Morgunblaðið - 26.11.2002, Blaðsíða 42
DAGBÓK
42 ÞRIÐJUDAGUR 26. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Fréttir
Mæðrastyrksnefnd
Kópavogs, Hamraborg
20a. Fataúthlutun þriðju-
daga kl. 17–18.
Mannamót
Aflagrandi 40. Sam-
söngur kl. 14, stjórnandi
Kári Friðriksson. Jóga-
tímar á þri. og fim. kl. 9.
Jólahlaðborð verður 6.
des. Húsið opnað kl. 17.
Gestur kvöldsins Þórunn
Sveinbjörnsdóttir vara-
formaður Eflingar. Mar-
grét Eir Hjartardóttir
syngur við undirleik
Karls Olgeirssonar, börn
frá Suzuki-skólanum
leika á fiðlur, Ásgeir Ás-
geirsson leikur á gítar.
Skráning í afgreiðslu.
Árskógar 4. Kl. 9–12
baðþjónusta og opin
handavinnustofa, kl. 9–
12.30 bókband og öskju-
gerð, kl. 9.30 dans, kl.
9.30–10.30 Íslandsbanki
á staðnum, kl. 10.30 leik-
fimi, kl. 13–16.30 opnar
handavinnu- og smíða-
stofur.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8–
13 hárgreiðsla, kl. 8.30–
14.30 böðun, kl. 9–9.45
leikfimi, kl. 9–16 handa-
vinna, kl. 9–17 fótaað-
gerð, kl. 10–11.30 sund,
kl. 13–16 leirlist, kl. 14–
15 dans.
Eldri borgarar í Mos-
fellsbæ, Kjalarnesi og
Kjós. Félagsstarfið er
opið mán. og fim. Mán:
Kl. 16 leikfimi. Fim: Kl.
13 tréskurður, kl. 14
bókasafnið, kl. 15–16
bókaspjall, kl. 17–19 æf-
ing kórs eldri borgara í
Damos. Laug: Kl. 10–12
bókband, kl. 11 línudans.
Innkaupaferð í Kringl-
una 28. nóv. kl. 13. Miða-
sala hafin á jólahlaðborð
12. des. Uppl. hjá Svan-
hildi í síma 586 8014.
Félagsstarfið, Dalbraut
18–20. Kl. 9–14 aðstoð við
böðun, kl. 9–16.45 hár-
greiðslustofan opin, kl.
10–11 samverustund, kl.
14 félagsvist.
Félagsstarfið, Dalbraut
27. Kl. 8–16 opin handa-
vinnustofan, kl. 9–16
vefnaður, kl. 10–13 opin
verslunin, kl. 13.30
myndband.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Kl. 9–16.30
opin vinnustofa, tré-
skurður, kl. 10 leikfimi,
kl. 12.40 verslunarferð í
Bónus, kl. 13.15–13.45
bókabíllinn, hárgreiðslu-
stofan opin 9–14. Jóla-
bingó föst. 29. nóv. kl. 13.
Félagsstarfið, Lönguhlíð
3. Kl. 8 böðun, kl. 10 hár-
snyrting, kl. 11 leikfimi,
kl. 13 föndur og handa-
vinna. Kl. 14.45 söng-
stund í borðsal með Jónu
Bjarnadóttur. Söng-
stund.
Félag eldri borgara
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Í dag
handvinna kl. 13.30, brids
kl. 13.30 og pútt í Hraun-
seli 8 kl. 13. Opið hús
fimmt. 28. nóv. kl. 14. Á
morgun, miðvikudag,
tréskurður kl. 9, mynd-
list kl. 10 og 14. Línudans
kl. 11, glerskurður kl. 13
og pílukast kl. 13.30.
Félagsstarf aldraðra,
Garðabæ. Jólahlaðborð
föst. 6. des. kl. 19.30.
Uppl. og miðapantanir
hjá Arndísi í síma 565-
7826 eða 895-7826 og á
skrifstofu félagsins í síma
565-6627 fyrir föst. 29.
nóv.
Félagsstarfið, Furugerði
1. Dansleikur í kvöld kl.
19.30. Hljómsveitin Í
góðum gír leikur.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Þriðjudagur:
Skák kl. 13 og alkort kl.
13.30. Miðvikudagur:
Göngu-Hrólfar ganga frá
Ásgarði í Glæsibæ kl. 10.
