Morgunblaðið - 26.11.2002, Blaðsíða 21
SUÐURNES
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. NÓVEMBER 2002 21
AKUREYRI
Í DAG
FJÖLBREYTTIR tónleikar voru
haldnir í Grindavíkurkirkju á dög-
unum í tilefni af 30 ára afmæli Tón-
listarskóla Grindavíkur. Fram
komu bæði nemendur og kennarar.
Í vetur eru 185 nemendur, jafnt
ungir sem eldri, við nám í skólanum
og hefur þeim farið fjölgandi. Ljóst
er að framtíðin er björt hjá þessum
barnunga tónlistarskóla ef hæfi-
leikar og fjöldi nemenda er skoð-
aður, en þeir sýndu hvað í þeim býr
á afmælistónleikunum.
„Já, þetta voru vel heppnaðir
tónleikar og ég get ekki annað en
verið ánægður með þá. Vetr-
arstarfið hjá okkur er með miklum
ágætum og meðal annars er um
40% aukning á nemendum í einka-
námi. Þá höfum við stofnað ryþm-
íska deild og eru miklar vonir
bundnar við hana,“ sagði Gunnar
Kristmannsson, skólastjóri Tónlist-
arskóla Grindavíkur.
Þá eru starfandi tveir barnakór-
ar og ætlar eldri kórinn í söngferð
til Ítalíu næsta vor auk þess sem
miklar annir eru hjá kórnum þessa
dagana vegna undirbúnings
jólanna.
Morgunblaðið/Garðar Páll Vignisson
Töffararnir í bílskúrsbandinu sem lék á afmælistónleikunum eru þegar komnir með aðdáendur.
Tónlistarskóli Grindavíkur heldur hátíðlegt þrítugsafmæli
Mikil aukning
í starfi skólans
Grindavík
ÍÞRÓTTAFÉLAGIÐ Nes mætti
með stóran hóp keppenda í ein-
staklingskeppni Íslandsmótsins í
boccia sem fram fór á Akranesi á
dögunum. Unnu þeir til fernra
verðlauna.
Að þessu sinni sendi félagið
keppendur bæði úr eldri og yngri
hópi iðkenda og var það stærsti
hópurinn frá einu félagi sem keppti
á mótinu.
Á mótinu kræktu Nesarar í tvenn
gullverðlaun, þau fengu Vilhjálmur
Jónsson í 4. deild og Guðmundur
Ingi Einarsson í 7. deild. Róbert Ar-
on Ólafs fékk silfurverðlaun í 4.
deild og Elínrós Benediktsdóttir
brons í 2. deild. Aðrir keppendur
frá félaginu stóðu sig einnig mjög
vel þótt ekki kæmust þeir á pall.
Var haft á orði hvað yngstu þátt-
takendurnir frá félaginu væru
prúðir, segir í fréttatilkynningu frá
félaginu.
Fimm íþróttamenn úr Nesi fengu verðlaun á Akranesi.
Nesfélagar vinna
fern verðlaun
Reykjanesbær
HÁLFÞRÍTUGUR maður
hefur verið dæmdur í tveggja
mánaða fangelsi í Héraðsdómi
Reykjaness fyrir að dæla dísil-
olíu á bifreið sína í heimild-
arleysi af tanki fiskvinnslu í
Garði.
Maðurinn játaði brot sitt
greiðlega en hann var staðinn
að verki við þjófnaðinn sem
átti sér stað í júlí sumarið
2001. Hafði hann dælt allt að
90 lítrum á bifreiðina er for-
svarsmenn fyrirtækisins komu
að honum. Maðurinn býr í
öðru byggðarlagi.
Fullnustu refsingarinnar
var frestað um þrjú ár og fell-
ur hún niður að þeim tíma
liðnum haldi maðurinn skilorð-
ið. Var hann dæmdur til að
borga allan kostnað sakarinn-
ar, þar á meðal 35 þúsund
króna málsvarnarlaun skipaðs
verjanda síns.
