Morgunblaðið - 20.10.2002, Qupperneq 26
26 B SUNNUDAGUR 20. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
bíó
RED DRAGON er, eins og
The Silence Of the Lambs
og Hannibal, byggð á einni
af skáldsögum bandaríska
rithöfundarins Thomas
Harris um raðmorðingjann
og mannætuna doktor
Hannibal Lecter, sem er
jafnsnjall og slóttugur,
sjarmerandi og segul-
magnaður og hann er lífs-
hættulegur fyrir hvern
þann mann sem nálægt
honum kemur. Red Drag-
on er hins vegar sú fyrsta í
röðinni, gerist snemma á ferli þessa
afkastamikla morðingja, og Anthony
Hopkins er í raun að leika Lecter
afturfyrir sig. Þessi sama saga hefur
áður verið kvikmynduð af Michael
Mann (The Last Of the Mohicans,
Heat, The Insider, Ali) og nefndist
myndin Manhunter (1986). Þá fór
breski leikarinn Brian Cox með hlut-
verk Lecters. Manhunter var prýði-
leg mynd en fór ekki sérlega hátt og
því má heita skiljanlegt af Holly-
wood og framleiðandanum Dino De-
Laurentiis að endurgera söguna í
ljósi vinsælda fyrri myndanna.
Hannibal komst nú reyndar ekki
með tærnar þar sem The Silence Of
the Lambs hafði hælana en Red
Dragon þykir nálgast gæði hinnar
síðarnefndu, sem kemur á óvart því
leikstjórinn Brett (Rush Hour)
Ratner hefur ekki verið til stórræð-
anna hingað til. Enda gengur Red
Dragon fyrir rífandi aðsókn vestan-
hafs nú um sama leyti og hún er
frumsýnd á Íslandi.
Í Red Dragon fer Ralph Fiennes
(borið fram Reif Fæns) með hlut-
verk bresks raðmorðingja, Francis
Dolarhyde að nafni, sem FBI er að
reyna að hafa uppá og leikur Ed-
ward Norton stjórnanda rannsókn-
arinnar sem nýtur viðsjárverðrar að-
stoðar Hannibals Lecter. Ralph
Fiennes hefur fengið ágæta dóma
fyrir túlkun sína á þessu illmenni.
Ekki blæs alveg jafnbyrlega fyrir
yngri bróður hans Joseph Fiennes í
Killing Me Softly en þessi fyrsta
mynd hins virta kínverska leikstjóra
Chen Kaige (Farvel frilla mín) á
Vesturlöndum hefur ekki mælst sér-
lega vel fyrir. Myndin, sem þykir í
djarfari kantinum, er byggð á
sálfræðitrylli eftir Nicci French og
leikur Fiennes þar fjallgöngukappa
sem kynnist vísindakonu (Heather
Graham) og taka þau upp eldheitt
ástarsamband sem tekur ískyggi-
lega stefnu þegar maðurinn fer að
sýna á sér nýjar hliðar.
Það er töluverður svipur með
þeim Fiennes-bræðrum og báðir
munu þykja meðal kynþokkafyllstu
breskra karlleikara, Ralph með sitt
rafmagnaða augnaráð og viðkvæmn-
islega munnsvip, Joseph með sín
brúnu, suðrænu augu og löngu
augnahár. Þeir eru báðir vel mennt-
aðir og hæfileikaríkir leikarar, eink-
um þó Ralph, en fyrir minn smekk er
eitthvað væmið og sjálfsmeðvitað við
þá, einkum þó Joseph, sem minnir á
siðmenntaðan, snoppufríðan apa. Og
er það auðvitað illa sagt.
Þótt þeir Ralph og Joseph hafi
verið meira áberandi en aðrir í
Fiennes-fjölskyldunni fer því þó
fjarri að hæfileikagenið hafi tak-
markast við þá. Fjögur systkini
þeirra og einn uppeldisbróðir hafa
einnig látið að sér kveða á ýmsum
sviðum, rétt eins og foreldrarnir.
