Morgunblaðið - 26.10.2002, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 26.10.2002, Qupperneq 16
AKUREYRI 16 LAUGARDAGUR 26. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ betri innheimtuárangur FRIÐRIK Gylfi Traustason bóndi á Gásum í Hörgárbyggð sagði að ef 22 þúsund manna samfélag þyrfti á landi að halda, undir sorpurðun, álver eða eitthvað annað, væri hann hvorki nógu þrjóskur né for- dómafullur til að neita því. „Ég gaf leyfi til þess í vor að staðirnir tveir yrðu bornir saman en það hefur ekkert verið rætt frekar við mig. En ég get alveg búið annars staðar en hér,“ sagði Friðrik Gylfi. Hann stundar mjólkurframleiðslu á jörð sinni og er með um 100 nautgripi í húsi, þar af yfir 40 mjólkurkýr. Jörðin er um 150 hektarar að stærð, þar af eru ræktuð tún um 70 hektarar. Oddur Gunnarsson bóndi á Dag- verðareyri og fyrrverandi oddviti er næsti nágranni Friðriks Gylfa og hann er ekki sáttur við að Gás- ir verði næsti sorpurðunarstaður svæðisins. Hann sagði að það ætti mikið eftir að ganga á áður en sú niðurstaða yrði að veruleika. „Það er ekkert vit í því að taka mjög gott landbúnaðarland undir sorp- hauga þegar hægt er að fá annað land. Bjarnarhóll er mjög góður staður og að mínu mati eini stað- urinn fyrir utan Glerárdal sem er fýsilegur undir svona starfsemi. Mér finnst vera skammsýni í þessu og Akureyrarbær getur allt eins sett upp sorphauga á sínu landi í Skjaldavík eins og að Gásum. Ég held líka að það sé ekki langt í að urðun á sorpi verði bönnuð og hef alltaf verið hlynntari því að skoð- uð verði brennslustöð á þessu svæði,“ sagði Oddur. Bjarnarhóll er í landi Syðri- Bakka í Arnarneshreppi en jörðin er í eigu ríkisins. Þar er ekki stundaður búskapur frekar en á Ytri-Bakka, sem er í eigu hrepps- ins. Eins og fram kom í Morg- unblaðinu í gær, var gerður ít- arlegur samburður á Bjarnarhóli og Gásum sem hugsanlegum urð- unarstöðum. Skýrslan var unnin fyrir Sorpeyðingu Eyjafjarðar bs. og í skýrslunni eru Gásir álitnar betri kostur en Bjarnarhóll. Starfsleyfi fyrir sorpurðun á Gler- árdal rennur út á næsta ári og hefur bæjarstjórn Akureyrar ákveðið að sorpurðun þar verði þá hætt. Skýrslan hefur ekki verið kynnt sveitarstjórnum Arnarnes- hrepps og Hörgárbyggðar og eftir er að fjalla nánar um hana innan stjórnar Sorpeyðingar Eyja- fjarðar. Helgi Steinsson bóndi á Syðri-Bægisá og oddviti Hörg- árbyggðar sagðist hafa fengið skýrsluna í hendur á fimmtudag og að hann ætti eftir að lesa hana betur yfir. Orðið mjög aðkallandi að taka ákvörðun í málinu Helgi sagði að einhvers staðar þyrfti að urða sorpið og það hefði átt að vera búið að finna stað fyrir löngu. „Mér kæmi ekki á óvart að annar hvor þessara staða yrði fyr- ir valinu.