Morgunblaðið - 26.10.2002, Síða 60
KVIKMYNDIR
60 LAUGARDAGUR 26. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
KULDINN nístir merg og bein
undir nýju myndinni hans Sams
Mendes. Hann fylgir American
Beauty, óvenju glæsilegu byrjenda-
verki, að mörgu leyti vel eftir. Þó er
það vafamál hvort hann hefur gert sér
grein fyrir þeim lamandi áhrifum sem
Road to Perdition hefur á áhorfand-
ann, þau eru yfirmáta óþægileg.
Það er ekki aðeins hryssingslegt
um að lítast í úrsvölum vetrargráma
Chicago á öndverðum fjórða áratugn-
um, heldur er kreppan og neyðin í al-
gleymingi og þeir sem komast af eru
menn ekki vandir að meðulum. Þar
liggja meginupptök kaldranaleika
Road to Perdition; sögupersónurnar
eru nánast allar illar, misjafnlega ill-
ar. Misindismenn og morðingjar. Jök-
ulköld kvikmyndataka meistara Con-
rads L. Hall fangar hráslagann,
fullkomnar biturt andrúmið.
Michael Sullivan (Tom Hanks), er
hægri hönd glæpaforingjans Johns
Rooney (Paul Newman), umsvifamik-
ils leiðtoga írsku mafíunnar í borg-
inni. Rooney hefur tekið Michael
uppá arma sína og lítur á hann sem
eigin son. Fært Michael, Annie konu
hans (Jennifer Jason Leigh) og son-
um þeirra, Michael yngri (Tyler
Hoechlin) og Peter (Liam Aiken), þak
yfir höfuðið og nóg að bíta og brenna.
Gjaldið er hátt. Sullivan gerir einfald-
lega það sem Rooney skipar honum,
svo mikið er víst að í miðri lögleysu
bannáranna eru það engin góðverk.
Ógæfa Sullivanfjölskyldunnar
eykst þegar Michael kemst að því að
John (Daniel Craig), samstarfsmaður
hans og sonur Rooneys, dregur sér fé
frá föður sínum. Michael tekur sig
knúinn til að segja gamla manninum
frá uppgötvun sinni við litla hrifningu.
Það sem verra er, synina ungu, langar
að vita hvað pabbi þeirra gerir í
vinnunni, forvitnin á eftir að draga
dilk á eftir sér. Michael felur sig í bíln-
um og verður vitni að morði. Meðlimir
gengisins sjá til drengsins og Michael
eldri verður að grípa til örþrifaráða.
Vill fyrirbyggja að sonurinn lendi í
sömu vítisgröf og hann.
Road to Perdition fjallar um
dæmda menn sem hafa selt sálu sína
hinu illa sem sleppir ekki takinu á
fórnarlömbum sínum svo glatt. Þeir
eru ekki endilega forhertir menn að
upplagi heldur mótaðir af hörmuleg-
um aðstæðum Kreppunnar miklu.
Sullivan lítur lengi vel ekki háalvar-
lega á málin. Hann er að framfleyta
fjölskyldu sinni fyrir Rooney vel-
unnara sinn og heimilisvin. Það er
ekki fyrr en Rooney bendir honum
vinsamlegast á að hann er einn af
morðingjunum og þeir eigi ekkert
annað víst í framtíðinni en Helvíti og
kvalirnar, að þessi afvegaleiddi fjöl-
skyldufaðir fer að ókyrrast. Sullivan
flýr ekki örlög sín frekar en aðrir
heldur uppsker eins og hann sáir. Líf
Sullivanfjölskyldunnar lendir í upp-
námi, verður langur og tvísýnn flótti
þar sem feðgarnir reyna að hrista af
sér útsmoginn leigumorðingja (Jude
Law).
Það er sama hvar litið er, hvert
smáatriði í búningamyndinni er gjör-
samlega hnökralaust. Sagan er hrika-
leg og átakanleg og Paul Newman
sýnir enn einn stórleikinn á löngum
og ótrúlega farsælum ferli. Hanks er
einsog nýsmurð vél, líkt og fyrri dag-
inn. Reyndar nýnæmi að sjá hann í
skúrkshlutverkinu. Hann á jafnauð-
velt með að leika spilltan heimilisföð-
ur og hvað annað. Aukaleikarahópur-
inn er athyglisverður, allt frá írsku
þrjótunum í glæpagenginu til Hoechl-
in hins unga. Gallinn er hinsvegar sá
að útlitið er yfirunnið og ofpússað;
myndin lítur nánast út eins og flett sé
teiknimyndasögunni. Hvert smáatriði
endurskapað af Dennis Gassner, hin-
um dverghaga útlitshönnuði sem
kunnastur er fyrir augnakonfekt á
borð við The Man Who Wasn’t There,
The Truman Show og Bugsy. Á þátt
Halls var minnst hér að framan.
