Morgunblaðið - 26.10.2002, Qupperneq 59
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. OKTÓBER 2002 59
DAGBÓK
Arnbjörg Finnbogadóttir
896 4655
Svæðanudd - unaður fyrir fætur
Kæri viðskiptavinur
Ég mun hefja störf aftur á
Hárgreiðslustofunni Scala
eftir barnseignafrí
laugardaginn 2. nóvember nk.
Allir velkomnir.
Kveðja,
Kristín.
Lágmúla 5, sími 553 1033
Kringlunni, sími 553 2888
Glæsilet úrval
af fallegum
skóm
á alla fjölskylduna
Láttu drauma þína rætast
Námskeið 8.-10. nóvember - 4 kvöld
Er það draumur þinn að lifa innihalds- og tilgangs-
ríku lífi og að vinna það starf sem þú ert fædd/ur til?
Á þessu námskeiði muntu uppgötva lífsstarf
þitt og læra lykilinn að velgengni.
Gitte Larsen, sími 861 3174
Helgarnámskeið fyrir
mæðgur 2.-3. nóvember
Tími til að næra samskiptin og vera saman á skapandi hátt.
Tæki til að auka nánd í samskiptum og undirbúa unglingsárin.
Jóga, sköpun, leikur, gleði.
gud.run@mmedia.is
Mæður og dætur
Guðrún Arnalds, símar 896 2396 og 561 0151
STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
SPORÐDREKI
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert skapandi ein-
staklingur en átt ekki auð-
velt með að nálgast aðra. Og
þótt þú virðist öruggur með
þig er sjálfsgagnrýnin sjald-
an langt undan.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Það þýðir ekkert að sitja
með hendur í skauti og bíða
þess að aðrir geri hlutina
fyrir mann. Leggðu málin
vel niður fyrir þér áður en
þú ákveður þig.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú mátt ekki hunsa góðar
tillögur, þótt þær komi frá
öðrum og þá stundum mönn-
um sem þér er lítið um.
Láttu ekki erfiðar minning-
ar úr fortíðinni standa í vegi
fyrir þér, þegar þú hefst nú
handa á nýrri öld.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú hefur á tilfinningunni að
fólk efist um hæfileika þína.
Það stefnir í átök með þér og
samstarfsmanni þínum.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Nú er rétti tíminn til þess að
gera vel við sjálfan sig og
næra líkama og sál. Hlátur-
inn lengir lífið.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Slæm sambönd geta eyðilagt
margan góðan hlutinn svo
þú skalt umfram allt kapp-
kosta að halda samskipta-
leiðunum opnum. Forgangs-
röðun er lausnin.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Það jafnast fátt á við
skemmtilegar samræður,
sérstaklega þegar góður vin-
ur er viðmælandinn. Þá má
líka heilmikið af því læra.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Veldu þér trúnaðarvini til
þess að ræða við þau mál
sem þér finnst erfitt að
glíma við einn. Láttu ekkert
verða til að egna þig upp.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Reyndu að halda einkalífi
þínu og starfi aðskildu. Slak-
aðu á en þó ekki of lengi því
alltaf koma ný og ný verk-
efni.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þú þarft aldeilis að taka þér
tak, ef þú vilt ekki missa allt
út úr höndunum. Vinnusemi
er nauðsynleg
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Það fara fáir í fötin þín þessa
dagana. Þótt engar breyt-
ingar séu fyrirsjáanlegar er
gott að vera viðbúinn.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Láttu ekki hugfallast þótt
eitthvað sé á móti þér. Þú
átt hauk í horni, sem getur
aðstoðað þig í vandasömu
máli.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Það er engin ástæða til þess
að láta hugfallast þótt eitt-
hvað kunni að blása á móti
um stundarsakir. Vilji er allt
sem þarf og hálfnað er verk
þá hafið er.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Árnað heilla
60 ÁRA afmæli. 24.október sl. varð sex-
tugur Garðar Steinþórsson,
sölumaður, Kothúsvegi 10,
Garði. Eiginkona Garðars
er Ólafía Helga Stígsdóttir.
Garðar og Helga taka á
móti ættingjum og vinum í
dag, laugardaginn 26. októ-
ber, í samkomuhúsinu
Garði milli kl. 17–20.
LJÓÐABROT
BÓKIN MÍN
Ég fékk þig svo ungur á fjarlægri strönd
og fyrr en ég kynni að lifa;
og á þér var hvarvetna annarra hönd –
því óvitar kunna ekki að skrifa.
En oft hef ég hugsað um ógæfu þína
og alla, sem skrifuðu í bókina mína.
Þú skyldir mín lífsbók og leiðtogi sá,
er leiddi frá myrkrum og draugum,
því mændi ég til þín, er mest reyndi á,
en mætti þar steinblindum augum;
því varð ég svo oft, þegar versnaði að rata,
að velja þá fylgd, er þú bauðst mér að hata.
Þorsteinn Erlingsson
1. d4 d5 2. Rf3 c6 3. c4 e6 4. e3
Bd6 5. Rc3 f5 6. Be2 Rf6 7.
O-O O-O 8. Re1 b6 9. f4 Bb7
10. cxd5 exd5 11. Rd3 c5 12.
Re5 Rc6 13. Bf3 cxd4 14.
Rxc6 Bxc6 15. exd4 Kh8 16.
Db3 Be7 17. a4 Dd7 18. Bd2
Hfd8 19. Hfd1 Hac8 20. Hac1
Db7 21. Be3 h6 22. h3 Dd7
23. Be2 Re4 24. Ba6 Hb8 25.
Bb5 Bxb5 26. axb5 Rf6 27.
