Morgunblaðið - 26.11.2002, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 26.11.2002, Blaðsíða 4
FRÉTTIR 4 ÞRIÐJUDAGUR 26. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ REYKVÍSKIR lögreglumenn á eftirlitsferð í Grafarholti á sunnudagsmorgun urðu varir við ref sem var á vappi á bygg- ingarsvæðinu. Hugðust þeir handsama ref- inn og hófu eftirför um hverfið. Það bar ekki tilætlaðan árangur og síðast sá lögregla til rebba er hann hljóp í átt til fjalla. Rebbinn komst undan HEILDSÖLUVERÐ mjólkur og mjólkurafurða mun hækka um 3,36% að meðaltali frá ára- mótum. Það þýðir að með óbreyttu hlutfalli smásöluálagn- ingar mun nýmjólk í eins lítra umbúðum hækka um þrjár krónur. Verðlagsnefnd búvara – sex- mannanefnd – hefur samþykkt nýjan verðlagsgrundvöll fyrir kúabú. Hefur það í för með sér að mjólk til bænda hækkar um 3,69% eða um 2,81 krónu á lítra frá því verði sem tók gildi 1. nóv- ember 2001. Á hækkunin sér meginskýringar í kostnaðar- hækkun rekstrarvara og hækk- un á launakostnaði við mjólkur- framleiðsluna, segir í frétt frá Verðlagsnefnd. Nefndin hefur einnig ákveðið að reikna með 2,69% hærri vinnslu- og dreif- ingarkostnaði mjólkur og mjólk- urafurða frá 1. janúar næstkom- andi. Hækkunin til bænda gildir frá 1. nóvember sl. en hækkun á heildsöluverði mjólkur og mjólkurvara frá 1. janúar 2003. Mjólkin hækkar IÐNAÐARRÁÐHERRA hef- ur skipað Aðalstein Þorsteins- son í stöðu forstjóra Byggða- stofnunar frá 1. janúar nk. Stjórn Byggðastofn- unar mælti með skipun Aðalsteins í starfið. Alls sóttu 16 manns um stöðuna. Aðalsteinn Þorsteinsson fæddist 1. júlí 1966. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskól- anum á Akureyri 1986 og emb- ættisprófi í lögfræði vorið 1993. Frá árinu 2001 hefur Aðal- steinn verið forstöðumaður lög- fræðisviðs Byggðastofnunar en var settur forstjóri stofnunar- innar frá 21. júní 2002 til 31. desember 2002. Maki Aðalsteins er Helga Finnbogadóttir og eiga þau tvö börn. Skipaður for- stjóri Byggða- stofnunar Aðalsteinn Þorsteinsson TVEIR menn hafa játað á sig að hafa framið rán í verslun 11- 11 við Skúlagötu í Reykjavík á föstudagskvöld. Mennirnir voru handteknir á sunnudag og við- urkenndu brot sitt í yfirheyrslu hjá lögreglu. Þeir játuðu einnig að hafa á þriðjudagskvöld rænt Olís-stöð- ina við Skúlagötu. Að sögn lög- reglu hafa mennirnir báðir áður komið við sögu hjá lögreglu. Þeim var sleppt úr haldi síðdeg- is á sunnudag. Að sögn lögreglu voru þeir að fjármagna fíkni- efnaskuldir með ránum sínum. Rán í 11-11 og Olís upplýst STUTT ALCOA hefur afhent Skipulags- stofnun skýrslu um mat á umhverfis- áhrifum hugsanlegs álvers á Austur- landi og áhrifum þess á atvinnulíf og samfélag á svæðinu. Skýrsla Alcoa byggist á skýrslu sem unnin var vegna áður fyrirhugaðrar verk- smiðju Reyðaráls en dregur fram hvernig áhrif af verksmiðju Alcoa muni verða frábrugðin áhrifum hennar. Enda þótt fyrirhugað álver Alcoa sé minna en það álver sem ráðgert var að byggja á vegum Reyðaráls mun störfum á Austurlandi fjölga til muna við tilkomu þess, segir í til- kynningu Alcoa. Samkvæmt skýrsl- unni er áætlað að við verklok muni 455 einstaklingar vinna beint fyrir Alcoa en að auki muni 295 störf skap- ast í tengslum við álverið. Alls er því gert ráð fyrir að 750 ný störf skapist á svæðinu en reiknað er með því að allt að 1.800 störf muni skapast með- an á byggingu álversins stendur. Mun minni mengun en frá fyrirhuguðu álveri Reyðaráls Gert er ráð fyrir að verksmiðja Al- coa komi til með að valda minni um- hverfisáhrifum en sú verksmiðja sem Reyðarál ráðgerði að byggja. Í fyrsta lagi vegna þess að ársfram- leiðsla verksmiðju Alcoa verður u.