Morgunblaðið - 14.11.2002, Blaðsíða 39
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. NÓVEMBER 2002 39
leiðir þeirra lágu vestur um haf. Við
hjónin urðum einnig oft aðnjótandi
rómaðrar gestrisni Hjalta og Ingu
heima á Íslandi.
Mig setti hljóðan við dánarfregn
Hjalta. Þar hvarf traustur vinur sem
ég mun sakna mikið. En ég sætti mig
við það því ég fæ væntanlega tæki-
færi til að blanda geði við Hjalta á ný
þegar mínum tíma á jörðinni lýkur.
Hjalti skar sig úr meðal fólks.
Hann hafði rólega framkomu og var
smekklegur í klæðaburði. Hann var
viðkunnanlegur í öllu viðmóti sínu við
samferðafólk.
Í störfum sínum hjá SÍS sýndi
Hjalti strax öfluga framtakssemi við
að hrinda margskonar verkefnum úr
vör og sjá þeim borgið í tilætlaðri
höfn. Fóru saman skipulagshæfni og
meðfæddur hæfileiki til samvinnu.
Um 1950 var Hjalti leiðandi í vélvæð-
ingu íslensks landbúnaðar með inn-
flutningi á Ferguson-dráttarvélum.
Það lá í eðli Hjalta að vinna traust
þeirra sem hann hafði samskipti við,
þó gat hann verið harður í horn að
taka. Í viðskiptum lagði hann sig fram
um að vera réttsýnn og sanngjarn. Ef
eitthvað fór miður leitaði Hjalti aldrei
blórabögguls en leiðrétti strax það
sem miður fór. Læra bæri af mistök-
um – það væri undirstöðuatriði.
Vandamál leysti hann af yfirvegun og
gætni.
Það var lán mitt að eiga Hjalta að
vini. Hreinskilni var hornsteinn vin-
áttu okkar. Hin rólega yfirvegaða
hreinskilni, alls ósnortin öfgum.
Hreinskilnin sem einkenndi öll sam-
skipti hans við menn og málefni vakti
snemma athygli mína. Hann kunni
líka að segja: „Ég veit það ekki.“ Í
samskiptum við vini sína var traust
og hjálpsemi ríkjandi og greiðasemin
sem Hjalti sýndi vinum sínum náði
langt út yfir hefðbundna gestrisni.
Elsku Inga mín og fjölskylda ykk-
ar. Guð veiti ykkur styrk til að finna
frið og ró eftir þungan missi.
Drottinn blessi minningu vinar
míns Hjalta Pálssonar.
Bragi Freymóðsson,
Santa Barbara.
Það var mikið áfall
að frétta sviplegt og
ótímabært andlát
Daníels Lárussonar.
Við sem útskrifuð-
umst saman úr hóp 13 frá Endur-
menntun HÍ í viðskipta- og rekstr-
arnámi fyrir nokkrum árum síðan
áttum síst von á því að sjá á eftir
Daníel svo fljótt. Hann var æv-
inlega hress í bragði og áhugasam-
DANÍEL S.
LÁRUSSON
✝ Daníel SigurðurLárusson fæddist
á Akranesi 22. des-
ember 1947. Hann
lést á sjúkrahúsi í
Búdapest 21. októ-
ber síðastliðinn og
var útför hans gerð
frá Dómkirkjunni í
Reykjavík 5. nóvem-
ber.
ur um að koma þegar
við hóuðum saman
hópnum til að snæða
og rabba saman. Alltaf
jafn gaman að hitta
fólk og skiptast á
skoðunum. Okkur er
minnisstæð heimsókn
okkar til Daníels á
Morgunblaðið fyrir all-
nokkru. Hann tók á
móti hópnum og leiddi
okkur um vinnustað
sinn og sýndi með
stolti þá heild sem
hann var hluti af.
Fjölskyldu hans
vottum við okkar dýpstu samúð og
hluttekningu.
