Morgunblaðið - 14.11.2002, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 14.11.2002, Blaðsíða 50
50 FIMMTUDAGUR 14. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ Sýnd kl. 5.50. B. i. 16. Síðasta sýning Sýnd kl. 6, 8 og 10 Sýnd kl. 8 og 10.15. Miðasala opnar kl. 15.30 HUGSAÐU STÓRT EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS Mögnuð mynd sem hefur fengið einróma lof gagnrýnenda. Robin Williams aldrei betri" - USA Today Missið ekki af þessar 5, 7.30 og 10. Gott popp styrkir gott málefni 1/2Kvikmyndir.com Kvikmyndir.com DV HJ. MBL USA Today SV MblDV RadíóX  ÓHT Rás 2 Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30.B. i. 16.Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10. B.i. 16. Sýnd kl. 4 og 6. Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. i i l i illi l i i - i i i Hann er með 1000 andlit...en veit ekkert í sinn haus! Dana Carvey fer á kostum í geggjaðri gamanmynd sem er framleidd af Adam Sandler. Sýnd kl. 4. með ísl. tali Búðu þig undir nýja tilraun í hrylling. Það geta allir séð þig og það heyra allir í þér. En það getur enginn hjálpað þér! Mögnuð hryllingsmynd. Sýnd kl. 10. 10. Stranglega bönnuð innan 16 ára. Auglýsendur! Jó l i n 2002 30. nóvember Pantið fyrir kl. 12 föstudaginn 15. nóvember! Pantið tímanlega þar sem uppselt hefur verið í jólablaðauka fyrri ára. Allir nánari upplýsingar veita sölu- og þjónustufulltrúar á auglýsingadeild í síma 569 1111 eða augl@mbl.is Jólablaðaukinn fylgir Morgunblaðinu laugardaginn 30. nóvember. RÚNAR Júlíusson heldur sínu striki, undanfarin ár hefur hann sent frá sér breiðskífu á hverju ári og stundum fleiri en eina. Fyrir þessi jól kemur hann við sögu á þremur breiðskífum, gefur út eina barnaplötu og er liðs- maður á safnskífum með verkum Trúbrots og GCD. Að auki gefur Rúnar út sólóskífu, Það þarf fólk eins og þig sem hann vinnur á býsna ný- stárlegan hátt. Nauðsyn hins nýja Lögin á plötunni samdi Rúnar í sumar og tók þau upp í haust með Gálunni og félögum í Fálkum. Hann segist hafa haft þann háttinn á að semja lög og texta en láta strákana síðan sjá um útsetningar og hljóð- færaleik. Aðspurður hvort það hafi ekki verið skrýtið að vinna svo tekur Rúnar undir það, en segist hafa kunnað því mjög vel. „Það komu út úr því nýjar og ferskar hugmyndir, því þó að þeir komi kannski úr svip- uðu umhverfi eru þeir frá öðrum tíma, með annað viðhorf og nýjan rytma.“ Aldrei segist Rúnar hafa verið ósáttur við uppástungur sam- starfsmanna sinna þó að þeir hafi oft farið aðra leið en hann sjálfur, hefði hann ráðið. „Það vöknuðu stundum spurningar hjá mér hvort þeir væru að fara réttar leiðir, en yfirleitt gaf ég þeim lausan tauminn,“ segir Rúnar og bætir við að sér hafi verið þetta mjög lærdómsríkt og hann sé af- skaplega ánægðum með útkomuna. Í gegnum árin hefur Rúnar verið iðinn við alls kyns tilraunir, fengið ýmsa til að semja fyrir og syngja með á plötum, enda segir hann það nauð- synlegt að breyta út af til að halda sér ferskum. „Annars endar maður bara sem einrænn vitavörður, þetta er þannig bransi að maður verður að vera duglegur við að gera eitthvað nýtt.“ Rúnar segir að hugmyndin að þessari óvenjulegu skipan mála sé eiginlega komin jafnt frá honum og samstarfsmönnum hans, hann þekki þá mætavel, Gálan er nú einu sinni sonur hans og strákarnir í Fálkunum eru fastagestir í hljóðveri hans. „Það er mjög gaman að vinna með ungu fólki,“ segir Rúnar en bætir svo við eftir smáþögn og skellir upp úr: „Þó að ég sé líka mjög hrifinn af öld- ungum.“ Vinnan segir Rúnar að hafi farið þannig fram að hann hafi samið lög og texta, sest niður með strákunum og rennt einu sinni yfir lagið sem var svo tekið upp í beinu framhaldi. „Við fundum hrynjandann í lagið og tók- um grunninn upp jafnóðum,“ segir hann en það er óvenjulegt að hann leikur ekki á neitt hljóðfæri á plöt- unni, lætur sér nægja að syngja. „Það verður gott að syngja án bass- ans, ég á eftir að syngja betur þegar ég get einbeitt mér að því alveg eins og ég get leikið betur á bassann þeg- ar ég þarf ekki að syngja.“ Ein sú besta Enn á eftir að frumflytja lögin á tónleikum enda segir Rúnar að þeir félagar séu rétt byrjaðir að undirbúa það. „Það verður gaman að þurfa ekki að hugsa um neitt nema söng- inn, maður hefur þá tíma til að pósa og taka dansspor,“ segir hann og kímir, en framundan er talsverð spilamennska víða um land. Hann segist ekki bara ætla að spila lögin af plötunni nýju, það sé ansi mikið í gangi þar sem hann kemur við sögu; „sólóplata, það besta með Trúbroti, það besta með GCD og svo barna- plata – þó að aðaláherslan verði lögð á að spila lög af plötunni nýju spila ég auðvitað einhver lög með Trúbroti, einhver með GCD og svo framvegis. Mér finnst það eðlilegt, þetta er allt partur af mínu sköpunarverki.“ Segja má um Fálkana og Gáluna að hvor sveitin um sig er einstök í ís- lenskri tónlistarflóru, en Rúnar segir að allt passi vel saman þó að menn komi hver úr sinni áttinni „og ég úr mjög gamalli átt“. „Þetta eru allt vel spilandi strákar og það kemur mjög góð músík úr þessu. Þannig finnst mér þessi plata ein sú besta sem ég hef gert frá því ég byrjaði í brans- anum, ég er í góðu formi til að syngja og það er tilfinning í henni sem hefur ekki verið áður.“ Ný tilfinning Morgunblaðið/RAX „Þetta er þannig bransi að maður verður að vera duglegur við að gera eitthvað nýtt“: Það þarf fólk eins og Rúna Júl. Rúnar Júlíusson gefur út Það þarf fólk eins og þig
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.