Morgunblaðið - 26.11.2002, Blaðsíða 41
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. NÓVEMBER 2002 41
Jólamyndatökur
Hverfisgötu 50,
sími 552 2690
Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is
Frábært tækifæri fyrir þá sem vilja njóta
jólanna heima og áramótanna í 25 stiga hita á Kanarí. Flug í eftirmiðdaginn
þann 26. des. kl. 15.40 til Kanarí. Val um stökktu tilboð, þar sem þú færð
að vita gististaðinn 3 dögum fyrir brottför, eða þú getur valið um einhvern
af okkar vinsælu gististöðum. Hér nýtur þú 20-25 stiga hita og veðurblíðu
við frábærar aðstæður og getur kvatt veturinn í bili á þessum vinsælasta
vetraráfangastað Evrópu. Á meðan á dvölinni stendur nýtur þú þjónustu
reyndra fararstjóra okkar allan tímann.
Aðeins 28 sæti í boði
Verð kr. 59.950
Verð á mann, m.v. 2 saman,
stúdíó/smáhýsi, 26. des. Vikuferð.
Stökktu tilboð. Flug, gisting, skattar.
Staðgreitt.
Áramótin á
Kanarí
26. desember–2. janúar
frá kr. 49.962
Verð kr. 49.962
M.v. hjón með 2 börn, íbúð/smáhýsi,
26. des. Vikuferð. Stökktu tilboð.
Flug, gisting, skattar. Staðgreitt.
Þökkum ótrúlegar viðtökur í vetur.
Bókaðu meðan enn er laust.
19. des. – Uppselt
19. des. – Aukaflug 8 sæti
26. des. – 28 sæti
2. jan. – 31 sæti
9. jan. – Uppselt
16. jan. – 11 sæti
23. jan. – 22 sæti
30. jan. – 37 sæti
6. feb. – Uppselt
13. feb. – 19 sæti
20. feb. – Uppselt
27. feb. – 19 sæti
6. mars – 29 sæti Sími 5 88 44 22
w
w
w
.h
m
.is
Kr.
9.8
50
TÍSKA GÆÐI BETRA VERÐ
Litir:
Kamel
Dökkbrún
Stærðir:
34-46
Ullarkápur
með kashmir
„HVERDAGSHETJURNAR okkar
allra,“ sagði Óli H. Þórðarson um
þá sem á fimmtudag fengu við-
urkenningu Umferðarráðs 2002,
Umferðarljósið, fyrir starf sitt á
sviði umferðaröryggismála. Við-
urkenningin var veitt á 5. um-
ferðarþingi Umferðarráðs sem
haldið var í vikunni og kom í hlut
allra viðbragðsaðila á vettvangi
umferðarslysa. Umferðarljósinu
veittu viðtöku fyrir hönd starfs-
systkina sinna um allt land Hjalti
Már Björnsson, umsjónarlæknir á
neyðarbíl Slökkviliðs höfuðborg-
arsvæðisins, Birgir Finnsson, yf-
irmaður útkallsdeildar SHS, Er-
ling Þór Júlíusson
slökkviliðsmaður, Ari Jóhannes
Hauksson sjúkraflutningsmaður
og Hrafn Árnason, lögreglumað-
ur úr umferðardeild LR.
Óli H. Þórðarson sagði að
handhafar Umferðarljóssins
hefðu bjargað óteljandi manns-
lífum með störfum sínum og
kunnáttu þegar alvarleg slys
yrðu í umferðinni. „Við lítum á
þetta fólk sem hversdags-
hetjurnar okkar allra, óeig-
ingjarna einstaklinga sem í öllum
störfum sínum gera allt sem í
þeirra valdi stendur til að bjarga
okkur hinum sem þörfnumst
hjálpar og leggja sig oft sjálfa í
hættu í björgunarstörfum sínum,“
sagði hann.
Viðbragðsaðilar á vettvangi umferðarslysa fá viðurkenningu Umferðarráðs
„Hversdags-
hetjurnar
okkar allra“
Morgunblaðið/Golli
Þeir hafa bjargað mannslífum með störfum sínum: Slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn hampa Umferðarljósinu.
