Morgunblaðið - 14.11.2002, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 14.11.2002, Blaðsíða 12
FRÉTTIR 12 FIMMTUDAGUR 14. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ LAGT er til í bréfi Páls Skúlasonar, rektors Háskóla Íslands, til mennta- málaráðherra, að gerður verði í lög- um um skóla á háskólastigi mun skýrari greinarmunur á rannsókna- háskólum og öðrum háskólum, eins og greint var frá í Morgunblaðinu í gær. Haft var eftir Páli að HÍ væri í raun eini eiginlegi rannsóknahá- skólinn og væru fjárframlög til hans miðuð við það, þótt rannsóknir væru einnig stundaðar t.d. í Háskólanum á Akureyri og Kennaraháskóla Ís- lands. Morgunblaðið leitaði í gær við- bragða rektora nokkurra annarra háskóla við þessum tillögum. Kemur spánskt fyrir sjónir „Þetta kemur okkur nokkuð spánskt fyrir sjónir,“ segir Runólfur Ágústsson, rektor Viðskiptaháskól- ans á Bifröst. „Það eru ekki nema rúm þrjú ár síðan aðferðir hins op- inbera við að útdeila fjármagni til há- skóla voru endurskoðaðar hjá menntamálaráðuneytinu, eftir tillög- um Háskóla Íslands. Það má því segja að Háskóli Íslands sé aðalhöf- undur núgildandi kerfis. Sú breyting hafði á sínum tíma þær afleiðingar fyrir okkur hér á Bifröst, að framlög ríkisins hafa lækkað um helming á hvern nemanda á þessum tíma. Við tókum þann kost að lúta þessum reglum og áttum ekki annarra kosta völ en að taka til í okkar rekstri og ná fram aukinni hagkvæmni, meðal annars með nokkurri fjölgun nem- enda og hækkun skólagjalda og bæta okkur þetta upp með þeim hætti. Að reka lítinn og framsækinn háskóla uppi í Norðurárdal kostar einfaldlega miklu meira á hvern nemanda en að reka Háskóla Ís- lands, með allan þann fjölda nem- enda sem þar er,“ segir Runólfur. Hann segir að heildarframlag rík- isins til Háskóla Íslands á hvern nemanda sé um það bil tvöfalt á við framlag ríkisins til Viðskiptaháskól- ans á Bifröst. „Að halda því fram að Háskóli Íslands standi höllum fæti í samkeppni gagnvart okkur, vegna þess að reglur um útdeilingu á fjár- magni frá ríkinu til háskóla séu óréttlátar, kemur úr hörðustu átt.“ Hann segir það einnig algjörlega fráleitan málflutning að leggja til að gerður verði greinarmunur á rann- sóknaháskólum og öðrum háskólum. „Það er ekki með nokkru móti hægt að skilja rannsóknastarfsemi frá kennslu í háskólum. Þessir tveir þættir fara algjörlega saman og allir háskólar sem vilja standa undir nafni hljóta að þurfa að sinna rannsókn- um. Háskóli Íslands hefur hins vegar á undanförnum árum setið nánast einn að framlagi ríkisins til rann- sókna. Við erum að stórefla þann þátt í starfi okkar og ná þar veruleg- um árangri og höfum auðvitað farið fram á að framlög ríkisins til okkar að þessu leyti verði hækkuð í fram- tíðinni,“ segir Runólfur. Rannsóknir samofnar „Háskólar skera sig frá öðrum menntastofnunum vegna þess að þar er lögð áhersla á rannsóknastarf- semi og þekkingarleit, ásamt þekk- ingarmiðlun, sem er aðalverkefni allra skóla,“ segir Guðfinna S. Bjarnadóttir, rektor Háskólans