Morgunblaðið - 26.10.2002, Síða 44

Morgunblaðið - 26.10.2002, Síða 44
MARGT hefur undanfarið verið rætt og ritað um Landspítala – há- skólasjúkrahús og stjórnarnefnd þess, flest ágætt en þó misgott. Þó virðist einsýn á það meginsjónarmið sem fylgt er í rekstri LSH að á spít- alanum beri að lækna fólk, helst var- anlega svo að það komi þangað aldr- ei aftur. Þetta á að gerast á sem skemmstum tíma svo að viðkomandi sjúklingur komist sem fyrst til heilsu og vinnu. Reyndar ríkir ekki einhug- ur um hvernig ná eigi markmiðinu. Fullyrða má að svar spítalans við gagnrýni geti í reynd aðeins verið; að gera betur á sem flestan hátt. Ég staðhæfi að stjórnarnefndin sé ekki óvinveitt sjúklingum, þótt svo kunni að virðast og augljóst sé að þeir séu orsök vandræðanna, því án sjúklinga kæmi stofnunin mjög vel út fjárhagslega, sem er býsna al- gengur mælikvarði. Jafnframt vil ég leyfa mér að fullyrða að það sé ekki sérstakt markmið stjórnarnefndar að sjúklingar skuli liggja á göngum, komist þeir þá á annað borð inn á spítalann, þ.e. læsist ekki á biðlista. Ég held að með nokkrum rétti mætti segja að nefndin sé beinlínis hliðholl sjúkum sem þurfa á þjónustu spít- alans að halda, sem endurspeglast m.a. í fjárhagsstöðunni. Þessi mál eru reyndar aðeins að takmörkuðu leyti á valdi stjórnar- nefndar, kannski því miður. Hér verður fjárveiting til stofnun- arinnar, þ.e. upphæð hennar sem slík ekki rædd, heldur fremur til hvers ætlast er af spítalanum og á hvaða fjárhagslegum forsendum. Þó er rétt að fram komi að kostnað- arfrávik í rekstri á þessu ári stefna í um 4%, sem vissulega er há upphæð, en þó tæpast óeðlileg þegar þess er gætt að reksturinn, líkt og flest ann- að, er bundinn óvissu. Jafnframt ber í þessu sambandi að hafa í huga að sjálfur ríkissjóður er rekinn með mun meira hlutfallslegu fráviki (halla) frá áætlunum. Spítalinn starfar samkvæmt fjár- lögum, þ.e.a.s. stofnuninni er ætluð tiltekin upphæð á ári hverju til þess að sinna hlutverki sínu hvað sem á dynur, óháð öllu, aðstæðum og eðli- legum óvissumörkum Svo háttar til að fjárveitingar til spítalans hafa staðið í stað undanfar- in ár þrátt fyrir ýmsar ytri breyt- ingar svo sem; fjölgun koma á spít- alann, fjölgun aðgerða, fólksfjölgun á svæðinu, hækkun meðalaldurs, raunhækkun verðlags og breytta heilsugæslu. Það ætti að liggja í aug- um uppi að slíkt, það að hækka ekki raunfjárframlög, stenst ekki jafnvel þótt gerðar séu kröfur um hagræð- ingu í rekstri. Ekki er einfalt af fastri tiltekinni árlegri upphæð að lækna alla sjúk- linga sem koma á spítalann í heimi aukins kostnaðar, því samtímis verð- ur að bæta þjónustu, auka þekkingu, kaupa ný tæki. Jafnframt er spít- alanum ætlað veigamikið hlutverk í menntun heilbrigðisstétta þótt ekki sé sérstaklega gert ráð fyrir slíku í fjárlögum. Það hlýtur að vera augljóst sið- fræðilegt jafnt sem þjóðhagslegt markmið heilbrigðisþjónustunnar að sjúklingar nái sem hraðast sem mestum og bestum bata. Jafnaug- ljóst er að spítalinn er ekki rekinn með aðra hagnaðarvon eða umbun en þá gleði sem fylgir því að sjúk- lingunum batni sem hraðast. Núgildandi fyrirkomulag; að leggja fram til spítalareksturs fasta upphæð árlega, óháð því sem unnið er, rannsakað og læknað er óheppi- leg aðferð. Innan LSH er unnið að nákvæmri kostnaðargreiningu nán- ast alls sem gert er á nokkrum svið- um svo auðveldara verði að taka upp annað og vitrænna greiðslukerfi. Einn þeirra rekstrarþátta spítal- ans sem sífellt fer fram úr framlög- um er kostnaður við svonefnd S- merkt lyf sem aðeins eru gefin að til- hlutan spítalans, hlutfallslega dýr, Til varnar Landspítala og stjórnarnefnd Eftir Pálma R. Pálmason „Sífelldar og óeðlilegar kröfur um niðurskurð í rekstri án samdráttar dregur úr starfsorku og æskilegri starfsgleði.