Morgunblaðið - 26.10.2002, Síða 10
FRÉTTIR
10 LAUGARDAGUR 26. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MARGRÉT S. Björns-
dóttir hefur verið ráð-
in forstöðumaður
Stofnunar stjórnsýslu-
fræða og stjórnmála
sem er ný stofnun á
vegum Háskóla Ís-
lands. Margrét lauk
meistaraprófi í opin-
berri stjórnsýslu
MPA. frá J.F. Kenn-
edy-skólanum við Har-
vard-háskóla, síðasta
vor. Árið 1976 lauk
hún meistaragráðu í
þjóðfélagsfræðum frá
Johann Wolfgang
Goethe Universitaat í
Þýskalandi. Síðastliðin 20 ár hefur
hún starfað hjá Háskóla Íslands,
fyrst sem forstöðumaður Endur-
menntunarstofnunar, en síðan sem
framkvæmdastjóri þróunar- og
kynningarsviðs Háskólans.
Stofnun stjórnsýslufræða og
stjórnmála er ný stofnun innan fé-
lagsvísindadeildar og er megin-
markmið hennar að efla kennslu og
rannsóknir í stjórnun opinberra
stofnana, bæði ríkis og sveitarfé-
laga. Stofnuninni er sömuleiðis ætl-
að að vera vettvangur
umræðna um stjórn-
mál, stefnumörkun og
stjórnun í opinberum
rekstri, þar á meðal
um hlutverk fjölmiðla
og hagsmunahópa í
opinberri stefnumörk-
un.
Segir í fréttatil-
kynningu frá Háskól-
anum að mikið sé í
húfi varðandi fag-
mennsku og skilvirkni
í opinberum rekstri,
ekki síður en í einka-
rekstri. Um þriðjung-
ur vinnandi fólks á Ís-
landi starfi hjá opinberum aðilum
og útgjöld hins opinbera á árinu
2003 séu áætluð um 340 milljónir
króna, eða um 41% af landsfram-
leiðslu.
Stofnunin er sett á stofn af Há-
skóla Íslands í samstarfi við
Reykjavíkurborg og Landspítala –
háskólasjúkrahús. Þá segir að
stofnunin muni auk þess starfa í
nánum tengslum við fyrirtæki,
stofnanir og samtök, innlend sem
erlend, eftir því sem tilefni gefast.
Stofnun stjórnsýslufræða
og stjórnmála við HÍ
Margrét S.
Björnsdóttir ráð-
in forstöðumaður
Margrét S. Björnsdóttir
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi yfirlýsing frá Birni
Bjarnasyni, oddvita Sjálfstæðis-
flokksins í borgarstjórn Reykjavík-
ur:
„Málflutningur Alfreðs Þor-
steinssonar, stjórnarformanns
Orkuveitu Reykjavíkur (OR), í
Morgunblaðinu sýnir í hnotskurn
málefnasnauða afstöðu hans til
álitamála varðandi fyrirtækið. Fari
fram sem horfir, verður stjórnin
óstarfhæf vegna marklausra ónota
formannsins í garð meðstjórnar-
manna sinna.
Er brýnt, að formaðurinn sýni,
hvort hann ætli að leiða stjórn OR
á efnislegum forsendum eða standa
í rakalausu orðaskaki í fjölmiðlum.
Í árshlutauppgjöri OR stendur
skýrum stöfum, hvert eigið fé fyr-
irtækisins var 1. janúar 2002,
34.934 milljónir króna. Frá þessu
sagði ég í Morgunblaðinu og vegna
þess sakar stjórnarformaðurinn
mig um fölsun. Telur hann að meta
beri eigið fé eftir samruna OR við
aðrar veitur um áramótin. Í árs-
hlutauppgjörinu segir, að við eigið
fé bætist um 224 milljónir króna
vegna samrunans. Samtals verða
þetta 35.158.371 milljón króna.
Endurskoðandi hefur ekki lagt
fram neitt endurmat á eignum eftir
samruna, þess vegna kalla ég þá
tölu, sem stjórnarformaðurinn og
borgarlögmaður nota hentugleika-
tölu, en á fagmáli er um tölu úr
áætluðum stofnefnahagsreikningi
að ræða, en hans er hvergi getið í
lögum um OR.
