Morgunblaðið - 01.10.2002, Page 52
ÞAÐ er hefð í Grunnskólanum í
Hveragerði að bjóða nemendur 8.
bekkja velkomna á elsta stigið
með glæsilegu Rósaballi. Skólinn
er skreyttur, með rósum að sjálf-
sögðu, og nemendur mæta í sínu
fínasta pússi á ballið. Áður en ball-
ið hefst fara nemendur í 10. bekk
og sækja 8. bekkinga, og koma
þeim heilu og höldnu á ballið.
Í ár voru nemendur 10. bekkja
mun færri en 8. bekkingar og
þurftu þeir því að sækja 2–3,
strákar sækja stelpur og öfugt.
Hápunktur kvöldsins er val
krakkanna og útnefningar. Flott-
ustu augun eiga Sandra og Sam-
úel í 8. bekk, björtustu brosin eiga
Kristján og Auður í 10. bekk.
Kristján Sveinsson í 10. bekk sóp-
aði að sér verðlaunum og hlaut
auk bjartasta brossins, verðlaun
sem mesti snyrtipinninn, mesta
fatafríkin og herra gaggó 2002.
Ungfrú gaggó 2002 var kosin
Fríða Margrét nemandi í 10. bekk.
Mesta krúttið og nýnemi ársins
var kosinn Guðmundur í 8. bekk.
Aníta í 9. bekk var kosin mesti
snyrtipinninn og mesta fatafríkin
og Ingibjörg í 10. bekk var kosin
mesta dúllan.
Nemendur, sem útskrifuðust í
vor, urðu þess heiðurs aðnjótandi
að krýna sigurvegarana og var
greinilegt að þeim þótti gaman að
koma og vera með „gömlu“ sam-
nemendum sínum á þessu balli,
sem markar upphaf félagslífsins í
skólanum.
Boðin velkomin
á rósaballi
Morgunblaðið/Margrét Ísaksdóttir
Fríða Margrét og Kristján
Sveinsson, herra og ungfrú
gaggó 2002.
Hveragerði. Morgunblaðið.
FÓLK Í FRÉTTUM
52 ÞRIÐJUDAGUR 1. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
HÚN er sönn, fullyrðingin sem
finna má í kynningarbæklingi með
sýningunni Hætt’að telja, Halli og
Laddi eru langvinsælasta grín-
tvíeyki sem komið hefur fram á
sjónarsviðið hér á landi á síðari tím-
um og það sem meira er þá eru þeir
einnig það sígildasta. Það sýndu
þeir og sönnuðu á frumsýningu 30
ára afmælissýningar sinnar í Loft-
kastalanum á föstudag. Í rétt tæp-
lega tveggja tíma skotheldri dag-
skrá sýna skopbræðurnir í eitt
skipti fyrir öll hvers vegna þeir voru
eins vinsælir og raun bar vitni á 8.
og 9. áratugnum, hvers vegna sá
sem hefur aldur til getur ekki annað
en glott út í annað, bara við það að
heyra þessi samvöxnu nöfn, Halli og
Laddi.
Í þessari 30 ára afmælisdagskrá
stíga bræðurnir aftur saman á svið
eftir nokkurt hlé og renna í gegnum
brot af því besta, kynna til sögunnar
nokkra af kynlegustu kvistunum
sem þeir hafa skapað og rifja upp
fáránlegustu fíflalætin, ýktustu
geiflurnar og vinsælustu lögin, allt á
fullu gasi, rétt eins og þeir gerðu
þegar þeir voru upp á sitt allra
besta – ef þeir, svei mér þá, eru það
ekki bara núna. Í þessari sýningu
sýna þeir að þeim hefur hvergi
fatast flugið, syngja jafn vel og þeg-
ar þeir gerðu plöturnar sínar fjórar,
hafa sömu einstöku gríntímasetn-
inguna og eru jafnfráir á fæti – eða
svo gott sem.
Halli og Laddi hafa svo sem áður
tekið þátt í skemmtidagskrám síðan
þeir hættu að gefa út plötur saman,
og það fleiri en einni en það er samt
einhver reginmunur á þeim og þess-
ari. Hinar hafa flestar verið á
skemmtistöðum, haldnar undir
borðhaldi þar sem aðalkeppikeflið
hefur verið að draga athyglina frá
lambalærinu og staupinu. En hér
fær maður loksins færi á að njóta
gamanmála bræðranna ómengaðra
og við sómasamlegar aðstæður. Og
það skein af þeim leikgleðin og mað-
ur sá á hverjum svipbrigðum un-
unina sem þeir hafa af því að
skemmta fólki.
