Morgunblaðið - 26.10.2002, Síða 1
251. TBL. 90. ÁRG. LAUGARDAGUR 26. OKTÓBER 2002 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
MORGUNBLAÐIÐ 26. OKTÓBER 2002
TSJETSJNESKIR skæruliðar, sem
halda um 700 manns í gíslingu í leik-
húsi í Moskvu, hótuðu í gær að byrja
að myrða gíslana, einn af öðrum,
klukkan sex í morgun að staðartíma,
eða klukkan tvö í nótt að íslenskum
tíma, nema því aðeins að rússnesk
stjórnvöld lýsi stríðinu í Tsjetsjníu
lokið og hefji brottflutning hers síns
þaðan, að því er The New York Tim-
es greindi frá.
Rétt fyrir miðnætti í gær að ís-
lenskum tíma heyrðust sprengingar
og skothvellir við leikhúsið og her-
menn sáust hlaupa að húsinu.
Skömmu áður höfðu læknar fengið að
flytja tvo gísla með sér á börum út úr
húsinu, og sagði Interfax-fréttastof-
an að gíslarnir hefðu verið særðir.
Eftir fund með Vladimír Pútín
Rússlandsforseta í gær hét Nikolaí
Patrusjev, yfirmaður rússnesku ör-
yggislögreglunnar, því opinberlega,
að lífi skæruliðanna í leikhúsinu yrði
þyrmt létu þeir gísla sína lausa. Pútín
sagði í gær, að sér væri mest í mun
„að fólkið sem er enn inni í leikhúsinu
héldi lífi“.
Fyrir utan það sem Patrusjev
sagði í gær hafði ekkert verið látið
uppi um það hvernig rússnesk stjórn-
völd hygðust taka á málinu, og Pútín
hefur hingað til ekki viljað ljá máls á
samningaviðræðum við tsjetsjneska
uppreisnarmenn nema þær snúist
um afvopnun uppreisnarmannanna
og að þeir láti af sjálfstæðisbaráttu
sinni.
Hvorki var ljóst hvort loforð Patr-
usjevs hafði borist gíslatökumönnun-
um til eyrna né hvort þeir hefðu tekið
því með öðru en lítilsvirðingu. Þeir
eru vopnaðir skotvopnum og
sprengjum og hafa ítrekað sagst
reiðubúnir að deyja og taka alla gísl-
ana af lífi um leið verði Rússar ekki
við kröfu þeirra.
Segjast ekki munu bíða lengi
Blaðakona, sem meðal annarra
hefur haft milligöngu í deilunni, sagði
í gærkvöldi að gíslatökumennirnir
segðust myndu láta gíslana lausa ef
Pútín forseti lýsti því yfir að stríðinu í
Tsjetsjníu væri lokið og staðfest yrði
að brottflutningur rússnesks herliðs
þaðan væri hafinn. Blaðakonan,
Anna Politkovskaja, nýtur mikillar
virðingar meðal Tsjetsjena fyrir
fréttaflutning sinn af hlutskipti
þeirra.
Sagði hún ennfremur, að skæru-
liðarnir hefðu sagt að þeir myndu
„aðeins bíða stutta stund“ eftir því að
kröfum þeirra yrði fullnægt. Krefð-
ust þeir þess, að Rússar hæfu brott-
flutning liðs síns frá einhverju einu
svæði, einhvers staðar í Tsjetsjníu, til
að sýna vilja í verki. Politkovskaja
kvaðst hafa stungið upp á því að Judd
lávarður, sem situr í Evrópuráðinu
og hefur margoft farið til Tsjetsjníu
til að rannsaka stöðu mannréttinda-
mála þar, yrði fenginn til að staðfesta
að Rússar hefðu hafið brottflutning,
og hefði sér verið sagt að það væri
viðunandi.
Aslan Maskhadov, sem aðskilnað-
arsinnar í Tsjetsjníu hafa kjörið for-
seta sinn, hvetur gíslatökumennina
til að „forðast að rasa um ráð fram“,
að því er haft var eftir aðstoðarmanni
hans í gær. Vildi Maskhadov að
skæruliðarnir vissu, að hann hefði
„miklar áhyggjur af þeim og því fólki
sem þeir hefðu í haldi“.
Gíslatökumennirnir krefjast þess að Rússar lýsi stríðinu í Tsjetsjníu lokið
AP
Þrjár konur, sem eru meðal gíslanna, og einn skæruliðanna, kona íklædd kufli með arabísku letri á hettunni, einhvers staðar inni í leikhúsinu í gær.
Hótuðu að byrja að myrða
gíslana í dagrenningu
Rússar lofa að þyrma lífi
skæruliðanna láti þeir gíslana lausa
Moskvu. AP, AFP.
Gíslatakan/24
YFIRVÖLD í Alabama-ríki í Banda-
ríkjunum tilkynntu í gær að þau
myndu krefjast dauðarefsingar yfir
leyniskyttunni sem myrti tíu manns
og særði þrjá á Washington-svæð-
inu. Segja lögregluyfirvöld í Ala-
bama að leyniskyttan, John Allen
Muhammad, hafi átt hlutdeild í
morði í áfengisverslun í Montgom-
ery-borg í Alabama í síðasta mánuði.
