Morgunblaðið - 26.11.2002, Blaðsíða 2
FRÉTTIR
2 ÞRIÐJUDAGUR 26. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Milljarður til LSH
Um einn milljarður króna til
greiðslu uppsafnaðs rekstrarhalla
Landspítala – háskólasjúkrahúss
(LSH) er langstærsti útgjaldalið-
urinn í 3,3 milljarða króna hækkun
gjaldaliðs frumvarps til fjár-
aukalaga, samkvæmt breyting-
artillögum fjárlaganefndar.
Steikin ódýrari
Matvörukaupmenn segja að jóla-
steikin í ár verði þriðjungi ódýrari
en í fyrra. Sumir þeirra óttast þó að
þetta bitni á gæðunum.
Íslensk í öðru sæti
Níu ára íslensk söngkona, Hall-
dóra Baldvinsdóttir, varð í öðru sæti
í söngvakeppni barna í Bologna á
Ítalíu um helgina. „Þetta var mjög
gaman og margir sem hlustuðu á
okkur,“ sagði Halldóra.
Háskalegar sprautur
Þrjátíu af hundraði bólusetninga í
Kína eru háskalegar vegna end-
urnýtingar á sprautunálum og
ónógrar sótthreinsunar, segja sér-
fræðingar alþjóðastofnana. Eykur
þetta útbreiðslu sjúkdóma á borð við
lifrarbólgu B og alnæmi.
Uppsagnir hjá Heklu
Þrjátíu og þremur starfsmönnum
Heklu verður sagt upp og fasteignir
seldar. Eru þetta liðir í skipulags-
breytingum hjá fyrirtækinu. Verða
starfsmenn þá 150 en hafa verið 183.
Kanslarinn vann
Þjóðarflokkur Wolfgangs Schüss-
els, kanslara Austurríkis, vann af-
gerandi sigur í þingkosningum í
landinu á sunnudaginn. Þótt Frels-
isflokkur Jörgs Haiders hafi goldið
afhroð er líklegt að hann verði áfram
í stjórn.
Sjúkraflutningaskóli FSA
Samið hefur verið um að Fjórð-
ungssjúkrahúsið á Akureyri, FSA,
komi á fót og annist rekstur sjúkra-
flutningaskóla. Rauði kross Íslands
hefur hingað til annast menntun
sjúkraflutningafólks.
Þriðjudagur
26. nóvember 2002
Prentsmiðja
Morgunblaðsinsblað C
Þúsundir fasteigna af öllum stærðum og öllum gerðum alls staðar á landinu
Nýbyggingar
við
Kristnibraut
Glæsileg
lyftuhús 11
Nýjar
íbúðirí
vesturbæ
Gömul
iðngrein
ogný
Mikið
útsýni 26 Söðlasmíði 34
!" # $
%
& " ' ( ' "
! #
' ' " " $$ & " % (
! #& ' ' " " $
&" % (
)
*
'
*
+,- .
+,- .
" % ' ( ' " " ! # $
&
!
"#$
%"$!%&&%
01*2 *
# 2
'3
456
-27
8
3
,
9
#
:*;
'
:*;
(*1
:*;
'
:*;
'
-. % *
<
2 . ===
< 2> ?@@ A
/
/
! "#
()
2> ? A "&"
&
%
*"
"+
,
&
"-&
%$"%%
"*.*
"-
",,."
""."
@@
/! 0
! $ "1$
%2$$%&&%
8 *
+
%
$ !$
$ $
Verð
við allra hæfi
UMFERÐ um Suðurlandsveg hefur
vaxið gríðarlega á undanförnum ár-
um og nú er svo komið, að vel á sjötta
þúsund bílar fara þar um daglega.
Árið 1991 voru þeir að meðaltali
3.643 á sólarhring, árið þar á eftir
voru þeir 3.998 og í fyrra voru þeir
5.325. Í ár hefur hefur þeim farið enn
fjölgandi.
Byggð í Hveragerði hefur einnig
vaxið mikið á sama tíma og um þess-
ar mundir eru rúmlega hundrað
íbúðarhús í byggingu í bænum og
frekari fjölgun íbúa því fyrirsjáan-
leg.
Þörf á auknu verzlunar- og þjón-
usthúsnæði fer líka vaxandi og nú
hefur Hveragerðisbær auglýst stóra
lóð við Sunnumörk 2 lausa til úthlut-
unar. Lóðin, sem er 15.400 ferm., er
ætluð fyrir stórverzlun, þjónustu-
miðstöð eða sambærilegan rekstur.