Línudanskennsla Sig-
valda kl. 19.15. Uppl. á
skrifstofu FEB.
Gerðuberg, félagsstarf.
Kl. 9-16.30 vinnustofur
opnar, frá hádegi spila-
salur opinn. Kl. 13 boccia.
Fim. 28. nóv. „Kynslóðir
saman í Breiðholti“ kl.
13.15. Félagsvist í sam-
starfi við Fellaskóla. All-
ar uppl. í síma 575 7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Kl. 9.30 glerlist, handa-
vinnustofan opin, leið-
beinandi á staðnum kl.
10–17, kl. 14 þriðjudags-
ganga og boccia, kl. 16.
15 og kl. 17.15 kínversk
leikfimi. Laxnessdagur
verður í Gjábakka fim.
28. nóv.
Gullsmári, Gullsmára 13.
Kl. 9.15 postulínsmálun,
kl. 10 ganga, handa-
vinnustofan opin kl. 13–
16, leiðbeinandi á staðn-
um, kl. 17 línudans, kl. 19
gömlu dansarnir.
Hraunbær 105. Kl. 9
postulínsmálun og gler-
skurður, kl. 10 boccia, kl.
11, leikfimi, kl. 12.15
verslunarferð, kl. 13
myndlist og hárgreiðsla.
Hvassaleiti 56–58. Kl. 9
böðun og boccia, kl. 13
handavinna, kl. 13.30
helgistund. Fótaaðgerð-
ir, hársnyrting.
Korpúlfarnir, eldri borg-
arar í Grafarvogi.
Fimmtud: Kl. 10, aðra
hverja viku púttað á
Korpúlfsstöðum, hina
vikuna keila í Keilu í
Mjódd. Vatnsleikfimi í
Grafarvogslaug á þriðju-
d. kl. 9.45 og föstud. kl.
9.30. Uppl. í s. 5454 500.
Norðurbrún 1. Kl. 9–
16.45 opin vinnustofa og
tréskurður, kl. 10–11
boccia, kl. 9–17 hár-
greiðsla, kl. 14–15 jóga. Í
dag kl. 14 les Viðar
Hreinsson upp úr bók
sinni um ævi Stephans G.
Stephanssonar. Nýtt
jóganámskeið hefst í dag
kl. 14. Nánari uppl. í síma
568 6960. Jólabingó
fimmt. 28. nóv. kl. 14.
Vesturgata 7. Kl. 9–16
fótaaðgerðir og hár-
greiðsla, kl. 9. 15–16
bútasaumur og postulíns-
málun. kl. 9.15–15.30 alm.
handavinna, kl. 13–16
frjáls spilamennska.
Fræðslufundur í dag kl.
13.30. Upplýsingar um
lífeyri frá Trygginga-
stofnun ríkisins o.fl. Sig-
rún Ingvarsdóttir, fé-
lagsráðgjafi. Kaffiveit-
ingar á eftir. Allir
velkomnir.
Vitatorg. Kl. 8.45 smíði,
kl. 9 hárgreiðsla, kl. 9.30
glerskurður og morg-
unstund, kl. 10 fótaað-
gerðir og leikfimi, kl. 13
handmennt m.a. mosaik,
kl. 14 félagsvist. Að-
ventu- og jólakvöld 5.
des. kl. 17.45. Uppl. og
skráning í síma 561 0300.
Háteigskirkja, eldri
borgarar, á morgun,
miðvikudag, kl. 11 sam-
vera, fyrirbænastund og
stutt messa í kirkjunni,
allir velkomnir, súpa í
Setrinu kl. 12, spil kl. 13.
ÍAK, Íþróttafélag aldr-
aðra í Kópavogi. Leikfimi
kl. 11.15 í Digranes-
kirkju.
Bridsdeild FEBK, Gjá-
bakka. Brids í kvöld kl.
19.
Félag áhugamanna um
íþróttir aldraðra. Leik-
fimi í Bláa salnum kl. 11.
Karlakórinn Kátir karl-
ar, æfingar á þriðjud. kl.
13 í Félags- og þjónustu-
miðstöðinni Árskógum 4.
Söngstjóri Úlrik Ólason.
Tekið við pöntunum í
söng í s. 553 5979 Jón, s.
551 8857 Guðjón eða s.
553 2725, Stefán.
Félag ábyrgra feðra.