Jini Fiennes
Mesti áhrifavaldur í lífi Fiennes-
systkinanna er trúlega móðir þeirra,
Jini, sem var málari og rithöfundur
og skrifaði skáldsögur undir nafninu
Jennifer Lash. Foreldrar hennar
höfðu þjónað í breskum hersveitum
á Indlandi en fluttust heim til Eng-
lands þegar Indland hlaut sjálfstæði.
Hún fékk strangt uppeldi í bældu
heimilislífi, þar sem enga hvatningu
og tjáningu var að finna. Þegar hún
sjálf varð foreldri reyndi hún þver-
öfugar uppeldisaðferðir en Fiennes-
systkinin hafa sagt frá þeirri upp-
örvun, örlæti og frelsi sem þau nutu í
æsku. Á misjöfnu þrífast börnin best
segir umdeilanlegt máltæki; það átti
þó við um Jini og bræður hennar sem
urðu háskólamenntaðir menn. En
hún þurfti að fara að heiman til að
öðlast eigin tilverurétt og gerði það
16 ára gömul, bjó hér og þar, vann
við hitt og þetta og reyndi að mennta
sig í málaralist, en það var fyrir til-
viljun að hún hitti konu sem hvatti
hana til að skrifa. Joseph hefur sagt
frá því að móðir hans hafi sagt að orð
myndu verða bestu vinir hans, „því
að þau munu aldrei bregðast þér“.
Hún hafði þegar sent frá sér tvær
skáldsögur áður en hún gekk í hjóna-
band, en þegar fjölskyldulíf, sem að
sönnu var hamingjuríkt, tók við liðu
15 ár þar til hún gat byrjað að skrifa
aftur. Hún lést úr krabbameini árið
1993 en hafði áður lokið við áttundu
skáldsögu sína, Blood Ties, sem
fjallar einmitt um fjölskyldubönd í
blíðu og stríðu.
Mark Fiennes
fór á flakk eftir að hafa lokið skóla-
göngu, ferðaðist til Ástralíu og
Bandaríkjanna, vann á búgörðum og
í sláturhúsum, en sneri svo aftur
heim til Englands og gerðist bóndi í
Austur-Anglíu. Hann var þá eftir-
sóttur piparsveinn en kynntist Jini í
kvöldverðarboði. Þeir fundir voru
ekki rómantískari en svo að Mark
sofnaði í sófanum eftir matinn.
Hjónabandið var samt farsælt. Að
sögn Ralphs var faðir hans hin
trausta undirstaða þess á meðan Jini
var hinn tilfinningalegi kjarni. Mark
þótti örlátur, skynsamur og skiln-
ingsríkur maður sem þurfti á stund-
um að takast mildilega á við sveifl-
umeiri skapgerð konu sinnar. Hann
hætti búskap og sneri sér að ljós-
myndun. Fiennes-fjölskyldan fluttist
búferlum alls fjórtán sinnum á með-
an börnin voru að alast upp.
Michael Fiennes
var fóstursonur þeirra hjóna og er
nú 49 ára að aldri. Hann var 11 ára
þegar Jini sá auglýsingu í The Tim-
es: „Michael, 11 ára að aldri, bráð-
vantar heimili þar sem honum leyfist
að lesa bækur.“ Mark, eiginmaður
hennar segir að þessi auglýsing hafi
hitt hana í hjartastað. „Hann verður
að hafa tækifæri til að lesa! Hann
verður að eignast heimili!“ hrópaði
hún. Móðir Michaels hafði yfirgefið
hann þegar hann var þriggja ára og
hann dvaldist næstu átta árin á mun-
aðarleysingjaheimilum. Michael er
nú fornleifafræðingur og segir: „Jini
gerði mér kleift að verða sjálfur elsk-
andi faðir tveggja barna; hún sýndi
mér að ég gat elskað og verið elsk-
aður.“
Ralph Fiennes
er elstur barna Jini og Marks, nú
tæplega fertugur að aldri. Hann er
sagður hafa verið þögult en yfir-
spennt barn og minnist æskunnar
með eftirfarandi hætti: „Full af
hversdagsvandamálum, rifrildum,
hurðarskellum og fólki sem öskraði:
Þegiðu og láttu mig í friði!“ Hann
hugðist í fyrstu verða málari eins og
mamman, hóf nám í listaskóla en
söðlaði um og innritaðist í Konung-
legu leiklistarakademíuna í London.
