankaþjónusta.
Fimmtud. 3. október er
13 ára afmæli þjónustu-
miðstöðvarinnar, í því til-
efni er gestum og velunn-
urum boðið í morgunkaffi
kl. 9–10.15. Kl. 10.30
helgistund.
Vitatorg. Kl. 8.45 smíði,
kl. 9.30 glerskurður og
morgunstund, kl. 10 leik-
fimi, kl. 13 handmennt
m.a. mosaik, kl. 14 fé-
lagsvist.
Bridsdeild FEBK, Gjá-
bakka. Brids í kvöld kl.
19.
Félag áhugamanna um
íþróttir aldraðra. Leik-
fimi í Bláa salnum kl. 11.
Sjálfsbjörg, félag fatl-
aðra á höfuðborgarsvæð-
inu, Hátúni 12. Kl. 20
bingó.
Karlakórinn Kátir karl-
ar, æfingar á þriðjud. kl.
13 í Félags- og þjónustu-
miðstöðinni, Árskógum
4.
Félag ábyrgra feðra.
Fundur í Shell-húsinu,
Skerjafirði, á mið-
vikudögum kl. 20, svarað
í s. 552 6644 á fund-
artíma.
ITC-deildin Fífa í Kópa-
vogi. Fundur á morgun
kl. 20.15, í Safnaðarheim-
ili Hjallakirkju, Álfaheiði
17. Uppl. í s. 554 2045.
Kvenfélag Seljasóknar.
Fyrsti fundur vetrarins í
dag í kirkjumiðstöðinni
kl. 20. Tískusýning.
Kvenfélag Háteigs-
kirkju. Fundur kl. 20 í
safnaðarheimilinu. Mæt-
ing í kirkjunni. Gestir
fundarins konur úr
Kvenfélagi Fella- og
Hólasóknar og Lang-
holtssóknar. Bingó.
Húnvetningafélagið.
Sunnudagin 6. okt kl.
13.30 opið hús í Húnabúð,
fjölbreytt dagskrá um
Arinbjörn Árnason frá
Neðri-Fitjum í Miðfirði.
Umsjón Árni Arinbjarn-
ar. M.a. harmónikku-
leikur, Grettir Björns-
son, flauta og píanó,
Joanne og Arinbjörn
Árnason, upplestur, Karl
Á. Sigurgeirsson frá
Hvammstanga.
Kvenfélag Fríkirkj-
unnar í Reykjavík.
Fyrsti fundur vetrarins
verður fimmtud. 3. okt. í
Safnaðarheimilinu, Lauf-
ásvegi 13, kl. 20. Rætt
verður um vetrarstarfið.
Kaffiveitingar.
Stokkseyringafélagið í
Reykjavík. Aðalfund-
urinn verður haldinn
sunnudaginn 6. október í
Sóltúni 20, Rvk, kl. 15.
Venjuleg aðalfund-
arsstörf, kaffi og með-
læti. Félagar, fjölmennið.
Í dag er þriðjudagur 1. október,
274. dagur ársins 2002. Orð dagsins:
Þess vegna, mínir elskuðu bræður,
verið staðfastir, óbifanlegir, síauð-
ugir í verki Drottins. Þér vitið að
erfiði yðar er ekki árangurslaust í
Drottni.
(1. Kor. 15, 58.)
K r o s s g á t a
LÁRÉTT:
1 gefa nafn, 4 tannstæði,
7 pípuna, 8 baul, 9 ber, 11
beitu, 13 sigra, 14 reiki,
15 grund, 17 ferming, 20
tímgunarfruma, 22 gort-
ar, 23 blærinn, 24 sáð-
lönd, 25 mál.
LÓÐRÉTT:
1 skýla, 2 klakinn, 3 ein-
kenni, 4 örg, 5 fýll, 6
magran, 10 vatnsflaum-
ur, 12 sjávardýr, 13
greind, 15 gefa eftir, 16
danglar í, 18 skorturinn,
19 naga, 20 vex, 21 gá-
leysi.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 auðsveipt, 8 pínir, 9 iðjan, 10 ill, 11 kúrir, 13
landa, 15 glans, 18 króna, 21 Týr, 22 titri, 23 afann, 24
barnaskap.
Lóðrétt: 2 unnur, 3 særir, 4 erill, 5 prjón, 6 spik, 7 snúa,
12 inn, 14 aur, 15 gota, 16 aftra, 17 stinn, 18 krafs, 19
ólata, 20 asni.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Víkverji skrifar...
