Morgunblaðið - 26.10.2002, Síða 48

Morgunblaðið - 26.10.2002, Síða 48
MINNINGAR 48 LAUGARDAGUR 26. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ Innsti bærinn í Hvolhreppi kúrir uppí brekku, lágreistur en fallegur. Þar hefur ys og þys nýtímans sjaldn- ast haft mikil áhrif á það góða fólk sem þar hefur dvalið nær allan sinn aldur. Þar hafa þrjár kynslóðir sömu ættar búið í sátt við lífið og tilveruna, nú síðast bræðurnir Jón Ólafur, Guð- mundur Óskar og Elías, sem allir eru fæddir á Uppsölum. Á undan þeim bjuggu foreldrar þeirra, Tómas Tóm- asson og Guðrún Jónsdóttir, og á und- an þeim foreldrar Guðrúnar. Það er því ekki óeðlilegt þótt þeir bræður hafi sterkar tilfinningar til þessa stað- ar. Faðir minn, sem var tíður gestur á Uppsölum, orti m.a. einu sinni um hughrif sín þar á bæ: Baðstofuklukkan ljúfum slætti lýkur loftið er bjart, úr eldhússtrompi rýkur. Gesti er fagnað hlýtt og vel að vanda, velkominn segir ylur traustra handa. Í dag kveðjum við með trega og virðingu Elías Tómasson, en hann lést eftir langa baráttu við illvígan sjúkdóm miðvikudaginn 16. október sl. Frá því að ég man fyrst eftir mér hefur verið mikill samgangur og traust vinátta foreldra minna og bræðranna frá Uppsölum, vináttu þeirra og tryggðar hef ég einnig not- ið. Traustari, hreinskiptnari og óspilltari menn er vart hægt að finna. Djúpstæð vinátta þeirra við næstu nágranna var einstök og varir svo sannarlega enn, gagnkvæm hjálp- semi var þessu góða fólki í blóð borin. Elías var einstaklega vel gefinn maður, afburðanámsmaður og allir hlutir léku í höndum hans. Þegar El- ías var í Hvolsskóla, sem lítill dreng- ur, skaraði hann fram úr öðrum nem- endum. Hann las alla tíð mikið og var vel heima í öllu því sem hann las. Þeg- ar þjóðfélagsmálin voru rædd var ljóst að hann fylgdist einstaklega vel með atburðum bæði innanlands sem og utan. Í þjóðfélagi nútímans og tækifæranna hefðu allar dyr staðið opnar fyrir Elías til náms og starfa. Fæstir af hans kynslóð áttu kost á langskólanámi enda var slíkt fátítt í þá daga. Lengi vann Elías við smíðar og unnu þeir oft saman, afi minn, Ís- leifur Sveinsson, og Elías og fór ákaf- lega vel á með þeim. Þeir unnu að byggingu margra húsa á Hvolsvelli og nágrenni, m.a. að byggingu félags- heimilisins Hvols. Skemmtilegt minnismerki um lagtækni þeirra og útsjónarsemi er húsið sem þeir smíð- ELÍAS TÓMASSON ✝ Elías Tómassonfæddist á Uppsöl- um í Hvolhreppi 14. mars 1922. Hann lést á Sjúkrahúsi Suður- lands 16. október síð- astliðinn. Foreldrar hans voru Tómas Tómasson og Guðrún Jónsdóttir er lengi bjuggu að Uppsölum og eignuðust þrjá syni, Jón Ólaf, f. 24. maí 1918, Elías, sem hér er kvaddur og Guðmund Óskar, f. 12. september 1920. Elías vann lengst af við húsasmíð- ar og rafvirkjun bæði á eigin veg- um og hjá Kaupfélagi Rangæinga á Hvolsvelli. Auk þess tók Elías þátt í búskap með foreldrum sín- um og síðar með bræðrum sínum. Útför Elíasar verður gerð frá Breiðabólstaðarkirkju í Fljótshlíð og hefst