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi yfirlýsing:
„Aalborg Portland Íslandi [APÍ]
vísar á bug ásökunum bæjarráðs
Akraness um óeðlilegt undirboð og að
sement sé selt til Íslands undir kostn-
aðarverði. Aalborg Portland A/S í
Danmörku selur sement til 70 landa
víðs vegar um heim, þeirra á meðal til
fjölmargra landa Evrópu. Ísland nýt-
ur sambærilegra kjara við önnur ríki
Evrópu og svo verður um ókomna tíð.
Aalborg Portland hóf að flytja sem-
ent til Íslands í september árið 2000.
Skömmu áður lækkaði Sementsverk-
smiðjan verð á sementi. Aalborg
Portland Íslandi bendir á að Sam-
keppnisstofnun hafði kæru Sements-
verksmiðjunnar á hendur APÍ til
meðferðar. Samkeppnisráð sá ekki
ástæðu til þess að að grípa til að-
gerða. Áfrýjunarnefnd samkeppnis-
mála staðfesti niðurstöðu Samkeppn-
isráðs. Sementsverksmiðjan vísaði
málinu á hendur Aalborg Portland
A/S til Eftirlitsstofnunar EFTA. Aal-
borg Portland hefur skilað greinar-
gerð í málinu. Þar er málið til umfjöll-
unar. Aalborg Portland hefur hvatt
stjórnvöld til að óska flýtimeðferðar
því óþolandi er að sitja stöðugt undir
dylgjum og ásökunum fyrirtækis í
eigu ríkisins og nú bæjarráðs Akra-
ness.
Aalborg Portland Íslandi vill benda
á að félagið kærði Sementsverksmiðj-
una til Samkeppnisstofnunar fyrir
brot á góðum viðskiptaháttum. Við
forathugun Samkeppnisstofnunar
var talið koma til álita að sekta Sem-
entsverksmiðjunafyrir brot á sam-
keppnislögum. Af því varð þó ekki
þar sem Sementsverksmiðjan var
ekki talin markaðsráðandi, þó hún á
þessum tíma hafi ráðið um 80% af ís-
lenskum sementsmarkaði.
Bæjarráð Akranes hefur uppi
ósæmilegar og meiðandi ásakanir í
garð Aalborg Portland um að leggja
Sementsverksmiðjuna að velli og í
kjölfarið hækka sementsverð. Þetta
er fráleitur málflutningur. Aalborg
Portland á Íslandi áréttar að Ísland
nýtur sambærilegra kjara við önnur
ríki Evrópu og svo verður um
ókomna tíð. Í skýrslu ráðgjafarfyrir-
tækis til opinberra aðila árið 1999
kom fram að verð á sementi var mun
hærra á Íslandi en í öðrum löndum
Evrópu. Í úttekt tímaritsins Inter-
national Cement Review í júní 2001
kom fram að í gervallri Evrópu var
sementsverð langhæst á Íslandi. „Ís-
land er öfgafullt dæmi um lítinn, fjar-
lægan markað þar sem hráefni er frá-
leitt ákjósanlegt,“ segir í grein
tímaritsins.
Heilbrigð samkeppni stuðlar að
lækkun byggingarkostnaðar og bætt-
um lífskjörum Íslendinga. Fremur en
gangrýna Aalborg Portland ber að
fagna samkeppni á íslenskum sem-
entsmarkaði.“
Ásökunum um
undirboð vísað á bug
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi athugasemd frá Benja-
mín Jósepssyni á Akranesi:
„Á blaðsíðu 68 í Morgunblaðinu í
dag, laugardag, er haft eftir Adolf
Berndsen á Skagaströnd að upp hafi
komið sögur í síðustu viku á Akra-
nesi um utankjörfundarkosningu í
Kántríbæ á Skagaströnd, og þeir
Skagstrendingar ekki tekið mark á
því. Það var rétt hjá Skag-
strendingum að taka ekki mark á
þessu vegna þess að frásagnir af
þessari „meintu“ utankjörfundar-
kosningu í Kántríbæ komu fyrst
fram á útvarpi Sögu og í morgun-
þætti á Létt 96,7. Ég tók sérstaklega
eftir því að Adolf minntist ekki á
þennan uppruna. Akurnesingar geta
ekki endalaust setið undir því að
ekki eru öll kurl komin til grafar í
þessu máli.“
Athugasemd