Morgunblaðið - 26.10.2002, Síða 63
STÆRSTI viðburðurinn á Fairwaves-
tónlistarhátíðinni verður efalaust í kvöld í
gamla Austurbæjarbíói þegar rokksveitirnar
Clickhaze og Krít stíga á svið ásamt óvæntum
gestum. Báðar eru þær rokkkyns; Krít spilar
bylmingsþunga og hraða tónlist á meðan Click-
haze leikur framsækið og melódískt rokk, með
blöndu af raftónlist og færeyskri alþýðutónlist.
Ekki má heldur gleyma söngkonunni frábæru
Eivöru Pálsdóttur sem ljær lögunum rödd
sína. Téð Clickhaze þykir vera það fram-
bærilegasta í færeyskri rokktónlist um þessar
mundir og hefur lagið „Daylight“ verið spilað
nokkuð á Rás 2 að undanförnu.
Blaðamaður settist niður með hljómsveitinni
og spurði hvernig Ísland hefði leikið við Fær-
eyinga þennan tíma sem Fairwaves hefur stað-
ið yfir en hátíðin hófst 16. október síðastliðinn.
„Þetta er búið að vera mjög gott og gagn-
legt,“ segir Jón Tyril, gítarleikari. Liðna mán-
uði hefur færeysk tónlist orðið heldur meira
áberandi í íslenskri fjölmiðlaumræðu en áður
hefur verið. Meðlimir Clickhaze segja að Fær-
eyingar hafi ávallt horft mikið til Íslands og
fylgst með dægurtónlistinni hér á landi. Þeim
hafi hins vegar ekki fundist það gagnkvæmt en
nú sé eins og straumarnir séu farnir að liggja í
báðar áttir. Hafnfirska sveitin Úlpa fór til
dæmis í góða heimsókn til Færeyja á dögunum
og stefnt er að frekari innflutningi íslenskra
sveita þangað.
Clickhaze-liðar eru flestir harðir aðskiln-
aðarsinnar en ungt fólk í Færeyjum er í sífellt
meiri mæli farið að krefjast fullkomins aðskiln-
aðar frá Danmörku. Er svo komið að þjóðfé-
lagið er í hálfgerðri pattstöðu, helmingur vill
frelsi en hinn helmingurinn ekki. Petur Pólson,
söngvari og textahöfundur, hefur þetta um
málið að segja:
„Þegar kreppan mikla skall á í Færeyjum
fyrir tíu árum stóðum við allt í einu uppi ein og
öryggislaus. Við þurftum að fara að byggja
upp sjálf. Í rauninni er kreppan það besta sem
hefur komið fyrir Færeyjar því að í kjölfarið
var eins og þjóðin vaknaði til lífsins. Þar á með-
al fór listalífið að blómstra og gaf af sér fallega
tónlist, falleg ljóð o.s.frv.“
Clickhaze lýkur með þessum tónleikum fjög-
urra mánaða törn og hyggjast sveitarliðar
leggja höfuðið í bleyti í kjölfarið og ákvarða
framtíðarstefnuna. Þau segjast ekki viss um
hvað skuli gera, vonandi fari þau að fást við
nýtt efni en allt sé fremur óráðið.
„Við þurfum að fara í burtu um stund og
dreyma hlutina upp á nýtt,“ segir Petur að lok-
um og vísar þar með í fleyg orð Bono, söngvara
U2, sem hann viðhafði í lok Joshua Tree tón-
leikaferðalagsins á gamlárskvöld 1989.
Tónleikarnir í kvöld hefjast kl. 21 og er að-
gangseyrir 1.500 kr.
Fairwaves 2002 slitið með tónleikum Clickhaze og Krítar
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hluti Clickhaze stillir sér upp fyrir framan veitingahúsið Sirkus ásamt vinum.
Gott og gagnlegt
arnart@mbl.is
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. OKTÓBER 2002 63
www.regnboginn.is
Sýnd kl. 8. B.i. 14.
Hverfisgötu 551 9000
Sýnd kl. 5.40.
1/2HL MBL
SG DV
ÓHT Rás2
„ARFTAKI BOND
ER FUNDINN!“
HK DV
Sýnd kl. 5 og 10.30.
Sýnd kl. 5.20, 7.40 og 10. B. i. 16.
Gott popp styrkir
gott málefni
Frá leikstjóra American Beauty. Eitt mesta meistaraverk sem
þú munt nokkurn tíman sjá.
Sýnd kl. 7 og 10. B.i. 16.
Sannsöguleg stórmynd um mögnuð
stríðsátök. Missið ekki af þessari!
Frábær spennutryllir með
Heather Graham úr Boogie
Nights og Joseph Fiennes úr
Enemy at the Gates.
Sýnd kl. 6, 8 og 10. B. i. 16.
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B. i. 16. .
www.laugarasbio.is
Sýnd kl. 2, 8 og 10. Sýnd kl. 2, 4 og 6 með ísl. tali.
SK. RADIO-X SV Mbl
FYRSTI OG SKELFILEGASTI KAFLINN Í SÖGU
HANNIBAL LECTER
FRUMSÝNING
anthony
HOPKINS
edward
NORTON
ralph
FIENNES
harvey
KEITEL
emily
WATSON
mary-louise
PARKER
philip seymour
HOFFMAN
BEINT
Á TOP
PINN
Á ÍSL
ANDI
1/2
Kvikmyndir.is
Kvikmyndir.com
HK DV
SK RadíóX
SV Mbl
ÓHT Rás 2
Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10.