athöfnin klukkan 14. uðu á gamla Willysinn hans Elíasar, af 1946- árgerðinni, sem hefur einkennisnúmerið L 144, en bíllinn, sem er enn þann dag í dag í af- ar góðu standi, ber vott um það hve vel hann fór með þau tæki sem hann átti. Sigursteinn vinur hans frá Núpi fer nú mjúkum höndum um bílinn. Síðar lagði Elías fyrir sig rafvirkjun en sá undraheimur lá op- inn fyrir honum eins og annað sem hann tók sér fyrir hendur. Hann gat oft gert við tæki og tól sem fagmenn höfðu gefist upp við að lagfæra. Hann vann lengi við rafvirkjun á rafmagnsverkstæði Kaupfélags Rangæinga. Hvarvetna var völundurinn Elías eftirsóttur í vinnu og margan greiðann gerði hann fólki þegar hann gerði við ýmsa hluti sem aflaga fóru. Aldrei tók hann pen- inga fyrir greiðann. Hann ferðaðist um Rangárvalla- og Vestur-Skafta- fellssýslu og lagði rafmagn í hús og byggingar. Það lýsir vel lagtækni Elíasar að hann var einstakur snill- ingur að gera við gamlar klukkur. Þannig var hann með gangverkið úr gamalli stórri klukku við rúmið sitt fyrir fáeinum vikum, sú klukka fékk nýtt líf og prýðir nú stofu góðbænda í Fljótshlíðinni og sláttur hennar minn- ir á handverk þessa snillings. Á Uppsölum var farsæll búskapur og afurðir búsins eftirsóttar. Þar var snyrtimennska í hávegum höfð. Það var ógleymanleg stund þegar ég sótti fyrir Elías nýjan jeppa nú skömmu eftir áramótin. Hann hafði kynnt sér alla kosti bílsins og vissi nákvæmlega hvað hann vildi í þeim efnum sem öðr- um. Ekkert fékk haggað honum eftir að ákvörðun hafði verið tekin. Þannig maður var Elías. Bræðurnir bjuggu saman allt sitt líf. Elías er sá fyrsti sem kveðjur. Sláttur lífsklukku hans er hljóðnaður. Ég þakka Elíasi fyrir samfylgdina, traustið og tryggðina sem hann hefur sýnt mér og fjölskyldu minni. Við Steinunn og fjölskylda vottum vinum okkar, Jóni og Guðmundi, okkar dýpstu samúð. Minningin um völund- inn Elías Tómasson lifir. Ísólfur Gylfi Pálmason. Austasta ábýlisjörðin í Hvolhreppi heitir Uppsalir. Bæjarhúsin standa hátt efst í túninu og vísa til suðurs, og horfa vel við sól. Af heimahlaði er út- sýni fagurt yfir grænar sléttur og gróin lönd. Það glampar á Þverá og hvíta brimströndina við sandana, Vestmannaeyjar breiða úr sér í úthaf- inu með tignarsvip, síbreytilegri feg- urð og litbrigðum, en Seljalandsmúli lokar sýn til austurs. Að Uppsölum bjó Tómas Tómasson frá Arnarhóli í Vestur-Landeyjahreppi með konu sinni, Guðrúnu Jónsdóttur, sem ætt- uð var frá Uppsölum, á árabilinu frá 1916 til ársins 1947. Heimili þeirra heiðurshjóna var traust og gott, þar réðu ríkjum fornar dyggðir, ráðdeild, iðjusemi og heiðarleiki. Staðið í skil- um við alla og hvers manns bón leyst með gleði. Allur búsmali var vel fóðr- aður og fallegur svo sem títt er á bæj- um dýravina. Hjónunum á Uppsölum varð þriggja sona auðið, Jóns Ólafs, sem er elstur, næstur er Guðmundur Óskar og yngstur var Elías, sem stóð á áttræðu er hann andaðist. Allir þessir bræður eru menn velgefnir og verklagnir í besta lagi