Morgunblaðið - 14.11.2002, Blaðsíða 14
FRÉTTIR
14 FIMMTUDAGUR 14. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
GUÐJÓN Jónsson, verkefnisstjóri
hjá VSÓ, segir það ekki hafa verið
upphaflegan ásetning fyrirtækisins
að fjalla í fjölmiðlum um atriði er
varða samningssamband fyrirtækis-
ins við Ragnhildi Sigurðardóttur. „En
vegna ummæla Ragnhildar í fjölmiðl-
um viljum við taka fram að VSÓ ráð-
gjöf ehf. tók að sér fyrir Landsvirkjun
að vinna matsskýrslu vegna mats á
umhverfisáhrifum Norðlingaöldu-
veitu en slíka skýrslu er lögboðið að
leggja fram hjá Skipulagsstofnun
vegna slíks mats. Ragnhildur Sigurð-
ardóttir var í nóvembermánuði 2000
ráðin af VSÓ Ráðgjöf ehf. til að gera
samantekt á rannsóknarniðurstöðum
úr rannsóknum sem unnar höfðu ver-
ið á svæði Norðlingaölduveitu. Ragn-
hildur var ekki ráðin til að fram-
kvæma rannsóknir fyrir VSÓ ráðgjöf
ehf. en hún var hins vegar aðstoðar-
maður verkefnisstjóra við afmarkaða
rannsókn á rústasvæðum Þjórsár-
vera er framkvæmd var af Náttúru-
fræðistofnun.“
Guðjón segir að þess misskilnings
virðist hafa gætt í fjölmiðlum að
Ragnhildur Sigurðardóttir hafi verið
einhvers konar sjálfstæður umsagn-
araðili um mat á umhverfisáhrifum
Norðlingaölduveitu. „Samkvæmt lög-
unum um umhverfisáhrif skal leita
umsagnar tiltekinna aðila um mats-
skýrslu en Ragnhildur er ekki þeirra
á meðal. Hlutverk Ragnhildar var því
að vera þátttakandi í því teymi sér-
fræðinga sem vann á vegum VSÓ ráð-
gjöf ehf. að gerð matsskýrslunnar.“
Staðið við samkomulag
Þá segir Guðjón að með samningi
við VSÓ ráðgjöf ehf. hafi Ragnhildur
framselt höfundarrétt að texta þeim
sem hún lét fyrirtækinu í hendur og
sem það hafi síðan með hliðsjón af
honum unnið áðurnefnda mats-
skýrslu fyrir Landsvirkjun. Fyrir-
tækið hafi staðfest í samningnum að
það myndi í hvívetna virða höfund-
arheiður Ragnhildar. „Í þessu skyni
var tiltekið að Ragnhildur skyldi fara
yfir matsskýrsluna með tilliti til þess
að henni séu ekki ranglega tileinkað-
ar skoðanir eða mat á einstökum efn-
isatriðum hennar. Við þetta sam-
komulag hefur fyllilega verið staðið.
Af því sem að framan er rakið er það
fjarri lagi að VSÓ ráðgjöf ehf. hafi á
nokkurn hátt skuldbundið sig til þess
að gera skoðanir Ragnhildar að sín-
um eða skuldbundið sig til þess að
leggja texta hennar fram sem hluta af
matsskýrslunni,“ segir Guðjón.
Ragnhildur ekki
ráðin til að fram-
kvæma rannsóknir
VSÓ Ráðgjöf ehf. hefur sent frá sér
tvær greinargerðir þar sem fjallað er
um samskipti fyrirtækisins við Þóru
Ellen Þórhallsdóttur og Gísla Má
Gíslason í tengslum við mat á um-
hverfisáhrifum Norðlingaölduveitu.
Þá mun VSÓ Ráðgjöf einnig hafa tek-
ið saman greinargerðir sem snúa að
Ragnhildi Sigurðardóttur vistfræð-
ingi og og Arnþóri Garðarssyni pró-
fessor og skilað til þingnefndanna
sem að málinu koma.
VSÓ Ráðgjöf hafnar alfarið ásök-
unum Þóru Ellenar Þórhallsdóttur og
Gísla Más Gíslasonar um að hafa
dregið úr hugsanlegum neikvæðum
umhverfisáhrifum framkvæmda við
Norðlingaölduveitu í umræddri mats-
skýrslu; við vinnslu skýrslunnar hafi í
einu og öllu verið farið að lögum og
reglum sem gilda um mat á umhverf-
isáhrifum.
Ákváðum að leggja öll
gögn á borðið
Guðjón Jónsson, verkefnisstjóri
VSÓ Ráðgjafar, segir að öll gögn séu
á borðinu þannig að málið snúist fyrst
og fremst um túlkanir þeirra sem
ákveða lokaniðurstöðurnar. „Með
birtingu greinargerðanna erum við
hreinlega að leggja allt á borðið þann-
ig að menn geti kynnt sér öll sam-
skipti sem áttu sér stað, menn hafi
alla meðhöndlunina og þá einnig með-
höndlun ágreiningsmála og svo þau
svör sem við gáfum innan kerfisins.