Ríkisstjórarnir í Virginíu og Mary-
land, Mark Warner og Parris Glend-
ening, kváðust einnig fylgjandi því
að dauðarefsingar yrði krafist.
Yfirvöld í þremur ríkjum, Mary-
land, Virginíu og Alabama, og í
Washington-borg ræddu í gær um
hvar málið yrði höfðað gegn mönn-
unum tveimur sem handteknir hafa
verið vegna málsins, Muhammad,
sem er 41 árs, og John Lee Malvo,
sem er 17 ára. Eitt af því sem tekið
verður tillit til þegar ákveðið verður
hvar mennirnir verða sóttir til saka
er dauðarefsing.
Í Maryland, þar sem sex morð-
anna voru framin, og í Virginíu, þar
sem þrír voru myrtir, eru dauðarefs-
ingar heimilar, en í Maryland hefur
tímabundið bann við þeim verið í
gildi síðan í maí. Glendening sagði að
það bann ætti þó ekki við í þessu til-
viki. Í Virginíu, aftur á móti, hafa
fleiri dauðamenn verið teknir af lífi
en í nokkru öðru ríki í Bandaríkj-
unum, fyrir utan Texas. Þá skiptir
aldur sakborninganna máli, því
heimilt er að taka af lífi 17 ára dauða-
mann í Virginíu og Alabama en ekki í
Maryland. Talið er ólíklegt að menn-
irnir verði sóttir til saka fyrir alrík-
isdómstóli því að svo virðist sem eng-
in alríkislög myndu gefa færi á að
leyniskyttan hlyti dauðarefsingu.
John Wilson, lögreglustjóri í
Montgomery í Alabama, sagði í gær
að lögreglan þar myndi „leggja sig
fram um að dauðarefsingu yrði
beitt“. Muhammad væri gefið að sök
að hafa myrt afgreiðslukonu í áfeng-
isversluninni 21. september.
Líf íbúa á Washington-svæðinu
var í gær að færast aftur í eðlilegt
horf eftir þriggja vikna umsáturs-
ástand. Var skólabörnum leyft að
fara út í frímínútum í fyrsta sinn síð-
an annan október. „Allir á Wash-
ington-svæðinu anda nú léttar,“
sagði Doug Duncan, sýslumaður í
Montgomery-sýslu í Maryland.
Krefjast dauðarefsingar
Montgomery í Alabama, Rockville í Maryland. AP, AFP.
ELDRA fólki sem neytir oft
fisks og sjávarfangs er mun síð-
ur en öðrum hætt við vitglöp-
um, þ.á m. alzheimer-sjúk-
dómnum, samkvæmt niður-
stöðum franskrar rannsóknar
er birtar verða í dag í British
Medical Journal.
Á því sjö ára tímabili sem at-
hugað var reyndust þeir, sem
neyttu fisks eða annars sjávar-
fangs a.m.k. einu sinni í viku,
rúmlega 30% síður líklegir til
að fá vitglöp eða alzheimer,
miðað við meðaltalið í hópnum.
Fiskneysla
gegn alz-
heimer
París. AFP.
FLUTNINGABÍLSTJÓRI, sem
eftir fáeina mánuði fer á eft-
irlaun, vildi í gær sem minnst
gera úr því afreki sínu að hafa
komið lögreglunni á spor mann-
anna tveggja sem handteknir
hafa verið fyrir raðmorðin á
Washington-svæðinu undanfarnar
þrjár vikur.
Þessi hógværa hetja heitir Ron
Lantz. Hann var á hefðbundinni
leið sinni frá Cincinnati í Ohio til
Wilmington í Delaware aðfara-
nótt fimmtudagsins er hann
hringdi í lögregluna til að láta
vita af því að blárri Chevrolet
Caprice-bifreið, árgerð 1990, eins
og sú sem lýst hafði verið eftir,
hefði verið lagt á áningarstað við
þjóðveginn skammt norðvestur af
Washington.
Að tilmælum lögreglunnar beið
Lantz, við annan mann, eftir því
að lögreglan kæmi til að hand-
taka mennina. „Það voru mjög
langar fimmtán mínútur,“ sagði
Lantz í viðtali við sjónvarpsstöð-
ina NBC.
Hálfrar milljónar dollara verð-
launum hafði verið heitið hverj-
um þeim er veitt gæti upplýs-
ingar er leiddu til handtöku
leyniskyttunnar, en Lantz sagði
að ef sér yrði veitt verðlaunaféð
myndi hann deila því með fjöl-
skyldum fórnarlamba morðingj-
ans, svo þær fengju missi sinni
a.m.k. að einhverju leyti bættan.
„Ég talaði um þetta við konuna
mína og hún sagði að við ættum
ekki að fá nein verðlaun fyrir að
menn væru handteknir svo að
þeir geti ekki unnið fleirum
mein,“ sagði Lantz. Hann býr í
Kentucky og fer á eftirlaun eftir
fimm mánuði.
Hógvær
hetja
Washington. AFP.
AP
Ron Lantz á heimili sínu í gær.