Morgunblaðið - 14.11.2002, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 14.11.2002, Blaðsíða 23
SUÐURNES MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. NÓVEMBER 2002 23                                                                       !                  "            #       FRÉTTATILKYNNING OG TIL LÖGBIRTINGAR INSURANCE COMPANIES ACT 1982 (BRESK LÖG UM TRYGGINGAFYRIRTÆKI, 1982) AEGON INSURANCE COMPANY (U.K.) LIMITED TILFÆRSLA ALMENNRA VIÐSKIPTA 1. TILKYNNT ER HÉR MEÐ að Financial Services Author- ity hefur þann 25. júní 2002 samþykkt, samkvæmt grein 9(2) í viðauka 2C við Insurance Companies Act 1982, færslu frá AEGON Insurance Company (U.K.) Limited (áður þekkt undir nöfnunum Coronet Insurance Company Limited, Triumph Insurance Company Limited, og Ennia Insurance Company (U.K.) Limited) (fyrirtækiskennitala: 866262) til Guardian Assurance plc (fyrirtækiskennitala: 00038921) á öllum réttindum og skuldbindingum þess sem lúta að tryggingarskírteinum sem gefin voru út fyrir 9. febrúar 1997, að undanteknum þeim samningum sem mynda viðskipti sem eftirlitsaðilar í Kanada og Bandaríkjunum hafa heimilað. 2. Skjal sem gengur formlega frá færslunni var samþykkt af báðum aðilum þann 30. september 2002. 3. Financial Services Authority segir svo til um að sérhver skírteinishafi AEGON Insurance Company (U.K.) Limited með skírteini sem innifalið er í þessari færslu skuli bund- inn þessari samþykkt (og að auki að þessi tilkynning full- nægi lögmætri tilkynningaskyldu samkvæmt grein 10(3) í viðauka 2C við Insurance Companies Act 1982). „ÉG hef sungið svolítið heima í Garðinum, til dæmis á árshátíðum í skólanum og 17. júní,“ segir Kristín Magnúsdóttir sem sigraði í Hljóð- nemanum, söngvakeppni Nemenda- félags Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Með sigrinum hefur hún unnið sér rétt til að taka þátt í Söngvakeppni framhaldsskólanna. Kristín segist ekki hafa langt söngnám að baki, hún hafi stundað söngnám í hálft ár. Hins vegar sé hún á sjöunda árinu í tónlistarnámi þar sem hún leiki á klarinett. Telur hún að tónlistarkunnáttan hafi hjálpað sér í keppninni. Söngvakeppnin fór fram í félags- heimilinu Stapa og keppti tugur flytjenda um Hljóðnemann. Kristín söng lagið Sound of Silence en það gerðu Simon og Garfunkel frægt á sínum tíma. Kristín segist aftur á móti hafa notað sömu útsetningu og Emilíana Torrini í söngleik. Dóm- nefnd undir forystu Árna Sigfússon- ar, bæjarstjóra Reykjanesbæjar, út- nefndi Kristínu sigurvegara keppninnar. Kristín er á fyrsta ári í fjölbrauta- skólanum og er aðeins fimmtán ára. Hún er því ári á undan í skóla. „Ég ákvað að taka samræmdu prófin einu ári fyrr og það gekk ágætlega. Ég skipti úr níunda í tíundan bekk um áramótin. Það var erfitt fyrst, á meðan ég var að ná upp námsefninu, en gekk svo vel,“ segir Kristín. Hún er á málabraut og námið gengur bara vel, eins og hún sjálf orðar það, enda segist hún ákveðin í að læra það sem hún hafi mestan áhuga á, bókmenntir og tungumál. Hún segist stefna að því að fara í há- skóla í Englandi og læra bókmenntir og auka við sig í tungumálum, en tekur fram að slík áform geti auð- veldlega breyst á þeim árum sem eftir eru til stúdentsprófs. Óska- starfið er eins og er að þýða bækur. Kristín er ekki við eina fjölina felld í keppni innan Fjölbrautaskóla Suðurnesja því hún er einnig þátt- takandi í æfingahópi fyrir spurn- ingakeppnina Gettu betur. Hún seg- ir að gaman sé að taka þátt í þessum undirbúningi, kanna þekkingu sína og auka við hana, ef tími vinnist til, þótt engan veginn sé víst að hún komist í keppnisliðið. Fimmtán ára sigur- vegari í Hljóðnem- anum Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Kristín