Dagskráin er þannig hönnuð að
Þorgeir Ástvaldsson kynnir kvölds-
ins – hefur lítið til gamanmálanna að
leggja en á samt einhvern veginn vel
við þá bræður – rekur feril þeirra á
lauslegan hátt allt frá því þeir komu
fyrst fram í Stundinni okkar árið
1972 með lúkurnar inni í tuskudúkk-
um, tróðu upp í eigin persónu og
„mæmuðu“ Comedian Harmonists
og Spike Jones og þar til þeir gáfu
út hverja metsöluplötuna á fætur
annarri. Uppbygging skemmtunar-
innar er sniðug, skyggnumyndir í
bakgrunni færa mann aftur í tíma
og skapar sögulega stemmningu og
atriðin, sem ætlað var að vera brot
af því besta, voru það í langflestum
tilvikum og furðufáir brandarar
fuku með tannlausir af elli en það
hafði fyrirfram verið helsta
áhyggjuefni undirritaðs.
Það má vel vera að yngri áhorf-
endur, þeir sem teljast til Tvíhöfða-
kynslóðarinnar, eigi eftir að klóra
sér í hausnum yfir öllum hamagang-
inum, að allur þessi söngur, fettur,
brettur og hárkollur virki einfald-
lega of saklaust á þá, en það er
kannski bara eðlilegt, því grín og
fíflalæti breytast með tímanum líkt
og allt annað. Þó ber að varast að
bera þetta tvennt saman því Halli
og Laddi eru hreint ekki af sama
sauðahúsinu og grínarar samtímans,
þeir eru ekki beint uppistandarar
heldur miklu frekar skemmtikraft-
ar, sem hafa það kannski ekki að
höfuðmarkmiði að kreista fram hlát-
ur með hverju orði heldur miklu
fremur að skemmta fólki, sem þeir
gera svo sannarlega í grínafmæli
sínu. Og einmitt vegna sakleysisins
og allra þessara skemmtilegu fífla-
láta höfða Halli og Laddi til miklu
breiðari aldurshóps en flestir grín-
ararnir í dag og að undanskilinni ör-
lítilli tvíræðni á stöku stað þá ætti
sýningin að vera kjörin fyrir alla
fjölskylduna.
Hætt’að telja er þannig hin besta
skemmtun, bæði til þess gerð að
rifja upp gömul og góð kynni og
kynna fyrir nýjum kynslóðum kyn-
lega kvisti á borð við Eirík Fjalar,
Royi Roggers, Saxa lækni, Skúla
rafvirkja, tvær úr tungunum og
Dengsa – jaaaááá, meira að segja
Dengsi virkar fyndinn eftir svo
langa hvíld!
Sígild
fíflalæti
Grín
Hætt’að telja! Halli og Laddi –
30 ára grínafmæli
LOFTKASTALINN
30 ára afmælissýning Halla og Ladda í
Loftkastalanum. Frumsýnd föstudaginn
27. september. Fram koma Haraldur Sig-
urðsson, Þórhallur Sigurðson. Kynnir er
Þorgeir Ástvaldsson. Undirleikur Hjörtur
Howser. Leikstjórn Björn G. Björnsson.
Handrit Halli og Laddi. Sviðsstjórn Mar-
teinn Þórhallsson. Ljóshönnun Geir
Glæsimenni. Hljóð Hjörtur Howser. Ljós
Martin Smash. Framleiðandi Einar Bárð-
arson.
Skarphéðinn Guðmundsson
Morgunblaðið/Árni Sæberg
„Í rétt tæplega tveggja tíma skotheldri dagskrá sýna skopbræðurnir í
eitt skipti fyrir öll hvers vegna þeir voru eins vinsælir og raun bar vitni
á 8. og 9. áratugnum“ segir í umsögn Skarphéðins Guðmundssonar um
grínafmæli Halla og Ladda.
Hafnarstræti 15, sími 551 3340
Restaurant
Pizzeria
Gallerí - Café
Í Loftkastalanum kl. 20
Miðasala:
552 3000
„Sprenghlægileg“
„drepfyndin“
„frábær skemmtun“
fim. 19fi . 3/10
fim. 10/10
sun.13/10
fös. 18/10 sýn. kl. 23
Miðasalan er opin kl. 13-18 og fram að sýningu sýningardaga. Sími miðasölu opnar kl. 10 virka daga.
Fax 5680383 midasala@borgarleikhus.is
ÁSKRIFTARKORT VERTU MEÐ Í VETUR
7 sýningar á 10.500 og ýmis fríðindi innifalin.