Guð blessi ykkur og styrki.
Hópur 13 úr rekstrar-
og viðskiptanámi
frá Endurmenntun HÍ.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir og afi,
VILBERG JÓHANNESSON,
Heiðarhrauni 6,
Grindavík,
verður jarðsunginn frá Grindavíkurkirkju föstu-
daginn 15. nóvember kl. 14.00.
Agnes Sæmundsdóttir,
Bjarnlaug D. Vilbergsdóttir, Ómar Björnsson,
Jóhannes G. Vilbergsson, Margrét Kristjánsdóttir,
Guðrún María Vilbergsdóttir, Kristinn Sørensen,
Halldór Rúnar Vilbergsson, Jórunn Sigurðardóttir
og barnabörn.
Hjartkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
INGIBJÖRG EIRÍKSDÓTTIR,
Skjóli,
áður til heimilis í Gnoðarvogi 52,
sem lést þriðjudaginn 5. nóvember sl., verður
jarðsungin frá Langholtskirkju á morgun,
föstudaginn 15. nóvember, kl. 13.30.
Ingibergur Jón Georgsson, Sigríður Kr. Gunnarsdóttir,
Eiríkur Oddur Georgsson, Ragnhildur Björk Sveinsdóttir,
Georg Kristjánsson, Dóróthea Huld Gunnarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
SIGURÐUR DAGNÝSSON
frá Seyðisfirði,
Miðvangi 8,
Hafnarfirði,
verður jarðsunginn frá Víðistaðakirkju í Hafnar-
firði föstudaginn 15. nóvember kl. 13.30.
Helga Sveinsdóttir,
dætur, tengdabörn,
barnabörn og langafabörn.
Lokað
Vegna jarðarfarar KRISTJÁNS GRÉTARS SIGURÐSSONAR er
lokað hjá ICEDAN ehf. í Hafnarfirði eftir kl. 13.00 á morgun, föstu-
daginn 15. nóvember.
ICEDAN ehf.
Bróðir okkar og vinur,
SIGURÐUR JÓHANNESSON
múrarameistari,
Hrafnistu,
verður jarðsunginn frá Áskirkju föstudaginn
15. nóvember kl. 13.30.
Fyrir hönd vina og vandamanna,
Auðunn Jóhannesson,
Leopold Jóhannesson,
Ragnheiður Hálfdánardóttir,
Jóhanna Sveinbjörnsdóttir.
Elskulegur faðir minn, sonur okkar, bróðir og
mágur,
KRISTJÁN GRÉTAR SIGURÐSSON,
Valhúsabraut 29,
Seltjarnarnesi,
verður jarðsunginn frá Seltjarnarneskirkju
föstudaginn 15. nóvember kl. 15.00.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á
líknarfélög.
Sigurður Ásgeir Kristjánsson,
Erna G. Jensdóttir, Sigurður Á. Kristjánsson,
Rafn H. Sigurðsson, Suzanne Kay Sigurðsson,
Sigurður Þór Sigurðsson, Aðalheiður Gestsdóttir,
Jens Pétur Sigurðsson, Patricia Segura Valdes.
Innilegar þakkir til allra þeirra fjölmörgu sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og
útför okkar ástkæra eiginmanns, föður,
tengdaföður, sonar, bróður og mágs,
ÞORLEIFS BJÖRNSSONAR,
Granaskjóli 66,
Reykjavík.
Aðalbjörg Hlín Brynjólfsdóttir,
Ragna Hlín Þorleifsdóttir, Guðmundur Haukur Jörgensen,
Kári Björn Þorleifsson,
Ragna Þorleifsdóttir, Björn Hermannsson,
Þóra Björnsdóttir, Jón H. Snorrason,
Gústaf Adolf Björnsson, Guðrún Gunnarsdóttir,
Hermann Björnsson, Eiríka Ásgrímsdóttir,
Jónas Björnsson, María Markúsdóttir.
