Morgunblaðið - 26.10.2002, Síða 68
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 LAUGARDAGUR 26. OKTÓBER 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
Valkostur
vandlátra
– leiðandi í lausnum
Skeifunni 17AcoTæknival Sími 550 4000 Fax 550 4001
TOLLGÆSLAN á Keflavíkurflug-
velli lagði í fyrrakvöld hald á 1½ kíló
af kókaíni sem er mesta magn kók-
aíns sem náðst hefur í einu lagi hér á
landi. Fíkniefnin fundust á 58 ára
gömlum þýskum karlmanni sem
kom frá Kaupmannahöfn. Gera má
ráð fyrir að söluverðmæti efnanna
nemi um 16–65 milljónum króna en
verðmætið veltur á því hversu
hreint efnið er. Fíkniefnadeild lög-
reglunnar í Reykjavík hefur tekið
við rannsókn málsins og var mað-
urinn í gærkvöldi úrskurðaður í
þriggja vikna gæsluvarðhald. Ásgeir
Karlsson, yfirmaður fíkniefnadeild-
ar, vildi ekkert tjá sig um málið í
gærkvöldi.
Samkvæmt verðkönnunum SÁÁ á
þessu ári kostar grammið af kókaíni
um 11.000 krónur að meðaltali. Sé
kókaínið hreint má á hinn bóginn
drýgja það allt að fjórfalt. Því má
gera ráð fyrir að söluverðmæti kók-
aínsins nemi frá um 16–65 milljón-
um króna.
Vel gengið frá fíkniefnunum
Að sögn Jóhanns R. Benedikts-
sonar, sýslumanns á Keflavíkurflug-
velli, hafði maðurinn límt kókaínið
við báða fótleggi sína og gengið svo
vel frá því að ómögulegt hefði verið
að koma auga á það og finna, nema
við leit á manninum. Lögreglan í
Reykjavík vill ekki upplýsa hvort
maðurinn hafi bent á samverka-
menn hér á landi en fullvíst má telja
að hann sé aðeins burðardýr. Þykir
nánast útilokað að maður sem enga
þekkingu hefur á fíkniefnamarkaðn-
um hér á landi, eigi frumkvæði að
innflutningi á viðlíka magni. Á tæp-
lega tveimur árum hefur tollgæslan
á Keflavíkurflugvelli stöðvað 23 er-
lenda ríkisborgara með fíkniefni.
Flestir þeirra eru danskir eða tíu,
fimm Þjóðverjar, tveir Bretar en
sex frá öðrum löndum. Burðardýrin
hafa verið afar treg til þess að gefa
upp nöfn á samverkamönnum sínum
hérlendis og telur lögregla að
ástæðan sé m.a. sú að þau óttist
hefndaraðgerðir. Þá getur reynst
erfitt fyrir lögreglu að sanna að aðr-
ir hafi skipulagt innflutninginn ef
aðeins liggur fyrir framburður burð-
ardýrsins.
Jóhann R. Benediktsson sýslu-
maður segir að fjölgun erlendra
burðardýra bendi greinilega til þess
að íslenskir glæpamenn treysti sér
illa til að smygla fíkniefnum um
Leifsstöð. Þeir geri sér grein fyrir
því að tollgæslan þar sé mjög öflug
og því taki þeir mikla áhættu með
því að smygla efnunum sjálfir. Í
staðinn notist þeir við erlend burð-
ardýr sem hafi enga þekkingu á að-
stæðum hér á landi og sé ekki ljóst
að því fylgi meiri áhætta að smygla
fíkniefnum með flugi til Íslands en
annarra Evrópulanda. „Aðrar álykt-
anir er ekki hægt að draga af því að
erlend burðardýr skuli vera fengin
til að smygla fíkniefnum til landsins
í jafnmiklum mæli og raun ber
vitni,“ segir hann.
Tekinn með 1½ kíló af kók-
aíni á Keflavíkurflugvelli
Mesta magn sem lagt hefur verið
hald á í einu lagi hér á landi
KONUR á Akureyri eru í meiri
áhættu að fá hjarta- og æða-
sjúkdóma en kynsystur þeirra í
Hafnarfirði, samkvæmt nið-
urstöðum rannsóknar sem kynnt
verður á vísindaþingi Félags ís-
lenskra heimilislækna í Borgarnesi í
dag. Reyndust konur á Akureyri
vera að meðaltali tæplega 6 kg
þyngri en hafnfirskar konur og var
mittisummál kvenna á Akureyri 20
cm meira en hjá þeim hafnfirsku.
Tilgangur rannsóknarinnar var
að kanna áhættuþætti hjarta- og
æðasjúkdóma meðal fimmtugra í
Hafnarfirði og á Akureyri og enn-
fremur kanna áhrif einfaldrar íhlut-
unar á þessa áhættuþætti. Öllum
einstaklingum sem fæddir eru árið
1950 og áttu lögheimili á upp-
tökusvæði Heilsugæslunnar á Sól-
vangi í Hafnarfirði og Heilsugæslu-
stöðvarinnar á Akureyri var boðið
að taka þátt í rannsókninni. Blóð-
þrýstingur, kviðarummál, hæð og
þyngd voru skráð, hjartalínurit tek-
ið sem og blóðprufa þar sem m.a.
voru mældar blóðfitur og blóðsykur.
Meðalþyngd kvenna á Akureyri
var 77 kg en hafnfirskar konur vógu
að meðaltali 71,9 kg. Karlar vógu að
meðaltali rúm 88 kg bæði á Ak-
ureyri og í Hafnarfirði. Reyndist
vera talsverður munur á mitt-
isummáli kvenna eftir búsetu. Mitt-
isummál akureyrskra kvenna
reyndist að meðaltali 101 cm en 80
cm í Hafnarfirði. Líkamsþyngd-
arstuðull (BMI) var 25,9 í Hafn-
arfirði á móti 28,6 á Akureyri.