LEIKFÉLAG Akureyrar frum-sýndi eitt af lykilverkum leik-
bókmenntanna, Hamlet eftir
Shakespeare, síðastliðinn föstudag.
Víkverji hefur miklar mætur á
þessu verki og brennur nú í skinn-
inu að komast norður eftir að hann
las leikdóm Sveins Haraldssonar í
Morgunblaðinu á laugardag. Sýn-
ingin fær þar frábæra dóma. Það
gæti þó reynst þrautin þyngri því
Víkverji verður fremur upptekinn
næstu helgar og aðeins eru fyrir-
hugaðar fjórar sýningar til viðbótar
á verkinu. Þetta vekur spurningu
um það hvort LA ætti ekki að leita
leiða til að fara með Hamlet í leik-
ferð suður um heiðar. Það eru ugg-
laust margir leikhúsunnendur í
sömu sporum og Víkverji og myndu
færa sér það í nyt. Kannski er þetta
alltof dýrt í framkvæmd og ef til vill
hafa liðsmenn Leikfélags Akureyr-
ar öðrum hnöppum að hneppa. Vík-
verji vill eigi að síður koma þessari
hugmynd á framfæri og segir fyrir
sína parta að hann myndi glaður
borga aðeins meira fyrir miðann, ef
það yrði til þess að fleyta Danaprins
yfir þröskuldinn.
NÝYRÐI fara misvel í munni.Sum festa sig fljótt í sessi en
önnur eru til eilífra vandræða. Eitt
af þeim síðarnefndu er orðið „uppi-
standari“ (e. Stand Up Comedian)
um mann sem stendur á sviði og
segir spésögur. Víkverja hryllir við
þessu orði og vill útrýma því hið
fyrsta. En eitthvað þarf að koma í
staðinn, ekki satt? Víkverji hefur
velt þessu aðeins fyrir sér og datt
fljótlega niður á orðið „sviða-
kjammi“. Það nær ágætlega utan
um mann sem fremur verknað af
þessu tagi. Víkverja er ljóst að orðið
hefur þegar aðra merkingu í ís-
lensku máli en er það ekki góðra
orða eðli að hafa margþætta merk-
ingu?
x x x
VÍKVERJI er harður Arsenal-maður og nýtur þess að fylgj-
ast með liðinu sínu um þessar
mundir. Það daðrar við fullkomnun
í sóknarleik sínum og slær hvert
metið á fætur öðru. Það er auðvitað
alltof snemmt að tala um titla á
þessu stigi sparktíðar en Arsenal er
bersýnilega til alls líklegt. Megi
þessir flugeldar vera sem lengst á
lofti.
Víkverji hjó eftir því þegar Ars-
enal kjöldró Leeds United á Elland
Road síðastliðinn laugardag að í
byrjunarliðinu voru níu svartir
menn. Þetta er til marks um þá
miklu breytingu sem orðið hefur á
knattspyrnunni í Englandi en lengi
vel áttu blökkumenn afar erfitt upp-
dráttar þar í landi. Það var ekki fyrr
en á ofanverðum áttunda áratugi
síðustu aldar að menn á borð við Viv
Anderson, Cyrille Regis og Laurie
heitinn Cunningham hófu að ryðja
brautina. Þá var ferill heimsstjarna
eins og Pelé og Eusebio á enda. Svo
aftarlega voru Englendingar á mer-
inni. Sum lið voru íhaldssamari en
önnur og Víkverji man álagið á
skjálftamælum í Liverpool-borg
þegar John Barnes gekk til liðs við
samnefnt lið sumarið 1987. Snilld
Barnes var hins vegar ótvíræð og
hann vann stuðningsmenn Liver-
pool umsvifalaust á sitt band.
Víkverji fagnar þessari þróun
enda á kynþáttamisrétti ekki heima
í knattspyrnu fremur en á öðrum
stöðum í upplýstu samfélagi.
Hetjuverk
NÁÐIST slasaður á flótta
undan leitarmönnum.
Þannig var upphaf fréttar
sem birtist í Morgun-
blaðinu 24. september. Og í
framhaldi kemur lýsing
leitarmanna um eltingar-
leik við hrút er hafði geng-
ið úti síðastliðinn vetur. En
nú skyldi hann fangaður af
hetjum miklum. Eltu
skepnuna trúlega með
hunda með sér. Hvað var
dýrið að flýja nema þessar
hetjur? Ég segi bara: Ekki
vildi ég eiga kind eða aðrar
skepnur í umsjá þessara
manna. Þetta atvik var að
mínum dómi lítilmannlegt
og ég segi því bara skamm-
ist ykkar. En hrúturinn
var felldur og heygður þar
sem hann vildi vera að
þeirra dómi.
