Morgunblaðið - 20.10.2002, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 20.10.2002, Qupperneq 14
14 B SUNNUDAGUR 20. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ FYRIR leikmann er erfitt að ímynda sér að allskonar sagir og spil, sem standa á vinnsluplanihvalstöðvarinnar, eigi nokkurn tímann eftir aðkomast í gang á ný. Þær virðast ryðgaðar ogúr sér gengnar, en starfsmenn Hvals kippa sér ekki upp við það, benda bara á að þetta sé einfaldur mekanismi og slíkum tækjum sé alltaf hægt að koma í gang á ný. Í Hvalfirði sjá þremenningarnir Helgi Jónsson, Gunn- laugur F. Gunnlaugsson og Ingvi Böðvarsson um við- hald eigna. Helgi er rafvirki og hefur verið viðloðandi hvalstöðina frá bernsku, enda var pabbi hans lengi verk- stjóri þar. Sjálfur gegndi hann starfi stöðvarstjóra. Gunnlaugur er bílstjóri, einn af þeim sem óku hvalkjöti frá stöðinni í frystingu í Hafnarfirði. Ingvi, sem kallaður er staðarhaldari af félögum sínum, hefur starfað hjá Hval hf. frá upphafi vinnslu 1948 og var verkstjóri í hvalstöðinni. Hann býr á Akranesi, en er lungann úr vikunni í íbúðarbragga í Hvalfirði. Saman sjá þremenn- ingarnir um allt viðhald og þar er af nógu að taka. Braggarnir eru flestir nýmálaðir og það þarf að huga að hitaveitu staðarins, svo fátt sé talið. Og hvalskurð- armenn fortíðarinnar skildu líka ýmsa hluti eftir sig, sem engin ástæða var til að halda upp á. „Við fórum með nokkra bílfarma af vinnufatnaði og alls konar drasli á haugana fyrir tveimur árum,“ segja Helgi og Gunn- laugur. Sumt fer þó aldrei á haugana, til dæmis loftvarna- flautan mikla sem var þeytt til að marka vaktaskipti. Hún er í geymslu og á kannski eftir að hvína á ný. Hátt í hundrað starfsmenn voru í hvalstöðinni þegar mest var, við hvalskurð, í verksmiðju og mötuneyti. Fimmtán manns voru í áhöfn hvers hvalbáts, en fjórir voru gerðir út á hverju sumri á meðan veiðar í atvinnu- skyni voru leyfðar. Þeim var hætt sumarið 1986 og næstu þrjú árin voru tveir bátar gerðir út til veiða í vís- indaskyni. Vinnan var hörkupúl, en vel launuð. Þar sem vertíðin stóð að jafnaði aðeins frá hvítasunnu fram í miðjan sept- ember hentaði tíminn ágætlega fyrir námsmenn. Þeir duttu í lukkupottinn ef þeir komust í hvalinn, því á einu sumri gátu þeir nælt sér í árslaun verkamanns. Þeir stóðu átta tíma vaktir og hvíldust næstu átta tímana og svo koll af kolli. „Við unnum nú oft hluta af frívaktinni, stóðum þá vaktir í tólf tíma og sváfum í fjóra,“ segir Halldór Blön- dal, forseti Alþingis og hvalskurðarmaður í 15 vertíðir á árunum 1954 til 1974. „Þarna voru kappsfullir ungir menn, bæði sjómenn af Akranesi og námsmenn, og allir ætluðu sér að vinna mikið og vel. Vaktaskipti voru klukkan fjögur að nóttu og ekki amalegt að standa á planinu á björtum sumarnóttum.“ Vann sig upp í flensarastarfið Innan þessa samfélags var virðingarröðin skýr. Skóla- strákurinn Halldór Blöndal byrjaði til dæmis á að draga kjötið inn í kæli, var svo vinsugutti, sem þýddi að hann vann við spilin, vann sig svo upp í að vera víramaður á söginni, næst varð hann sagarmaður og loks náði hann helstu virðingarstöðunni og varð flensari, þ.e. hval- skurðarmaður. „Ég byrjaði þarna fimmtán ára, en var stór eftir aldri. Afi minn, Halldór Kr. Þorsteinsson frá Háteigi, sagði Lofti Bjarnasyni að ég væri 16 ára og ég fékk vinnuna. Þetta fyrsta sumar var erfitt, en mjög skemmtilegt. Sumrin sem ég var þarna fór ég sjaldan til Reykjavíkur, það var helst ef það var bræla og enginn hvalur. En ef það var hvalur fór ekki nokkur maður í frí.