Heildaráhrifin eru því blendin.
Efnið grimmt, ljótt, virkilega ónota-
legt, en útlitið allt yfirmáta fullkomið
fyrir augað. En því miður að hætti
glansmynda á borð við Mulholland
Falls frekar en listaverka einsog God-
father. Mendes tekst að skapa athygl-
isverða og sláandi kafla og nýtur að-
stoðar úrvalsfólks hvert sem litið er.
Maður nánast sér Newman og Gassn-
er fyrir sér með Óskar frænda í hendi
en það nægir ekki til að deyfa tóma-
hljóðið undir lýtalausu yfirborði sem
nánast ber annað ofurliði.
Paul Newman sýnir enn einn „stórleikinn“ og Tom Hanks er einsog „nýsmurð vél“ í The Road To Perdition.
Syndir föðurins
KVIKMYNDIR
Smárabíó
Leikstjóri: Sam Mendes. Handrit: David
Self, byggt á myndasögu e. Max Allan
Collins og Richard Piers Rayner. Kvik-
myndatökustjóri: Conrad L. Hall. Tónlist:
Thomas Newman og John M. Williams.
Útlitshönnun: Dennis Gassner. Aðalleik-
endur: Tom Hanks, Paul Newman, Jude
Law, Jennifer Jason Leigh, Stanley Tucci,
Daniel Craig, Tyler Hoechlin, Liam Aiken,
Ciarán Hinds, Dylan Baker. Sýningartími
116 mín. 20th Century Fox/Dream-
Works. Bandaríkin 2002.
ROAD TO PERDITION (LEIÐIN TIL
GLÖTUNAR) Sæbjörn Valdimarsson
Kvöldverður fyrir og eftir sýningar
Miðasala er opin frá kl. 10-16 virka daga,
kl. 14-17 um helgar, frá kl. 19 sýnd.
Ósóttar pantanir seldar 4 dögum fyrir
sýningar. Sími 562 9700
Sun 27/10 kl. 21 Uppselt
Fös 1/11 kl. 21 Uppselt
Fös 1/11 kl. 23 Uppselt
Lau 2/11 kl. 21 Uppselt
Lau 2/11 kl. 23 Aukasýning Uppselt
Fös 8/11 kl. 21 Uppselt
Fös 8/11 kl. 23 Aukasýning Örfá sæti
Lau 9/11 kl. 21 Uppselt
Lau 9/11 kl. 23 Aukasýning Örfá sæti
Fim 14/11 kl. 21 Örfá sæti
Fös 15/11 kl. 21 Uppselt
Lau 16/11 kl. 21 Uppselt
Lau 16/11 kl. 23 Aukasýning Örfá sæti
Fim 21/11 kl. 21
Fös 22/11 kl. 21 Uppselt
Lau 23/11 kl. 21 Nokkur sæti
Lau 23/11 kl. 23 Aukasýning Örfá sæti
Fös 29/11 kl. 21 Örfá sæti
Lau 30/11 kl. 21
Lau 30/11 kl. 23
Stóra svið
SÖLUMAÐUR DEYR e. Arthur Miller
2. sýn Gul kort - su 27/10 kl 20
3. sýn Rauð kort - fö 1/11 kl 20
4. sýn Græn kort - su 3/11 kl 20
HONK! LJÓTI ANDARUNGINN
e. George Stiles og Anthony Drewe
Gamansöngleikur fyrir alla fjölskylduna
Su 27. okt kl 14, Su 3/11 kl. 14
MEÐ VÍFIÐ Í LÚKUNUM e. Ray Cooney
Fi 31. okt kl 20 - UPPSELT
Lau 9. nóv kl 20 - 60. sýning - AUKASÝNING
Lau 16. nóv kl 20 - AUKASÝNING
Fim 21. nóv kl 20 - AUKASÝNING
JÓN OG HÓLMFRÍÐUR e. Gabor Rassov
frekar erótískt leikrit í þrem þáttum
Í kvöld kl 20, Fö 1/11 kl 20 UPPSELT, Lau 2/11 kl 20
AND BJÖRK, OF COURSE ..
e. Þorvald Þorsteinsson
Fi 31. okt kl 20 - AUKASÝNING
Allra síðasta sýning
15:15 TÓNLEIKAR
Í dag kl 15:15 Anna Sigr. Helgadóttir - Ferðalög
Málþing Amnesty International
Mán. 28. okt kl 20 Alþjóðlegi sakamáladómstóllinn
Nýja sviðið
Miðasalan er opin kl. 13-18 og fram að sýningu sýningardaga. Sími miðasölu opnar kl. 10 virka daga.