í Reykjavík. „Að mínu viti snýst háskólastarf- semi um að þróa hugmyndir og stuðla að þekkingaröflun, gjarnan í samstarfi vísindamanna víða um heim, og þannig vinnum við. Þess vegna vísa ég á bug allri umræðu um að háskólum sé hægt að raða í rann- sóknaháskóla og kennsluháskóla. Það hefur alltaf verið minn skilning- ur að rannsóknastarfsemi sé samofin starfsemi allra háskóla, annars eru þeir ekki þess verðir að starfa sem háskólar. Þetta vita allir sem láta sér annt um háskólamenntun. Þetta eru hreinar línur. Þess vegna skil ég ekki hvað Háskóli Íslands er að fara.“ „Mér fannst mjög sorglegt að lesa fréttina um þessar tillögur og tel að þar sé kröftum Háskóla Íslands beint á rangar brautir. Svona skot- grafahernaður er háskólamenntun á Íslandi alls ekki til framdráttar. Mér er í raun alveg sérlega misboðið fyrir hönd þeirra stúdenta og starfs- manna sem hér starfa,“ bætir Guð- finna við. Ákvarða þarf skilyrði „Það þarf auðvitað að komast að samkomulagi um hvaða skilyrði há- skólar þurfi að uppfylla til að fá fjár- magn til rannsókna. Ég er alveg sammála því,“ segir Þorsteinn Gunn- arsson, rektor Háskólans á Akur- eyri. „Hitt er svo annað mál að við þurfum líka að líta á þetta í alþjóð- legu samhengi og með fullri virðingu fyrir Háskóla Íslands er ég ekki viss um að hann myndi teljast til rann- sóknaháskóla á alþjóðamælikvarða. Ég vil heldur líta svo á að háskólar á Íslandi séu á þeirri leið að verða rannsóknaháskólar og má alveg við- urkenna að Háskóli Íslands er kom- inn lengst á þeirri leið. Hitt er svo annað mál að aðrir háskólar eru líka á þeirri leið. Þetta ferli er í mikilli þróun og ég er ekki fylgjandi því að ákveðið sé með lögum á Alþingi að það sé rannsóknaháskóli á Íslandi. Það yrði ankannalegt, bæði frá al- þjóðlegum sjónarhóli og líka hér inn- anlands,“ segir Þorsteinn. Stríðsyfirlýsing Hjálmar H. Ragnarsson, rektor Listaháskóla Íslands, segist ekki hafa séð tillögur nefndarinnar held- ur eingöngu lesið um þær í frétt Morgunblaðsins í gær. „Eins og þetta kemur þar fram er þetta ekk- ert annað en stríðsyfirlýsing,“ segir hann. „Ég veit ekki til þess að það standi til að endurskoða lögin. Það kemur mér því á óvart að þau skuli vera til endurskoðunar,“ segir hann ennfremur. „Samkvæmt þessu er Háskóli Íslands að leggja fram til- lögur um að aðrir skólar en hann sjálfur geti ekki stundað rannsóknir. Listaháskólanum er skylt að vinna að listsköpun, sem er sambærileg við rannsóknir. Háskólar sem stunda ekki rannsóknir geta varla staðið undir nafni,“ segir Hjálmar. Þarf betri skilgreiningu Ólafur Proppé, rektor Kennarahá- skóla Íslands, segist vera alveg sam- mála því að skilgreina þurfi betur há- skólastigið og háskólahugtakið. Einnig þurfi að vinna betur að því að koma á fót einhverri ytri viðmiðun um hvaða kröfur séu gerðar til há- skóla áður en þeim er veitt heimild til að bjóða upp á t.d. meistaranám og doktorsnám. Að mati Ólafs er það nokkur ein- földun að ræða um rannsóknahá- skóla annars vegar og kennsluhá- skóla