“ Höfundur á sæti í stjórnarnefnd LSH. ný á markaðnum og áhrifarík. Og ár- angur eftir því. Slík lyf eru oft lykill- inn að lækningu. Það kostar vissu- lega að ná þeim árangri í lækningum ýmissa krabbameina sem aðeins verður jafnað til hins besta úti í heimi, og í sumu erum við Íslend- ingar fremstir, í samræmi við yfir- lýsta stefnu ríkisstjórnarinnar. Undir heilbrigðis- og trygginga- málaráðuneyti heyra fjórar stofn- anir; heilsugæslan, Landlæknis- embættið, Landspítali – háskóla- sjúkrahús og Tryggingastofnun. Rekstri þessara stofnana ber að haga til þjóðhagslegrar bestunar, þ.e. vega saman kostnað og ávinn- ing. Síst skal staðhæft að allt í rekstri LSH sé eins og best verður þótt sú sé stefna stjórnenda. Þannig má telja að sameining stóru spítalanna tveggja leiði til sparnaðar og heppi- legra umhverfis fyrir sjúklinga og starfsfólk. Þá er æskilegt að ung- læknar stundi hér framhaldsnám, a.m.k. í nokkrum greinum og að sér- fræðingar fái aðstöðu og þjónustu innan spítalans til þess að taka á móti „eigin“ sjúklingum. Loks má benda á þann nauðsyn- lega þátt í góðum árangri spítalans að innan hans er unnið mikið rann- sókna- og vísindastarf, ýmist ein- göngu innan spítalans eða í sam- vinnu við aðrar stofnanir. Að öllu samanlögðu álít ég að rekstur sé LSH vel viðunandi og að innan stofnunarinnar búi sá metn- aður sem nauðsynlegur er til þess að þjónusta við sjúklinga verði mjög góð, að þar ríki góður og hvetjandi starfsandi, eins og vilji okkar Íslend- inga stendur til. Sífelldar og óeðli- legar kröfur um niðurskurð í rekstri án samdráttar dregur úr starfsorku og æskilegri starfsgleði. UMRÆÐAN 44 LAUGARDAGUR 26. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ HÖFUÐVANDI villta laxins í Ell- iðaánum er raforkuverið með rennsl- isbreytingum, breyttum farvegum, óvirkum búsvæðum og stíflum sem hamla bitmýsframleiðslu. Ef vilji er fyrir hendi er einfald- asta og án efa áhrifaríkasta leiðin til að endurreisa laxastofninn að hætta raforkuframleiðslu og endurheimta náttúrulegt rennsli. Þegar raforku- framleiðslunni verður loks hætt tek- ur mörg ár að sjá raunhæfan bata. Í Morgunblaðinu 11. maí síðastlið- inn sagði Gísli Már Gíslason, pró- fessor í líffræði við HÍ, að það væri alvarlegt hvað laxastofninum hefði hrakað, veiðar væru einungis brot af því sem þær hefðu verið fyrir 100 ár- um. Á grein Magnúsar Sigurðssonar, veiðivarðar við Elliðaárnar, í Morg- unblaðinu 22. október má skilja að laxastofninn hafi verið illa farinn, en sé farinn að rétta úr kútnum. Í sum- ar veiddust ívið fleiri laxar í ám sem renna í Faxaflóa. Elliðaárnar voru ekki undantekning, það er því óvar- legt að ætla að smávægileg upp- sveifla í Elliðaánum sé vegna þeirra aðgerða sem hann bendir á. Það er alrangt hjá Magnúsi í sömu Morg- unblaðsgrein að gefa í skyn að á nokkrum mánuðum hafi ástandið gerbreyst með lítilfjörlegum lagfær- ingum við ána. Brátt kemur að því að Orkuveita Reykjavíkur verður ein eftir til að viðurkenna að í óefni er komið. Tólf ára rannsóknir á aukaatriðum hafa ekki megnað að finna skaðvald á borð við raforkuvinnsluna. Niður- stöður rannsókna benda til að önnur áhrif séu minniháttar og tólf ára bið hafi aðeins tafið fyrir raunveruleg- um aðgerðum og ímynd Elliðaánna beðið hnekki. Laxar og raf- orkuver Eftir Orra Vigfússon Höfundur er formaður NASF, verndarsjóðs villtra laxastofna. „Brátt kem- ur að því að Orkuveita Reykjavíkur verður ein eftir til að viðurkenna að í óefni er komið.