Re2 Hbc8 28.
Hxc8 Hxc8 29.
Hc1 He8 30. Hc6
Bd8 31. Rg3 a6
32. Bf2 axb5 33.
Dc2 Re4 34. Rxe4
dxe4 35. Be3 Bf6
36. Dc3 b4 37. Dc4
Hd8 38. Hc7 b5
39. Dc2 b3 40. Dc1
Dd6 41. Hc6 De7
42. Hc7 Df8 43.
Dc3 Dd6 44. Hc8
Kh7 45. Hxd8
Dxd8 46. Dc5 Dd7
47. Kf2 Kg6 48.
Ke2 h5 49. Kf2 h4
50. Ke2 Db7 51.
Kf2 Da6 52. g4 hxg3+ 53.
Kxg3 Da1 54. Dxb5
Staðan kom upp í Meist-
araflokki Mjólkurskákmóts-
ins sem lauk fyrir skömmu á
Hótel Selfossi. Pavel Treg-
ubov (2594) hafði svart gegn
Braga Þorfinnssyni (2357).
54...Bh4+! 55. Kg2 Dxb2+
56. Kh1 Db1+ 57. Bg1 Dd1
og hvítur gafst upp. Undan-
rásir Íslandsmótsins í at-
skák hefjast kl. 13.00 í dag,
26. október, í Faxafeni 12 og
verður framhaldið á morgun
á sama tíma og stað.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Svartur á leik.
Ljósmyndastofa Erlings
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 20. júlí sl. í Fríkirkj-
unni í Hafnarfirði af sr. Sig-
ríði Kristínu Helgadóttur
þau Anna Sigríður Árna-
dóttir og Jón Þ. Björgvins-
son. Heimili þeirra er í
Þrastarási 47.
Ljósmyndastofa Erlings
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 20. júlí sl. í Grafar-
vogskirkju af sr. Önnu Sig-
ríði Pálsdóttur þau Guðríð-
ur Emmý Bang og Sigurður
Már Ágústsson. Heimili
þeirra er í Grenibyggð 38,
Mosfellssveit.
Í ÞRAUT dagsins blasir
við að sagnhafi á nægan
efnivið til að standa við
gerðan samning, en skortir
greiðan aðgang að blindum
til að nýta hráefnið til fulls.
Norður
♠ G105
♥ G10985
♦ 543
♣32
Vestur Austur
♠ 943 ♠ 2
♥ 32 ♥ 764
♦ KG92 ♦ 76
♣KD98 ♣ÁG107654
Suður
♠ ÁKD876
♥ ÁKD
♦ ÁD108
♣ --
Suður spilar sex spaða
og fær út laufkóng.
Hvernig á að tryggja tólf
slagi í þessari legu?
Greining: Stíflan í
hjartalitnum skapar vand-
ræði, en hins vegar er já-
kvætt að eiga þó innkomu í
borð á tromp. Mjög eðlileg
spilamennska væri að taka
ÁK í trompi og síðan þrjá
efstu í hjarta. Það dugir til
vinnings: (1) ef trompið
fellur 2-2; (2) ef sami mót-
herji á lengdina í trompi og
hjarta; (3) eða ef tígul-
kóngur liggur rétt. Ekkert
gengur upp í þessari legu.
Lausn: Fyrsti slagurinn
ræður úrslitum. Í stað þess
að trompa, hendir suður
hjarta í laufkónginn! Hann
trompar næsta slag, tekur
ÁK í spaða, síðan ÁK í
hjarta og læðist inn í borð
á trompgosa til að taka
þrjá fríslagi á hjarta. Það
gerir tólf í allt.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
Þessar duglegu stúlkur héldu tombólu í Hveragerði og
söfnuðu 5.628 kr. til styrktar Rauðakross-söfnuninni
„Göngum til góðs“. Þær eru Ásdís Erla Þorsteinsdóttir,
Brynja Benediktsdóttir, Bylgja Jónsdóttir og Jenný Harð-
ardóttir.
Hlutavelta
MORGUNBLAÐIÐ
birtir tilkynningar um
afmæli, brúðkaup,
ættarmót og fleira les-
endum sínum að
kostnaðarlausu. Til-
kynningar þurfa að
berast með tveggja
daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga
fyrirvara fyrir sunnu-
dagsblað. Samþykki
afmælisbarns þarf að
fylgja afmælistilkynn-
ingum og/eða nafn
ábyrgðarmanns og
símanúmer. Fólk get-
ur hringt í síma 569-
1100, sent í bréfsíma
569-1329, eða sent á
netfangið ritstj
@mbl.is.
Einnig er hægt að
skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1,
103 Reykjavík
FRÉTTIR
Á ÞESSU hausti eru liðin 15 ár frá
stofnun Tónlistarskóla Bessastaða-
hrepps. Haldnir verða afmælistón-
leikar í dag, 26. október, þar sem
nemendur skólans leika. Einnig
verður frumflutt tónverk sem er af-
rakstur af tónsmíðanámskeiði í skól-
anum undanfarnar vikur.
Tryggvi M. Baldvinsson tónskáld
er leiðbeinandi á námskeiðinu og er
tónverkið sem flutt verður unnið
sameiginlega af nemendum og tón-
skáldinu. Er þetta í þriðja skipti sem
Tónlistarskólinn fær tónskáld til að
semja verk fyrir nemendur.
Tónleikarnir verða haldnir í hátíð-
arsalnum og hefjast kl. 14. Allir eru
velkomnir meðan húsrúm leyfir.
Tónlistarskóli Bessa-
staðahrepps 15 ára
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Frá æfingu hljómsveitar skólans fyrir tónleikana í dag.