Maðurinn, sem er fæddur
1976, hefur sjö sinnum hlotið
fangelsisdóma fyrir hegning-
arlagabrot, meðal annars 10
mánaða fangelsi vorið 1997
fyrir þjófnað. Þótt brotið sem
hann var nú sakfelldur fyrir
teldist smátt í sniðum að mati
héraðsdóms þótti ekki hjá því
komist að dæma hann til fang-
elsisvistar þegar horft væri til
sakaferils hans.
Dæmdur
fyrir
olíu-
þjófnað
Garður
HREPPSNEFND Vatnsleysu-
strandarhrepps hefur lýst
áhyggjum sínum vegna ástands
heilsugæslu á Suðurnesjum eft-
ir að heimilislæknar létu af
störfum.
Hreppsnefndin telur ástand-
ið óviðunandi og skorar á heil-
brigðisyfirvöld að leysa málið
eins fljótt og hægt er, þannig að
íbúar njóti að nýju lögbundinn-
ar læknisþjónustu.
Áhyggjur
af heilsu-
gæslu
Vogar
Foreldrafélögin í Reykjanesbæ
(FFGÍR) og Skólaskrifstofan standa
í dag fyrir málþingi fyrir foreldra
undir yfirskriftinni Betri skóli –
betra samfélag. Málþingið verður
haldið í Heiðarskóla og hefst kl . 20.
Frummælandi er Jón Baldvin Hann-
esson skólaráðgjafi. Málþingið er
opið öllum foreldrum og öðrum
áhugamönnum um uppeldismál, á
meðan húsrúm leyfir.
INNAN Slökkviliðs Akureyrar er
vandamál í stjórnun sem taka verður
á, að mati Kristins Guðjónssonar,
ráðgjafa hjá verkfræðistofunni Hnit
hf., en hann hefur skilað skýrslu um
úttekt á rekstri Slökkviliðs Akureyr-
ar. Þar kemur einnig fram að menn í
stjórnunarstöðum virðast ekki sam-
stiga og að mikil togstreita sé til
staðar. Málið virðist snúast um per-
sónur og samkipta- og stjórnunar-
hætti þeirra. Ekki sé nokkur vafi á
að þetta hafi skaðað slökkviliðið,
ekki minnst út á við. Bæjaryfirvöld
verði að grípa inn í og leysa þetta
mál svo hægt sé að fá starfsfrið í
slökkviliðinu, segir ennfremur í
skýrslunni.
Gerðar eru tillögur að breyttum
áherslum í stjórnun, sem allar miða
að því að valddreifa í stjórnun, virkja
báða slökkviliðsstjórana og alla
varðstjórana. Lögð er fram tillaga að
breyttu skipulagi sem miðar að því
að ná fram samlegðaráhrifum án
þess að sameiginleg slökkvistöð sé
byggð. Þannig mætti fækka um allt
að þrjú stöðugildi í slökkviliðinu og
spara rúmar 11 milljónir króna á ári.
Þrátt fyrir ýmsa galla í stjórnun
er það skoðun ráðgjafans að Slökkvi-
lið Akureyrar sé gott slökkvilið at-
vinnumanna með ágætan tækjakost.
Innan slökkviliðsins starfi metnaðar-
fullir og hæfir einstaklingar og er
mannauðurinn helsti styrkleiki liðs-
ins. Ráðgjafinn sér fáa möguleika á
því hvernig rekstri skal hagað með
öðrum hætti en verið hefur miðað við
núverandi skipulag slökkviliðsins.
Slökkviliðsstjóri hafi staðið ágæt-
lega að rekstrinum innan þess fjár-
hagsramma sem slökkviliðið hefur.
Margt bendi til þess að rekstrar-
kostnaður muni aukast í framtíðinni
vegna aukinna krafna um menntun,
þjálfun og búnað.
