Morgunblaðið - 26.10.2002, Side 55
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. OKTÓBER 2002 55
ÍÞRÓTTAFÉLAGIÐ Gnýr stóð
fyrir maraþon-boccia laugardag-
inn 19. október sl. Þá spiluðu fé-
lagar í íþróttafélaginu boccia í
heilan sólarhring til að safna
áheitum vegna keppnisferðar á Ís-
landsmót fatlaðra sem nú stendur
yfir Akranesi.
Sendur var 18 manna hópur
keppenda á mótið sem nú stendur
yfir. Kostnaður við ferðir sem
þessar er mjög mikill og verður fé-
lagið að standa fyrir fjáröflunum
til að ná upp í kostnað. Í maraþon-
inu söfnuðust um 330.000 krónur
og stendur sú upphæð fyrir kostn-
aði vegna ferðar á Íslandsmeist-
aramót, segir í fréttatilkynningu
og þakkar félagið þeim fjölmörgu
sem lögðu fram skerf í söfnunina.
Söfnuðu fyrir þátttöku
í Íslandsmóti í boccia
BYGGÐASAFNINU í Skógum
verður í dag afhent líkan af vél-
skipinu Skaftfellingi VE 33, sem
Grímur Karlsson skipstjóri hef-
ur smíðað. Synir hjónanna Guð-
rúnar Stefánsdóttur og Helga
Benediktssonar frá Vestmanna-
eyjum; Sigtryggur, Páll, Arn-
þór og Gísli Helgasynir, af-
henda líkanið.
Við sama tækifæri verða af-
hent 1.000 eintök af riti sem þeir
bræður, Arnþór og Sigtryggur,
hafa tekið saman um sögu
skipsins. Þar er sagt í máli og
myndum frá ýmsu sem snertir
sögu Skaftfellings sem vöru-
flutninga- og fiskveiðiskips.
Skaftfellingur var smíðaður í
Troense í Danmörku árið 1918.
Hann hélt uppi samgöngum
milli Reykjavíkur, Vestmanna-
eyja, Víkur í Mýrdal og ýmissa
staða við sanda Vestur- og
Austur-Skaftafellssýslu til árs-
ins 1939, en árið 1940 keypti
Helgi Benediktsson skipið.
Skaftfellingur var á meðal
þeirra íslensku skipa sem fóru
einna flestar ferðir milli Bret-
lands og Vestmannaeyja á
stríðsárunum. Hann var tekinn
af skipaskrá árið 1974 og fyrir
tveimur árum lét Sigrún Jóns-
dóttir kirkjulistakona flytja
hann austur í Vík í Mýrdal.
Líkan
af Skaftfell-
ingi afhent
EFTIRFARANDI yfirlýsing hefur
borist frá Vátryggingafélagi Íslands,
VÍS:
„Vegna fréttaflutnings af dómi
Hæstaréttar vegna greiðslu dánar-
bóta vill VÍS árétta eftirfarandi:
Rétt er að árétta að VÍS véfengdi
ekki að félaginu bæri að greiða tjóna-
bætur og ekki var deilt um fjárhæð
þeirra. Deilt var um hvort rétthafi
bótanna væri sambúðaraðili eða börn
hins látna. Málið snérist því í raun
um túlkun á hverjir falli undir skil-
greininguna „nánasti vandamaður“.
Hæstiréttur hefur með dómi sín-
um skorið úr um hver sé rétthafi bóta
og þar eytt þeirri óvissu hverjum
VÍS beri að greiða bæturnar.“
Yfirlýsing
frá VÍS
Tíska í Smáralind Tískusýningar
verða haldnar í Vetrargarðinum í
Smáralind í dag, laugardaginn 26.
október og á morgun, sunnudaginn
27. október, kl. 14–17.30 báða dag-
ana. Sýndur verður fatnaður og
fylgihlutir frá verslunum í Smára-
lind. Eftirtaldar verslanir sýna: Int-
ersport, Vokal / Body Shop, Top-
shop, Miss Selfridge, Útilíf, Deben-
hams, ISIS / Bianco og Benetton /
Sisley. Kynnir er Þórunn Lárus-
dóttir leikkona.
Upplestur og tónlist í Bókabúð
Máls og menningar Í Bókabúð
Máls og menningar við Laugaveg
verður sögustund fyrir börnin kl. 11
í dag, laugardaginn 26. október.
Einnig les Helga Vala Helgadóttir
úr bókum Astrid Lindgren og Páll
Óskar Hjálmtýsson les úr bókinni
um Línu Langsokk. Hraðskákmót
verður á vegum Eddu og Hróksins
kl. 14, þar sem Guðmundur Kjart-
ansson teflir fjöltefli við börn og
unglinga. Allir eru velkomnir og
fimmtíu þátttakendur fá eintak af
bókinni Skák og mát. Sögustundin
og hraðskákin fara fram í barnadeild
í Kjallara.
