Morgunblaðið - 20.10.2002, Side 12
Bílaleigubílar
Sumarhús
í Danmörku
og Mið-Evrópu
Ódýrari bílaleigubílar fyrir Íslendinga.
Bílar frá dkr. 1.975 pr. viku.
Innifalið í verð;
Ótakmarkaður akstur, allar
tryggingar. (Afgrgjöld á flugvöllum.)
Sumarhús eru ódýr kostur haust og
vor. Hótel. Heimagisting.
Bændagisting.Tökum nú við pöntunum
á sumarhúsum/húsbílum og
hótelherbergjum fyrir Heimsmót
íslenska hestsins í Herning 2003.
Fylkir Ágústsson,
Fylkir — Bílaleiga ehf.
sími 456 3745
netfang fylkirag@fylkir.is
heimasíða www.fylkir.is
NÁMSAÐSTOÐ
grunnskóli - framhaldsskóli - háskóli
íslenska - stærðfræði - enska - danska - spænska - þýska
- franska - eðlisfræði - efnafræði - bókfærsla o.fl.
Nemendaþjónustan sf. www.namsadstod.is
Innritun í síma 557 9233 kl. 17-19 virka daga
Ferðamálaráð Spánar
hefur nýlega kynnt nýja
vefsíðu fyrir ferðamenn,
www.spain.info
HÁRAUTT hús, merkt sem hót-
el, í hlíðum Hvalfjarðar í ná-
grenni Ferstiklu hefur efalítið
vakið forvitni þeirra sem lagt
hafa leið sína um fjörðinn undan-
farna mánuði. Í húsinu, sem reist
var 1994 sem Norrænt skólaset-
ur, hefur frá því í september á síð-
asta ári verið starfrækt hótel –
Hótel Glymur. En nafnið er dreg-
ið af Glym, hæsta foss landsins og
einni af náttúruperlum Hvalfjarð-
ar.
„Það var tíu manna hópur sem
upphaflega kom að kaupunum á
þessu húsi fyrir um þremur árum.
Þá var ætlunin að opna hér fallegt
hótel sem tæki mið af þörfum
þeirra sem létu gæðin skipta
máli. Á þeim tíma vissum við ekki
alveg hvað við vorum að leggja út
í því þetta er búin að vera þriggja
ára sleitulaus vinna. Hópurinn
hefur breyst nokkuð á þessum
tíma, en þetta hefur verið sameig-
inlegt áhugamál okkar allra – að
gera Glym að skemmtilegu hót-
eli,“ segir Hansína B. Einarsdótt-
ir, einn aðstandenda hótelsins.
Hentaði ekki fyrir hótel
Ekki voru þó allir á eitt sáttir
um ágæti þess að koma á fót hót-
eli í Hvalfirði og hljómuðu efa-
raddir víða. „Menn hafa haft ýms-
ar skoðanir á þessari staðsetn-
ingu og sumir bent á að hún væri
einfaldlega ómöguleg og hentaði
alls ekki þeim ferðamönnum sem
heimsækja Ísland. Staðreyndin
er hins vegar sú að staðurinn
hentar prýðilega.“
Að sögn Hansínu var rennt
nokkuð blint í sjóinn með hótel-
reksturinn því ekki var með fullu
vitað hvernig hægt væri að upp-
fylla þarfir ólíkra hópa, s.s. nám-
skeiðs- og ráðstefnugesta svo og
ferðamanna. Reynsla síðasta árs
bendir hins vegar til að hótelið
henti jafnvel ferðamönnum sem
ráðstefnu- og námskeiðagestum.
„Eins og við sáum í sumar hentar
hótelið mjög vel fyrir hópa sem
eru að hefja ferð sína og vantar
gistingu fyrstu nóttina. Það fólk
hefur þá jafvel skoðað Gullfoss og
Geysi, ekið að því loknu á Þingvöll
og haldið þaðan niður í Kjós. Fyr-
ir þá ferðamenn hentar staðurinn
prýðilega. Aðrir hafa síðan tekið
þann kost að dvelja hjá okkur í
tvær til þrjár nætur og farið þá í
ferðir yfir á Snæfellsnes, út í eyj-
arnar á Breiðafirði, upp á Lang-
jökul og suður á land.“
Hótel Glymur nýtur, að sögn
Hansínu, ekki síður vinsælda
meðal ráðstefnuhaldara og hefur
nálægðin við höfuðborgina þar
sitt að segja.
„Mér fannst vanta hótel hér
fyrir utan Reykjavík, sem væri
innan við klukkutíma akstur frá
borginni þar sem væri gott að
vera með námskeiðahald og ráð-
stefnur. Stað þar sem gott væri
að fara og slaka á, njóta og vera
til,“ segir Hansína.
