Morgunblaðið - 20.10.2002, Síða 25

Morgunblaðið - 20.10.2002, Síða 25
– Þú fæddist sjálf í Kenýa og ég hjó eftir því að faðir stúlkunnar í myndinni segist hafa fæðst í Nair- obi. Að hve miklu leyti eru foreldr- arnir í myndinni byggðir á þínum eigin? „Af mjög miklu leyti. Faðirinn í myndinni er faðir minn. Og móðir mín lagði mikla áherslu á að ég lærði að elda, rétt eins og móðirin í myndinni. Hún lagði hart að mér að læra að elda indverskan mat til að vanvirða ekki tilvonandi tengda- móður mína,“ segir Chadha og hlær. „Og málið er að hefði ég ekki kunnað að elda er ég gekk í hjóna- band þá hefði ég ekki orðið mér til skammar heldur móður minni.“ – Þannig að þú kannt að elda ind- verska mat? Chadha hlær enn og innilega og segir svo: „Já, en það reynir nú ekki mikið á það því við hjónin erum allt- af úti að borða.“ Chadha segist hafa verið mjög lík indversku stelpunni Jess en þó ver- ið öllu óþekkari. „Ég var mikill upp- reisnarseggur. Ég neitaði að elda indverskan mat, neitaði að klæðast indverskum fötum, því að ég vildi ekki láta steypa mig í eitthvert mót hinnar dæmigerðu indversku stúlku. Ég vildi vera öðruvísi, bara einhvern veginn öðruvísi, gera eitt- hvað annað og meira en það sem ætlast var til af mér, að verða hin fullkomna eiginkona og fullkomna móðir. Það þýddi lítið að reyna að þagga niður í mér. En ég var svo heppin að eiga föð- ur sem kunni að meta þetta sjálf- stæði mitt og var lúmskt stoltur af hreinskilni minni. Eins og faðir Jess.“ – Hafa foreldrar þínir séð mynd- ina? „Faðir minn lést stuttu áður en ég kláraði myndina og því er hún tileinkuð honum. Móðir mín hefur sannarlega séð myndina og það sem meira er þá fer hún með lítið hlut- verk í henni, er ein af þessum gömlu kerlingum sem eru vand- ræðast með GSM-símana. Hinar eru frænkur mínar,“ segir Chadha og hlær. „Það ríkti mikið fjölskyldu- gleði á tökustaðnum því ég notaði ættingjana í hlutverk statista, eins og t.d. í brúðkaupsatriðinu.“ – Hvernig hafa þeir íhaldssömu í fjölskyldu þinni tekið því þegar þú hendir gaman að því sem þér þykir fáránlegt í indverskri hefð? „Málið er að þeim finnst ég ekki vera að henda gaman að indverskri hefð heldur átta sig réttilega á að ég er aðeins að gefa raunsanna mynd af lífi þeirra. Móðir mín hló sig þannig máttlausa yfir fram- göngu móðurinnar í myndinni, ein- mitt vegna þess hversu greinilega hún sá sjálfa sig í henni. T.d. hvern- ig móðirin víxlar úr enskri tungu yf- ir í punjab. Þetta er mjög ástúðleg mynd og í engu er tilgangurinn að skjóta á einhverja eða koma á þá höggi.“ Fótboltakonur frábær fyrirmynd – Er fótboltinn í myndinni bara fótbolti eða er hann einhvers konar myndlíking fyrir eitthvað annað og meira? „Ég tek fótboltann sem dæmi um heim þar sem karlar ráða ríkjum. Að fjalla um stelpur í fótbolta jafn- gildir þannig því að fjalla um stelp- ur sem eru að reyna að fóta sig á valdasvæði karlmannsins. Að nota fótboltann gerði mér líka kleift að nota stelpur sem væru ekki einasta líkamlega og andlega sterkar held- ur einnig sælar og klárar í að gera eitthvað sem maður er vanari að sjá karla gera. Ég fór á heimsmeist- aramót kvenna í Los Angeles 1999 og það var ótrúleg lífsreynsla. Þar sá ég í fyrsta sinn stórleik í kvenna- knattspyrnu og varð ekki einasta gáttuð yfir hæfni keppenda heldur einnig öllum þessum áhorfenda- fjölda, sem samanstóð að stórum hluta af ungum stelpum sem slepptu sér algjörlega af fögnuði. Fótboltakonurnar sem kepptu voru líka frábærar fyrirmyndir fyrir ungar stelpur því þær voru af öllum stærðum og gerðum; hávaxar, lág- vaxnar, þybbnar og horaðar – en þó allar sterkar og sælar yfir því sem þær voru að gera. Þessar fyrir- myndir vildi ég vinna með í bíó- mynd því þar eru kvenhetjurnar alltof gjarnan grindhoraðar og gervilegar, allt annað en góðar fyr- irmyndir. Það var mikilvægt fyrir mig að ungum konum liði vel af því að sjá myndina, að hún fengi þær til að vera sáttar við útlit sitt og að þær sæju að það er vel hægt að skara fram úr í einhverju án þess að þurfa stöðugt að hugsa um hvort maður sé of mjór eða of feitur.“ – Svo er auðséð hve freistandi var að nota tilefnið til að velta vöng- um yfir því hvers vegna engar ind- verskar fótboltastjörnur fyrirfinn- ast. „Já, það var blaðamaðurinn í mér sem þar taldi rétt að vekja máls á þeirri undarlegu staðreynd. En ég er ekki frá því að myndin hafi vakið menn til umhugsunar og að sannur vilji sé nú fyrir hendi að kanna hvort eitthvað eitt valdi því og hvort eitthvað sé hægt að gera í málinu. Það eru asískir leikmenn í nokkrum liðum, einkum í neðri deildum og ég er viss um að þeim á eftir að fjölga og þeir verða meira áberandi er fram líða stundir.