Akureyrskar kyrrsetukonur?
Emil Lárus Sigurðsson, yfirlækn-
ir heilsugæslunnar á Sólvangi í
Hafnarfirði, sem stýrði rannsókn-
inni segir að niðurstöðurnar hafi
komið verulega á óvart. Fyrst hafi
rannsakendur talið að skekkja væri
í mælingunum en þær hafi verið vel
samræmdar áður en rannsóknin
hófst. Þá bendi margar breytur til
þess að áhættuþættir séu meiri hjá
konum á Akureyri. Mittisummálið
sé meira, þyngdin meiri og hærri
blóðþrýstingur.
Aðspurður hvað gæti skýrt þenn-
an mikla mun segir Emil að þátt-
tökuhlutfallið hafi verið hærra á
Akureyri. Þar tóku 70% þátt en 59%
í Hafnarfirði. Mögulegt sé að feit-
lagnar konur í Hafnarfirði hafi setið
heima meðan þær akureyrsku hafi
farið í rannsókn. „Ég held þó að það
skýri ekki allt. Hvort konurnar fyrir
norðan eru meiri kyrrsetukonur en
kynsystur þeirra fyrir sunnan, er
ein hugsanleg skýring,“ segir Emil.
Ekki reyndist marktækur munur
hjá körlum hvað blóðþrýsting, blóð-
fitur og blóðsykur varðar. Rúmlega
10% þátttakenda reyndust hafa há-
þrýsting og 22% voru með líkams-
þyngdarstuðul yfir 30. Emil segir
mikilvægt að fólk fylgist reglulega
með áhættuþáttum. Því fyrr sem
fólk viti af áhættunni og taki á vand-
anum, því meiri árangur fái það og
auki þannig lífshorfur og lífsgæði.
Akureyrskar konur 6 kg
þyngri en hafnfirskar
Rannsókn á áhættuþáttum hjarta- og æðasjúkdóma
ÞEGAR ort er um haustlauf er oft-
ar en ekki minnst á feigðina og
hversu lífið er hverfult; laufin sem
lifna á vorin eru dæmd til að fölna
og deyja á haustin.
Kannski hefur hugmynd að
ódauðlegu harmljóði kviknað hjá
starfsmönnum Húsdýragarðsins
sem voru í óðaönn að hirða upp
fallin haustlauf. Það er þó líklegra
að þau hafi viljað skurka verkinu
af og komast inn úr nepjunni. Eng-
ir hlýir vindar blása um landið og
þó að veturinn hefjist formlega í
dag er langt síðan hann gerði vart
við sig. Höfuðborgarbúar hafa þó
minna fundið fyrir honum en
Norðlendingar og Austfirðingar
sem hafa þurft að vaða snjóinn.
Um helgina er spáð norðlægum
áttum og snjókomu og éljum á
Norður- og Austurlandi en síðan á
að snúast í sunnanátt með rigningu
og slyddu sunnanlands og vestan.
Morgunblaðið/Golli
Ljóðrænum
haustlauf-
um safnað
ÞRIÐJA breiðskífa hljómsveitar-
innar Sigur Rósar kemur út á
mánudag, mánudag, og er plöt-
unnar, sem heitir ( ), beðið með
eftirvæntingu víða um heim. Fyr-
irframpantanir af plötunni eru um
250.000 eintök, en hér á landi hafa
2.000 eintök selst fyrirfram.
Sigur Rós er samningsbundin
breska fyrirtækinu Fat Cat í Bret-
landi, MCA, sem er í eigu stórfyr-
irtækisins Universal í Bandaríkj-
unum, þýska stórfyrirtækinu BMG
í Rússlandi og Avex í Japan, en
Fat Cat er síðan með samninga við
belgíska fyrirtækið PIAS í öðrum
Evrópulöndum og öðrum heims-
hlutum en þeim sem taldir eru. Að
sögn eigenda Fat Cat eru fyrir-
framseld um 100.000 eintök í
Bandaríkjunum, um 100.000 eintök
í Evrópu og um 50.000 eintök í
öðrum heimshlutum. Í Bandaríkj-
unum er þetta um fimm sinnum
meira en fyrirframpantanir á
Ágætis byrjun, en um þrefalt
meira en hvað varðaði þá plötu í
Evrópu.
Smekkleysa gefur plötuna út
hér á landi og að sögn Ásmundar
Jónssonar, framkvæmdastjóra
Smekkleysu, eru fyrirframpöntuð
2.000 eintök, sem er fyrsta upplag
plötunnar. Sérstök miðnætursala
verður á plötunni í verslun Skíf-
unnar á Laugavegi og verslun Tólf
tóna á Skólavörðustíg. Verða þess-
ar verslanir opnaðar klukkan 12 á
miðnætti annað kvöld til að selja
plötuna, en hún kemur út um allan
heim á mánudag.
Hljómsveitin er nú á ferð um
heiminn, lauk Evrópuferð sl.
fimmtudag og leikur á tónleikum í
Kanada næstkomandi miðvikudag.
Tvennir tónleikar eru fyrirhugaðir
hér á landi, í Háskólabíói 12. og
13. desember.
Miðasala hefst á þá tónleika í
Háskólabíói 20. nóvember næst-
komandi.
250.000 eintök
seld fyrirfram
Vonir/62
Ný breiðskífa Sigur Rósar