Morgunblaðið - 26.10.2002, Side 25
GÍSLATAKAN Í MOSKVU
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. OKTÓBER 2002 25
Haustlaukaútsala
Reykjavík • Akureyri
Selfossi • Reykjanesbær
www.blomaval.is
10 rósir
799 kr.
499 kr.
25% afsláttur af öllum haustlaukum
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
B
LO
1
91
61
10
/2
00
2
1.499 kr.699 kr.
Tilboð
Nóvemberkaktus
UM eitt hundrað manna hópur fólks
upphóf í gærmorgun hávær mót-
mæli gegn hernaði Rússa í Tsjetsjn-
íu fyrir utan leikhúsið þar sem
tsjetsjneskir skæruliðar halda um
700 manns í gíslingu og annar hópur
á Rauða torginu í Moskvu.
Sýndu yfirvöld nokkuð tauga-
veikluð viðbrögð við þessu. Stjórn-
arerindrekar ávörpuðu aðstand-
endur gíslanna, sem haldið hafa
hópinn fyrir utan leikhúsið, og vör-
uðu þá við því að taka þátt í aðgerð-
um af þessu tagi, en fullyrt var að
gíslatökumennirnir hefðu krafizt
þess að slík mótmæli færu fram á
Rauða torginu. Sumir mótmælend-
anna við leikhúsið sögðust vera að
bregðast við óskum ástvina sinna
meðal gíslanna, sem þeir hefðu talað
við í síma.
„Þið megið líta á þetta sem við-
vörun til æsingamanna sem ætla sér
að kynda undir ólgu,“ hafði Inter-
fax-fréttastofan eftir Vladimír Vas-
ilyev, aðstoðarinnanríkisráðherra
Rússlands. „Ef eitthvað gerist af
þessu tagi munum við taka á því af
hörku,“ bætti hann við, og í sömu
mynt mælti Valerí Shantsev, aðstoð-
arborgarstjóri Moskvu, sem sagði
að heimildarlaus mótmæli væru
nógu slæm á tímum þegar ekkert
sérstakt bjátaði á, en slíkt hefði enn
verri áhrif þegar neyðarástand ríkti
eins og nú.
Þessi orð urðu þó ekki til að fæla
um 75 aðstandendur gísla frá að
safnast saman á Rauða torginu í
kaldri haustrigningunni og halda
þar á loft borðum með slagorðum
gegn Tstetsjníustríðinu og hrópa
slík í átt að veggjum Kremlar.
„Fólk er mikilvægara en stjórn-
mál,“ stóð á einum borðanum, og á
öðrum stóð: „Enga árás“ – og þar
var með átt við að öryggissveitir
ættu að láta vera að storka gísla-
tökumönnunum með því að reyna að
gera áhlaup á leikhúsið – og „Stöðv-
ið stríðið í Tsjetsjníu“.
Hvað sem harðorðum viðvörunum
fulltrúa yfirvalda leið lýstu margir
óbreyttir Rússar þeirri skoðun sinni
að mikilvægast væri að sjá til þess
að bjarga gíslunum heilum á húfi.
Alexander Petrov, einn þátttak-
enda í mótmælunum fyrir utan leik-
húsið, viðurkenndi að hafa áður
ekki haft neina ástæðu til að vera
andsnúinn hernaðinum í Tsjetjsníu,
en sagði: „Hvaða leið er önnur til út
úr þessu“ en að stöðva hann, eins og
gíslatökumennirnir krefjast?
Titringur
vegna
mótmæla
AP
Aðstandendur gísla tsjetsjnesku skæruliðanna hrópa slagorð gegn stríðinu í Tsjetsjníu á um hundrað manna mótmælafundi í miðborg Moskvu í gær.
Moskvu. AFP, AP.