Fax 5680383 midasala@borgarleikhus.is
Miðasala: 568 8000
KRYDDLEGIN HJÖRTU e. Laura Esquivel
Í kvöld kl 20, Lau 2. nóv kl 20, Fi 7. nóv kl 20
ATH: Fáar sýningar eftir
3. sýn sun 27 okt. kl. 14 örfá sæti
4. sýn. sun 27. okt. kl. 17 laus sæti
5. sýn. sun. 3. nóv. kl. 14 laus sæti
6. sýn. sun 10. nóv. kl. 14 laus sæti
7. sýn. sun 17. nóv kl. 14 laus sæti
Leikbrúðuland
sýnir í Gerðubergi
Fjörðin sem varð að fimm
hænum og
Ævintýrið um Stein Bollason
Leikgerð Örn Árnason og Leikbrúðuland
Lau. 26. okt. kl.14
sun. 27. okt. kl. 14
Miðasala í síma 895 6151 og 898 9809
Vesturgötu 3 Í HLAÐVARPANUM
Myrkar rósir
Valgerður Guðnad., Inga Stefánsd. söngkonur
og Anna R. Atlad. píanóleikari, ásamt
strengjakvartett leika lög úr kvikmyndum.
„Er flutningur á James Bond lögum með þeim
hætti að aldrei hef ég betur heyrt".
IM, Vesturbæjarblaðið.
í kvöld lau. kl. 21.00 - örfá sæti laus
fös. 1. nóv. kl. 21.00
lau. 2. nóv. kl. 21.00
fös. 8. nóv. kl. 21.00
lau. 9. nóv. kl. 21.00
Ljúffengur málsverður
fyrir alla kvöldviðburði
MIÐASALA: 551 9030 kl. 10-16 má.-fö.
Símsvari á öðrum tímum.
Leikhópurinn Á senunni sýnir:
brjálaðan gamanleik eftir
Steven Berkoff
Vesturporti, Vesturgötu 18
sunnudagur 27. okt. kl. 21
föstudagur 1. nóv. kl. 21
Miðasala í síma 552 3000
www.senan.is
HEIÐARSNÆLDA
Nýtt leikrit fyrir yngstu börnin
Sun. 27. okt. kl. 14
Mán. 28. okt. kl. 11 uppselt
Sun. 3. nóv. kl. 14
SNUÐRA OG TUÐRA
eftir Iðunni Steinsdóttur
lau. 26. okt. kl. 14
sun. 3. nóv. kl. 16
PRUMPUHÓLLINN
eftir Þorvald Þorsteinsson
Sun. 10. nóv. kl. 14
JÓLARÓSIR SNUÐRU
OG TUÐRU
eftir Iðunni Steinsdóttur
sun. 1. des. kl. 14.00
HVAR ER
STEKKJASTAUR?
eftir Pétur Eggerz
sun. 24. nóv. kl. 16.00
Miðaverð kr. 1.100.
Netfang: ml@islandia.is
www.islandia.is/ml
Hamlet
eftir William Shakespeare.
Leikstjóri: Sveinn Einarsson.
sýn í kvöld kl. 19 örfá sæti
sýn. fös. 1. nóv. kl. 20 laus sæti
sýn. lau. 2. nóv. kl. 19 uppselt
sýn. lau. 9. nóv. kl. 19 uppselt síðasta
sýning
Vörðufélagar Landsbanka Íslands fá
25% afslátt gegn framvísun
gulldebetkorts
Miðasölusími sími 462 1400
www.leikfelag.is
„Grettissaga Hilmars Jónssonar er vel heppnuð sviðsetn-
ing á perlu úr okkar forna bókmenntaarfi.“ H.F. DV.
Grettissaga saga Grettis
leikrit eftir Hilmar Jónsson byggt á Grettissögu
lau 26. okt kl. 20, nokkur sæti, fim 31. nóv kl. 20, uppselt, fös 1. nóv. kl. 20, nokkur sæti,
lau 2. nóv kl. 20, nokkur sæti, föst 8.nóv. kl. 20, lau 9. nóv kl. 20, lau 16. nóv kl. 20
Sellófon eftir Björk Jakobsdóttur
sun 27. okt, uppselt, þri 29. okt, uppselt, mið 30. okt, uppselt, sun. 3. nóv, uppselt, mið 6. nóv, uppselt,
sun 10. nóv, uppselt, þri 12. nóv, uppselt, mið 13, nóv, uppselt, sun 17. nóv, uppselt,
þri. 19. nóv, nokkur sæti, mið 20. nóv. nokkur sæti
SKÝFALL
eftir Sergi Belbel
Í kvöld 26. okt. kl. 20
Fim. 31. okt. kl. 20
Fös. 1. nóv. kl. 20
Takmarkaður sýningafjöldi!
552 1971, nemendaleikhus@lhi.is