Ég tek fram að ég er
uppalin í sveit og hefi verið
þátttakandi í smölun.
Sigríður
Eymundsdóttir.
Salt eða
nagladekk?
ÉG vil koma á framfæri
svohljóðandi orðsendingu
til gatnamálastjórans í
Reykjavík:
Nú líður senn að því að
ökumenn hugsi til komandi
vetrar og spyrji: Salt eða
nagladekk?
Sl. vor birtist í dálkum
Velvakanda fyrirspurn til
gatnamálastjóra eða
þeirra sem ákveða hvort sé
betra salt eða nagladekk,
bæði með tilliti til öryggis
og umhverfis. Óskað var
eftir svari á opinberum
vettvangi við spurningunni
hvort valdi meiri loftmeng-
un salt eða nagadekk. Ekk-
ert svar hefur birst. Hér
með er endurtekin óskin
um að gerð verði grein fyr-
ir þessu í dagblöðum og
það sem allra fyrst áður en
frostið tekur völdin.
Saltvondur ökumaður.
Sammála um
góða þjónustu
ÉG las í Velvakanda pistil
um góða þjónustu hjá
Tryggingastofnun ríkisins.
Ég vil taka undir þessi orð
því ég hef nokkrum sinnum
þurft að leita til Trygg-
ingastofnunar og fengið al-
veg sérstaklega elskulega
þjónustu þar. Einkafyrir-
tæki mættu taka sér fram-
komu starfsfólks og þjón-
ustu þessa fyrirtækis til
fyrirmyndar.
110828-7569.
Góð þjónusta
MIG langar að þakka sér-
staklega góða þjónustu hjá
augndeild Landspítalans
við Eiríksgötu. Ég þurfti á
hjálp þeirra að halda og
fékk þar frábæra þjónustu,
bæði hjá hjúkrunarfólki og
læknum.
040328-4759.
Tapað/fundið
Teiknimöppur
í óskilum
TEIKNIMÖPPUR sem
fundust í leið 11 eru í óskil-
um á Hlemmi. Upplýsing-
ar hjá gæslumanni strætós
á Hlemmi.
Gullkeðja týndist
GULLKEÐJA týndist í
Kópavogi í liðinni viku, lík-
lega á skokkbrautunum í
Kópavogi. Keðjan hefur
mikið tilfinningalegt gildi
fyrir eiganda. Skilvís finn-
andi hafi samband í síma
898 9566. Fundarlaun.
Nokia GSM-sími
týndist
AÐFARANÓTT sunnu-
dagsins 22. september
týndist Nokia 3310 í mið-
bænum. Hann er grár að
lit og er með mynd að
framan (efst) og danskt
nafn að aftan (neðst).
Hugsanlega týndist hann
fyrir utan skemmtistaðinn
Spotlight eða á Lækjar-
torgi. Finnandi er vinsam-
legast beðinn að hafa sam-
band í síma 553 1553 eða
847 1316.
Svartur flauelsjakki
týndist
SVARTUR flauelsjakki
með síma og lyklum tapað-
ist á Sólon við Bankastræti
á laugardagsnótt. Skilvís
finnandi vinsamlegast hafi
samband í síma 554 6022.
Dýrahald
Fresskötur
á flakki
UNGUR fressköttur, grá-
bröndóttur, með hvítt á
nefi og hvítan smekk og
hvítar loppur er á flakki í
norðurbæ Hafnarfjarðar.
Upplýsingar í síma
555 3928.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
ÞAÐ hefur aldrei verið
stórmannlegt að geta
ekki skrifað undir nafni
og huldumenn sem bera á
borð óhróður af ein-
hverjum annarlegum
hvötum, sem eiga engan
rétt á sér, eiga að skrifa
undir eigin nafni. Í Breið-
holtslaug er prýðisfólk
frá forstjóra og niðurúr
sem allan vanda vilja
leysa og ég veit að ég tala
fyrir hönd margra sem
njóta þess að koma þarna
á hverjum morgni áður
en þeir hefja dagsins önn.
Ég vil benda huldu-
mönnum á að mæta í kaffi
snemma á morgnana og
kæta skapið.
Skúli Einarsson.
Gott fólk í Breiðholtslaug