Aðalfundur Sögufélags Aðal-
fundur Sögufélags verður haldinn
laugard. 26. október í húsi félagsins,
Fischersundi 3, kl. 14. Venjuleg að-
alfundarstörf. Helgi Skúli Kjartans-
son sagnfræðingur flytur erindið:
Glímt við Ísland á 20. öld. Höfund-
arvandinn við yfirlitsritun um sam-
tímasögu.
Fjölskyldan saman „Fjölskyldan
saman, gaman!“ er heiti á heilsu-
ræktarverkefni sem nokkrir nem-
endur í fjarnámi við Kennaraháskóla
Íslands eru að hrinda af stað og
standa mun næstu fjóra laugardaga.
Sérstaklega verður höfðað til barna
á skólaaldri og foreldra þeirra. Boð-
ið verður upp á ýmiss konar hreyf-
ingu, fræðslu og uppákomur fyrir
fjölskylduna í heild. Að verkefninu
standa fimm íþróttakennarar, þrír
Akureyringar, einn Hornfirðingur
og einn Hafnfirðingur, sem allir
stunda fjarnám í íþróttafræðum og
heilsuþjálfun við Kennaraháskóla
Íslands og er verkefnið hluti af námi
þeirra. Markmið verkefnisins er
margþætt og snýr jafnt að þátttak-
endunum, þ.e. einstaklingum, sveit-
arfélaginu, íþróttafélögunum og öðr-
um sem að heilsurækt koma á einn
eða annan hátt.
Á Hornafirði tekur verkefnið yfir
fjóra næstu laugardaga í samvinnu
við grunnskólana á staðnum, Heil-
brigðisstofnun Suðausturlands og
aðra aðila sem vinna að heilsuvernd
á ýmsum sviðum. Meðal þess sem
boðið verður upp á laugardagana 26.
október og 2., 9. og 16. nóvember eru
knattspyrna, blak, ganga o.fl. Skát-
arnir, dansklúbburinn Taktur og
fimleikadeild Sindra kynna sína
starfsemi. Heilbrigðisstofnun Suð-
austurlands mun standa fyrir ýmiss
konar heilsufarsmælingum og
fræðslu.
Á heimasíðu verkefnisins er hægt að
nálgast frekari upplýsingar. Slóðin
er http://www.hornafjordur.is/
fjolskyldan
Klifurmót í Klifurhúsinu Klifurmót
verður haldið laugardaginn 26. októ-
ber í Klifurhúsinu í Skútuvogi 1G
(gengið inn Barkarvogsmegin). Að-
gangur er ókeypis og veitingar á efri
hæð. Húsið verður opnað kl. 12.
Undanriðill drengja 16 ára og yngri
kl. 13–14, úrslit kvennaflokkur og
flokkur öldunga (40 og eldri) kl. 14–
15, úrslit drengja 16 ára og yngri:
15–16 og úrslit karla 17 ára og eldri
kl. 16–17. Vegna mikillar þátttöku í
drengjaflokki verður keppt í und-
anriðli í þeim flokki en farið beint í
úrslit í hinum flokkunum. Nánari
upplýsingar er að finna á vef Klifur-
hússins: http://www.klifurhusid.is
Upplýsinga- og baráttufundur um
virkjanaáform Fimmti upplýsinga-
og baráttufundurinn um virkjana-
áform á hálendi Íslands verður hald-
inn á efri hæð Grand Rokk, Smiðju-
stíg 6, í dag, laugardag, kl. 14. Ólöf
Guðný Valdimarsdóttir og Sigur-
steinn Baldursson flytja erindi og
fram koma einnig Áshildur Haralds-
dóttir flautuleikari, Kristinn Árna-
son gítarleikari og fleiri.
Í DAG
Safnaramarkaður Safnaramark-
aður verður haldinn í Félagsheimili
Félags frímerkjasafnara í Síðumúla
17, 2. hæð, sunnudaginn 27. október
kl. 13–17. Þar verða til sölu og til
skipta frímerki, umslög og ýmislegt
annað sem tengist frímerkjasöfnun.
Einnig verður mynt, íslenskir og er-
lendir seðlar, minnispeningar, barm-
merki, pennar o.fl.
Myntsafnarafélag Íslands og Félag
frímerkjasafnara standa að mark-
aðnum.