Fundur í Shell-húsinu,
Skerjafirði, á mið. kl. 20,
svarað í s. 552 6644 á
fundartíma.
Hallgrímskirkja, starf
eldri borgara. Leikfimi-
æfingar við allra hæfi
undir stjórn sjúkraþjálf-
ara þrið. og föst. kl. 13.
Spilað á spil, kaffi og
spjall. Súpa í hádeginu.
Bandalag kvenna í
Reykjavík. Jólafund-
urinn verður mið. 27. nóv.
kl. 20 á Hallveigarstöð-
um, Túngötu 14. Upp-
lestur, tískusýning, happ-
drætti, kaffiveitingar.
MG-félag Íslands.
Ákveðið hefur verið að
halda spjallfund yfir
kaffibolla laug. 30. nóv.
kl. 14 í Kaffisal ÖBÍ, Há-
túni 10. Mætum öll.
Stjórnin.
Reykjavíkurdeild SÍBS
verður með félagsvist í
húsnæði Múlalundar,
vinnustofu SÍBS, á Há-
túni 10C í kvöld, þrið. 26.
nóv. Félagar fjölmennið
og takið með ykkur gesti.
Mæting kl. 19.45. Byrjað
að spila kl. 20. Húsinu
lokað kl. 20.
Öldungaráð Hauka. Al-
mennur félagsfundur
verður nk. mið. 27. nóv.,
kl. 20 á Ásvöllum. Fé-
lagar fjölmennið. Stjórn-
in.
Félag kennara á eftir-
launum. Bókmenntahóp-
ur FKE kemur saman í
Kennarahúsinu við Lauf-
ásveg fim. 28. nóv. kl. 14.
Íslenska bútasaums-
félagið. Jólafundur þrið.
26. nóv. kl. 20 í safnaðar-
heimili Háteigskirkju.
Munið jólapakkana og
happdrættið (20x20
rautt). Nýir félagar vel-
komnir.
Í dag er þriðjudagur 26. nóvember,
330. dagur ársins 2002. Orð dagsins:
Hver sem er ekki með mér, er á móti
mér, og hver sem safnar ekki saman
með mér, hann sundurdreifir.
(Matt. 12, 30.)
K r o s s g á t a
LÁRÉTT:
1 hrottar, 8 svipaðir, 9
steinn, 10 álít, 11 áma, 13
ákveð, 15 slæm skrift, 18
reiður, 21 veðurfar, 22
pinni, 23 arða, 24 órétt-
lætið.
LÓÐRÉTT:
2 ástundun, 3 heiðríkja, 4
smáa, 5 korn, 6 fórnarat-
höfn, 7 vegg, 12 bergs-
nös, 14 illmenni, 15
þekkt, 16 hrella, 17 verk,
18 fagið, 19 hárflóki, 20
beð.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 fúska, 4 hopar, 7 lúmsk, 8 rolum, 9 ask, 11 inna,
13 bana, 14 koðna, 15 bóla, 17 köld, 20 ann, 22 sætin, 23
aflar, 24 innar, 25 nugga.
Lóðrétt: 1 fálki, 2 samin, 3 auka, 4 hark, 5 pilta, 6 romsa,
10 súðin, 12 aka, 13 bak, 15 bossi, 16 látin, 18 öflug, 19
dorma, 20 anar, 21 nafn.
Víkverji skrifar...
BALTASAR Kormákur er maðurlandsþekktur og umsvifamikill
á sviði íslenskrar menningar. Um
það verður ekki deilt. Hitt vissi Vík-
verji aftur á móti ekki, þar til fyrir ör-
fáum dögum, að frægð Baltasars
væri það mikil að hans væri getið í
leikriti eftir William Shakespeare.
Víkverja er ekki ljóst hvernig Shake-
speare, sem andaðist árið 1616, hafði
vitneskju um (fyrirhugaða) tilvist
Baltasars en getur svarið að þennan
íslenska leikara og kvikmyndagerð-
armann ber á góma í sýningu á Róm-
eó og Júlíu, frægustu ástarsögu allra
tíma, sem nú er á fjölum Borgarleik-
hússins.
Í heild sinni er mál þetta ofvaxið
skilningi Víkverja, þó ekki sé loku
fyrir það skotið að þýðandi verksins,
Hallgrímur Helgason, komi þar eitt-
hvað við sögu. Hann er, eins og menn
vita, spéfugl og lætur sig eflaust ekki
muna um að sveifla mönnum fyrir-
varalaust milli alda.
