Morgunblaðið - 26.11.2002, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 26.11.2002, Blaðsíða 39
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. NÓVEMBER 2002 39 NÝLEGA tóku krakkarnir í 7. bekk DÍS í Kárs- nesskóla þátt í verkefninu Dag- blöð í skólum. Að lokinni vinnu- viku með dagblöð í skólanum komu þau í heimsókn á Morgun- blaðið til að kynna sér nánar hvernig hlutirnir ganga fyrir sig þegar dagblað verður til. Morg- unblaðið vonar að heimsóknin hafi orðið þess- um hressu og fróðleiksfúsu krökkum að gagni bæði og gamni. Morgunblaðið/Þorkell Meðlagsgreiðendur! Vinsamlegast gerið skil hið fyrsta og forðist vexti og kostnað Lágmúla 9 - 108 Reykjavík - Kt. 530372 0229 - www.medlag.is Banki 0139-26-4700 - Sími 590 7100 - Fax 590 7101 Höfðabakki - til leigu - mjög hagstæð leiga Atvinnuhúsnæði Góð lofthæð, mjög góð staðsetning, góð aðkoma og næg bílastæði. Mögulegt er að skipta eigninni upp í smærri einingar. Húsnæðið hefur verið í notkun fyrir höfðustöðvar Marels. Hentar fyrir ýmiss konar starfsemi, s.s iðnað, heildsölur, skrifstofustarfsemi o.s.frv. Eignin er í eigu Landsafls, sem er öflugt sérhæft fasteignafélag. www.valholl.is - Opið virka daga frá kl. 9-17.30. Upplýsingar veitir Magnús Gunnarsson í s. 588 4477 eða 822 8242 Sími 511 2900 Til leigu í Síðumúla Til leigu tvær 245 m² skrifstofueiningar á 2. hæð á góðum stað. Leigj- ast saman eða sín í hvoru lagi. Snyrtilegt húsnæði, ný málað lagna- stokkar með raf-, síma- og tölvulögnum. Snyrtilegur nýlegur dúkur, góð lýsing og gluggar í N-S-V. Næg bílastæði. Leiguverð 750 kr./m² Nánari upplýsingar vegna ofangreinds húsnæðis eru veittar á skrifstofu okkar. SIF Konráðsdóttir hæstaréttarlög- maður, sem gætt hefur hagsmuna fjölmargra brotaþola í réttarhöldum yfir kynferðisbrotamönnum, segir nauðsynlegt að ríkissaksóknari áfrýi dómi yfir 26 ára karlmanni sem dæmdur var í 18 mánaða fangelsi fyr- ir kynferðisbrot gegn tveimur stúlk- um, þar af voru 15 mánuðir skilorðs- bundnir. Maðurinn var einnig fundinn sekur um brot gegn þriðju stúlkunni en þau brot voru fyrnd þeg- ar hún bar fram kæru. Sif tekur fram að dómurinn, sem kveðinn var upp í Héraðsdómi Reykjaness, sé afar vel rökstuddur að því er varðar sönnunarmat á fram- burði stúlknanna. Á hinn bóginn ger- ir hún athugasemdir við refsiþyngd og að dómurinn skyldi skilorðsbinda refsinguna að stærstum hluta. „Það virðist ekki vera í samræmi við þá þróun sem verið hefur varðandi refsi- ákvarðanir í þessum brotum í hæsta- rétti undanfarin misseri,“ segir Sif. Kominn fast að tvítugu Hún bendir á að síðasta brotið sem maðurinn framdi gegn hálfsystur sinni, átti sér stað þegar hann var kominn fast að tvítugu. Í dómnum komi auk þess fram að maðurinn sýndi ekki eftirsjá og tók enga ábyrgð á verknaði sínum. Þetta fram- ferði mannsins hefði væntanlega átt að hafa þau áhrif að refsingin yrði þyngri en ekki sé að sjá þess merki í dómnum að svo hafi verið. „Þá er ekki nægilegt tillit tekið til þess við ákvörðun refsingar að ákærði braut gegn hálfsystur sinni og benda má á að ríkissaksóknari vísaði ekki sérstaklega til lagaákvæðis er varðar kynferðismök milli systkina,“ segir hún. Því hafi dómurinn ekki getað dæmt hann fyrir slíkt brot en hámarksrefsing við því nemi fjögurra ára fangelsi. Sif bendir á að í niðurstöðum dómsins komi fram að maðurinn fékk afslátt af refsingu vegna þess að hann var ungur þegar sum brotin áttu sér stað og þau rök jafnframt notuð til að réttlæta skilorðsbindingu að stærst- um hluta. Sif telur eðlilegra að dóm- urinn hefði annaðhvort látið ungan aldur verða til þess að stytta refs- inguna eða til þess að rökstyðja skil- orðsbindingu, ekki hvorttveggja. Þó sé rétt sé að benda á að úr því að héraðsdómur vildi skilorðsbinda refs- inguna að einhverju leyti, gat hann ekki skv. lögum dæmt manninn til lengri óskilorðsbundinnar refsingar en þriggja mánaða. Hæstiréttur skeri úr Sif segir að brotin sem maðurinn framdi séu mjög alvarleg en hann hafi meðal annars verið dæmdur fyr- ir ítrekaðar samfarir við átta ára stúlku sem honum var trúað fyrir og leit á hann sem frænda sinn. Refsi- rammi vegna brotanna sem hann var dæmdur fyrir er 12 ára fangelsi. „Þetta eru mjög