þ.b. 25% minni en verksmiðju Reyðaráls. Í annan stað mun Alcoa ekki urða mengandi úrgang við ál- verið. Þá athugar Alcoa nú hönnun- arkosti fyrir álverið með það fyrir augum að tryggja að ekkert frá- rennslisvatn muni koma frá verk- smiðjunni. Í fjórða lagi fer fram- leiðsla rafskauta fram erlendis, sem dregur verulega úr losun eiturefna frá verksmiðjunni. Þá er í tillögum Alcoa gert ráð fyr- ir að álverið muni þurfa minna raf- magn (22% minna) en álver Reyð- aráls, minna eldsneyti (33% minna) og minna vatn (58% minna). Þá sé og ljóst að álver Alcoa muni losa um- talsvert minna gróðurhúsaloftteg- undum. Í tilkynningu félagsins segir að ál- ver Alcoa muni uppfylla alla staðla íslenskra stjórnvalda um hreinleika vatns og andrúmslofts og boðaða staðla ESB sem taka gildi á árunum 2005 og 2010. Ljóst sé að Alcoa muni á sumum sviðum ganga lengra en áð- urnefndir staðlar gera kröfu um. Álver skap- ar 750 ný störf fyrir austan ALMANNAVARNANEFND Seyð- isfjarðar aflétti í gær rúmlega tveggja sólarhringa hættuástandi sem ríkt hefur í bænum vegna skriðufalla úr Botnabrúnum, rétt ofan við bæinn. Fengu 30 íbúar 10 húsa við Austurveg því að fara heim til sín á ný eftir að hús þeirra voru rýmd á föstudag. „Fólk er hins vegar beðið um að hafa allan vara á og fylgjast vel með,“ sagði Tryggvi Harðarson, bæjarstjóri Seyð- isfjarðar. Nefndin ákvað að hleypa fólki heim til sín um hádegið í gær með þeim fyrirvara að hugsanlega þyrfti það að rýma húsin aftur að kvöldi, en eftir kvöldfund almanna- varnanefndar komst hún að þeirri niðurstöðu að frekari rýming væri óþörf. Á sunnudag féll ný aurskriða niður hlíðina í átt að íbúðarhús- unum við Austurveg, en stöðvaðist í miðri hlíð og hafði engin áhrif, ólíkt stórri skriðu sem féll fyrr í mán- uðinum með þeim afleiðingum að hús við Austurveg 54 varð umlukið aur sem náði upp á glugga. Skriðurnar sem eru um 50 til 100 cm á dýpt, fóru yfir ungar furur sem gróðursettar höfðu verið í brekkunni. Talsvert grjót er í aurn- um og ljóst af ummerkjum, að grjótið hefur oltið niður grasi gróna hlíðina af miklum þunga. Á köflum eru allstór sár í gras- þekjunni sem grjót á stærð við sjón- varpstæki hafa skilið eftir sig á leið sinni niður hlíðina. Ekki er allt með kyrrum kjörum upp í hlíðinni, þótt hættuástandi hafi verið aflétt, enda mikið fjör í fossum sem steypast niður hamrana og senda stöku grjóthnullung niður. Aldrei verið hrædd Ragna Sigurðardóttir, íbúi á Austurvegi 44, var ein þeirra sem fengu að vitja heimilis síns í gær eftir útlegðina um helgina og dvaldist hjá kunningjakonu sinni á meðan. „Ég var ekki hrædd um að það félli skriða á húsið og hef aldrei verið hrædd um það,“ sagði Ragna. Hún hefur búið í húsinu í 50 ár og aldrei haft neinar spurnir af skriðu- föllum á þessum stað. Þess má geta að þegar hún bjó á Norðfirði á árum áður, féll snjóflóð á hús hennar, án þess þó að valda alvarlegu tjóni. Hún segist fyllilega sátt við þann viðbúnað almanna- varnanefndar og hlýddi tilmælum hennar möglunarlaust. „Það er auðvitað afskaplega gott að hafa allan varann á. Í svartamyrkri sér fólk ekki hvort eitthvað er að skríða fram,“ segir hún. Fólki leyft að flytja aftur í hús sín Seyðisfirði. Morgunblaðið. Ragna Sigurðardóttir sagðist