Morgunblaðið - 26.11.2002, Qupperneq 6
FRÉTTIR
6 ÞRIÐJUDAGUR 26. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MEIRI hluti fjárlaganefndar Alþingis gerir 47
breytingartillögur við frumvarp til fjárauka-
laga fyrir árið 2002. Er samtals lögð til 3.269
milljóna króna hækkun á gjaldalið frumvarps-
ins. Af þessari upphæð renna 1,9 milljarðar til
heilbrigðismála og er stærsti útgjaldaliðurinn
tillaga um 1.060 milljóna króna aukafjárveit-
ingu til greiðslu uppsafnaðs rekstrarhalla
Landspítala – háskólasjúkrahúss en áætlað
hefur verið að hallinn yrði 2.660 milljónir króna
í árslok 2002.
Kemur þetta framlag til viðbótar tillögu um
1.200 milljóna aukafjárveitingu sem fyrir var í
fjáraukalagafrumvarpinu. „Þar af eru 90 m.kr.
vegna greiðslna á uppsöfnuðum frítökurétti
lækna í samræmi við ákvæði EES-samnings-
ins um lágmarkshvíld. Að teknu tilliti til þeirr-
ar aukafjárveitingar er áætlað að uppsafnaður
rekstrarhalli spítalans verði 1.460 m.kr. Jafnan
er við það miðað að heilbrigðisstofnanir geti
borið með sér reikninga sem nema um tveimur
til fjórum vikum í öðrum rekstrargjöldum en
launum. Í tilviki stofnunarinnar er umfang
slíkra reikninga að hámarki um 400 m.kr.
Greiðsluhalli spítalans stefnir því að óbreyttu í
um 1.060 m.kr. í árslok 2002,“ segir í nefnd-
aráliti meirihlutans.
670 milljónir til að greiða
upp halla öldrunarstofnana
Einnig er gerð tillaga um 670 milljóna króna
fjárveitingu til að greiða uppsafnaðan rekstr-
arhalla öldrunarstofnana á árunum 2000–2002.
Áætlað er að hann verði allt að 1.340 milljónir í
árslok 2002. Þar af er rekstrarhalli dagvistar-
og hjúkrunarrýma um 550 milljónir og rekstr-
arhalli dvalarrýma um 790 milljónir.
Samkvæmt lögum greiðir ríkissjóður kostn-
að við rekstur hjúkrunarheimila og hluta af
rekstri dvalarheimila með svonefndri dvalar-
heimilisuppbót sem er greidd af Trygginga-
stofnun ríkisins. Fyrirhugað er að koma til
móts við uppsafnaðan halla þessara stofnana
samkvæmt nánara samkomulagi og í samræmi
við verkaskipti ríkis og sveitarfélaga. Í nefnd-
aráliti meirihluta fjárlaganefndar segir að í því
sambandi þurfi að skoða nánar hver beri
ábyrgð á þeim hallarekstri sem myndast hefur.
Gert er ráð fyrir 695 milljóna króna viðbót-
arútgjöldum í félagsmálaráðuneyti, þar af 140
milljónum króna vegna uppsafnaðs halla
Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra í Reykjavík.
Segir í tillögum fjárlaganefndar að ljóst sé að
þessi halli sé svo mikill að ekki verði unnið á
honum nema með umtalsverðum niðurskurði á
þjónustu stofnunarinnar. Það sé mat félags-
málaráðuneytisins að komist hafi verið fyrir
viðvarandi halla á rekstri stofnunarinnar og að
hún verði eftirleiðis innan ramma fjárlaga.
Gert er ráð fyrir að fjárheimild dóms- og
kirkjumálaráðuneytis verði aukin um 216 millj-
ónir. Þar af er gert ráð fyrir 46 milljóna fram-
lagi til að mæta uppsöfnuðum fjárhagshalla
Fangelsismálastofnunar.
Segir í tillögum nefndarmeirihlutans að með
30,6 milljóna króna framlagi sem þegar sé gert
ráð fyrir í frumvarpinu og aðgerðum innan árs-
ins sé talið að stofnuninni takist að halda sig
innan heimilda þessa árs en ekki hafi verið
unnt að vinna á fyrri halla. Ef stofnunin þyrfti
að vinna upp hallann yrði nauðsynlegt að draga
úr nýtingu á fangarými sem er til ráðstöfunar.