hins vegar. „Ég er ekki sammála því að Háskóli Íslands sé eini rannsóknaháskólinn,“ segir hann, og bendir á að t.d. séu bæði Kennaraháskóli Íslands, sem verið hefur háskóli allt frá 1971, og Há- skólinn á Akureyri rannsóknahá- skólar. „Vinnuskylda háskólakenn- ara við Kennaraháskólann er til dæmis skilgreind á nákvæmlega sama hátt og við Háskóla Íslands, þ.e.a.s. 43% af ársvinnu þeirra eiga að fara í rannsóknir,“ segir Ólafur. Hann bætir því við að Háskóli Ís- lands sé auðvitað flaggskipið, með lengsta sögu að baki og þar sem stærstur hluti rannsókna sé stund- aður. Þar sé líka að finna digrustu rannsóknasjóðina auk þess sem HÍ sé eini háskólinn sem kominn er með rammasamning um rannsóknastarf- semina við ríkið. En það liggi einnig fyrir yfirlýsingar af hálfu stjórn- valda og Kennaraháskólans um að slíkum samningi verði komið á. Ólafur segir um þá tillögu nefnd- arinnar, að háskólarnir sitji við sama borð hvað rekstrarskilyrði varðar, að hann telji það eðlilegt ef skólarnir eigi að starfa á samkeppnisgrund- velli. „En það er hægt að hugsa sér það á marga vegu. Ein leiðin er sú að ríkisháskólarnir verði sjálfseignar- stofnanir og yrðu þá meira sjálfráðar um sín mál,“ segir Ólafur og bendir á að umræða hafi farið fram bæði hér á landi sem á öðrum Norðurlöndum um hvort taka eigi upp skólagjöld í ríkisháskólum. „Ég hef haldið því fram að það sé ekkert víst að þetta kerfi sem hér hefur verið, að hafa nánast engin skólagjöld, sé það lýðræðislegasta. En það þýðir ekki að tala um þetta öðruvísi en að ræða um þetta í heild og þá verður um leið að skoða náms- lánakerfið og endurgreiðslur náms- lána ef lánað er fyrir skólagjöldum, sem er reyndar gert nú þegar. Við vitum að aðeins um helmingur af framlagi ríkisins til námslána skilar sér aftur, m.a. vegna þess að vextir eru niðurgreiddir, en þá þyrfti líka að breyta þessu þannig að endur- greiðslurnar væru í takt við raun- verulega afkomu fólks.“ Háskólarektorar gagnrýna harðlega tillögur HÍ um breytingu á lögum um skóla á háskólastigi Fráleitt að aðgreina háskóla Tillögur nefndar sem fram koma í bréfi Páls Skúlasonar, rektors Háskóla Íslands, til menntamálaráðherra um breytingar á lögum um skóla á há- skólastigi mælast mjög misjafnlega fyrir hjá rektorum annarra háskóla sem rætt var við í gær. Nokkrir viðmælenda blaðsins gagnrýna harðlega hug- myndir um að gera greinarmun á rannsóknaháskólum og öðrum háskólum. „Sammála því að skilgreina þurfi betur háskólastigið og háskóla- hugtakið.“ „Ekki hægt að skilja rannsókna- starfsemi frá kennslu í háskólum.“ „Sérlega misboðið fyrir hönd stúdenta og starfsmanna við HR.“ „Háskólar sem stunda ekki rann- sóknir geta varla staðið undir nafni.“ ÞORSTEINN GUNNARSSON „Háskólar á Íslandi eru á þeirri leið að verða rann- sóknahá- skólar.