Magnúsdóttir við sjóinn heima í Garði. Hún sigraði í Hljóðnemanum og er í æfingahópi fyrir Gettu betur. Garður SKEMMTUN verður haldin í Frum- leikhúsinu í Keflavík í dag í tilefni af degi íslenskrar tungu. Elstu börn- in í leikskólum Reykjanesbæjar koma saman og skemmta hvert öðru og gestum. Skemmtunin verður klukkan 10 og aftur klukkan 14. Í DAG MÁLÞING um tómstundir verður haldið í Selinu að Vallarbraut 4 í Njarðvík næstkomandi sunnudag, klukkan 13.30 til 16. Tómstundabandalag Reykjanes- bæjar (TRB) og íþrótta- og tóm- stundadeild bæjarins boða til mál- þingsins. Árni Sigfússon bæjarstjóri setur þingið. Fulltrúar Reykjanesbæjar, Tóm- stundabandalagsins, menntamála- ráðuneytis og ÍBR í Reykjavík hafa framsögu um stöðu og framtíð tóm- stundafélaga, ekki síst hins nýstofn- aða Tómstundabandalags í Reykja- nesbæ. Einnig verður greint frá stefnu Reykjanesbæjar í þessum málum. Á eftir verða almennar um- ræður. Málþing um tómstundir Reykjanesbær SIGNÝ Sæmundsdóttir sópransöng- kona og Þóra Fríða Sæmundsdóttir píanóleikari flytja verk eftir ýmis tónskáld á tónleikum sem haldnir verða í Ytri-Njarðvíkurkirkju á morgun, föstudag, klukkan 20.30. Meðal verka sem listamennirnir flytja er hið þekkta lag O lieb so lang du leben kannst eftir Liszt og ljóð Goethes við tónlist eftir Hugo Wolf. Tónleikar þessir eru í röð lands- byggðartónleika á vegum Félags ís- lenskra tónlistarmanna sem styrktir eru af menntamálaráðuneytinu en menningar- og safnaráð Reykjanes- bæjar og Tónlistarskóli Reykjanes- bæjar hafa gengið til samstarfs við þessa aðila með það fyrir augum að fá til bæjarins fleiri tónleika. Signý og Þóra Fríða á tónleikum Njarðvík ÖLDUNGARÁÐ Fjölbrautaskóla Suðurnesja hefur afhent skólanum formlega að gjöf þrjú sjónvarps- tæki með tölvutengingu. Öld- ungaráðið hafði gefið vilyrði fyrir tækjunum við útskrift sl. vor en ekki voru fest kaup á tækjunum fyrr en nú. Það var Oddný J.B. Mattadóttir, formaður öldungaráðs FS, sem af- henti gjöfina og gjafabréf, sem hún sagðist vona að fengi að hanga á góðum stað í skólanum. Oddný Harðardóttir, aðstoðarskólameist- ari sem jafnframt er umsjón- armaður öldungadeildar skólans, og Ólafur Jón Arnbjörnsson skóla- meistari tóku við gjöfinni og sagði Ólafur Jón við það tækifæri að sjón- varpstækin væru mjög mikilvæg fyrir skólann að ekki væri minnst á hversu höfðingleg gjöf þetta væri frá nemendum sem enn væru að nema við skólann. Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir Oddný J.B. Mattadóttir, formaður öldungaráðs fjölbrautaskólans, afhendir Oddnýju Harðardóttur og Ólafi Jóni Arnbjörnssyni gjöfina. Mikilvæg tæki að gjöf Keflavík HREPPSNEFNDARMENN í Vogum hafa áhyggjur af tíðum brunum í sveitarfélaginu síðustu mánuði, eldsvoðum sem taldir eru hafa verið af völdum barna. Hreppsnefnd hefur samþykkt samhljóða að vekja athygli for- eldra á mikilvægi þess að þau upp- lýsi börn sín um að þau eigi ekki að hafa eldfæri í fórum sínum og um þær hættur sem eru samfara því að fikta með eld. Jafnframt beinir hreppsnefnd þeim tilmælum til eldvarnaeftirlits Brunavarna Suðurnesja og lög- reglu að þessir aðilar standi fyrir fræðslufundi fyrir nemendur Stóru-Vogaskóla um alvarleika málsins. Áhyggjur af tíðum brunum Vogar ♦ ♦ ♦ VERÐMÆTUM myndavélum var stolið úr bláum RAV4 smájeppa á mánudagsmorgunn, milli klukkan 6 og 9 um morguninn. Bíllinn stóð þá utan við verslunarhús Samkaupa í Njarðvík. Afturrúða bílsins var brotin með grjóti. Lögreglan í Keflavík biður þá sem kunna að geta gefið upplýsingar um málið að hafa samband. Myndavélum stolið úr bíl Njarðvík ♦ ♦ ♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.