Gert er ráð fyrir að byggja megi á
lóðinni alls 4.000 ferm. húsnæði á
3.200 ferm. grunnfleti.
Á fjölförnum stað
Lóðin stendur á fjölförnum stað
við Suðurlandsveg, þar sem hring-
torg er á veginum við Hveragerði.
Gert er ráð fyrir aðkomu að húsinu
frá bílastæðum að sunnan og vestan
ásamt hellulögðum torgum og aðlað-
andi yfirbragði.
„Fyrirhuguð úthlutun á þessari
lóð endurspeglar vel þá miklu upp-
byggingu, sem nú á sér stað í Hvera-
gerði,“ segir Guðmundur F. Bald-
ursson, byggingarfulltrúi í
Hveragerði.
„Undanfarin ár hefur íbúum hér
farið ört fjölgandi og er þessi fjölgun
töluvert yfir landsmeðaltali. Ásókn í
byggingarlóðir hér er mikil og við
höfum vart náð að anna eftirspurn-
inni. Fyrir utan heimafólk er þetta
fólk utan af landi og líka af höfuð-
borgarsvæðinu.
En fyrirhuguð verzlunar- og þjón-
ustubygging við Sunnumörk 2 er
ekki bara ætluð fyrir heimafólk held-
ur ekki síður fyrir þá mörgu, sem
fara hér framhjá á leið sinni austur í
sveitir, svo sem í sumarhúsalöndin í
uppsveitum Árnessýslu og víðar.“
Guðmundur sagði áhuga vera fyr-
ir því að hafa í þessari nýbyggingu
m.a. bankaútibú, veitingasölu, mat-
vöruverzlun, byggingavöruverzlun
og bensínsölu.
Þá hefði Áfengis- og tóbaksverzl-
un ríkisins lýst yfir áhuga sínum á að
fá myndarlegt pláss fyrir áfengisút-
sölu í þessari byggingu, en nú er all-
langt síðan samþykkt var í almennri
atkvæðagreiðslu bæjarbúa að opna
áfengisútsölu í Hveragerði, en hana
hefur vantað í bæinn. Guðmundur
kvað það mjög líklegt að einhver
einn aðili myndi reisa þessa nýbygg-
ingu og eiga hana en leigja hana síð-
an öðrum. „Nokkrir verzlunaraðilar
og fyrirtæki í fasteignaútleigu hafa
þegar rætt við okkur og lýst yfir
áhuga sínum,“ sagði hann.
„Ef af verður myndi þessi bygging
rísa á tiltölulega skömmum tíma
Hönnun hennar gæti farið fram í
vetur og framkvæmdir hafizt í vor og
byggingin risið næsta sumar. Hugs-
anlega mætti ljúka við hana næsta
haust.“
Yfir 15.000 fermetra lóð
til úthlutunar í Hveragerði
Lóðin stendur á fjölförnum stað við Suðurlandsveg, þar sem hringtorg er á veginum við Hveragerði. Gert er ráð fyrir að
fyrirhuguð bygging verði um 4.000 fermetrar.
Morgunblaðið/Margrét Ísaksdóttir
2002 ÞRIÐJUDAGUR 26. NÓVEMBER BLAÐ B
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
JÚDÓKAPPI TEKUR STEFNU Á ÓLYMPÍULEIKA / B2
Rússar, Rúmenar og Norðmenn,sem allir höfðu sóst eftir því að
halda keppnina, drógu umsóknir sín-
r til baka áður en atkvæðagreiðslan
hófst til þess undirstrika samstöðu
Evrópu vegna umsóknar Þýska-
ands. Þegar á hólminn er komið virð-
st sem sjö til átta Evrópuþjóðir hafi
gengið úr skaftinu og stutt umsókn
Túnis.
Þjóðverjar – og í raun flestallar
þjóðir Evrópu – eru afar vonsviknir
með þessi málalok en Þjóðverjar
höfðu búið sig undir að halda mótið í
stærstu höllum landsins og ætluðu að
leika undanúrslitaleikina og úrslita-
leikinn á hinum risastóra knatt-
spyrnuleikvangi Auf Schalke í Gels-
enkirchen og útbúa aðstöðu fyrir
37.000 áhorfendur. Þá var talið
íþróttinni mjög til framdráttar að
halda heimsmeistaramótið í „mekka“
íþróttarinnar í Evrópu þar áhugi á
handknattleik hefur vaxið mikið síð-
ustu ár.