“ ÓLAFUR PROPPÉ RUNÓLFUR ÁGÚSTSSON GUÐFINNA BJARNADÓTTIR HJÁLMAR H. RAGNARSSON PRÓFKJÖR Framsóknarflokks í Norðvesturkjördæmi verður haldið á kjördæmisþingi á Laugum í Sælings- dal í Dalasýslu næstkomandi laugar- dag. Frambjóðendur eru 13. Þeir sem gefa kost á sér eru: Kristinn H. Gunnarsson alþingis- maður, Páll Pétursson félagsmálaráð- herra, Ragna Ívarsdóttir bóndi, Árni Gunnarsson framkvæmdastjóri, Her- dís Á. Sæmundardóttir framhalds- skólakennari, Elín R. Líndal bóndi, Magnús Stefánsson alþingismaður, Þorvaldur T. Jónsson bóndi, Ingi Björn Árnason nemi, Birkir Þór Guð- mundsson framkvæmdastjóri, Eydís Líndal Finnbogadóttir jarðfræðing- ur, Albertína Elíasdóttir háskólanemi og Egill Heiðar Gíslason aðstoðar- maður ráðherra. Að sögn Sigurðar Eyþórssonar, skrifstofustjóra flokksskrifstofu Framsóknarflokksins, hafa 480 manns hafa atkvæðisrétt á þinginu sem hefst klukkan tíu á laugardags- morgun. Frambjóðend- ur 13 talsins Prófkjör Framsóknar- flokks í NV-kjördæmi BORGÞÓR H. Jóns- son veðurfræðingur lést á Landspítala – háskólasjúkrahúsi við Hringbraut 12. nóvem- ber síðastliðinn, 78 ára að aldri. Borgþór fæddist í Vestmannaeyjum 10. apríl árið 1924. For- eldrar hans voru Sig- ríður Bjarnadóttir húsmóðir og Jón Haf- liðason sjómaður. Hann lauk stúdents- prófi frá Menntaskól- anum í Reykjavík árið 1945 og stundaði nám við verk- fræðideild Háskóla Íslands 1945–46. Árið 1948 lauk hann prófi í veð- urfræði frá Sveriges Meteorolog- iska och Hydrologiska Institut (SMHI) í Stokkhólmi og framhalds- námi við sama skóla árið 1963. Þá sótti hann fyrirlestra hjá Alþjóða- flugmálastofnuninni (ICAO) og Al- þjóðaveðurfræðistofnuninni (WMO). Borgþór starfaði sem veðurfræð- ingur hjá Veðurstofu Íslands í Reykjavík 1948 til 1952 og hjá Veðurstofu Íslands á Keflavíkur- flugvelli 1952 til 1979 og deildarstjóri frá 1963 þar til hann lét af störfum árið 1994. Um árabil kenndi hann einnig verðandi flug- umferðarstjórum veð- urfræði hjá Flugmála- stjórn. Eftir hann liggja fjölmargar greinar í blöðum, tímaritum og bókum um veðurfræði og önnur skyld efni. Á árunum 1970–75 hélt hann vikuleg erindi um veðurfræði o.fl. í ríkisút- varpinu. Og um 20 ára skeið, frá 1978 til 1998, flutti hann veðurspár í sjónvarpi. Borgþór hlaut afmælismerki Al- þjóðaveðurfræðistofnunarinnar 1950 til 1990 sem viðurkenningu fyrir störf hjá Veðurstofu Íslands. Eftirlifandi eiginkona hans er Rannveig Árnadóttir húsmóðir og eignuðust þau eina dóttur, Ernu. Andlát BORGÞÓR H. JÓNSSON FÓLKSBÍL var ekið undir stóran tengivagn til móts við bæinn Vagli í Eyja- fjarðarsveit laust upp úr klukkan 18 í gærkvöldi. Slysið varð með þeim hætti að ökumaður dráttarbíls með tengivagn var að bakka út af veginum og stóð tengivagninn þvert á akstursstefnu fólksbílsins sem var á norð- urleið, með þeim afleiðingum að hann ók á tengivagninn. Kona sem var farþegi í bílnum slasaðist, en meiðsl hennar eru ekki talin alvarleg. Maður hennar og þrjú börn sluppu ómeidd og að sögn lögreglu skipti þar mestu að allir voru í bílbeltum og börnin í bílstól og á bílpúða. Tveir sjúkrabílar frá slökkviliði Akureyrar og lögregla fóru á staðinn. Morgunblaðið/Kristján Fólksbíll ók á tengivagn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.