og tóku við búsforráðum eftir foreldra sína. Þeg- ar í barnaskóla varð ljóst, að Elías var skýr og flugnæmur og hefði lang- skólanám legið vel fyrir honum, en það átti ekki fyrir honum að liggja fremur en svo mörgum af hans kyn- slóð. En það kom líka fljótt í ljós, að hann var ekki einungis góður á bók- ina, allt lék í höndum hans, gamlar klukkur fóru aftur að tifa og slá hægt og hljómfagurt, stundum smíðaði hann í þær hluti, sem hættir voru að virka, örsmáa, nánast dvergsmíð, saumavélar fengu falleg spor og gang, alls staðar sagði eðlisgreindin til sín. Hverskyns önnur rafmagns- tæki fóru að þjóna hlutverki sínu á ný eftir að Elías hafði farið um þau hög- um höndum. Allt var unnið af vand- virkni. Snillingurinn lítillátur um verk sín og vildi ekkert um þau tala, hvað þá að hann miklaðist af þeim. Eins og algengt var með unga menn á fyrri hluta liðinnar aldar fóru bræðurnir frá Uppsölum, Guðmund- ur og Elías, nokkrum sinnum á vertíð til Vestmannaeyja og unnu hjá stál- ábyggilegu fyrirtæki, Gunnari Ólafs- syni á Tanganum, sem þá stjórnaði einu af myndarlegustu útgerðarfélög- um í Eyjum. Þar sem annarstaðar komu þeir bræður sér vel sakir verk- lagni og dugnaðar. Það er gömul og ný saga að traustir og ábyggilegir menn eru eftirsóttir til starfa. Upp úr 1940 fór Elías að vinna með Guð- mundi Þórðarsyni trésmíðameistara frá Lambalæk í Fljótshlíð og byggðu þeir félagarnir saman mörg íbúðar- hús og útihús í Rangárþingi eystra og lagfærðu og endurbættu nokkrar kirkjur í héraði, þar á meðal Stórólfs- hvolskirkju í Hvolhreppi en í henni má sjá hreint listaverk eftir Elías, það eru bríkurnar framan við söngloftið, sem hann skar út með vasahnífnum sínum. Þessa listasmíð máluðu svo Jón og Gréta Björnsson af smekkvísi, en þau hjónin gerðu svo margar litlar sveitakirkjur hátíðlegar með lista- mannssmekk sínum og litavali. Nokkru áður en hér var komið sögu höfðu þeir Guðmundur og Elías eign- ast Willy’s-jeppa, sem var meðal þeirra fyrstu, sem kom í Rangárþing, og létti þeim ferðalögin milli vinnu- staða. Um 1960 breytti Elías til, hætti við húsasmíðarnar, utan að hjálpa vinum sínum við að koma þaki yfir sig, setja í hurðir, koma fyrir eldhúsinnrétting- um og parketleggja í frítímum sínum. Það lækkaði lítið í buddunni hjá hús- eigendunum, en verkin fáguð og fal- lega unnin. Það var rétt fyrir miðja liðna öld, sem dýrðartími var upp- runninn Rangárþingi þegar Sogsraf- magnið var leitt vítt og breytt um hér- aðið. Í Hvolsvallarkauptún kom Sogsrafmagnið síðsumars árið 1948. Kaupfélag Rangæinga rak um þær mundir myndarlegt rafmagnsverk- stæði undir verkstjórn Einars Árna- sonar og á verkstæðið réðst Elías og vann við raflagnir í hús og viðgerðir á rafmagnstækjum í áraraðir. Það fór vel á með Einari og Elíasi og þegar rafvæðingunni í Rangárvallasýslu var lokið, fór harðduglegur flokkur raf- virkja frá Hvolsvelli til starfa austur í Vestur-Skaftafellssýslu og vann þar vikum og mánuðum saman við raf- lagnir. Elías átti góðar