“ – Málið getur varla verið að Ind- verjar hafi hreinlega ekki áhuga á fótbolta? „Alls ekki. Indverskir krakkar eru alveg jafnáhugasamir um fót- bolta og krakkar af öðrum uppruna í Englandi.“ – Ertu knattspyrnuáhugamaður sjálf? „Lengi vel var ég það ekki en er orðin það núna og hafði óskaplega gaman af heimsmeistarakeppninni í Japan og S-Kóreu síðasta sumar, ekki bara vegna sjálfs boltans, held- ur einnig vegna allra tilfinninganna og pólitíkurinnar sem fylgir slíkri alþjóðakeppni.“ Chadha er viss um að Bend it Like Beckham hafi nú þegar vakið mikla athygli á kvennaknattspyrnu, í það minnst í heimalandinu, og hún segist hafa fengið fregnir af því að myndin hafi haft bein hvetjandi áhrif á ungar stúlkur, sem hafi flykkst á æfingar eftir að hafa séð hana. „Það er mikill uppgangur í kvennaknattspyrnu í Englandi. Stefnt er að því að stofna atvinnu- mannadeild innan fárra ára og BBC er farin að sýna beint frá leikjum. Það ku líka vera staðreynd að engin íþróttagrein vex hraðar í heiminum en kvennaknattspyrnan.“ Beckham breytti ímynd knattspyrnunnar – Enn eitt málið sem þú tekur á í myndinni er síðan þessi tugga um að samkynhneigð sé meira áberandi í kvennaboltanum en öðrum íþrótt- um. „Einmitt. Það er eitt af því sem ég vildi snerta á í umfjöllun minni um kvenleikann, þeirri ranghugsun að kvenmaður sem vilji spila aðra eins „karlaíþrótt“ og fótbolta hljóti að vera lesbía. Ég gat ekki látið vera að gera svolítið grín að því.“ – Hvers vegna David Beckham? „Fyrir utan það hversu vinsæll hann er hjá kvenþjóðinni þá var það vegna þess að hann hefur algjörlega breytt ímynd knattspyrnunnar, einn og óstuddur. Áður en hann kom til skjalanna voru fótbolta- menn upp til hópa álitnir flagarar, samkvæmisljón, árásargjarnir og óheflaðir. Svo kemur þessi mjúki maður sem viðurkennir mistök sín opinberlega, gerist ástkær eigin- maður og faðir, sem hugsar um útlit sitt, fer í handsnyrtingu, er sama þótt hann gangi í pilsi og finnst sjálfsagt að vera á forsíðu homma- tímarits. Hann er fótboltamaður sem ég vil sjá mínar eigin dætur líta upp til. Og svo valdi ég hann náttúrlega út af því hversu góður fótboltamað- ur hann er og hvernig hann beygir boltann, sem er náttúrlega síðan góð samlíking við vilja Jess til að beygja reglurnar.“ – Og hvernig tók Beckham sjálf- ur myndinni? „Honum fannst hún frábær. Svo- lítið tvístígandi í fyrstu því hann vissi ekki við hverju hann átti að búast, en eftir að hann sá hana var hann í skýjunum. Hann trúði ekki að þetta væru leikkonur en ekki fót- boltamenn.“ Aðspurð segist Chadha undir lok samtalsins vera farin að vinna að stórum söngleik í indverskum Bollywood-stíl en þó með vestræn- um söguþræði og uppbyggingu. Mynd, sumpartinn í anda Moulin Rouge, sem mun gerast á Indlandi, Englandi og í Bandaríkjunum og skarta í aðalhlutverkum stjörnum bæði frá Hollywood og Bollywood. Einhverra hluta vegna eru engar indverskar fótboltastjörnur til. skarpi@mbl.is MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. OKTÓBER 2002 B 25 bíó FYRIRTÆKIÐ Folkets Hus och Parker í Svíþjóð hefur á síðustu vikum opnað sex stafræna sýning- arsali í kvikmyndahúsum sínum og hyggst opna 15 til viðbótar á næstu tveimur árum og er um til- raunaverkefni að ræða sem stutt er af Evrópusambandinu. Áætl- aður kostnaður nemur 4,8 millj- ónum dollara. Að sögn Folkets Hus verður fyrst í stað sýnt af hörðum smá- diskum sem dreifingaraðilar kvik- myndanna senda en salirnir eru einnig útbúnir fyrir sýningar af DVD-diskum, gervihnöttum og breiðbandi. Talsmaður fyrirtæk- isins segir að stafrænu bíóin séu „í þorpum og hafi sæti fyrir 200– 300 manns. Sýnt verður að með- altali þrisvar í viku, en við getum með þessari tækni líka sýnt beint frá tónleikum og íþróttaviðburð- um. Þá höfum við samið við fyr- irtæki sem dreifa myndböndum í Svíþjóð og hafa áhuga á að eiga aðgang að takmarkaðri bíódreif- ingu fyrir myndir sem ella færu beint á myndband. Slíkar myndir getum við sýnt af DVD-diskum.“ Ný sænsk bíómynd, Suxxess eftir Peter Schildt, er nú sýnd stafrænt í þessum bíósölum um leið og hún fer í almenna dreif- ingu í hefðbundnum kvikmynda- húsum. Stafrænar kvikmynda- sýningar hafnar í Svíþjóð

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.