10 miða kort á 16.400. Frjáls notkun
Nýja sviðið - Komið á kortið! 4 miðar á 6.000
Stóra svið
HONK! LJÓTI ANDARUNGINN
e. George Stiles og Anthony Drewe
Gamansöngleikur fyrir alla fjölskylduna
Su 6/10 kl 14
Fö 11/10 kl 20 - ath kvöldsýning
Su 13/10 kl 14
KRYDDLEGIN HJÖRTU
e. Laura Esquivel
Lau 5/10 kl 20
Lau 12/10 kl 20
MEÐ VÍFIÐ Í LÚKUNUM
e. Ray Cooney
Fi 24/10 kl 20 - Næst síðasta sýning
Fi 31/10 kl 20 - Síðasta sýning
GESTURINN e. Eric-Emmanuel Schmitt
Fö 4/10 kl 20, Lau 5/10 kl 20,
Fö 11/10 kl 20, Lau 12/10 kl 20 Síðustu sýningar
JÓN OG HÓLMFRÍÐUR e. Gabor Rassov
frekar erótískt leikrit í þrem þáttum
Frumsýning fö 4/10 kl. 20, UPPSELT,
2. sýn lau 5/10 kl. 20
AND BJÖRK, OF COURSE ..
e. Þorvald Þorsteinsson
Su 6/10 kl 20, Lau 12/10 kl 20 Síðustu sýningar
15:15 TÓNLEIKAR
Caput - Benda - Ferðalög
Lau 5/10 kl. 15:15
Nýja sviðið
Litla svið
Miðasala: 568 8000
Kvöldverður fyrir og eftir sýningar
Miðasala er opin frá kl. 10-16 alla virka
daga, miðapantanir í s. 562 9700
frá kl. 10 og á femin.is
Ósóttar pantanir seldar 4 dögum fyrir sýningar
Fös 4/10 kl. 21 Uppselt
Fös 4/10 kl. 23 Aukasýning Uppselt
Lau 5/10 kl. 21 Uppselt
Lau 5/10 kl. 23 Aukasýning Örfá sæti
Sun 6/10 kl. 21 Aukasýning Laus sæti
Fim 10/10 kl 21 Aukasýning Laus sæti
Fös 11/10 kl. 21 Uppselt
Fös 11/10 kl. 23 Aukasýning Laus sæti
Lau 12/10 kl. 21 Uppselt
Lau 12/10 kl. 23 Aukasýning Laus sæti
Lau 19/10 kl. 21 Uppselt
Lau 19/10 kl. 23 Aukasýning Lau sæti
Sun 20/10 kl. 21 Örfá sæti
Mið 23./10 kl 21 Aukasýning Laus sæti
Fim 24/10 kl. 21 Örfá sæti
Sun 27/10 kl. 21 Uppselt
Fös 1/11 kl. 21 Örfá sæti
Fös 1/11 kl. 23 Aukasýning Laus sæti
Lau 2/11 kl. 21 Örfá sæti
Lau 2/11 kl. 23 Aukasýning Laus sæti
Rakarinn í Sevilla
eftir Rossini
3. sýn. 4. okt. kl. 20 örfá sæti laus
4. sýn. 5. okt. kl. 19 örfá sæti laus
5. sýn. 12. okt. kl. 19 örfá sæti laus
6. sýn. 13. okt. kl. 19 nokkur sæti laus
Enn eru nokkrir miðar lausir á hátíðarsýn-
ingarnar 29. og 30. nóv. —aðeins fyrir
félagsmenn í Vinafélagi Íslensku óperunnar.
Miðasalan opin kl. 15-19 alla daga nema
sunnudaga og fram að sýningu sýningar-
daga. Símasala kl. 10-19 virka daga.
Sími miðasölu: 511 4200
Hamlet
eftir William Shakespeare.
Leikstjóri: Sveinn Einarsson.
3. sýn. fös. 4. okt. kl. 20
4. sýn. lau. 5. okt kl. 19
5. sýn. lau. 12. okt. kl. 19
6. sýn. lau. 19. okt. kl. 19
Aðeins þessar sýningar
Miðasölusími sími 462 1400
www.leikfelag.is
Sellófon
eftir Björk Jakobsdóttur
sun 6. okt, uppselt
þri 8. okt, uppselt
fim 10. okt, uppselt
þri 15. okt, uppselt
mið 16, okt, uppselt
fim 17. okt, uppselt
sun 20 okt, uppselt
þri 22. okt, nokkur sæti
mið 23. okt, uppselt
sun 27. okt, uppselt
þri 29. okt, nokkur sæti
mið 30. okt, laus sæti
sun. 3. nóv, laus sæti
Ókeypis lögfræðiaðstoð
öll fimmtudagskvöld milli kl. 19.30 og 22.00 í síma 551 1012
frá okt.-apríl Orator, félag laganema