minningar um ferðirnar austur, um vinnufélaga sína og af fólkinu, sem hann vann hjá og kynntist í Vestur-Skaftafellssýslu. Fyrir fáum árum hættu bræðurnir búskap og fluttust að Kirkjuhvoli, sem er dvalarheimili aldraðra í Rang- árþingi eystra. Í Kirkjuhvoli fengu þeir bræður góða íbúð. Þangað er gott að koma eins var í gamla bæinn á Uppsölum, sem var fullur af friði og ró. Og svo er ætíð gott að blanda geði við fólk, sem fallega hugsar. Í Kirkju- hvoli er einstaklega ljúft starfsfólk sem leggur sig fram um, að láta heim- ilisfólkinu líða sem best. Umhyggju- semina og alúðina kunna Uppsala- bræður vel að meta. Elías Tómasson hafði um áraskeið ekki gengið heill til skógar. Hinn skæði sjúkdómur, sem svo marga leggur að velli, hefur nú sigrað. Í orðskviðum Salómons er skráð: Gott mannorð er betra en mikill auð- ur, vinsæld er betri en silfur og gull. Með þeim orðum vilja ég og fólkið mitt kveðja heiðursmann. Pálmi Eyjólfsson. Ástkær sambýlismaður minn og faðir okkar, JÓHANNES B. SVEINBJÖRNSSON, Sæviðarsundi 35, Reykjavík, lést á San Jaime sjúkrahúsinu á Spáni miðvikudaginn 23. október. Halla Hjálmarsdóttir, Margrét J. S. Jóhannesdóttir, Ólafur Daði Jóhannesson. Móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, GUÐNÝ G. SIGURRÓS GUÐMUNDSDÓTTIR (Rósa), Neðstaleiti 13A, Reykjavík, verður jarðsungin frá Fossvogskapellu mánu- daginn 28. október kl. 15.00. Fyrir hönd aðstandenda, Svanfríður S. Óskarsdóttir. HELGI JÓNSSON, Eiðismýri 22, Seltjarnarnesi, varð bráðkvaddur á heimili sínu þriðjudaginn 22. október. Útför hans fer fram frá Fossvogskirkju þriðju- daginn 29. október kl. 15.00. Blóm og kransar eru afþakkaðir, en þeim, sem vilja minnast hans, er bent á líknarsamtök. Börn, tengdabörn, barnabörn og systkini hins látna. Systir okkar, GUÐLAUG ÖGMUNDSDÓTTIR frá Flatey, andaðist á hjúkrunarheimilinu Eir fimmtu- daginn 24. október. Birna Ögmundsdóttir, Guðmunda Ögmundsdóttir. Eiginmaður minn, MAGNÚS THORVALDSSON blikksmíðameistari, Kaplaskjólsvegi 39, Reykjavík, andaðist á Landspítala Fossvogi fimmtudag- inn 24. október. Anna Gestsdóttir. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, lang- amma og langalangamma, SOFFÍA SIGURÐARDÓTTIR, frá Njálsstöðum, lést á Sjúkrahúsinu á Blönduósi fimmtudaginn 24. október. Guðrún Hafsteinsdóttir, Páll Aðalsteinsson, Jósefína Hafsteinsdóttir, Jóhannes Albertsson, Sigurbjörg Hafsteinsdóttir, Runólfur Aðalbjörnsson, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, GUÐMUNDUR LÁRUSSON frá Skagaströnd, Klukkurima 4, Reykjavík, lést á Landspítalanum Fossvogi þriðjudaginn 15. október sl. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför hans. Sérstakar þakkir til lækna og hjúkrunarfólks deildar 5-A á Landspítalanum í Fossvogi. Erla Valdimarsdóttir, Sigríður Þórunn, Lára Bylgja, Guðmundur Viðar, Valdimar Lárus, Kristinn Reynir, Sigurður Brynjar, Þórdís Elva, Hjörtur Sævar, Soffía Kristbjörg, Sigurbjörg Stella, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.