Á MORGUN
Nám í Trigger-punktum Verklegt
Trigger-punktanámskeið verður
haldið dagana 16. og 17. nóvember
nk. TP er mjög viðkvæmur staður í
vöðva eða nærliggjandi vöðva-
samsetningu. Meginmarkmið nám-
skeiðsins er að gera nemendur hæfa
til að leita að, staðsetja og meðhöndla
viðbragðspunkta í vöðvum (TP), t.d.
höfuðverki, axlaverki o.fl. Kennari er
Ríkharður Mar Jósafatsson sem er
menntaður í austurlenskum lækn-
ingum. Æskilegt er að fólk sem sæk-
ir námskeiðið hafi góða þekkingu á
vöðvafræði, segir í fréttatilkynningu.
Skráning og nánari upplýsingar:
Nálastungur Íslands, Fellsmúla 24
Reykjavík.
Að lifa með flogaveiki Lauf, félag
flogaveikra, stendur fyrir námskeiði
fyrir ungt fólk með flogaveiki.
Fjallað verður um þætti sem tengj-
ast því að lifa með langvinnan sjúk-
dóm. Rætt verður um sálfélagslegar
afleiðingar flogaveiki og áhrif hennar
á daglegt líf. Þátttakendur hittast
einu sinni í viku í 7 vikur og er nám-
skeiðið þeim að kostnaðarlausu.
Leiðbeinandi er Jónína Björg Guð-
mundsdóttir félagsráðgjafi. Skrán-
ing er á skrifstofu félagsins.
Hjartafræðsludagur Hjarta-
fræðsludagur verður haldinn
fimmtudaginn 7. nóvember kl. 8.10 –
16.30 á Hótel Loftleiðum, fyrirlestr-
arsal á 1. hæð. Fjöldi fyrirlestra
verður og kynnt verður starfsemi
hjartadeilda á LSH. Tilefni fræðslu-
dagsins er sameining hjartalækninga
11. nóvember á Landspítala – há-
skólasjúkrahúsi við Hringbraut.
Dagskrá fræðsludagsins er öllum
opin. Hún er birt á upplýsingavef
Landspítala – háskólasjúkrahúss
www.landspitali.is. Skráning hjá Sig-
ríði Ástvaldsdóttur á skrifstofu
starfsmannamála fyrir 1. nóvember í
síma eða á netfangi, sigridas-
@landspitali.is.
Foreldrafélag MR fundar Foreldra-
félag Menntaskólans í Reykjavík
boðar til foreldrafundar 29. október
kl. 20–21.30 í Casa Nova. „Foreldra-
félag Menntaskólans í Reykjavík var
stofnað á síðasta ári og er því ungt að
árum. Tilgangur þess er fyrst og
fremst að leitast við að bæta skilyrði
og aðstæður nemenda við Mennta-
skólann í Reykjavík til menntunar og
þroska svo skólastarf geti orðið sem
farsælast. Rektor, Inspector scholae
og formaður Framtíðarinnar mæta á
fundinn,“ segir í fréttatilkynningu.
Á NÆSTUNNI
Jakob Frímann opnar heimasíðu
Jakob Frímann Magnússon tónlist-
armaður og varaþingmaður mun í
dag, laugardag, kl. 15 opna formlega
heimasíðu sína í tilefni af framboði í
prófkjöri Samfylkingarinnar í
Reykjavík, sem fram fer 9. nóvem-
ber. Slóðinn á síðuna er www.jakob-
frimann.is. Tölvupóstfang er xjakob-
@jakobfrimann.is. Á síðunni er að
finna upplýsingar um helstu stefnu-
mál Jakobs, greinar eftir frambjóð-
andann og annað efni.
Samfylkingin hefur hafið utan-
kjörstaðaatkvæðagreiðslu vegna
prófkjörs flokksins í Reykjavík fyrir
alþingiskosningarnar á næsta ári.
Hún fer fram á skrifstofu Samfylk-
ingarinnar í Austurstræti 14 og
verður þar alla virka daga frá klukk-
an 13 til 17. Síðustu vikuna fyrir
kjördag verður þó opið til kl. 20. Alls
hafa þrettán gefið kost á sér í próf-
kjörinu.
Í DAG STJÓRNMÁL
SIÐMENNT hefur birt stefnu-
skrá samtakanna og segir þar
meðal annars að félagið líti svo
á að trúfrelsi teljist til al-
mennra lýðréttinda.
Í stefnuskránni er bent á það
helsta sem betur má fara í ís-
lensku samfélagi til að tryggja
umburðarlyndi og raunveru-
legt trúfrelsi, segir í fréttatil-
kynningu.
Stefnuskrá Siðmenntar í trú-
frelsismálum má lesa á vefsíðu
félagsins eða á vefslóðinni:
www.sidmennt.is/trufrelsi
Stefna Sið-
menntar í trú-
frelsismálum