Morgunblaðið - 26.10.2002, Side 8
FRÉTTIR
8 LAUGARDAGUR 26. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Samkynhneigðir í háskólasamfélaginu
Fordómar
í brennidepli
MARGUR verður affordómum fávís,“er yfirskrift vit-
undarvakningar gegn for-
dómum sem byggist á
málfundaröð Stúdenta-
ráðs og Jafnréttisnefndar
HÍ. Um samstarfsverkefni
er að ræða sem hófst á sl.
vorönn og heldur áfram nú
á haustönn. Að þessu sinni
er tekið fyrir málefnið
„Samkynhneigðir í há-
skólasamfélaginu“. Fyrir-
lesarar eru þrír talsins og
einn þeirra er dr. Rann-
veig Traustadóttir og hún
svaraði góðfúslega nokkr-
um spurningum Morgun-
blaðsins um tilurð og til-
gang þessa málfundar.
Geturðu sagt okkur
eitthvað fyrst frá þessari
málfundaröð, hvers vegna til
hennar var stofnað og hvert efni
hennar er í þessu tilviki?
„Þessi fundaröð hófst í janúar á
þessu ári og markmiðið er að
vekja athygli á því alvarlega
vandamáli sem fordómar eru,
bæði innan háskólasamfélagsins
og í samfélaginu almennt. Þegar
hefur verið fjallað um fordóma á
ýmsum sviðum svo sem gegn út-
lendingum, gegn geðsjúkdómum,
gegn femínistum og um forvarnir
gegn fordómum í félagslega kerf-
inu. Nú er röðin komin að sam-
kynhneigðum.“
Á hvaða hátt tengist þú þessum
málaflokki?
„Ég tengist efninu með ýmsum
hætti. Í fyrsta lagi hef ég tekið
virkan þátt í jafnréttisstarfi innan
Háskóla Íslands. Í öðru lagi þá
hef ég um árabil unnið rannsókn-
ir með þeim hópum samfélagsins
sem oftast eru kallaðir „minni-
hlutahópar“ eða „jaðarhópar“ og
meðal þeirra eru samkynhneigð-
ir. Og í þriðja lagi hef ég lagt mig
sérstaklega eftir að skilja for-
dóma og áhrif þeirra á líf ólíkra
hópa samfélagsins.“
Hverjir tala á málfundinum og
um hvað?
„Við erum þrjú sem verðum
með stutt erindi á fundinum. Auk
mín tala þeir Þorvaldur Kristins-
son, bókmenntafræðingur og for-
maður Samtakanna ’78, og Guð-
laugur Kristinsson, formaður
FSS, Félags sam- og tvíkyn-
hneigðra stúdenta.“ Þorvaldur
kallar erindi sitt „Undir oki
ósýnileikans: Samkynhneigðir á
skólabekk“. Í erindinu mun Þor-
valdur rifja upp eigin skólaár á 8.
áratug síðustu aldar, þögnina sem
umlukti tilveru samkynhneigðra
á þeim árum og hvernig þetta
hlutskipti litaði hans persónulega
líf á þann hátt sem fæsta hefði
grunað. Hann ræðir einnig um
það hvaða áhrif það hlutskipti
samkynhneigðra að leyna sínum
innsta manni hefur á námsgetu
þeirra og persónuþroska, gagn-
stætt því sem gagnkynhneigðir
gera, og hver ábyrgð yfirvalda
menntamála og skólastjórnenda
hljóti að vera. Loks lítur hann til
þess nútíma sem blasir
við samkynhneigðum í
Háskóla Íslands haust-
ið 2002 og spyr hvort
og þá hvað hafi breyst.
Guðlaugur mun í er-
indi sínu fjalla um hagsmunabar-
áttu samkynhneigðra stúdenta
við Háskóla Íslands og alþjóðlegt
samhengi þess. Hann mun einnig
fjalla um mikilvægi þess að sam-
kynhneigðir séu sýnilegir í há-
skólasamfélaginu og eigi sér
hagsmunasamtök á borð við
FSS.“
Hvað tekur þú fyrir í þínum
fyrirlestri?
„Mitt erindi ber yfirskriftina
„Fræðastarf og fordómar“. Ég
mun fjalla um stöðu samkyn-
hneigðra innan Háskóla Íslands
og velti upp spurningum um for-
dóma og frjálslyndi innan fræða-
samfélagsins. Meðal annars mun
ég spyrja hvort, og með hvaða
hætti, fordómar gegn samkyn-
hneigðum birtist innan Háskól-
ans. Einnig velti ég upp ábyrgð
fræðanna gagnvart ólíkum sam-
félagshópum og hvaða þátt
fræðin geti átt í að viðhalda for-
dómum eða fyrirbyggja þá. Loks
bendi ég á nokkur úrræði sem há-
skólar geta beitt til að auka um-
burðarlyndi og jafnrétti innan há-
skólasamfélagsins.“
Hver er staða þessa minni-
hlutahóps, samkynhneigðra, í há-
skólasamfélaginu?
„Staða samkynhneigðra hefur
breyst mjög til hins betra und-
anfarna áratugi og ber þar hæst
þær miklu réttarbætur sem sam-
kynhneigðir öðluðust árið 1996
með lögunum um staðfesta sam-
vist. Hins vegar er ljóst að sam-
kynhneigðir búa ekki enn við full
mannréttindi og þrátt fyrir að
fordómar séu á verulegu undan-
haldi þá eru þeir enn fyrir hendi.“
Hverjir eiga að þínum dómi
helst erindi á þennan málfund?
„Allir sem hafa áhuga á mann-
réttindum, margbreytileika og
minnihlutahópum og á ýmsu birt-
ingarformi fordóma og forvörn-
um gegn þeim, eiga erindi á fund-
inn. Ég vil þó sér-
staklega hvetja skóla-
fólk á öllum skóla-
stigum til að mæta og
taka þátt í umræðum
um ábyrgð skólakerfis-
ins á líðan samkynhneigðra nem-
enda í skólum landsins og lang-
tímaáhrifum menntakerfisins á líf
og lífsgæði samkynhneigðra.“
Veistu hvað verður svo tekið
fyrir næst?
„Næsti málfundur verður í nóv-
ember og þar verður fjallað um
málefni fatlaðra nemenda og
starfsfólks í háskólasamfélag-
inu.“
Rannveig Traustadóttir
Rannveig Traustadóttir er
fædd í Reykjavík 1950. Hún lauk
BA-prófi frá Háskóla Íslands í fé-
lagsfræði og heimspeki árið 1985
og doktorsprófi í fötlunar-
fræðum og kvennafræðum frá
Syracuse-háskóla í Bandaríkj-
unum árið 1992. Hún er dósent
við félagsvísindadeild Háskóla
Íslands og hefur starfað sem
kennari við deildina síðan árið
1993. Rannveig hefur um árabil
unnið að rannsóknum um marg-
breytileika og minnihlutahópa í
íslensku samfélagi. Hún á eina
uppkomna dóttur og tvær ömmu-
stelpur.
… að samkyn-
hneigðir séu
sýnilegir
Jú, jú, Valgerður mín, nú máttu vísa framsóknarelítunni inn.