Þá kemur fram í skýrslunni að
samingur um rekstur flugvallar-
slökkviliðsins skili Slökkviliði Akur-
eyrar ekki þeim samlegðaráhrifum
sem vænst var í upphafi. Þar hefur
sameiginleg slökkvistöð verið talin
mikilvæg forsenda þess að Slökkvilið
Akureyrar nái fram fjárhagslegri
hagkvæmni af samstarfinu. Athug-
anir hafa sýnt að bygging nýrrar
stöðvar sé ekki hagkvæm fyrir Ak-
ureyrarbæ. Ráðgjafinn telur að
menn hafi að einhverju leyti vanmet-
ið hagræði af sameiginlegri stöð í
þeim athugunum.
Skýrslan var til umfjöllunar á síð-
asta fundi framkvæmdaráðs Akur-
eyrar og þar var jafnframt lagt fram
minnisblað frá sviðstjóra tækni- og
umhverfissviðs. Sviðsstjóri lagði til
að unnið verði eftir aðgerðaráætlun
við að koma tillögum í skýrslunni til
framkvæmda strax. Framkvæmda-
ráð samþykkti að unnið verði eftir
aðgerðaráætluninni.
Fyrstu aðgerðir lúta m.a. að því að
koma á breytingum í stjórnunarliði
slökkviliðsins, skilgreina stjórn-
skipulag slökkviliðsins og samstarfs-
grundvöll stjórnenda og útfæra til-
lögur að breyttu vaktaskipulagi.
Úttekt á rekstri Slökkviliðs Akureyrar
Vandamál er í
stjórnun sem
skaðað hefur
slökkviliðið
SAKAMÁLA- og draugaleikritið
Kverkatak sem sýnt er á Dalvík um
þessar mundir hefur hlotið góðar
viðtökur og hefur verið uppselt á
þær fimm sýningar sem verið hafa
og um 400 manns séð verkið.
Leikritið er eftir Dalvíkinginn
Júlíus Júlíusson sem jafnframt er
leikstjóri. Unglingar á aldrinum 14
til 18 ára fara með öll hlutverk í
sýningunni og standa sig að sögn
einkar vel. Leikritið er fyrir alla
fjölskylduna, en þó er ráðlagt að
yngstu börnin fari í fylgd fullorð-
inna.
Næstu sýningar verða á fimmtu-
dag- og föstudagskvöld kl. 20 og á
laugardag og sunnudag kl. 16.
Kverkatak fær góðar viðtökur
Dalvíkurbyggð
ALÞJÓÐASTOFAN á Akureyri hef-
ur formlega verið opnuð.
Hún hefur verið rekin af Akureyr-
arbæ síðan í byrjun þessa árs og er
upplýsinga- og fræðslumiðstöð fyrir
fólk af erlendum uppruna. Almenn-
ur tilgangur og hlutverk stofunnar
er að vinna að málefnum nýbúa og
útlendinga, vera málsvari þeirra og
stuðla að aðlögun þessa fólks
einkum á Akureyri að því er fram
kemur í frétt um opnunina. Al-
þjóðastofan býður upp á ráðgjöf og
fræðslu fyrir nýbúa um flest allt sem
viðkemur íslensku samfélagi, rétt-
indi, skyldur og menningu, en einnig
fyrir stofnanir og fyrirtæki í bænum
varðandi málefni fólks af erlendum
uppruna. Stofan stendur fyrir
fræðslu af ýmsum toga í tengslum
við það fjölmenningarlega samfélag
sem er að myndast á Akureyri, m.a.
námskeiðum um fjölmenningu, túlk-
un og fjölbreytileg íslensku-
námskeið fyrir útlendinga. Með
þessari starfsemi er stuðlað að því
að reynsla, sérþekking og menning
fólks af erlendum uppruna fái betur
notið sín á Akureyri, segir enn frem-
ur.
Alþjóðastofan opnuð
Morgunblaðið/Kristján
Alþjóðastofan var opnuð formlega á Akureyri fyrir helgi og á meðal gesta
voru Páll Pétursson félagsmálaráðherra, Þóra Ákadóttir forseti bæj-
arstjórnar Akureyrar og Jakob Björnsson formaður bæjarráðs.