Fjárheimildir menntamálaráðuneytis
aukast um 203,8 milljónir samkvæmt tillögum
meiri hluta fjárlaganefndar. M.a. er gert ráð
fyrir 80 milljóna aukafjárveitingu vegna nem-
endafjölgunar.
Á grundvelli upplýsinga frá háskólum megi
ætla að fjöldi nemenda verði meiri en gert er
ráð fyrir í fjárlögum ársins 2002. Mest sé fjölg-
unin í Háskóla Íslands, Háskólanum á Akur-
eyri og Háskólanum í Reykjavík. Um sé að
ræða nemendafjölgun umfram hámarks-
ákvæði í samningum við skólana.
Beinar greiðslur vegna
mjólkurframleiðslu auknar
Lagt er til að fjárheimild landbúnaðarráðu-
neytisins verði aukin um 66 milljónir kr. og
vegur þar þyngst tillaga um að beinar
greiðslur vegna mjólkurframleiðslu hækki um
63,6 millj. kr.
„Þar er í fyrsta lagi um að ræða uppgjör á
árinu 2001. Í öðru lagi aukast framleiðsluheim-
ildir í ár um tvær milljónir lítra frá 1. sept-
ember. Í þriðja lagi hækka beingreiðslur í kjöl-
farið á 3,69% hækkun á verði til framleiðenda
frá og með 1. nóvember 2002 samkvæmt
ákvörðun verðlagsnefndar landbúnaðarvara,“
segir í tillögugerð nefndarmeirihlutans.
Meirihluti fjárlaganefndar gerir tillögu um 3,3 milljarða viðbótarútgjöld 2002
Um 1,9 milljarðar
króna í viðbót til
heilbrigðismála
„ÞETTA var mjög gaman og það
voru margir sem hlustuðu á okkur
syngja, en við vorum búin að æfa
okkur vel fyrir framan myndavélar
og okkur fannst bara eins og þetta
væri prufa eða eitthvað,“ sagði
Halldóra Baldvinsdóttir, níu ára
söngkona, eftir að hún varð í öðru
sæti í barnasöngvakeppni í Bologna
á Ítalíu um helgina.
Halldóra söng lagið Se cicredi
anche tu eftir Ítalann Leone Tinga-
nelli, sem hefur búið á Íslandi í 16
ár, og segir Laufey Hauksdóttir,
móðir Halldóru, að árangurinn
skipti hann meira máli en söngkon-
una ungu. „Þetta er stór og mikil
keppni og vinsælasta sjónvarps-
efnið á Ítalíu,“ segir hún og bætir
við að nafn höfundarins komist í
umræðuna ytra. „Nafn hans er
komið í ítalska fjölmiðla,“ segir
hún.
Mæðgurnar fóru til Ítalíu í sept-
ember og voru þar í tvær vikur, en
þá heyrðu þær lagið fyrst og það
var tekið upp á geisladisk. Síðan
fóru þær aftur nú í nóvember og
komu heim í fyrrinótt eftir hálfs
mánaðar dvöl. Barnakór söng með
hverju lagi og voru margar æfingar
áður en keppnin byrjaði á miðviku-
dag í liðinni viku. 18 börn á aldr-
inum fimm til níu ára sungu 14 lög
og byrjaði keppnin með kynningu á
miðvikudag. Á fimmtudag sungu
ítölsku börnin sjö lög og á fimmtu-
dag sungu erlendu börnin sjö jafn-
mörg lög en þá náði Halldóra best-
um árangri útlendinganna. „Ég
bjóst við að verða í einhverju af
þremur efstu sætunum,“ segir hún.
„Ég vissi það einhvern veginn.“
Halldóra er í Smáraskóla í Kópa-
vogi og henni var vel tekið þar í
gær. „Það tóku allir á móti mér.
Mér voru gefin blóm og allt bara.
Það var kór að syngja: Velkomin
Halldóra heim, og allt bara.“
Keppnin var nú haldin í 45. sinn
og sáu börn alfarið um að dæma
frammistöðu keppendanna. „Þegar
við fórum út áttum við ekki von á
einu eða neinu,“ segir Laufey og
getur þess að mjög frægur lagahöf-
undur hafi samið sigurlagið.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Halldóra Baldvinsdóttir, níu ára söngkona, varð í öðru sæti í barna-
söngvakeppni í Bologna á Ítalíu um helgina.