alvarlegt brot og refsiramminn er hár. Það má deila um það hvort það sé eðlilegt að skil- orðsbinda að öllu eða einhverju leyti refsinguna. Það er eðlilegt að Hæsti- réttur fái tækifæri til að skera úr um það, ekki síst í ljósi þess að Hæsti- réttur hefur heldur verið að þyngja refsingar við kynferðisbrotum á síð- ustu misserum,“ segir Sif. Maðurinn hefur alla tíð haldið fram sakleysi sínu en skv. upplýsingum frá verjanda hans hefur hann ekki ákveðið hvort dómnum verði áfrýjað til Hæstaréttar. Af hálfu ríkissak- sóknara hefur ekki verið tekin ákvörðun um hvort málinu verði áfrýjað. Að sögn Sigríðar Jósefsdótt- ur saksóknara er yfirleitt beðið með ákvörðun um slíkt þar til fjögurra vikna frestur sem hinn sakfelldi hef- ur til að áfrýja rennur út. Sif bendir á að í Finnlandi og Sví- þjóð eigi brotaþolar aðild að sakamál- um og geti því áfrýjað dómum til æðra dómstigs. Í Noregi sé nú rætt um hvort rétt sé að taka slíkt ákvæði inn í lög. Aðspurð segir Sif að það hljóti að koma til greina að brotaþoli fái slíka aðild að málum hér á landi en þar með væri það ekki einungis í valdi ákæruvaldsins að áfrýja dómum. Verður að huga að forvörnum Guðbjörg Björnsdóttir, formaður Barnaheilla, segist ekki geta tjáð sig um einstök dómsmál. Hún vill þó minna á nauðsyn þess að ungum kyn- ferðisbrotamönnum verði tryggð meðferð. „Sennilega er besta for- vörnin gegn slíkum brotum í því fólg- in að huga að forvörnum fyrir unga gerendur,“ segir hún. „Erlendar rannsóknir hafa leitt í ljós að yfir helmingur kynferðis- brotamanna hefur brotaferil sinn á unglingsárum. Þessar upplýsingar sýna okkur forvarnagildi þess að bregðast fljótt við kynferðisbrotum sem framin eru af börnum og ung- lingum. Það hefur verið sýnt fram á að meðferð skilar árangri og því leiðir hún væntanlega til þess að fórnar- lömbunum fækkar. Og það hlýtur að vera okkar aðalmarkmið,“ segir Guð- björg. Það sé á hinn bóginn mjög skilj- anlegt að almenningi þyki oft á tíðum sem refsingar í kynferðisbrotamálum séu vægar, t.d. í samanburði við refs- ingar í fíkniefnamálum. Refsing við brotum hljóti auk þess að eiga að endurspegla hversu alvarlegur glæp- urinn er talinn. „Það er því eðlilegt að í mörgum tilvikum finnist fólki dómar í kynferðisbrotamálum vægir,“ segir hún. Nauðsynlegt að áfrýja dómnum 18 mánaða fang- elsi fyrir kyn- ferðisbrot en 15 skilorðsbundnir UM helgina var lögregl- unni í Reykjavík til- kynnt um 45 innbrot, sem flest voru í bifreið- ar, 11 þjófnaði og 26 skemmdarverk. Talsvert var um áflog í miðbæ Reykjavíkur aðfaranótt laugardags og voru þrír fluttir á slysadeild vegna meiðsla. 31 umferðaróhapp var tilkynnt um helgina. Sjö ökumenn voru teknir grunaðir um ölvun og 19 kærðir fyrir of hraðan akstur. Þá var 21 ökumað- ur kærður fyrir að nota ekki örygg- isbelti. Umferðarslys varð um miðjan dag á föstudag á Laugavegi, er ekið var á gangandi vegfaranda á gangbraut. Hann var fluttur á slysadeild en meiðsl hans voru talin minniháttar. Þá varð á föstudagskvöldið umferð- arslys á Sæbraut við Langholtsveg, er ekið var aftan á bifreið sem var kyrrstæð á rauðu ljósi. Ökumaður og farþegi voru fluttir á slysadeild en meiðsl þeirra voru talin minniháttar. Fjarlægja varð báðar bifreiðarnar af vettvangi með kranabifreið. Rétt fyrir hádegi á föstudag sást til tveggja pilta sem voru að stela verkfærum úr bifreið. Sá sem varð þeirra var tilkynnti til lögreglu og fór síðan og gaf sig á tal við piltana. Tókst honum að halda uppi samræð- um við þá þar til lögreglan kom á vettvang og handtók þá. Reyndust þeir góðkunningjar lögreglu. Tilkynnt var um bruna í Húsa- smiðjunni við Súðavog laust fyrir kl. 17:00 á föstudag. Þarna hafði kvikn- að eldur í timburverkstæði, sem slökkviliði tókst fljótt að ná tökum á og slökkva. Á föstudagskvöldið var tilkynnt um tvo menn sem gengu út úr versl- un í Austurstræti með körfu fulla af ostum án þess að hafa greitt fyrir. Rétt á eftir var tilkynnt um sömu menn þar sem þeir voru að bjóða osta til sölu á Lækjartorgi. Lög- reglumenn stöðvuðu söluna og var ostinum skilað aftur í verslunina. Úr dagbók lögreglunnar 22.–25. nóv. Buðu stolna osta til sölu á Lækjartorgi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.