“ Helgi sagðist hafa séð það að Gásir þættu álitlegri kostur í skýrslunni og að sterkasti punkt- urinn væri nálægðin við Akureyri, þaðan sem mesta sorpið kæmi. „En auðvitað skiptir vilji landeig- andans máli en einnig hefur þetta áhrif á næstu nágranna,“ sagði Helgi. Jóhannes Hermannsson fyrrver- andi oddviti Arnarneshrepps sagði það sitt mat að báðir staðirnir kæmu til greina undir sorpurðun. Hann sagði mjög aðkallandi að taka ákvörðun í þessu máli og að það hljóti að verða gert alveg á næstunni. Ekki náðist í Herdísi Sigursteinsdóttur oddvita Arn- arneshrepps í gær. Friðrik Gylfi sagði þetta í þriðja eða fjórða sinn sem menn kæmu til sín til að ræða nýtingu á landi hans. Fyrir um 25 árum gaf hann leyfi til að staðurinn yrði tekinn út undir hugsanlegt álver og nokkr- um árum seinna sýndu menn því áhuga að koma þar upp alþjóð- legum flugvelli. Aðspurður sagðist Friðrik Gylfi ekki getað svarað því hvort mjólkurframleiðsla gæti far- ið saman með sorpurðun á jörð- inni. „Ég keypti jörðina fyrir rúm- um 30 árum en það stóð aldrei til að vera í búskap til æviloka.“ Bóndinn á Gásum jákvæður fyrir hugsanlegri sorpurðun á landareigninni Hvorki nógu þrjóskur né fordómafullur til að neita því Morgunblaðið/Kristján Þingmenn og ráðherrar Norðurlands eystra heimsóttu Gása í vikunni, ekki til að skoða hugsanlegan urðunarstað fyrir sorp, heldur til að fá fréttir af gangi mála við fornleifarannsóknir á svæðinu. F.v.: Steingrímur J. Sigfússon, Halldór Blöndal, Valgerður Sverrisdóttir, Tómas Ingi Olrich, Árni Steinar Jóhannsson, Örlygur Hnefill Jónsson, Guðrún María Kristinsdóttir, safnstjóri Minjasafnsins, og Kristín Sóley Björnsdóttir, verkefnisstjóri Ferðaseturs. FIMM ár eru nú liðin frá því sjón- varpsstöðin Aksjón hóf útsendingar á Akureyri. „Okkur var strax vel tekið, eig- inlega ótrúlega vel og áhorfið aukist jafnt og þétt,“ sagði Gísli Gunn- laugsson framkvæmdastjóri og einn eigenda Aksjón. Auk hans eiga stöð- ina þeir Páll Sólnes, Sigfús Björns- son og sjóðurinn Tækifæri. Gísli sagði að þeir félagar hefðu fengið þá hugmynd að setja upp sjónvarpsstöð á Akureyri þar sem þeim hefði þótt þörf á slíkri stöð í bænum, „sem og hefur reynst vera,“ sagði Gísli. „Það er mikilvægt að til staðar sé sterkur fjölmiðill á þessu sviði og þessu svæði, sem er eins konar mót- vægi við höfuðborgarsvæðið. Við vildum sjá hér í bænum öflugan heimamiðil.“ Viðtökurnar voru góðar strax í upphafi, en Gísli telur að fyrir um ári hafi toppnum verið náð, með um 50% áhorfi bæjarbúa á hverjum degi og allt að 90% áhorfi yfir vik- una. „Það er ekki hægt að búast við meira áhorfi og við erum ánægð með þetta,“ sagði hann. Útsendingin nær til um 17 þús- und íbúa á Akureyri og næsta ná- grenni. Gísli sagði að til væru áætl- anir um frekari landvinninga og þær stórtækustu miðuðu að því að ná til alls Norðausturkjördæmis. Það kostaði hins vegar mikla peninga og ljóst að ekki yrði af slíkum áformum alveg á næstunni. „Þetta er gríð- arlega dýrt, en við munum í fyrstu einbeita okkur að því að stækka út- sendingarsvæðið hér í Eyjafirði og það verður gert um leið og finnst á því flötur,“ sagði Gísli. Aksjón sendir út fréttatíma og inn í honum eru ýmsir þættir og innskot um ýmislegt það sem viðkemur bæj- arlífinu. Gísli sagði fyrirhugað