Íslensk stúlka í öðru sæti í
barnasöngvakeppni á Ítalíu
„Eins og þetta
væri prufa
eða eitthvað“
MEIRI hluti fjárlaganefndar gerir
tillögu um 153 milljóna kr. auka-
fjárveitingu á fjáraukalögum fyrir
yfirstandandi ár, til að mæta aukn-
um útgjöldum sjúkratrygginga-
deildar Tryggingastofnunar vegna
hjálpartækja. Framlag á fjárlögum
var 998 millj. kr. en nú er talið að
útgjöldin á árinu muni nema 1.198
millj. kr. „Útgjöld til þessa mála-
flokks hafa aukist mikið síðustu ár-
in og virðist ekkert lát vera á því,“
segir í nefndaráltiti meirihlutans.
130 milljónir til endurbóta
á Vífilsstöðum
Meirihluti fjárlaganefndar gerir
alls 47 breytingartillögur við frum-
varp til fjáraukalaga fyrir árið 2002.
Lagt er til að ráðstafað verði 130
milljónum kr. til að gera nauðsyn-
legar endurbætur á húsnæði Vífils-
staða og til tækjakaupa en fyrirhug-
að er að opna allt að 70 hjúkrunar-
rými á Vífilsstöðum á næsta ári.
Veitt verður 20 milljóna kr. auka-
fjárveiting vegna kostnaðar við
lokaáfanga framkvæmda við bygg-
ingu þjónustuskála Alþingis, verði
breytingartillaga meirihluta fjár-
laganefndar samþykkt.
2,6 milljónir vegna
Falun Gong
Gerð er tillaga um 8,8 milljóna kr.
fjárveitingu vegna kostnaðar við
opinbera heimsókn forsætisráð-
herra Víetnams til landsins í haust.
„Kostnaðurinn er nokkuð hærri en í
hefðbundinni heimsókn vegna fjöl-
menns fylgdarliðs og þar sem gisti-
kostnaður fylgdarliðs er greiddur í
þessu sérstaka tilfelli. Aðrir kostn-
aðarliðir eru akstur, risna og mót-
taka, leiga á þyrlu auk annars
rekstrarkostnaðar,“ segir í nefnd-
aráliti meirihluta fjárlaganefndar.
Lögð er til 2,6 millj. kr. fjárveit-
ing vegna kostnaðar Flugleiða af
endurgreiðslu fargjalda til fé-
lagsmanna Falun Gong og lögfræði-
kostnaðar í tengslum við opinbera
heimsókn forseta Kína í sumar.
48,8 milljónir til að mæta
rekstrarhalla héraðsdómstóla
Gerð er tillaga um 48,8 milljóna
kr. framlag til að mæta uppsöfn-
uðum rekstrarhalla héraðsdóm-
stóla.
Lagt er til að veitt verði 65 millj.
kr. viðbótarframlag til að ljúka við-
gerð á rannsóknaskipinu Bjarna
Sæmundssyni.
Gerð er tillaga um 25 millj. kr.
styrk til Kirkjumálasjóðs til kaupa
á húsnæði undir starfsemi Tónskóla
þjóðkirkjunnar.
300 milljónir vegna
aukins atvinnuleysis
Meirihluti fjárlaganefndar leggur
til 75 millj. kr. fjárveitingu til við-
bótar við þær 300 millj. kr. sem
þegar hefur verið gerð tillaga um í
fjáraukalagafrumvarpinu í Ábyrgð-
arsjóð launa vegna gjaldþrota. Þá
er gerð tillaga um 300 millj. kr. við-
bótarfjárveitingu í Atvinnuleysis-
tryggingasjóð vegna aukins at-
vinnuleysis.
Tillaga er gerð um 200 milljóna
kr. aukaframlag í Fæðingarorlofs-
sjóð en endurskoðuð áætlun hefur
leitt í ljós að mealtalsgreiðslur og
fjöldi þeirra sem fá greitt úr sjóðn-
um er meiri en áætlað var.
47 breytingartillögur við fjáraukalagafrumvarp
153 milljóna aukafjárveit-
ing vegna hjálpartækja
MARGIR sóttu listahátíðina Láttu drauminn rætast
sem haldin var í boði Ævintýraklúbbsins – félagsstarfs
þroskaheftra og Clarins í Smáralind sl. laugardag. Þar
tóku m.a. Blikandi stjörnur lög úr söngleikjum. Á fjöl-
breyttri dagskrá voru að auki tískusýning, myndlistar-
sýning og fleiri tónlistaratriði.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Fjölmenn listahátíð í Smáralind