Morgunblaðið - 14.11.2002, Blaðsíða 8
FRÉTTIR
8 FIMMTUDAGUR 14. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Ráðstefna um heilbrigðisnetið
Tengir saman
alla aðila
RÁÐSTEFNA sember yfirskriftinaÍslenska heilbrigð-
isnetið verður haldin í
Salnum í Kópavogi í dag,
fimmtudaginn 14. nóvem-
ber, klukkan 13 til 17. Ráð-
stefnan er haldin á vegum
heilbrigðis- og trygginga-
málaráðuneytisins og er
Ingimar Einarsson, skrif-
stofustjóri og formaður
verkefnisstjórnar heil-
brigðisnetsins, í forsvari
fyrir henni og svaraði hann
nokkrum spurningum
Morgunblaðsins.
– Hver er aðdragand-
inn?
„Undanfarin misseri
hafa kjaramál heilbrigðis-
stétta, rekstrarörðugleikar
heilbrigðisstofnana og
vandamál heilsugæslunnar og
öldrunarþjónustunnar verið mest
áberandi í umræðum um heil-
brigðismál. Það vill hins vegar oft
gleymast að á sama tíma hafa heil-
brigðisyfirvöld verið að vinna að
langtíma stefnumótun og áætlana-
gerð.“
– Hvaða mál eru það?
„Ég get nefnt Heilbrigðisáætl-
un til 2010, einnig skýrslu um for-
gangsröðun í heilbrigðisþjónustu,
stefnumótun í upplýsingamálum
heilbrigðiskerfisins, gæðaáætlun
heilbrigðis- og tryggingamála-
ráðuneytisins, áætlun um upp-
byggingu heilbrigðistölfræði,
áætlun um uppbyggingu öldrun-
arþjónustu o.fl.
Fjölmörg verkefni sem grund-
völluð eru á ofangreindri stefnu-
mörkun eru nú í gangi á vegum
ráðuneytisins eða annarra aðila.
Upplýsingar um þá vinnu ná
sjaldnast eyrum fjölmiðla og al-
mennings og einnig er upplýsinga-
miðlun til starfsmanna heilbrigð-
isþjónustunnar oft takmörkuð.
Heilbrigðis- og tryggingamála-
ráðuneytið hefur nú ákveðið að
gera átak í að kynna verkefni sem
unnið er að í ráðuneytinu eða á
vegum þess.“
– Þá komum við væntanlega að
yfirskrift ráðstefnunnar?
„Já, uppbygging Íslenska heil-
brigðisnetsins er stærsta verkefn-
ið á sviði upplýsingamála heil-
brigðiskerfisins. Það er því vel við
hæfi að það sé fyrsta viðfangsefnið
í röð ráðstefna og kynningarfunda
um heilbrigðismál á vegum ráðu-
neytisins.“
– Hvað er Íslenska heilbrigðis-
netið?
„Heilbrigðisnetið mun tengja
saman alla þá aðila sem koma að
heilbrigðisþjónustu í landinu.
Heilbrigðisnetinu er ætlað að vera
farvegur fyrir rafræn samskipti
innan heilbrigðisþjónustunnar.
Tæknilega samanstendur heil-
brigðisnetið af tölvum, fjarskipta-
og hugbúnaði ásamt samskipta- og
öryggisreglum.“
– Duga fjórar klukkustundir
fyrir svo viðamikið efni?
„Þessi ráðstefna er meira kynn-
ing á þeirri vinnu sem
fram hefur farið og
framundan er heldur
en tæmandi útlistun á
fyrirbærinu sem slíku.
En efnið er vissulega
viðamikið eins og þú bendir á. Við
höfum fengið einvalalið fyrirlesara
sem flytja erindi eftir ákveðinni
uppröðun sem tengist efnistökum
þeim sem beitt hefur verið. Þetta
eru þrír meginmálaflokkar. Fyrst
má segja að ég sjálfur og Þorgeir
Pálsson flytjum inngangserindi. Í
erindi mínu fjalla ég um þær
breytingar sem orðið hafa á heil-
brigðisþjónustunni á síðustu 50 til
100 árum. Mun ég sérstaklega
beina augunum að þeim möguleik-
um sem upplýsingatæknin býður
upp á í upplýsingavæðingu heil-
brigðiskerfisins í byrjun nýrrar
aldar. Þorgeir, sem er verkefnis-
stjóri heilbrigðisnetsins og sviðs-
stjóri á Landspítalanum, mun
fjalla um öryggisreglur Netsins.
Annar málaflokkur gæti kallast
Hvaða möguleikar opnast. Þar
taka til máls þrír einstaklingar,
Baldur Johnsen, sviðsstjóri upp-
lýsingatæknisviðs Landspítala –
háskólasjúkrahúss, Benedikt
Benediktsson tölvunarfræðingur
og Hermann Ólafsson, forstöðu-
maður hjá Tryggingastofnun rík-
isins. Baldur mun gera grein fyrir
framtíðarsýn heilbrigðisnetsins
næstu 5 til 15 árin, Benedikt mun
gera grein fyrir verkefnum heil-
brigðisnetsins og Hermann mun
fjalla um rafræna lyfseðla.
Þriðji málaflokkurinn gæti kall-
ast Áhrif á störf heilbrigðisstarfs-
fólks, en þar taka til máls Frið-
finnur Hermannsson,
framkvæmdastjóri Heilbrigðis-
stofnunar Þingeyinga, Þorvaldur
Ingvarsson, lækningaforstjóri
FSA, Jóhann Heiðar Jóhannsson,
læknir á Landspítala – háskóla-
sjúkrahúsi, Lilja Þorsteinsdóttir
hjúkrunarfræðingur og Sigurður
Helgason, heilsugæslulæknir og
verkefnisstjóri klínískra leiðbein-
inga. Friðfinnur mun fjalla um
málið frá sjónarhóli stjórnandans,
Þorvaldur fjallar um
nýtingu upplýsinga-
tækni til þess að bæta
heilbrigðisþjónustuna,
Jóhann Heiðar veltir
fyrir sér hvaða áhrif
heilbrigðisnetið kemur til með að
hafa á störf lækna í framtíðinni,
Lilja heldur því fram að störf
hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra
geti orðið árangursríkari og Sig-
urður mun loks fjalla um ávinning-
inn af auknu aðgengi að upplýs-
ingum og sýna með dæmum
hvernig hægt er að leita eftir upp-
lýsingum um heilbrigðismál á
Netinu.“
Ingimar Einarsson
Ingimar Einarsson er fæddur í
Reykjavík árið 1949. Lauk BA-
prófi í stjórnmálafræði frá HÍ
1974, MSS-prófi í félagsvísindum
frá Uppsalaháskóla 1980 og
doktorsprófi frá sama skóla
1987. Starfaði við Landlækn-
isembættið, síðar ráðgjafi Nor-
rænu ráðherranefndarinnar og
Norðurlandaráðs í heilbrigðis-
og félagsmálum 1985–95. Síð-
ustu árin hefur hann verið skrif-
stofustjóri áætlana- og þróun-
arskrifstofu heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytisins. Er
giftur Stefaníu Snævarr kennara
og eiga þau tvö uppkomin börn.
… ná sjaldn-
ast eyrum
fjölmiðla
Nei, nei, þetta er ekki málverkasýning, Nonni minn. Ráðherrann er að reyna að pranga út
1. stk. banka.