Að námi loknu 1987 gekk hann til liðs
við Konunglega þjóðleikhúsið og ári
síðar Konunglega Shakespearefl-
okkinn; þar lék hann allt frá Rómeó
til Edmunds í Lé konungi. Hann
vakti athygli fyrir leik sinn í sjón-
varpsmyndinni A Dangerous Man:
Lawrence After Arabia og þreytti
frumraun í kvikmyndaleik 1992 sem
Heathcliff í Wuthering Heights.
Heimfrægðin hélt svo innreið sína
ári síðar þegar Fiennes sýndi lang-
besta leik sinn til þessa í hlutverki
hins sálsjúka nasistaforingja Amons
Goeth í Schindler’s List og hreppti
Óskarstilnefningu fyrir lágstemmda,
hnitmiðaða túlkun á mannlegri
illsku. Hann kom sér upp bandarísk-
um hreim fyrir Quiz Show Roberts
Redford 1993 en myndin náði ekki
flugi. Það gerði hins vegar The Eng-
lish Patient eftir Anthony Minghella
svo um munaði og Fiennes fékk aðra
Óskarstilnefningu og styrkti stöðu
sína sem rómantískur hetjuleikari.
Hann fór meira út á jaðarinn í fram-
tíðartryllinum Strange Days og sem
klaufalegur klerkur í Oscar And
Lucinda, en fékk slæman skell sem
hetjan í grínhasarnum The Aveng-
ers. Hann lék titilhlutverkið í Onegin
undir leikstjórn systur sinnar
Martha Fiennes og var framúrskar-
andi sem rithöfundur í ástarsam-
bandi við eiginkonu besta vinar síns í
dramanu The End Of the Affair.
Martha Fiennes
er 38 ára að aldri. Hún var algjör
andstæða Ralphs bróður síns í æsku.
„Móðir mín gantaðist gjarnan með
hversu mikill léttir það var þegar ég
kom í heiminn vegna þess að ég var
félagslynd, atorkusöm og venjulegt
barn í samanburði við Ralph,“ segir
hún. Helsta leikfang hennar var
myndbandstökuvél sem hún skráði
með reynslu sína af ýmsu tagi og
þegar hún var orðin fullorðin nýtti
hún þá tækni við að leikstýra sjón-
varpsauglýsingum. Hún leikstýrði
fyrstu, og til þessa dags einu, bíó-
mynd sinni, Onegin eftir sögu Aleks-
andr Pushkin, árið 1999 með Ralph
og Liv Tyler í aðalhlutverkum.
Magnus Fiennes
er 37 ára. Hans stóra áhugamál
var alla tíð tónlistin og hann fór að
Fiennes, Fiennes og
þeirra fína fjölskylda
Fiennes-fjölskyldan er í breskum kvikmynda-,
leikhús- og listaheimi orðin álíka fyrirferðarmikil og
ættarnöfnin Barrymore og Carradine eru í Bandaríkj-
unum. Nú um helgina gefst kostur á að sjá tvo
frægustu fulltrúana á tjöldum bíóanna hérlendis,
Ralph Fiennes í hlutverki raðmorðingja í tryllinum Red
Dragon og Joseph Fiennes sem háskalegan elskhuga
í spennudramanu Killing Me Softly. Árni Þórarinsson
fjallar um þá bræður og fjölskyldu þeirra.
Elizabeth: Joseph Fiennes og Cate Blanchett.
The End of The Affair: Julianne Moore og Ralph Fiennes.
Red Dragon: Ralph Fiennes sem raðmorðingi.
Reuters
Shakespeare in Love: Gwyneth Paltrow og Joseph Fiennes.
The Avengers: Uma Thurman og Ralph Fiennes.