“ ÉG eins og aðrir framsóknarmenn í Reykjavík fagna mjög komu Hall- dórs Ásgrímssonar til Reykjavíkur. Var ég með þeim fyrstu sem opin- beraði þá skoðun um mikilvægi þess í pistli mínum á Hriflunni fyrir um einu og hálfu ári. Það er því með þungum trega sem ég ákveð að skrifa þessa grein, því hún á sér rætur allt að ár aftur í tím- ann. Ég hef óttast að þessi grein skaði flokkinn en hef komist að þeirri niðurstöðu að umræðan um vinnubrögð innan flokksins í Reykjavík skaði ekki flokkinn held- ur vinnubrögðin sem viðhöfð hafa verið. Upptök átakanna áttu sér stað fyrir um ári þar sem ég opnaði á það í tvígang í ljósvakamiðli að mér hugnaðist ætíð prófkjörsleið flokks- bundinna framsóknarmanna við val á lista. Gilti einu hvort velja ætti til Alþingis eða borgarstjórnar. Þung undiralda fór af stað sem endaði á fundi þar sem mér var hót- að. Mér var gert ljóst af formanni kjördæmafélagsins í Reykjavík-suð- ur (KFRS), Guðjóni Ólafi Jónssyni, að héldi ég uppteknum hætti myndi hann sjá til þess að ég hlyti ekki stuðning í nokkurt embætti innan raða Framsóknarflokksins í Reykja- vík. Ég myndi ekki einu sinni fá brautargengi inn í miðstjórn flokks- ins gegnum kjördæmaþing. Ég dró mig í hlé eftir þessar árásir en stjórnin hélt áfram áætlun sinni að hafa valið afar þröngt. Tekið var til á kjördæmalistunum og öflugu, áhugasömu framsóknarfólki ýtt út fyrir já-fólk og fjölskyldumeðlimi. Eftir þessum listum var síðan haldið kjördæmisþing þar sem tillaga stjórnar um að einfalt kjördæma- þing ætti að velja á listann var að „sjálfsögðu“ samþykkt. Í millitíðinni var stjórn ungra framsóknarmanna í Reykjavík (Fuf) beitt miklu harðræði með val sitt á fulltrúum á listann og á endanum lenti allt í kærumálum, og einn fram- bjóðandi dró framboð sitt til baka. Nú er komið haust og Alþingis- kosningar í nánd. Ég ásamt fjöl- mörgum framsóknarmönnum hef enn sömu skoðunina á leið við val á listann. Vinnubrögð formanns KFRS láta ekki á sér standa. Hon- um er að takast ætlunarverk sitt í annað sinn á einu ári. Á vel sóttum aðalfundi Framsóknarfélags Reykjavíkur, (FR) þar sem hann var fundarstjóri beitti hann fundarmenn miklu ofbeldi. Lét hann afgreiða all- ar tillögur og ályktanir til stjórnar, sem er fáheyrt. Meðal annars var aldrei kosið um þá aðila sem eiga að sitja næsta kjördæmisþing, en það er stærsta verk aðalfundarins. Mikil frammíköll og óánægja voru með störf hans á fundinum. Héldu nú flestir að hann myndi draga sig í hlé og láta þar við sitja, því sannarlega var hann búinn að koma fundinum í þá aðstöðu að hafa engin áhrif á hvaða aðilar sitja kjördæmisþingið, heldur verður það geðþóttaákvörðun eins og í fyrra skiptið hverjir verða þar. Adam var ekki lengi í paradís. Næstu skref voru einkennileg. Hann afskráir sig úr FR og gengur í Fuf daginn eftir aðalfund FR. Þar mætir hann með hóp af gestum og tekur yf- ir fundinn og ræðst illilega að ung- liðunum sem erfa eiga flokkinn. Hann gerir lítið úr störfum stjórn- arinnar og lætur fella út af kjör- dæmalistanum virka einstaklinga og kemur sínum gestum að. Þrátt fyrir ítrekaðar óskir formanns Fuf að vera í samráði við hann um val á listann. Honum yfirsást að vísu að fólk þarf að vera í félaginu í sjö daga til að mega taka fullan þátt í störfum á aðalfundi félagsins, og vera kosið til embætta. Það hefur komið í ljós að bæði Guðjón Ólafur og gestirnir hans voru ólögleg á fundinum og uppfylla ekki þessi skilyrði. Það ræðst næstu daga í hvaða farveg