Málið snýst um, hvort ræða þurfi
skuldbindingar OR í ár við eig-
endur fyrirtækisins. Það ræðst
ekki aðeins af eigin fé heldur einn-
ig skuldbindingum OR á árinu. Ás-
dís Halla Bragadóttir, bæjarstjóri
Garðabæjar, eins eiganda OR, hef-
ur bent á, að þessar skuldbind-
ingar séu meiri í ár en heimilt er
án samráðs við eigendur, jafnvel
þótt miðað sé við hentugleikatöl-
una.
Hindri Alfreð Þorsteinsson efn-
islegar umræður um þessi mál í
stjórn fyrirtækisins og framlögn
nauðsynlegra gagna, gengur hann
ekki aðeins á lögbundinn rétt eig-
enda þess heldur gegn hagsmunum
Orkuveitu Reykjavíkur.“
Yfirlýsing frá Birni Bjarnasyni vegna
orða Alfreðs Þorsteinssonar
Málefna-
snauð afstaða
til álitamála
STARFIÐ sem unnið er í minni
skólum landsins er öflugt framlag
til nýsköpunar í skólastarfi sem
oft hefur endurbætt starf í stærri
skólum landsins. Þetta var meðal
þess sem Ólafur Ragnar Gríms-
son, forseti Íslands, lagði áherslu
á í ávarpi sínu á fjölmennri af-
mælishátíð Barnaskóla Eyrar-
bakka og Stokkseyrar í tilefni 150
ára afmælis skólans.
Skrúðganga var farin frá skóla-
húsinu á Eyrarbakka um aðalgötu
þorpsins til hátíðarsamkomu í fé-
lagsheimilinu þar sem þétt var
setinn bekkurinn. Arndís Harpa
Erlingsdóttir skólastjóri hringdi
inn samkomuna með gamalli
klukku skólans sem upprunnin er
úr Kaldaðarneskirkju. Börn úr
1.–5. bekk sungu nokkur lög, eldri
nemendur fluttu leikrit um skól-
ann, einnig sýndu þau gestum inn
í tískuheim síðustu 150 ára.
Hátíðisdagur íslensks skólalífs
Forsetinn sagði að skólinn væri
ræktunarstaður sem þroskaði vit-
und og vilja nemenda, kenndi
þeim að virða íslenska tungu og
menningu íslensku þjóðarinnar.
Áríðandi væri að smærri skólar
fengju að njóta krafta sinna.
Tómas Ingi Olrich mennta-
málaráðherra sagði að leiða bæri
hugann að því þrekvirki sem varð
til við stofnun skólans þegar þjóð-
in var í mestum vanda sínum í
móðuharðindunum. „Þetta var
grundvöllur framfara og end-
urreisnar. Þessi dagur er hátíð-
isdagur íslensks skólalífs og minn-
ir á hversu ríkan þátt skólastarfið
og menntun á í velgengni þjóð-
arinnar í dag,“ sagði Tómas Ingi.
Minnir á upprunann
Ásmundur Sverrir Pálsson, for-
maður bæjarráðs Árborgar,
minntist upphafs skólans og sagði
rétt að sýna brautryðjendunum
virðingu og þakklæti og Árni
Daníel Júlíusson sagnfræðingur
rakti breytingar í þjóðfélaginu
semhefðu haft áhrif á þróun skól-
ans.
Arndís Harpa sagði í lok sam-
komunnar mikils virði að vita af
hug samfélagsins til skólans.
„Þessi dagur minnir á upprunann
og hlutverk okkar í skólasögunni.
Sérstaða okkar felst í framsýni
feðranna,“ sagði hún.
Afmælishátíð Barnaskóla Eyrarbakka og Stokkseyrar
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Gengið var í skrúðgöngu um aðalgötuna á Eyrarbakka til hátíðarsamkomunnar.
Sérstaða skólans fólgin
í framsýni feðranna
Selfossi. Morgunblaðið.
AÐ MATI Flugmálastjórnar hefur
eftirgrennslan stofnunarinnar, sem
hófst vegna skýrslu breskra sér-
fræðinga um rannsókn flugslyssins
í Skerjafirði, leitt í ljós að fullyrð-
ingar um að gagnaplata hreyfils
TF-GTI sé ólögleg og jafnvel fölsuð
eru úr lausu lofti gripnar.