„Menn verða að taka afleiðingun-
um af þessari ákvörðun. Þeir mögu-
leikar sem við buðum handknatt-
leiksíþróttinni upp á með því að halda
keppnina voru greinilega ekki nógu
spennandi fyrir meirihluta hand-
boltafjölskyldunnar í heiminum,“
sagði Peter Sichelschmidt, fram-
kvæmdastjóri þýska handknattleiks-
sambandsins, þegar úrslitin lágu fyr-
ir.
Í gær komu jafnvel fram hug-
myndir um það í Þýskalandi að
hundsa keppnina árið 2005 en víst er
að Þjóðverjar hafa ekki sagt sitt síð-
asta orð í málinu og ákvörðuninni
verður ekki breytt nema þá Túnis-
menn dragi sig til baka, en slíkt þykir
ósennilegt.
IHF og þingið setti niður
Pattstaða kom upp á þingi IHF
þegar kom að því að taka fyrir breyt-
ingar á lögum og ýmsu því sem snert-
ir innra starf IHF með það að mark-
miði að gera stjórnskipulagið skil-
virkara. Var öllum málunum sópað
undir teppi og ákveðið að boða til
aukaþings í Basel í Sviss snemma á
næsta ári til þess að afgreiða tillög-
urnar. Þessi afgreiðsla er talin vera
mikill álitshnekkir fyrir IHF og ekki
síst forseta þess, Egyptan Hasan
Mousafa, sem þótti ekki hafa tak-
markaða stjórn á þinginu. Mousafa
tók við forsetastarfinu fyrir tveimur
árum og voru þá miklar vonir bundn-
ar við að honum tækist að færa
starfshætti IHF nær nútímanum.
Reiknað jafnvel með að lögð verði
fram vantrauststillaga á Mousafa á
aukaþingi. Verði hún samþykkt kem-
ur til stjórnarkjörs en það á annars
ekki að vera á dagskrá fyrr en á
næsta reglulega þingi árið 2004.
Kjartan K. Steinback, stjórnar-
maður IHF, vildi lítið tjá sig um þing-
ið í samtali við Morgunblaðið í gær.
„Ég er frekar vonsvikinn með starf
þingsins,“ var hið eina sem Kjartan
vildi segja þegar hann var spurður
eftir þinginu og þeirri ákvörðun að
boða til aukaþings í Basel á næsta ári.
Þjóðverjar telja sig svikna
HEIMSMEISTARAKEPPNIN í handknattleik karla árið 2005 verður
haldin í Norður-Afríkuríkinu Túnis í fyrsta skipti. Túnisbúar unnu
óvæntan sigur á Þjóðverjum, 46:44, í atkvæðagreiðslu á þingi Al-
þjóðahandknattleikssambandsins, IHF, í Pétursborg um helgina.
Þjóðverjar eru afar vonsviknir með niðurstöðuna því þeir töldu sig
hafa öll tromp á hendi, stuðning allra Evrópuþjóða auk Ameríku.
Þegar á hólminn var komið er ljóst að einhverjar Evrópuþjóðir hafa
snúist í lið með Túnis og grunar Þjóðverja að þar hafi Miðjarð-
arhafsríki Evrópu átt í hlut. Slíkt verður aldrei sannað þar sem um
eynilega atkvæðagreiðslu var að ræða.
Bordeaux
vill fá
ungan
KR-ing
KJARTAN Henry
Finnbogason, 16
ára drengjalands-
liðsmaður í knatt-
spyrnu úr KR, er
kominn heim eftir
vikudvöl hjá
franska félaginu
Bordeaux. Að sögn
Arnórs Guðjohn-
sens, umboðs-
manns, sem hafði
milligöngu fyrir
Kjartan, hefur
Bordeaux mikinn
áhuga á að fá hann
til sín á unglinga-
samning. „Hann er
hinsvegar hikandi
við að fara strax,
ekki síst vegna
námsins hér heima,
og framhaldið á
málinu er því ekki
ljóst ennþá,“ sagði
Arnór við Morg-
unblaðið.
Kjartan er sókn-
armaður og lék 6
drengjalandsleiki á
árinu en hann var
helsti markaskor-
ari KR, bæði í 3. og
2. flokki, í sumar.
