Morgunblaðið - 26.10.2002, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 26.10.2002, Blaðsíða 23
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. OKTÓBER 2002 23 EINN þingmanna stjórnarandstöð- unnar í Japan var stunginn til bana fyrir framan heimili sitt í Tókýó í gær. Hefur morðið vakið reiði meðal Japana en ofbeldi gegn stjórnmála- mönnum er fátítt í landinu. Þingmaðurinn, Koki Ishii, var að stíga út úr bíl sín- um við heimili sitt þegar maður kom að honum og stakk hann í kviðinn með blaðlöngum hníf. Flúði morðing- inn síðan af vettvangi. Shoji Toyoh- ara, talsmaður Lýðræðisflokksins, flokks Ishii, sagði, að hann hefði látist skömmu síðar. Ekki er vitað hvað morðingjanum gekk til en hafi verið um stjórnmála- legar ástæður að ræða, þá er morðið í gær fyrsta sinnar tegundar í Japan frá árinu 1960. Að sögn lögreglunnar virtist morðinginn vera á sextugs- aldri, klæddur sem öryggisvörður og með rauðan klút fyrir andliti. Koki Ishii var 61 árs, kunnur fyrir baráttu gegn spillingu og auknum framlögum til hersins. Junichiro Koizumi, forsætisráð- herra Japans, og fleiri frammámenn lýstu í gær reiði sinni og hneykslan vegna morðsins og hétu að gera allt til að hafa hendur í hári morðingjans. Síðasta pólitíska morðið í Japan var framið 1960 þegar ungur hægrisinni stakk Inejiro Asanuma, einn þing- mann Sósíalistaflokksins, til bana. Japanskur þing- maður myrtur Tókýó. AP. Koki Ishii DANIEL arap Moi, forseti Kenýa, leysti í gær upp þing landsins. Flokkur hans, KANU, hefur út- nefnt Uhuru Kenyatta, son Jomo Kenyatta, fyrsta forseta landsins, sem næsta forseta- efni sitt. KANU- flokkurinn hefur verið við stjórn- völinn síðan Kenýa öðlaðist sjálfstæði frá Bretum árið 1963. KANU vann nauman meirihluta í kosningunum 1997 en á þeim tíma ásakaði stjórnarandstaðan flokkinn um kosningasvik. Moi barðist hart fyrir útnefn- ingu Uhuru Kenyatta þrátt fyrir uppreisn sem varð innan flokksins. Mótstaða myndaðist meðal flokks- manna sem ásökuðu forsetann um að ,,þröngva“ Kenyatta upp á þá. Stjórnarandstöðuflokkurinn, NARC, útnefndi þaulreyndan stjórnmálamann, Mwai Kibaki, til að fara fyrir sínum flokki. Simeon Nyachae, leiðtogi annars and- stöðuafls, þykir einnig líklegur til að bjóða sig fram til forseta. Hann hefur gagnrýnt NARC fyrir ólýð- ræðislegar aðferðir við útnefningu Kibaki. Kosningarnar koma til með að binda enda á 24 ára stjórnartíð Moi. Dagsetning þeirra er óráðin en líklega verða þær í desember nk. Kenyatta verði næsti forseti Kenýa Nairobi. AFP. Uhuru Kenyatta keppinautinn og er honum spáð 66% fylgi. Brasilíska hlutabréfavísitalan Bovespa hefur hækkað um 15% frá því í byrjun mánaðarins, en hún tók mikla dýfu í kring um fyrri umferð kosninganna sem fram fór 6. októ- ber, þegar ljóst varð að Lula, sem er af fátæku verkafólki kominn og er fyrrverandi verkalýðsleiðtogi, myndi hafa vinninginn. Lula hefur í kosn- ingabaráttunni markvisst dregið úr þeirri róttækni sem áður einkenndi pólitískan málflutning hans. FJÁRMÁLAMARKAÐIR Brasilíu virðast nú loks hafa sætt sig við að næsti forseti landsins, ellefta stærsta þjóðhagkerfis heims, verði vinstrimaðurinn Luiz Inacio Lula da Silva. Síðari umferð forsetakosninganna í Brasilíu fer fram á morgun, sunnu- dag, þar sem valið stendur á milli Lula og José Serra, frambjóðanda núverandi stjórnarmeirihluta. Samkvæmt nýjustu skoðanakönn- unum hefur Lula hvorki meira né minna en 32 prósentustiga forskot á AP Forsetaefnið Lula da Silva (fyrir miðju) á kosningafundi í Brasilíuborg. Forsetakosningar í Brasilíu á morgun Stefnir í öruggan sigur Lula da Silva Sao Paolo. AFP. debenhams S M Á R A L I N D konan er mi›punktur athyglinnar ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S D EB 1 91 56 10 /2 00 2 Dagskrá konuviku í debenhams 24. - 31. október Nýtt Tryggðarkort snyrtivörudeildar Debenhams kynnt. Ráðgjafi frá Samhjálp kvenna verður í undirfatadeild á laugardag. Brjóstahaldaramælingar. Tískusýning í Vetrargarði laugardag kl. 16 og sunnudag kl. 15. Glæsilegir kaupaukar og tilboð í snyrtivörudeild. eitthva› fyrir allar konur No Name kynning og förðun Estée Lauder kynning á Intuition Clinique kynning - nýtt krem Shiseido kynning Dior kynning - nýtt krem - nýr ilmur Aveda höfuðnudd og hármeðferðir Estée Lauder kynning - Gulllínan Clinique kynning - nýr varalitur Estée Lauder kynning - nýtt meik No Name kaupauki Dior kynning Estée Lauder kynning/gjöf Ilmvötn, ef þú kemur með gamla ilmvatnsglasið þitt og kaupir nýtt 50 ml ilmvatn færð þú 1.000 kr. inneign í snyrtivörudeild Kanebo kynning Ilmvötn, ef þú kemur með gamla ilmvatnsglasið þitt og kaupir nýtt 50 ml ilmvatn færð þú 1.000 kr. inneign í snyrtivörudeild Estée Lauder nýtt augnkrem Clinique kynning Dior - nýtt krem - nýr ilmur Estée Lauder vetrarförðun kynnt Aveda höfuðnudd og hármeðferðir No Name kynning Shiseido kynning Dior kynning Kanebo kynning Dagur Stílrá›gjöf SNyrtivörudeild Laugardagur Ráðgjafi frá Samhjálp kvenna verður í undirfatadeild Tískusýning í Vetrargarði Sunnudagur Stílistar ráðleggja um val á samkvæmisfatnaði Tískusýning í Vetragarði Mánudagur Stílistar veita góð ráð við val á yfirhöfnum Þriðjudagur Stílistar verða í Wallis og gefa góð ráð um val á fatnaði og fylgihlutum Miðvikudagur Stílistar verða í Mexx og gefa góð ráð um val á fatnaði og fylgihlutum Fimmtudagur Stílistar í Designer deild leiðbeina við val á merkjavöru og kynna mismunandi hönnuði deildarinnar Debenhams styrkir Samhjálp kvenna um 500 kr. af hverjum keyptum brjóstahaldara.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.