aldr- ei hafa verið hrædd um að skriða félli á heimili sitt. Morgunblaðið/RAX Þeir frændurnir Viktor Heiðdal Sigurjónsson og Jafet Sigfússon brugðu á leik í rigningunni á Seyðisfirði. FIMM læknar hafa samkvæmt Tryggingastofnun ríkisins, TR, tjáð sjúklingum að „kvóti væri orðinn fullur hjá TR“ og tími eða aðgerð fengist aðeins gegn greiðslu fram hjá samningum stofnunarinn- ar. Þetta kemur fram í frétt á heimasíðu TR undir fyrirsögninni „Þrír bæklunarskurðlæknar og tveir augnlæknar blekkja sjúklinga“. Félag íslenskra bæklunarlækna vísar því á bug að félagsmenn hafi brotið samning sérgreinalækna og TR með því að veita sjúklingum þjónustu gegn fullri greiðslu og án afskipta TR. Vísar félagið til 5. gr. samningsins þar sem kemur fram að lækni sé heimilt að taka sjúkratryggðan einstakling til meðferðar án greiðsluafskipta sjúkratrygginga ef sá sjúkra- tryggði óski þess. Ákvæðið sett inn til persónuverndar TR segir að ákvæðið sem læknar vísi til hafi ekki verið sett inn í samninginn árið 1982 til þess að læknar gætu farið fram hjá samningi og krafið sjúklinga um fulla greiðslu, heldur hafi persónu- verndarástæður legið að baki. „Ef sjúklingur kýs af persónulegum ástæðum að láta nafn sitt og kennitölu ekki koma fram á reikningum sem ganga frá sérfræðingum til Tryggingastofnunar hefur hann möguleika á að borga fullt verð án þátttöku almannatrygginga,“ segir á heimasíð- unni. Í fréttinni segir ennfremur að læknarnir fimm sem um ræðir hafi þurft að gefa TR afslátt á bilinu 7,3–11,7% af heildarreikningum sínum í síðasta mánuði. „Læknar hafa hins vegar haldið því fram að þeir væru að veita Tryggingastofnun allt að 90% afslátt af þjónustu sinni um þessar mundir. Þetta er alrangt.“ TR segir samninga við lækna byggjast á sömu grundvallaratriðum og verktakasamningar á al- mennum markaði. Þeir kveða því hvorki á um sér- staka dagvinnu, eftirvinnu eða næturvinnu. Þá fjalla þeir um fullt verð upp að ákveðnu marki og að afsláttur sé veittur eftir það. „Verktakar geta ekki hlaupist undan skyldum þegar kemur að greiðslu afsláttar.“ Um málið var fjallað á almennum félagsfundi Félags íslenskra bæklunarlækna sl. laugardag og í ályktun sem samþykkt var á fundinum kemur fram að félagið ætlist til að samningar séu haldnir en telji TR svo ekki vera á að fjalla um slíkt sam- kvæmt ákvæðum samningsins um úrlausn ágrein- ingsatriða, „en ekki staðhæfa í fjölmiðlum að sér- fræðilæknar stundi ólögmæta starfsemi“. „Alvarlegar ásakanir á hendur læknum“ Stjórn Læknafélags Reykjavíkur lýsir furðu á því að fulltrúar TR reki ágreiningsmál um framkvæmd samn- inga við Læknafélagið í fjölmiðlum. Í fréttatil- kynningu frá þeim segir einnig að enn á ný séu komnar fram alvarlegar ásakanir á hendur sam- tökum lækna án þess að gerð hafi verið tilraun til þess að upplýsa þau um einstök vandamál sem upp hafi komið. „Samninganefnd Læknafélags Reykjavíkur hefur farið fram á það við fulltrúa Tryggingar- stofnunar að einstök ágreiningsmál verði kynnt á eðlilegan hátt í sameiginlegri samráðsnefnd og þeim fundin lausn þar. Það er óviðeigandi að kvartanir um samningsbrot skuli fyrst kynntar í fjölmiðlum. Það er yfirlýst stefna Læknafélags Reykjavíkur að farið skuli eftir gerðum samning- um og að gagnkvæmt traust ríki milli aðila þar um,“ segir í frétt frá LR. TR segir að fimm læknar hafi blekkt sjúklinga Bæklunarlæknar segja samninginn ekki brotinn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.