Morgunblaðið - 26.11.2002, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. NÓVEMBER 2002 43
DAGBÓK
Árnað heilla
60 ÁRA afmæli. Í dag,þriðjudaginn 26. nóv-
ember, er sextug Guðrún H.
Kristjánsdóttir, Bólstaðar-
hlíð 62, Reykjavík. Hún og
eiginmaður hennar, Bjarni
Aðalsteinsson, ásamt fjöl-
skyldu, taka á móti vinum og
ættingjum í Þjónustumið-
stöð Félagsþjónustunnar í
Bólstaðarhlíð 43, laugardag-
inn 30. nóvember, kl. 15–18.
80 ÁRA afmæli. Í dag,þriðjudaginn 26. nóv-
ember er áttræð Álfheiður
Ármannsdóttir. Hún tekur
á móti ættingjum og vinum í
kaffi laugardaginn 30. nóv-
ember n.k. Í salnum á
Bjargi frá kl. 15 til 18.
STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
BOGMAÐUR
Afmælisbörn dagsins:
Þér hættir til að vera með of
mörg járn í eldinum og átt
því erfitt með að einbeita þér
að því sem þér þykir best.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú getur ekki endalaust leik-
ið einleik þinn, þótt góður sé.
Gefðu þér tíma til að sinna
ungum sem öldnum í fjöl-
skyldunni.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Ef aðstæður valda þér óþæg-
indum skaltu endilega end-
urskoða þær og nú með
hjartanu en ekki skynsem-
inni.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú átti ekki að hika við að
skipta um skoðun, þegar nýj-
ar upplýsingar koma fram og
breyta viðteknum sannind-
um.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú ert í skapi til að skreppa í
bæinn og skoða jólagjafir.
Gefðu þér líka tíma til að
eiga samverustundir með
fjölskyldunni.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú átt auðvelt með að sann-
færa viðmælendur þína og
átt því að notfæra þér það til
hins ýtrasta. Hlýddu þinni
innri rödd.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Það er engin ástæða til þess
að láta aðra sjá öll spilin,
sem þú hefur á hendinni.
Skoðaðu hvert mál vandlega
áður en þú tekur afstöðu.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Vertu ánægður með þinn
hlut því grasið er ekkert
grænna handan girðingar-
innar. Þeir sem teygja sig of
langt í þeim efnum, hljóta
verstu byltuna sjálfir.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Það er nauðsynlegt að menn
viti jafnan hvað þeir eiga
hvort heldur þeir nú lána
öðrum eigur sínar eða fá
hluti að láni.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þetta er góður dagur til að
kaupa eitthvað fallegt fyrir
heimilið eða fjölskylduna. Þú
ert lukkunnar pamfíll og átt
það skilið.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Ef þú átt ekki heimangengt
til þess að vera einn með
sjálfum þér þá reyndu að
minnsta kosti að komast af
bæ um stundarsakir.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Mundu að það kemur alltaf
að skuldadögum og þess
vegna er nauðsynlegt að
kunna sér hóf í fjárfesting-
um.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Einhver stundar baktjalda-
makk í þinn garð. Aðalmálið
er að vera með góðum vinum
sem hægt er að treysta.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Í UPPHAFI spils fær
sagnhafi snjalla hugmynd,
en vörnin er á tánum og
finnur rétta mótleikinn.