“ Mesta vinnutörn Halldórs var sumarið 1958. „Þá horfði illa með sölu á afurðunum. Það rættist hins vegar úr því og meira var hirt en reiknað hafði verið með. Við vorum hins vegar bara tíu á planinu og þetta sumar komu 508 hvalir á land. Afköstin voru mikil.“ Halldór segir að Loftur Bjarnason hafi verið vinsæll maður og virtur af verkamönnum í hvalstöðinni. „Við virtum þau hjón, hann og Sólveigu, mikils og andinn í hvalstöðinni var alltaf sérlega góður. Loftur kunni sitt fag. Hann vildi nýta hvalinn sem best og bannaði hval- bátunum að koma með fleiri en tvær langreyðar að landi í einu, því annars var hætta á að kjötið spilltist. Hann lagði mikið upp úr góðu samstarfi við vísindamenn, bæði íslenska og erlenda. Þarna dvöldu til dæmis enskir vís- indamenn langdvölum. Ég fullyrði að sóknin var í því hófi, að ekki var um rányrkju að ræða. Einu sinni spurði ég einn ensku vísindamannanna, Brown að nafni, hvort hann héldi að hvalveiðar frá Íslandi yrðu einhvern tím- ann bannaðar. Hann sagði enga ástæðu til að óttast það á meðan þeim væri stjórnað af svo mikilli gætni og nýt- ingin væri jafn góð og raunin bar vitni.“ Fauk ofan af búrhvalshaus Ingvar Böðvarsson segir að fyrstu tvö árin í rekstri hvalstöðvarinnar hafi norskir flensarar mundað hnífinn í Hvalfirði. „Þeir komu með þekkinguna með sér og svo tóku Íslendingar við.“ Hver flensari átti sína hnífa og enginn annar snerti á þeim. Halldór gat gengið að sínum tug hnífa á hverju vori. „Hnífarnir urðu að bíta mjög vel. Þarna voru góðir menn sem lögðu hnífana á og svo voru flensararnir með brýni.“ Þrátt fyrir atganginn þegar hvalur var flensaður voru slys fátíð. „Ég skar mig einu sinni á hníf sem hafði verið skilinn eftir í reiðileysi. Í annað skipti fauk ég ofan af búrhvalshaus, en varð nú ekkert meint af,“ segir Hall- dór. Í áranna rás varð mikil breyting á vinnslunni í Hval- firði. Fyrstu áratugina var hvalurinn unninn í lýsi, mjöl og hundafóður á Bretlandsmarkað. Viðskipti við Japani breyttu þessu, því þeir nýttu nánast hverja örðu. Þá var farið að frysta kjötið til manneldis, en allur úrgangur fór í lýsi og mjöl. Japanir nýttu kjötið svo vel, að gerð súpukrafts úr hvalkjöti lagðist af, því varla fannst kjöt- tægja á beinunum til að sjóða niður í extrakt. Allt til alls Hvalstöðin liggur ekki vel við hvalaslóðum, því hún er svo langt inni í firði að hvalbátarnir þurftu að sigla 100 til 200 mílur til að finna hval. Ástæðan fyrir því að Loft- ur Bjarnason í Hval hf. hóf hvalskurðinn í Hvalfirði var sú, að þarna voru braggar frá því á stríðsárunum, bryggja og nýmóðins kyndistöð. Og alls konar minni búnaður: Í svefnskálanum stendur til dæmis enn forláta þvottavél frá 1938, sem herinn skildi eftir og kom sér vel þegar hvalskurðarmenn þurftu að skola úr plögg- unum. Hún virkar auðvitað enn. Núna býr hvalstöðin líka að eigin hitaveitu, svo hægt er að kynda allar byggingar undir drep. Nógur er víst kostnaðurinn samt, án þess að nokkrar tekjur hafi kom- ið á móti í þrettán ár. Gunnlaugur, Helgi