Innilegar þakkir til allra þeirra er auðsýndu okkur
samúð og vinarhug við andlát og útför föður
míns, tengdaföður, afa og langafa,
ÞORSTEINS ÞORSTEINSSONAR,
Víðihlíð, Grindavík,
áður til heimilis á Suðurgötu 14,
Keflavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Víðihlíðar.
Guð blessi ykkur öll.
Þorsteinn Þorsteinsson, Ellen Hilda Bates,
Lilja Þorsteinsdóttir, Sigurður Árni Ólafsson,
Sigurður Þorsteinsson, Rannveig Sigríður Ragnarsdóttir
og barnabarnabörn.
Ástkæri drengurinn okkar,
HERMANN KÁRI HELGASON,
lést á Landspítala háskólasjúkrahúsi þriðju-
daginn 12. nóvember.
Jarðarförin auglýst síðar.
Helgi Magnús Hermannsson, Björk Baldursdóttir,
Ólafur Örn Helgason, Guðbrandur Óli Helgason
og aðrir aðstandendur.
Sími 562 0200
Erfisdrykkjur
AFMÆLIS- og minningar-
greinum er hægt að skila í tölvu-
pósti (netfangið er minning-
@mbl.is, svar er sent sjálfvirkt
um leið og grein hefur borist), á
disklingi eða í vélrituðu handriti.
Ef greinin er á disklingi þarf út-
prentun að fylgja. Nauðsynlegt
er að símanúmer höfundar og/
eða sendanda (vinnusími og
heimasími) fylgi með. Bréfsími
fyrir minningargreinar er 569
1115. Ekki er tekið við hand-
skrifuðum greinum.
Um hvern látinn einstakling
birtist ein aðalgrein af hæfilegri
lengd á útfarardegi, en aðrar
greinar séu um 300 orð eða 1.500
slög (með bilum) en það eru um
50 línur í blaðinu (17 dálksenti-
metrar). Tilvitnanir í sálma eða
ljóð takmarkast við eitt til þrjú
erindi. Einnig er hægt að senda
örstutta kveðju, HINSTU
KVEÐJU, 5–15 línur, og votta
virðingu án þess að það sé gert
með langri grein. Greinarhöf-
undar eru beðnir að hafa skírn-
arnöfn sín en ekki stuttnefni
undir greinunum.
Minningargreinum þarf að
fylgja formáli með upplýsingum
um hvar og hvenær sá sem
fjallað er um er fæddur, hvar og
hvenær dáinn, um foreldra
hans, systkini, maka og börn og
loks hvaðan útförin verður gerð
og klukkan hvað. Ætlast er til að
þetta komi aðeins fram í formál-
anum, sem er feitletraður, en
ekki í greinunum sjálfum. Þar
sem pláss er takmarkað getur
þurft að fresta birtingu greina,
enda þótt þær berist innan hins
tiltekna frests.
Frágangur
afmælis-
og minning-
argreina
Afmælis- og minningargreinum má skila í
tölvupósti, netfangið er minning@mbl.is,
svar er sent sjálfkrafa um leið og grein
hefur borist. Ef greinin er á disklingi þarf
útprentun að fylgja. Nauðsynlegt er að
símanúmer höfundar og/eða sendanda
(vinnusími og heimasími) fylgi með. Þar
sem pláss er takmarkað getur þurft að
fresta birtingu greina, enda þótt þær ber-
ist innan hins tiltekna frests. Nánari upp-
lýsingar eru á mbl.is. Um hvern látinn
einstakling birtist formáli og ein aðal-
grein af hæfilegri lengd á útfarardegi, en
aðrar greinar skulu ekki vera lengri en
300 orð, u.þ.b. 1.500 slög (með bilum) eða
um 50 línur í blaðinu (17 dálksentimetr-
ar). Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmark-
ast við eitt til þrjú erindi.