Norður
♠ D6
♥ 42
♦ 972
♣ÁK8763
Suður
♠ K74
♥ ÁKD65
♦ ÁK4
♣52
Vestur Norður Austur Suður
– – – 1 hjarta
1 spaði 2 lauf Pass 2 tíglar
Pass 3 lauf Pass 3 grönd
Pass Pass Pass
Vestur spilar út spaða-
gosa gegn þremur grönd-
um og drottning blinds á
fyrsta slaginn. Hver er
fyrsta hugmynd lesand-
ans? Sagnhafi er með átta
toppslagi. Spilið er vanda-
laust ef hjartað brotnar
3-3, en hættan er sú að
austur sé með fjórlit og
komist inn til að spila spaða
í gegnum kónginn. Þess
vegna kviknar strax sú
hugmynd að spila hjarta úr
borði og dúkka yfir til vest-
urs ef austur fylgir með
þristinum. En austur er
vandanum vaxinn og hopp-
ar upp með hjartatíu:
Norður
♠ D6
♥ 42
♦ 972
♣ÁK8763
Vestur Austur
♠ ÁG1083 ♠ 952
♥ G8 ♥ 10973
♦ 1063 ♦ DG85
♣D104 ♣G9
Suður
♠ K74
♥ ÁKD65
♦ ÁK4
♣52
Og það sem meira er –
vestur lætur gosann undir
ásinn! Það er ekki við
mennska menn að eiga.
En spilið er rétt að
byrja. Sagnhafi fer næst
inn í borð á laufás og spilar
aftur hjarta. Austur er hins
vegar með allt á hreinu og
stingur upp níunni. Suður
drepur og tekur annan slag
á háhjarta, en þá hendir
vestur tígli.
Nú er rétt að staldra við.
Hafi vestur byrjað með
skiptinguna 5-2-3-3 er
hann í raun þvingaður þeg-
ar þriðja hjartanu er spilað.
Laufi má hann augljóslega
ekki henda, né heldur
spaða, því þá má sækja slag
á hjarta. Tígull virðist
skaðlaust afkast, en svo er
ekki þegar betur er að gáð.
Sagnhafi tekur nú ÁK í
tígli og spilar laufi þrisvar
og bíður eftir níunda slagn-
um á spaðakóng.
Fyrsta hugmyndin var
góð, en sú síðari enn betri.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
LJÓÐABROT
Gekk eg í gljúfr ið dökkva,
gein veltiflug steina
við hjörgæði hríðar
hlunns úrsvölum munni.
Fast lá framan að brjósti
flugstraumur í sal Naumu;
heldr kom á herðar skáldi
hörð fjón Braga kvónar.
Ljótr kom mér í móti
mellu vinr úr helli;
hann fékkst heldr að sönnu
harðfengr við mig lengi.
Harðeggjað lét eg höggvið
heftisax af skefti;
Gangs klauf brjóst og bringu
bjartr gunnlogi svarta.
Grettir Ásmundarson
1. e4 e6 2. d4 d5 3. e5 c5 4. c3
Rc6 5. Rf3 Bd7 6. Be2 Rge7
7. Ra3 Rg6 8. h4 cxd4 9. cxd4
Bxa3 10. bxa3 h6 11. h5 Rge7
12. 0-0 Ra5 13. Hb1 Bc6 14.
Bd3 Rc4 15. Rh4 Da5 16.
Dg4 Kd7 17. Hb4 Hag8 18.
f4 f5 19. exf6 gxf6 20.
De2 Rd6 21. f5 exf5
22. Rxf5 Rexf5 23.
Bxf5+ Rxf5 24. Hxf5
Dd8 25. Hb3 Hh7 26.
Df3 He8 27. Hxf6
Kc8
Staðan kom upp á
Ólympíuskákmótinu
sem lauk fyrir
skömmu í Bled í
Slóveníu. Alexander
Grischuk (2.702)
hafði hvítt gegn Al-
exander Graf
(2.635). 28. Hxc6+!
bxc6 29. Dg4+ Dd7
30. Dg3 Kd8 31.
Bxh6! Hxh6 32. Hb8+ Ke7
33. Dg7+ Kd6 34. Dxh6+ og
svartur gafst upp.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
Hlutavelta
KRAKKAR, sem búsettir eru á Reykjaskóla í Hrútafirði,
stóðu nýlega fyrir söfnun til stuðnings nágranna sínum,
Guðbjarti Kristjánssyni, en hann missti allt sitt innbú í hús-
bruna þar hinn 9. nóvember. Guðbjartur átti mikið bóka- og
hljómplötusafn, sem allt brann ásamt öðrum eigum hans.
