Morgunblaðið - 20.10.2002, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. OKTÓBER 2002 B 13
ferðalög
FYRIR nokkru var hér á ferðasíðum
sagt frá gönguferð sem hluti leikfimi-
hóps úr Garðabæ fór í en gengið var
þá frá Þýskalandi til Ítalíu. Hinn hluti
leikfimihópsins, sem ekki fór í þá
ferð, ákvað að skella sér í göngu- og
skemmtiferð til Toscana á Ítalíu.
„Við erum alveg í sjöunda himni
með ferðina okkar til Ítalíu,“ segir
Bjarni Gunnarsson, einn úr hópnum.
Hann segir að þegar búið hafi verið
að taka ákvörðun um að fara til Tosc-
ana á Ítalíu hafi Elvar Ingimarsson,
sem rekur hönnunarfyrirtæki í Míl-
anó, verið þeim innan handar með
skipulagningu ferðarinnar en hann
hefur tekið að sér slíka vinnu fyrir Ís-
lendinga.
„Við héldum ferðafund hér heima
og komumst að þeirri niðurstöðu að
við vildum ganga annan hvern dag í
sveitinni en hina dagana vildum við
hafa þetta rólegra og skoða okkur um
í borgum á við Flórens, Sienna og
Pisa. Þetta átti að vera sambland af
göngu- og skemmtiferð.
Á hlaðinu hjá vínbónda
Þá daga sem við gengum var farið
um fjöll og dali Toscana með leið-
sögumanni. Náttúrufegurðin á þess-
um slóðum er einstök og það var
virkilega gaman að ganga þarna um
sveitir og stoppa svo í hádeginu og
borða til dæmis á hlaðinu hjá vín-
bændum eða uppi í litlu afskekktu
fjallaþorpi.“
Bjarni segir að fyrirtækið sem
skipulagði gönguferðirnar, Walking
group Toscana, hafi staðið sig vel,
gönguferðirnar voru fjölbreyttar,
Hluti leikfimihóps úr Garðabæ fór til Ítalíu
Gestrisni Ítala einstök
Frá vinstri: Anny Antonsdóttir, Edda Niels, Birna Guðmundsdóttir, Kristín
Hjaltadóttir, Georg Guðjónsson, Hilmar Þórarinsson, Hrafnhildur Helgadóttir,
Aðalbjörg Karlsdóttir, Guðjón Ólafsson, Halldóra Jónasdóttir, Gunnar Trausti
Guðbjörnsson og Bjarni Gunnarsson. Sá sem stjórnar söngnum og snýr baki í
myndasmiðinn er Kristján Gunnarsson. Á myndina vantar Finnbjörgu Skafta-
dóttur sem tók myndina og Sigrúnu Bergsteinsdóttur og Birgi Blöndal sem
voru í göngufríi þennan dag.
Náttúrufegurðin var
stórkostleg, menningin
mögnuð og maturinn góður að
sögn Bjarna Gunnarssonar
sem fór í haust með hluta
af leikfimihópnum sínum til
Toscana á Ítalíu.
Sveitahótelið sem gist var á, Bosco della Spina, var að sögn Bjarna alveg frábært. „Þetta var gamall og reisulegur sveita-
bær sem búið var að gera upp og hvergi til sparað.“
ekki mikið um grjót og kletta en
gönguferðirnar voru engu að síður
miserfiðar. „Þetta voru gönguferðir
sem hentuðu öllum. Við vorum með
fjóra bílaleigubíla og gátum því ekið á
mismunandi staði til að ganga út frá.
Yfirleitt vorum við á göngu frá 10–17
með hádegishléi sem var alveg mátu-
legur tími.“
Bjarni segir að stemningin í hópn-
um hafi verið góð, mikið hafi verið
sungið og hlegið í ferðinni. Þá segir
hann að skoðunarferðirnar um borg-
irnar hafi tekist vel, menningin sé
mögnuð og stórkostlegt að skoða
margar af þeim fornu byggingum
sem þarna eru. Honum fannst sér-
staklega gaman að skoða skakka
turninn í Pisa enda segir hann að sig
hafi frá unga aldri dreymt um að
skoða hann.
Hönnunarhótel í sveitinni
Sveitahótelið sem gist var á, Bosco
della Spina, var að sögn Bjarna alveg
frábært. „Þetta var gamall og reisu-
legur sveitabær sem búið var að gera
upp og hvergi til sparað. Hönnunin
var einstök enda arkitektar sem eiga
hótelið og sáu um allar breytingar
sem gerðar voru. Þeir höfðu meira að
segja sjálfir hannað húsgögnin.“ Í
hópnum var aðallega hjónafólk og
Bjarni segir að hjónin hafi öll gist í
stúdíóíbúðum og með morgunverði
hafi þau borgað um 180 evrur fyrir
sólarhringinn. Þegar hann er að lok-
um spurður hvað sé eftirminnilegast
við ferðina segir hann að þrátt fyrir
að gaman hafi verið að fara í skoð-
unarferðir um borgir eins og Pisa og
Sienna standi sveitin í Toscana uppúr
og gestrisni og vingjarnleiki fólksins
sem þau heimsóttu í ferðinni.
„Friðsældin og fegurðin er svo
mikil og þegar við vorum svo að koma
við hjá bændum og borða var tekið á
móti okkur af ótrúlegri gestrisni og
vinsemd. Það stendur uppúr.“
Elvar Ingimarsson, sem búsettur
er í Mílanó, hefur skipulagt ferðir
um Ítalíu.
Netfang: elvar@aekon.com.
Sími: 0039-0245475945. Fax:
0039-0245475190.
Farsími: 0039-3339444533.
Hótelið Bosco della Spina
Siena, Toscana, Ítalía.
Vefslóð: www.boscodellaspina.com
og http://rentalholiday.com/
boscodellaspina/
Sími: 0039 - 0577 - 814605.
Fax: 0039 - 0577 - 814606.
Umsóknir í sjóði RANNÍS
Rannsóknarráð Íslands, Laugavegi 13,
101 Reykjavík, sími 515 5800,
bréfsími 552 9814, netfang rannis@rannis.is,
heimasíða http//www.rannis.is
Umsóknir í TÆKNISJÓÐ OG VÍSINDASJÓÐ RANNÍS
Umsóknarfrestur um almenna
styrki Tæknisjóðs og Vísindasjóðs RANNÍS er 1. nóvember nk.
Auglýst er eftir umsóknum um verkefnisstyrki Tæknisjóðs
og verkefnis- og rannsóknarstyrki Vísindasjóðs.
Vakin er athygli á því að nýir öndvegisstyrkir Vísindasjóðs
verða ekki auglýstir í haust.
Minnt er á að verkefnisstyrkir Vísindasjóðs
eru ýmist 1 m. kr. eða 1,5 m. kr. á ári og
rannsóknarstöðustyrkur verður 2,5 m. kr. árið 2003.
Umsóknarferlið hjá Vísindasjóði og Tæknisjóði verður
með sambærilegum hætti og undanfarin ár.
Ítarlegri upplýsingar og umsóknareyðublöð
fyrir Tæknisjóð og Vísindasjóð er að finna á heimasíðu RANNÍS,
www. rannis.is, og á skrifstofu Rannsóknarráðs, Laugavegi 13, 4. hæð.
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111