að auka og bæta fréttatímann enn frek- ar í framtíðinni. Þá sýnir stöðin frá fundum bæjarstjórnar Akureyrar, um helgar er kristilegt efni frá Omega á dagskrá en auk þess eru sýndar kvikmyndir. Starfsmenn á Aksjón eru 6 tals- ins. Í tilefni af afmælinu býður stöðin bæjarbúum til veislu í dag, laug- ardag. Ókeypis verður inn á Lista- safnið á Akureyri þar sem stendur yfir sýningin Rembrandt og samtíð- armenn hans, þá verður frítt inn í Skautahöllina og í bíó kl. 14, bæði í Sambíóin og Borgarbíó, auk þess sem menn geta fengið sér kaffibolla á Kaffi Karólínu frá kl. 13 til 17. Fimm ár frá því sjónvarpsstöðin Aksjón hóf útsendingar Ótrúlega góðar viðtökur Morgunblaðið/Kristján Starfsfólk á Aksjón er í afmælisskapi og býður bæjarbúum á Listasafnið, í bíó og á skauta í dag. Í efri röð eru frá vinstri Bjarki Albertsson, skráning, Þráinn Brjánsson fréttamaður, Steinarr Logi Nesheim, auglýsingagerð, og Sigurður Hlöðversson myndatökumaður, en sitjandi eru þau Gísli Gunn- laugsson framkvæmdastjóri og Hilda Jana Gísladóttir fréttamaður. AÐSÓKN að leiksýningum Leik- félags Akureyrar á liðnu leikári var misjöfn eftir leikverkum, með mikl- um ágætum á sumar þeirra en aðrar hlutu dræma aðsókn. Fyrsta verk liðins vetrar, Blessað barnalán eftir Kjartan Ragnarsson féll í góðan jarðveg, sýningar urðu 25 talsins og áhorfendur hátt í 3.600 talsins. Auk þess sem sýnt var í Samkomuhúsinu brá leikhópurinn sér suður yfir heiðar og tókst sú ferð vel að því er fram kom í máli Val- gerðar H. Bjarnadóttur, formanns leikhúsráðs LA, á aðalfundi félags- ins þegar hún fór yfir liðið leikár. Annað verk vetrarins, Slavar! eft- ir Tony Kushner „ein magnaðasta og sérkennilegasta sýning sem sést hefur á þessum fjölum árum sam- an,“ eins og Valgerður orðaði það féll í aðsókn, „eins og oft vill verða með mikil verk“. Gullbrúðkaup eftir Jökul Jakobs- son var sýnt á 23 sýningum og sáu það um 1.400 manns, en verkið var sýnt á Græna hattinum. Er að því stefnt að að taka upp sýningar að nýju næsta vor. Þá sáu um 600 manns verkið Saga um pandabirni, sögð af saxófónleik- ara sem á kærustu í Frankfurt eftir Matei Visniec. „Það er ægilegt og liggur nærri hneyksli að einungis tæplega 600 leikhúsunnendur hafi séð þessa sýningu,“ sagði Valgerð- ur. Auk þessara fjögurra sýninga var samlestur á Heimsljósi Halldórs Laxness og eins var boðið upp á gestasýningu frá Leikbrúðulandi á Prinsessunni á hörpunni. Þá sýndi Leikfélag Menntaskólans á Akur- eyri söngleikinn Hárið í Samkomu- húsinu fyrir fullu húsi kvöld eftir kvöld og Leikfélag VMA sýndi Rocky Horror í Ketilhúsinu eins við góða aðsókn. Taldi Valgerður að að- sókn að þessum verkum sýndi að ak- ureyrskir unglingar kynnu vel að meta leikhús, a.m.k. söngleiki af þessari gerð. Misjöfn aðsókn Toppárangur með þakrennukerfi þakrennukerfi Fagm enns ka í fyrir rúmi BLIKKÁS EHF. SKEMMUVEGUR 36 200 KÓPAVOGUR SÍMI 557 2000 - FAX 557 4111 Söluaðilar um land allt
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.