Morgunblaðið/Kristinn
Íþróttafólk Reykjanesbæjar getur verið ánægt með helgina sem leið því íþróttafélög undir merkjum
bæjarins voru mjög sigursæl. Köfuknattleikslið Keflavíkur sigraði í Kjörísbikarnum í körfuknattleik
karla, Sundfélag Reykjanesbæjar sigraði með nokkrum yfirburðum í 1. deild í bikarkeppni Sundsam-
bandsins og knattspyrnulið Keflavíkur varð Íslandsmeistari í innanhússknattspyrnu karla. Sannarlega
glæsileg helgi hjá íþróttafólkinu í Reykjanesbæ. Hér á myndinni er Zoran Daníel Ljubicic með Íslands-
bikarinn í knattspyrnu. Sjá umsagnir B8, B9 og B12.
BÍLDSHÖFÐI 510 8020
SMÁRALIND 510 8030
SELFOSS 480 7000
WWW.INTERSPORT.IS
Yf ir l i t
Í dag
Sigmund 8 Viðhorf 30
Viðskipti 13/14 Umræðan 30/31
Erlent 15/17 Minningar 32/35
Höfuðborgin 20 Bréf 40
Akureyri 20/21 Dagbók 42/43
Suðurnes 21 Kvikmyndir 44
Landið 22 Fólk 46/49
Neytendur 23 Bíó 46/49
Listir 24/25 Ljósvakar 50
Forystugrein 26 Veður 51
* * *
Unglingahópur
veittist að pilti í
Grafarvogi
SEXTÁN ára drengur var fluttur á slysa-
deild Sjúkrahúss Reykjavíkur í gærmorg-
un eftir að hópur ungmenna veittist að hon-
um í Grafarvogi, að sögn lögreglu.
Drengurinn fékk heilahristing og kjálka-
brotnaði í átökunum. Þá brotnuðu tvær
tennur í honum, að sögn lögreglu.
Ökumaður sem átti leið hjá Fjallkonu-
vegi flutti drenginn á slysadeild. Enginn
hafði verið handtekinn vegna málsins í gær-
kvöldi.
Yfirlýsing hluthafa
jafngilti tryggingu
ÁBYRGÐARYFIRLÝSING sem
fjórir stærstu hluthafar Sam-
vinnuferða-Landsýnar gáfu út
tveimur mánuðum áður en ferða-
skrifstofan var tekin til gjald-
þrotaskipta, var í gær dæmd gild
af Héraðsdómi Reykjavíkur. Á
þá falla því um 30 milljónir sem
samgönguráðuneytið hafði greitt
fyrir heimflutning viðskiptavina
ferðaskrifstofunnar frá útlönd-
um og til að bæta þeim alferðir
sem þeir voru búnir að greiða
inn á eða kaupa áður en ferða-
skrifstofan varð gjaldþrota.
Stærstu hluthafarnir, Gilding,
Eignarhaldsfélag Alþýðubank-
ans, Olíufélagið og Flutningar,
samþykktu að ganga í „hlutfalls-
lega bakábyrgð“ til tryggingar á
125 milljónum. Samgönguráðu-
neytið leit á þetta sem fullnægj-
andi tryggingu fyrir áframhald-
andi rekstri ferðaskrifstofunnar
en skv. lögunum verða ferða-
skrifstofur að leggja fram svo-
kallaðar ferðaskrifstofutrygging-
ar fyrir heimflutningi farþega og
að viðskiptavinum þeirra verði
gert kleift að ljúka svonefndum
alferðum eða þær endurgreidd-
ar.
Hluthafarnir héldu því á hinn
bóginn fram að um væri að ræða
bakábyrgð vegna tryggingar
sem yrði aflað síðar og fæli ekki
í sér beina og fyrirvaralausa
ábyrgð. Á það féllst dómarinn
ekki og sagði ábyrgðaryfirlýs-
ingu hluthafanna gilda sem
ferðaskrifstofutryggingu. Frið-
jón Örn Friðjónsson hrl. flutti
málið fyrir hönd samgönguráðu-
neytisins en Kristinn Hallgríms-
son hrl. var til varnar. Greta
Baldursdóttir héraðsdómari
kvað upp dóminn.
Þurfa að greiða
þrjátíu milljónir
Varð að segja upp
ábyrgðinni skriflega
MAÐUR sem gekkst í ábyrgð vegna
tékkareiknings verður að greiða
150.000 krónur vegna sjálfskuldar-
ábyrgðar sem hann gekkst í fyrir
eiganda reikningsins. Maðurinn hélt
því fram að ábyrgðin væri fyrnd en á
það féllst Héraðsdómur Reykjaness
ekki. Sjálfskuldarábyrgðin er dag-
sett 1997 en ekki er kveðið á um gild-
istíma í skilmálum. Maðurinn hélt
því fram að ábyrgðin hefði orðið
gjaldkræf við undirritun en fyrnst
fjórum árum síðar samkvæmt fyrn-
ingarlögum. Finnbogi H. Alexand-
ersson héraðsdómari sagði að sam-
kvæmt skilmálunum félli hún ekki
niður fyrr en við skriflega uppsögn
ábyrgðarmanns sem lægi ekki fyrir.