Víkverji hefur ekki áform um að
upplýsa lesendur um það hvernig
Baltasar Kormákur kemur við hina
eldheitu ástarsögu en skorar þess í
stað á þá að sjá umrædda sýningu,
þar sem Shakespeare karlinn er tek-
inn nýjum og framandi tökum. Leik-
endur hanga til að mynda meira og
minna öfugir niður úr loftinu. Kynleg
sjón. Fimi þessa fólks er með ólík-
indum. Og sagan? Hún er þarna líka.
Ágætlega sögð.
Leikendur eru hver öðrum betri í
sýningunni í Borgarleikhúsinu en að
öðrum ólöstuðum stelur Ólafur Darri
Ólafsson senunni í hlutverki fóstru
Júlíu. Það er auðvitað ósvikin snilld
að velja Ólaf Darra í hlutverk fóstr-
unnar, þennan stóra og stæðilega
mann. Hann heldur líka hvergi aftur
af sér og beitir bassaröddinni svo
brakar í veggjum. Ólafur Darri er að
verða einn af okkar allra fremstu
gamanleikurum.
x x x
TALANDI um brak í veggjum.Við lá að Víkverji fengi steinflís-
arnar í fangið, þegar gólf og veggir
skulfu í Íslensku óperunni á dögun-
um. Hann þræðir sýningarnar þessa
dagana, Víkverji. Þar var að verki
annar stór og stæðilegur maður,
Kristinn Sigmundsson bassasöngv-
ari. Sterkari nærveru er varla hægt
að hugsa sér á sviði. Kristinn er að
sönnu stórbrotinn, einn af okkar allra
fremstu listamönnum. Leikurinn,
látbragðið, lífsþrótturinn. Það geisl-
ar af manninum. Og röddin! Maður
lifandi! Sjaldan hefur Víkverji fundið
jafninnilega fyrir dauðleika sínum.
Kristinn gekk hér fram í hlutverki
tónlistarkennarans Don Basílíós í
Rakaranum í Sevilla eftir Rossini.
Prýðilega heppnaðri sýningu. Það er
mikill fengur í Kristni fyrir íslenska
óperuunnendur en hann hefur ekki
staðið hér á óperusviði um langt ára-
bil. Vonandi ber Íslenska óperan
gæfu til að nýta krafta hans oftar á
komandi misserum.
Annar bassasöngvari, Davíð Ólafs-
son, vakti einnig athygli Víkverja
fyrir góða frammistöðu en Davíð,
sem er rúmlega þrítugur, leikur hinn
aldna dr. Bartóló í sýningunni. Það er
ekki á hvers manns færi að leika þrjá
til fjóra áratugi upp fyrir sig í aldri.
Davíð gerir það hins vegar án
áreynslu og gervið er afskaplega
gott. Það eru kannski bestu ummæl-
in að eiginkona Víkverja harðneitaði
að trúa því eftir sýningu að hann væri
deginum yngri en fimmtugur!
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Salt eða
nagladekk?
Í LOK síðasta vetrar birti
Velvakandi fyrirspurn frá
lesanda sem beindi spurn-
ingum til þeirra stofnana
Reykjavíkurborgar sem
skipuleggja og bera ábyrgð
á þeim gegndarlausa salt-
austri sem viðgengst hér í
borginni, jafnt á frostdög-
um sem frostlausum.
Nú í vetrarbyrjun var
sama bréf sent í pósti til
gatnamálastjóra, umhverf-
isstofu Reykjavíkur og
nokkurra annarra borgar-
stofnana og þeir beðnir að
útskýra mál sitt, en engin
svör hafa fengist.
Fyrir 2–3 árum var um
það rætt í dagblöðum að
sennilega yrðu nagladekk
bönnuð í framtíðinni vegna
þeirrar mengunar sem
notkun þeirra veldur. Í
bréfinu sem birtist í Velvak-
anda sl. vor var því lýst
hvernig saltpækillinn velk-
ist um á götunum, hluti
hans festist utaná og undir
bílum okkar og veldur tjóni.
Þegar þornar og hvessir
fýkur pækillinn í andlit og
föt vegfarenda, andlit, augu
og hár svo að maður lítur út
eins og vofa í skammdegis-
myrkrinu.