þetta mál fer. Í versta falli þarf að fresta kjördæmisþinginu vegna lagaákvæða um tímasetningu aðal- funda félaganna, þ.e.a.s. ef boða þarf til nýs aðalfundar Fuf. Það er óhætt að segja að sér- kennileg staða sé komin upp, sér- staklega í ljósi þess hver það er sem stendur í brúnni. Það er ekki hægt að segja að formaður KFRS hafi verið samnefnari og sáttasemjari fé- laganna í Reykjavík eins og hann var kosinn til og hans hlutverk er í raun og veru. Öðru nær. Nú bíð ég spennt eftir að komast á kjördæmisþingið, hvenær sem það verður haldið, til að sjá hvort staðið verður við stóru orðin. Hvort mér verði hent út úr miðstjórn flokksins, konu sem varð efst í miðstjórnar- kjöri á Flokksþingi áður en lögunum var breytt og kjörið flutt inn á kjör- dæmisþingin. Konu sem var kosin á miðstjórnarfundi inn í málefnanefnd Framsóknarflokksins og hefur sinnt óteljandi trúnaðarstörfum fyrir flokkinn. Það kemur í ljós. Eftir Vigdísi Hauksdóttur „Nú bíð ég spennt eftir að komast á kjördæm- isþingið.“ Höfundur er varaþingmaður Framsóknarflokksins í Reykjavík. Nú er mælirinn fullur lærir best þegar fleiri en eitt skilning- arvit er notað á sama tíma. Tungu- málanám felur alltaf í sér hlustun, lestur, skrift, og tal. Með því að nota fleiri skynfæri fer maður að tileinka sér efnið fljótar og betur. Það skiptir mjög miklu máli að geta séð hvernig orðin líta út á meðan maður heyrir þau. Það er lykillinn að góðum ár- angri ef maður ætlar að vera læs og skrifandi. Það er ekki nóg að skilja orð sem þú heyrir heldur er líka nauð- synlegt að geta lesið skrifað mál t.d. í blöðum og bréfum. Töluverður hópur útlendinga býr úti á landi þar sem sums staðar eru engin íslenskunámskeið á boðstólum og þeir fá þess vegna ekki tækifæri til að læra íslenskt tungumál. Ef meira innlent efni væri textað myndu fleiri útlendingar fá hlustunaræfingu á sama tíma og lestraræfingu í málinu. Þetta myndi augljóslega efla kunn- áttu þeirra, renna stoðum undir það að þau næðu betri tökum á tungumál- inu og á sama tíma, hjálpa þeim að Það vantar texta! Eftir Hope Knútsson og Noru Kornblueh „Ef meira innlent efni væri textað myndu fleiri útlendingar fá hlustunaræfingu …“. Höfundar eiga sæti í fjölmenningarráði. Hope Nora fylgjast með hvað er að gerast hér á landi. Við útlendingar tökum höndum saman með heyrnarlausu og heyrn- arskertu fólki, öldruðum, og börnum, sem eru að byrja að læra að lesa og skrifa. Sá hópur, sem myndi hafa mikið gagn af meiri textun á íslensku sjónvarpsefni, er mjög stór. Við skor- um á menntamálayfirvöld og sjón- varpsstjórnendur að íhuga þetta mál og hrinda textun á íslensku sjón- varpsefni í framkvæmd sem fyrst. Við hvetjum alla til að mæta á textaþingið um þetta brýna mál, 2. nóvember, sem verður haldið á Grand hótel Reykjavíkur í Sigtúni kl. 13. Erlendir sérfræðingar frá BBC í Englandi og frá Noregi munu segja frá árangri sem hefur náðst í þeirra heimalönd- um og sýna fram á að kostnaður við slíkt er ekki óyfirstíganlegur með nú- tíma tækni. FLESTIR eru sammála um mik- ilvægi þess fyrir fólk sem flytur í nýtt land að það læri tungumálið í því landi sem það flytur til. Langflestir útlend- ingar hér á landi vilja læra íslensku og allt sem hjálpar til við að flýta þessu ferli er mjög æskilegt. Hér á landi búa u.þ.b. 9.800 erlendir ríkis- borgarar. Það myndi bæta talsvert aðstæður útlendinga sem eru að reyna að læra íslensku ef meira, ef ekki flest, innlent efni í sjónvarpi (til dæmis fréttir) væri textað á íslensku. Rannsóknir benda til að maður

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.