Þá hefði krafan ekki orðið gjaldkræf
gagnvart honum fyrr en í apríl sl.
þegar reikningnum var lokað. Var
maðurinn dæmdur til að greiða
Landsbanka Íslands 150.000 krónur
auk dráttarvaxta. Benedikt Guð-
bjartsson hrl. sótti málið f.h. bank-
ans en Jón Ármann Guðjónsson hdl.
var til varnar ábyrgðarmanninum.
ÍBÚAR á suðvesturhorni landsins hafa lítið getað
kvartað undan veðrinu undanfarna daga, nema
auðvitað þeir sem leggja stund á vetraríþróttir.
Úrkoma hefur verið tiltölulega lítil og hitastigið
óvenjuhátt. Í gær sýndu hitamælar Veðurstof-
unnar í Reykjavík 7°C og voru mælarnir þó ekki
bilaðir.
Arnar Hilmarsson greip tækifærið, hóf pensil á
loft og málaði verslunina Boltamanninn við Lauga-
veg. Arnar taldi alveg kjörið að nota góða veðrið
til að mála, það væri hlýrra nú en oft á vorin þegar
málarar hefja útistörfin. Gögn Veðurstofunnar
styðja þessa fullyrðingu. Á árunum 1961–1990 var
meðalhiti í apríl 2,9°C og í maí 6,3°C.
Morgunblaðið/Kristinn
Hlýrra en oft á vorin
„MÉR gekk illa að finna einhverja leið út
úr þessu þar sem myrkrið verður alveg
kolsvart, það sér ekki skimu,“ segir Ás-
geir Kristjánsson, starfsmaður Fjalla-
lambs á Kópaskeri, sem
lokaðist inni í einum
frystiklefa fyrirtækisins
í rúmlega klukkustund í
byrjun mánaðarins.
Um 25 stiga frost er í
klefanum og var Ásgeir
alls ekki búinn undir
langa vist í slíku heim-
skautafrosti, í vinnu-
slopp, klossum og ekki
með húfu, enda ætlaði
hann sér aðeins að vera
örfáar mínútur inni í frystiklefanum. Ás-
geir var að ná í tvo kindaskrokka í frysti-
klefann rétt fyrir hádegi á föstudegi en þá
lýkur vinnslu að mestu í húsinu. Skyndi-
lega voru ljósin slökkt, væntanlega af
starfsmanni sem var á heimleið og vissi
ekki af Ásgeiri inni í frystiklefanum.
Í samtali við Morgunblaðið sagðist Ás-
geir hafa lagst niður á gólfið til að reyna
að rekja sig að dyrunum enda var klefinn
næstum fullur af kindaskrokkum sem
héngu niður úr loftinu.
Blóðsykurinn féll
Ásgeir er með sykursýki og hann fann
fljótlega að blóðsykurinn fór að falla. „Og
þá verður maður nú hálfmáttlaus og á erf-
itt með að bjarga sér,“ segir hann. Áfram
reyndi hann að finna leiðina út en sóttist
leitin illa. „Sjálfsagt hef ég verið orðinn
alveg máttlaus.“ Að sögn Ásgeirs var það
vinnufélagi hans, Benedikt Björgvinsson,
sem kom honum til bjargar. Benedikt var
farið að lengja eftir Ásgeiri og fór að svip-
ast um eftir honum. Leitin bar hann að
frystiklefanum þar sem hann fann Ásgeir
á gólfinu og var hann þá svo máttfarinn
að hann átti í erfiðleikum með að standa
upp. Í ljós kom að Ásgeir var kalinn á baki
en þau sár eru nú gróin að mestu.
Festist í
frystiklefa á
Kópaskeri
Ásgeir
Kristjánsson
Í niðamyrkri og
25 stiga frosti
♦ ♦ ♦
TIL ÁTAKA kom í húsi á Eyr-
arbakka um hálfsjöleytið í gær-
kvöldi og var maður með höfuð-
áverka fluttur á slysadeildina í
Fossvogi. Að sögn lögreglunnar
eru tildrög átakanna ekki ljós en
einn maður er í haldi lögregl-
unnar vegna málsins. Að sögn
læknis á slysadeildinni er líðan
mannsins eftir atvikum góð.
Átök á
Eyrarbakka