Einn af öruggustu vetr-
arboðunum er saltausturinn
á göturnar og nú þegar hafa
saltbílstjórarnir tekið til
starfa af fullum krafti og
dreifa saltinu gegndarlaust
og takmarkalaust án tillits
til aðstæðna, færðar og veð-
urs. Nú um miðjan nóvem-
bermánuð hafa t.d. verið
nokkrar frostlausar nætur í
borginni og hiti um 6–8 stig
á daginn. Samt sem áður
hafa saltbílar dreift salti á
göturnar, í mínu hverfi um
sexleytið á morgnana, og
hafa t.d. saltkornin sem
fjúka eftir endilöngum göt-
unum fram eftir degi borið
vitni um það.
Þess er vinsamlega óskað
að þeir sem fara með þetta
mál, hvort sem um er að
ræða gatnamálastjóri, um-
ferðarstofa, umhverfisstofa
eða einhver önnur skrifstofa
eða stofnun, upplýsi borgar-
búa um allar staðreyndir og
allan sannleika í þessu máli.
Hvort er t.d. heilnæmara,
mannvænna og hagkvæm-
ara fyrir íbúana, gróðurinn,
umhverfið, bílana okkar og
göturnar/malbikið, salt eða
nagladekk?
Svar óskast sem fyrst.
Saltvondur ökumaður.
Ljótt er
ef satt reynist
UNDANFARIÐ hefur
nokkuð verið ritað um trú-
félög og trúarsöfnuði. Virð-
ist sumt fólk hafa verið
hvatt til að gefa allt að því
aleiguna og það jafnvel
skuldbundið sig til að láta af
hendi rakna umtalsverðar
upphæðir, jafnvel nokkur ár
fram í tímann og það sem
sárara er að það virðist vera
fólk sem ekki er talið sjálf-
rátt gerða sinna, samanber
geðfatlaða og leitandi sálir
sem auðvelt virðist að góma.
Ljótt er ef satt reynist.
Svo vill til að ég þekki
konu sem ánetjaðist slíkum
söfnuði fyrir nokkrum ár-
um. Konan hefur verið sjúk-
lingur í mörg ár og átti að
ganga reglulega í sprautur
og krabbameinsmeðferð til
síns læknis. Eftir inngöngu í
trúfélagið var henni talin
trú um að héðan í frá væru
læknar með öllu óþarfir og
öll lyf hverju nafni sem þau
nefnast kæmu beint frá
djöflinum. Henni var bent á
að ef hún tryði nógu heitt og
gyldi tíund til trúfélagsins
fengi hún örugglega lækn-
ingu á himnum.
Árin liðu en konan lækn-
aðist ekkert. Henni versn-
aði stöðugt.
Loksins sá konan að sér,
sagði sig úr söfnuðinum, fór
aftur í krabbameinsmeðferð
og er á batavegi.
Ættingi fórnarlambs.
Dýrahald
Yasmin týnd í Ölfusi
YASMIN hvarf frá Sól-
vangi á Eyrarbakka 23. nóv.
Hún gæti hafa verið undir
vélahlíf á bíl sem var á leið-
inni á Ingólfshvol í Ölfusi og
orðið eftir einhvers staðar á
leiðinni. Yasmin er smágerð
um 5 mánaða gömul, hvít
með gráar og brúnar skell-
ur og er ekki með ól. Fólk á
þessu svæði, er vinsamleg-
ast beðið að líta eftir henni
og láta vita ef hún finnst í
síma 899 7792 eða 892 7159.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
ÉG vil spyrja ríkisstjórn-
ina, eða þá sem reikna út
örorkubætur og ellilífeyri,
hvernig þeir fá þá útkomu
að 67 þús. krónur dugi til
framfæris einstaklings.
Þetta svar fékk ég hjá fé-
lagsmálastofnuninni.
Ég fór á spítala í sumar
og hjúkrunarfræðing-
urinn sagði að ég væri með
lægstu eggjahvítumælingu
sem hún hefur séð.
Ég vil benda þeim lægst-
launuðu á að ódýrasti mat-
ur sem hægt er að fá eru
núðlur. Pakkinn kostar
sums staðar 25 krónur.
Svo gefa sum bakarí göm-
ul brauð.
Öryrki.
Næringar-
skortur
öryrkja