„Komið hefur í ljós að hægt er að
breyta hreyfli af E-gerð í hreyfil af
H-gerð, en hingað til hefur því ver-
ið haldið fram í umræðum um
hreyfil flugvélarinnar að það væri
ekki hægt. Allar forsendur í um-
ræðum um hreyfilinn hafa því
breyst. Bandarískt fyrirtæki sem
keypti hreyfilinn eftir slysið segir
að engin merki um innri skemmdir
aðrar en tæring og ryð hafi fundist
í hreyflinum þegar hann var tekinn
í sundur,“ segir í fréttatilkynningu
frá Flugmálastjórn.
Breytti framburði sínum
Hilmar F. Foss flugmaður, sem
hefur rannsakað feril hreyfilsins að
ósk aðstandenda þeirra sem létust
af völdum flugslyssins, segir að
einn af eigendum fyrirtækisins sem
keypti hreyfilinn, Nicholson, hafi
haft allt aðra sögu að segja þegar
hann hafði samband við hann í síð-
ustu viku. Þá hafi hann sagt að
hreyfillinn hefði verið úrbræddur
og staðfest þennan framburð sinn í
tölvupósti. Í samtali við lögfræðinga
aðstandenda fórnarlambanna sl.
þriðjudag, hafi hann á hinn bóginn
dregið í land en ekki getað staðfest
hvernig hreyfillinn skemmdist.
Hilmar segir að framburður Nichol-
son hafi greinilega breyst eftir að
hann ræddi við Þorleif Júlíusson,
sem seldi honum hreyfilinn. Þetta
hafi hann að öllum líkindum gert að
beiðni Þorleifs en þeir Nicholson
séu viðskiptafélagar. „Hvort Nich-
olson hafi sagt sannleikann þegar
hann ræddi við mig eða hvort nú-
verandi framburður hans er réttur,
verður hver og einn að meta fyrir
sjálfan sig,“ segir Hilmar. Þá sé at-
hyglisvert að þegar Þorleifur boðar
yfirlýsingu frá Nicholson kannist
Nicholson í samtali við lögfræð-
ingana ekki við að hafa rætt við
Þorleif.
Aðspurður um upplýsingar Flug-
málastjórnar um að breyta megi
hreyfli af E-gerð í hreyfil af H-
gerð, segir Hilmar að þetta sé í
andstöðu við upplýsingar sem hann
hafi áður fengið frá framleiðendum
hreyfilsins. Hann segist vera að afla
sér nánari upplýsinga um þetta
mál.
Flugmálastjórn segir fullyrðingar um að gagnaplata
TF-GTI hafi verið ólögleg úr lausu lofti gripnar
Aðeins merki um tær-
ingu og ryð í hreyflinum
HÉRAÐSDÓMUR Suðurlands
hefur dæmt 38 ára karlmann í
15 mánaða fangelsi fyrir fíkni-
efnabrot með því að hafa átt
rúm 200 grömm af amfetamíni
og 1,47 grömm af hassi.
Dómurinn taldi að amfeta-
mínið væri ætlað til sölu og leit
til þess við ákvörðun refsingar.
Frá árinu 1986 hefur ákærði
fimm sinnum hlotið sektir fyrir
fíkniefnabrot en ekki var um að
ræða umtalsverð brot fyrr en
nú.
Ólafur Börkur Þorvaldsson
dómstjóri kvað upp dóminn.
15 mánaða
fangelsi
fyrir fíkni-
efnabrot
RÚMLEGA fimmtugur karlmaður
var dæmdur í hálfs árs fangelsi í Hér-
aðsdómi Vestfjarða í gær fyrir lík-
amsárás gegn hjónum á heimili þeirra
á Suðureyri eftir þorrablót í febrúar
sl. Maðurinn rak hægri olnboga af afli
í andlit konunnar með þeim afleiðing-
um að konan vankaðist og hlaut djúpt
sár.
Skömmu síðar sló hann mann
hennar í andlitið með glerglasi sem
brotnaði við höggið svo að brotaþoli
hlaut stórt sár sem sauma þurfti sam-
an. Árásirnar á hjónin þóttu hörku-
legar og án nokkurs tilefnis og sú
seinni hættuleg. Þótti refsing manns-
ins hæfilega ákveðin fangelsi í sex
mánuði. Með tilliti til þess að gerand-
inn iðraðist háttseminnar og hætt
áfengisneyslu þótti hins vegar rétt að
skilorðsbinda refsinguna. Fellur hún
niður að þremur árum liðnum haldi
hann skilorðið. Manninum var gert að
borga hjónunum 250.000 krónur í
bætur og 240.000 krónur í málsvarn-
ar- og réttargæslulaun.
Hálfs árs fangelsi fyrir árás