Hugtakið er þekking
„Hugtakið að baki hótelrekstr-
inum er þekking og hugmyndin
er sú að þeir sem hingað komi nái
að upplifa eitthvað. Það kann að
vera náttúran eða friðurinn, því
umhverfi hótelsins kemur flest-
um á óvart, bókasafnið og lestur
skemmtilegra bóka þar, nú eða þá
námskeið eða fyrirlestrar. Við
horfum einnig mikið til þeirra
ferðamanna sem hafa áhuga á
sögunni því við vitum að í Hval-
firðinum má finna ýmsa áhuga-
verða sögustaði.“ Sem dæmi um
söguslóðir Hvalfjarðar má nefna
minjar um hernámsárin, sem og
Harðarsögu og Helgusund. Þá
býr Hvalfjörðurinn yfir áhuga-
verðum jarðfræðisvæðum, en
landslag fjarðarins er mótað af
jöklum, auk þess sem þar má
finna líparítsflæði, sjaldgæfar
steintegundir, stuðlaberg og stór
og hrikaleg gil. Þá eru Glymur
sjálfur, Hvalvatn og Hvalfell
einnig skemmtilegir viðkomu-
staðir. „Það er þessi þekkingar-
öflun sem Hótel Glymur er hann-
að með í huga og það er einmitt
þess vegna sem við ákváðum að
hafa stílinn hér innanhúss svona
blandaðan. Hér má í raun finna
allt milli himins og jarðar, jafnt
gamla húsmuni sem nýja list-
muni, bækur og tölvur. En
ástæða þessa felst í því að þegar
við erum að læra þá skiptir höf-
uðmáli að umhverfi okkar byggist
á vellíðan.“
Hótel Glymur byggir þó starf-
semi sína ekki eingöngu í kring-
um hópa heldur vilja menn þar
ekki síður ná til íslenskra ferða-
langa í leit að afslöppun frá erli
hversdagsins. Í því skyni er boðið
upp á þematengdar heimsóknir á
hótelið, s.s. Krydd og kossa sem
byggir á gistingu fyrir tvo ásamt
kvöldverði, heitum pottum og
dögurði, Kræklingur og kertaljós
– kvöldstund sem hentar jafnt
hópum sem einstaklingum, sem
og villibráðarhlaðborð jólasveins-
ins sem verður í boði frá og með
28. nóvember.
„Við höfum síðast en ekki síst
lagt áherslu á að vera með gott
eldhús og góða kokka, því lysti-
legar krásir eru óneitanlega einn
af lykilþáttum þess að skapa hót-
elgestum heimilislegt umhverfi.“
Krydd og kossar í Hvalfirði
Glymur er vel staðsettur að mati Hansínu B. Einarsdóttur.
Lystaukandi veitingar eru mikilvægur þáttur hótelrekstursins.
Morgunblaðið/Anna Sigríður
Mikið er lagt upp úr heimilislegu umhverfi. Hér sést anddyri hótelsins.
Umferð um Hvalfjörðinn hefur minnk-
að frá því Hvalfjarðargöngin komust í
notkun. Í firðinum hefur hins vegar
verið opnað hótel sem ekki er síður
ætlað ráðstefnu- og námskeiða-
gestum en almennum ferðamönnum.
Anna Sigríður Einarsdóttir ræddi
við Hansínu B. Einarsdóttur, einn
aðstandenda Hótel Glyms.
Hótel Glymur
Hvalfirði
Sími: 4303100 - 8999358
Vefslóð: www.hotelglymur.is
FERÐAMENN
sem leið eiga til
Kraká í Póllandi
geta nú keypt sér-
stakt ferða-
mannakort sem
gildir í tvo eða þrjá
daga. Kortið veitir
aðgang að söfnum
í borginni og af-
slátt af skoð-
unarferðum, m.a.
til Auschwitz og
Wieliczka. Hægt er
að framvísa því á sumum hótelum og veitinga-
húsum og fá afslátt af gistingu og veitingum.
Tveggja daga kort kostar um þúsund krónur og
þriggja daga kort nálægt 1.500 krónum. Kortið er
fáanlegt á ferðaskrifstofum, upplýsingamið-
stöðvum og á nokkrum hótelum í borginni.
Kortið veitir afslátt í Kraká
Nánari upplýsingar um ferðamannakortið
í Kraká er hægt að nálgast á síðunni
www.krakow.pl/en/turystyka/karta
STÓRMARKAÐIR geta varla keppt við fjöl-
breytnina á Naschmarkt í Vín, höfuðborg Austur-
ríkis, og andrúmsloftið er líka sérstakt. Á boð-
stólum er grænmeti, ferskir ávextir, kjöt, ostar og
hverskyns önnur dagvara, bæði þekkt og framandi.
Sérstaklega má nefna vörur frá Balkanskaga og
Asíu.
Skyndibitastaðir eru sjálfsögð viðbót við mark-
aðinn og hvergi í Vín eru jafnmargir sushi-barir. Þá
hafa nýverið bæst við bitabarir með réttum frá jafn
ólíkum stöðum og Tyrklandi og Bandaríkjunum.
Naschmarkt er opnaður klukkan sex að morgni á
virkum dögum og er oft síðasta stopp næturhrafna
sem grípa sér í svanginn áður en haldið er heim.
Café Drechsler er stundum eins og umferð-
armiðstöð í morgunsárið.
Á laugardögum er flóamarkaður settur upp við
hliðina á Naschmarkt við Kettenbrückengasse-
neðanjarðarstöðina. Þar er að finna sýnishorn af
tísku liðins aldarfjórðungs eða svo. Þar ægir saman
hljómplötum, fatnaði, skartgripum og húsbúnaði af
margvíslegu tagi.
Morgunblaðið/Ómar
Stærri en stórmarkaður
Naschmarkt, 4. hverfi, Wienzeile
(milli neðanjarðarstöðvanna Ketten-
brückengasse og Karlsplatz), Opið dag-
lega frá 6. Flóamarkaður alla laug-
ardaga.
NÚ er hægt að fá leið-
sögn um höfuðborg
Skotlands í hjólaferð.
Boðið er upp á þriggja
klukkustunda hjólatúra
um Edinborg en einnig er
hægt að fá ferðirnar sér-
sniðnar ef um hópa er að
ræða.
Farið er um gamla
bæinn og fjármála-
hverfið. Ferðirnar eru í boði tvisvar á dag og kosta 15 pund en þá er innifalið í
verðinu auk leiðsagnar hjól, hjálmur og regnslá.
Hjólaferðirnar taka þrjár stundir.
Hægt er að nálgast frekari upplýsingar um hjólaferðirnar á slóðinni
www.pedalculture.com
Hjólað í
Edinborg
Morgunblaðið/Árni Sæberg