og Ívar segja að hvalstöðin sé sjálfri sér næg með flesta hluti. Til marks um það má nefna að þegar Norðmenn hættu að framleiða sprengi- skutlana sem hvalbátarnir notuðu gerði Hvalur hf. sér lítið fyrir, keypti verksmiðjuna og setti hana upp í skemmu í Hvalfirði. Skutlarnir eru engin smásmíði, um 70 kíló hver og á hverju ári þurfti um 60–70 slíka. Menn hafa sýnt margvíslega hugkvæmni við hvalveið- arnar og vinnsluna. Kristján Loftsson, sem tók við rekstri Hvals hf. af föður sínum og rekur enn, tók til dæmis upp á því að láta dæla kældum sjó um æðakerfi hvalanna á meðan siglt var með þá í land, til að kæla niður kjötið. Þannig fékkst enn ferskari og verðmætari vara en ella. Prammi sem strandaði í Hvalfirði var snarlega dreg- inn upp að verksmiðjunni og nýttur sem lýsisgeymsla. Í honum eru tíu hólf, sem hvert tekur 180 tonn af lýsi. Pramminn er fyrir löngu órjúfanlegur hluti hvalstöðv- arinnar. Hasarmynd hjá varnarliðinu Halldór Blöndal þekkir hvern krók og kima í svefn- skálunum, á vinnsluplaninu og í verksmiðjunum. Yfir svefnstæði hans er enn mynd sem Andrés Magnússon teiknaði af Stóra-Úlfi, þeim hinum stygga úr Andrésar Andar-blöðunum. Í samræmi við myndskreytinguna gekk Halldór undir nafninu Úlfurinn. Fjögurra manna herbergi Halldórs og félaga í svefn- skálanum var, og er, kallað Kreml. Þingforseti sver þá nafngift af sér, segir hana ættaða frá dvöl sér vinstri- sinnaðri manna í herberginu. Þótt ekki gæfust margar frístundir reyndu menn samt með sér í fótbolta, spiluðu brids og tefldu. Og fyrsta sumar Halldórs buðu bandarískir varnarliðs- menn, sem höfðu aðsetur skammt frá, hvalskurð- armönnum á bíósýningu. „Þetta var hasarmynd sem gerðist á hvalveiðiskipum í Suðurhöfum. Mig minnir að flensihnífurinn hafi ráðið úrslitum í lokaátökum mynd- arinnar.“ Menn settu líka saman vísur sér til gamans og þing- forseti lumar á heilli bók með kveðskap frá þessum ár- um. „Þetta var allt skens,“ segir hann og telur ástæðu- laust að rifja það upp frekar. Verklegur Blöndalinn Í flensaraskúrnum við aðgerðarplanið eru geymd ým- is áhöld, þar á meðal mikill og stór krókur, sem kallaður er Blöndalinn. „Af því að hann er svo verklegur,“ er skýringin sem gefin er. Blöndalinn var notaður til að hífa innyfli og búrhvalshausa. Nafngiftir voru oft sérkennilegar. Halldór minnist þess þegar verkstjóri sagði við hann: „Farðu niður og segðu Hagalín að loka fyrir gamla manninn.“ Nýliðinn óttaðist að nú ætti að láta hann hlaupa á sig, en svip- urinn á verkstjóranum benti ekki til annars en að hon- um væri fúlasta alvara. Halldór fór því niður í verk- smiðju með skilaboðin. „Gamli maðurinn“ reyndist vera stór og mikill spikpottur. Stærsti hvalur sem Halldór sá í sinni tíð sem hval- skurðarmaður var hátt í 25 metra steypireyður. „Við vorum um einn og hálfan tíma með hvern hval ef vel var unnið, sem menn vildu alltaf gera. Ef ég ætti kost á að gera þetta aftur myndi ég ekki hika.“ Halldór Blöndal vann við hvalskurð í fimmtán sumur á árunum 1954—1974. Úlfurinn bjó í Kreml Ingvi Böðvarsson hefur starfað við hvalstöðina frá því að fyrsti hvalurinn var skorinn þ rsv@mbl.is Hvalbátarnir veiddu að meðaltali einn hval á dag yfir vertíðina. Tarnirnar á hvalskurðar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.