Við erum ófeimnir við að leggja þetta
allt fram.“
Guðjón segir að vegna þess um hve
alvarlegan áburð sem að ræða og í því
skyni að draga fram hið sanna í mál-
inu, hafi verið ákveðið að birta upplýs-
ingar um samskipti fyrirtækisins við
ofannefnda tvo vísindamenn í
tengslum við skýrsluna. Í annarri
greinargerðinni er fjallað um sam-
skipti fyrirtækisins við Þóru Ellen en
í hinni um samskipti þess við Gísla
Má. Guðjón segir að samskipti fyr-
irtækisins við Gísla Má Gíslason hafi
að miklu leyti falist í því að reyna að fá
hann til að skýra forsendur rann-
sókna, rökstyðja ályktanir og leið-
rétta misræmi og þegar drög að
matsskýrslu hafi legið fyrir hafi Gísli
Már fengið tækifæri til að gera at-
hugasemdir við þau. „Í greinargerð
okkar kemur skýrt fram að fjallað var
skipulega um óskir hans um viðbætur
í skýrslunni og ákveðið að hafna þeim
á grundvelli rökstuðnings.
Þóra Ellen gerði einnig athuga-
semdir við endanlega gerð umræddr-
ar skýrslu í matsferlinu. Taldi hún að
tilteknar upplýsingar vantaði í skýrsl-
una og að ýmsar rangfærslur væru í
henni. Í greinargerð okkar um sam-
skipti hennar og VSÓ Ráðgjafar kem-
ur fram að athugasemdir hennar voru
afgreiddar skipulega og þeim hafnað
með rökum, segir Guðjón.“
Greinargerðir VSÓ Ráðgjafar má
lesa í heild sinni með því að fara inn á
mbl.is.
VSÓ hafnar alfarið
ásökunum Gísla Más
og Þóru Ellenar
Leggja öll gögn málsins á borðið með birtingu ýtarlegra
greinargerða um samskipti VSÓ og vísindamannanna
KONUR sem hafa sótt námskeiðið
Fjármálaauður á vegum Auðar í
krafti kvenna segjast skilja fjár-
málafréttir og umræðu um við-
skiptaheiminn betur en áður, að
sögn Þorbjargar Vigfúsdóttur,
verkefnastjóra Auðar í krafti
kvenna. Sautján slík námskeið hafa
verið frá því Auðarverkefnið hófst
fyrir tæpum þremur árum og alls
hafa 850 konur sótt námskeiðið. 85
konur sitja nú síðasta námskeiðið.
Á námskeiðinu, sem er kennt í
Háskólanum í Reykjavík, er m.a.
fjallað um hlutabréfamarkaðinn,
skatta- og lífeyriskerfið. „Við verð-
um sérstaklega vör við að konur
sem hafa setið námskeiðin segist
ekki vera hræddar við hugtökin
lengur, þær taki þátt í umræðum
um fjármál og skilji umræðuna bet-
ur,“ segir Þorbjörg.
Einnig hafa verið haldin nám-
skeið fyrir konur sem hafa hug-
mynd að rekstri og vilja láta til sín
taka í atvinnulífinu. Nefnast þau
Frumkvöðlaauður og sitja 26 konur
með 14 hugmyndir að rekstri nú
síðasta námskeiðið. Alls hafa 160
konur sótt þau námskeið á síðustu
þremur árum.
Þorbjörg segir að verkefnið Auð-
ur í krafti kvenna hafi verið hugsað
til þriggja ára, því ljúki í janúar
næstkomandi. „Það stendur ekki til
að framlengja það. Auður fer ekk-
ert endilega í gröfina, en leggst í
dvala,“ segir Þorbjörg.
850 konur hafa sótt námskeiðið
Fjármálaauður
Auður fer ekki í gröfina
en leggst í dvala
Morgunblaðið/Jim Smart
LÖGREGLAN í Vestmanna-
eyjum lagði hald á 110 grömm
af hassi á þriðjudag með aðstoð
fíkniefnaleitarhundsins Tönju.
Hassið fannst í farangri karl-
manns sem kom til Eyja með
Herjólfi á þriðjudag.
Var hann handtekinn og
færður til yfirheyrslu. Maður-
inn játaði að eiga hassið og við-
urkenndi að hafa ætlað að selja
það í Eyjum.
Telst málið því að mestu
upplýst, en er til rannsóknar
hjá lögreglunni og verður tekið
til áframhaldandi meðferðar
hjá sýslumanni að lokinni rann-
sókn.
Hasssölumaður
stöðvaður í Eyjum