Krakkarnir seldu kökur, jólakort og sitthvað fleira á
Hvammstanga og víðar og söfnuðu um 80.000 krónum. Þau
ætla að kaupa eitthvað fyrir peningana til að gleðja hinn
hrellda nágranna sinn.
Efri röð f.v. Aron Ólafsson, Andri Þorvarðarson, Daníel
Róbertsson, Ívar Karlsson. Neðri röð f.v. Hjörtur Geir Þor-
varðarson. Bergur Þorvarðarson, Daníel Sigþórsson, Dag-
björt D. Karlsdóttir, Gréta Róbertsdóttir, Þorsteinn Ró-
bertsson, Kristín K. Róbertsdóttir.
Ljósmynd/ÞG
50 ÁRA afmæli. Mið-vikudaginn 27. nóv-
ember verður fimmtugur
Guðmundur B. Guðbjörns-
son, Freyjuvöllum 3, Kefla-
vík. Hann og kona hans,
Guðveig Sigurðardóttir,
taka á móti gestum á afmæl-
isdaginn kl. 19 í frímúrara-
salnum Bakkastíg 16,
Njarðvík.
Bridsdeild Samiðnar
Bridsdeild Samiðnar spilar annan
hvern fimmtudag á Suðurlandsbraut
30, 2. hæð. Spilamennska hefst kl.
19:30. Alltaf létt og skemmtileg
stemning
Fimmtudaginn 28. nóvember
hefst tveggja kvölda tvímenningur
þar sem keppt er um járnsmíðabik-
arinn. Allir félagar í Samiðn eru vel-
komnir.
Nánari upplýsingar hjá Snorra
Eiríkssyni í síma 567-7140 og hjá
Ómari Olgeirssyni í síma 869-1275.
Bridsfélag Selfoss og nágrennis
Fimmtudaginn 21. nóvember sl.
hófst keppni í Suðurgarðsmótinu
2002. Mótið er þriggja kvölda tví-
menningur sem reiknaður er með
barómeter fyrirkomulagi. Í mótinu
taka þátt 13 pör.
Að loknu fyrsta kvöldinu er staða
efstu para þessi:
Garðar Garðarsson – Stefán Jóhannsson 37
Guðjón Einarsson – Ólafur Steinason 22
Anton Hartmannss. – Pétur Hartmannss. 19
Gunnar Þórðarson – Gísli Þórarinsson 16
Brynjólfur Gestsson – Guðm. Theodórss. 10
Þröstur Árnason – Þórður Sigurðsson 4
Gísli Hauksson – Magnús Guðmundss. 3
Meðalskor er 0 stig.
Annað kvöldið í Suðurgarðs-
mótinu verður spilað fimmtudaginn
28. nóvember hefst spilamennska kl.
19:30 í Tryggvaskála.
Gullsmárabrids
Níunda og tíunda umferð í árlegri
sveitakeppni bridsdeildar FEBK í
Gullsmára var spiluð fimmtudaginn
21. nóvember sl. 12 sveitir vóru
skráðar til keppni. Í efstu sætum eft-
ir tíundu umferð eru þessar sveitir:
Sveit Páls Guðmundssonar 204
Sveit Kristins Guðmundssonar 197
Sveit Unnar Jónsdóttur 186
Ellefta og lokaumferð sveita-
kepnninnar verður spiluð mánudag-
inn 25. október. Síðan verður spil-
aður tvímenningur næstu mánu- og
fimmtudaga fram að jólahléi. Sunnu-
daginn 24. nóv. leiða eldri bridsarar í
Gjábakka- og Gullsmáradeildum
saman hesta sína í sveitakeppni, sem
hefst kl. 13.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
Gullsmiðja
Hansínu
Jens
Seljum eingöngu
smíðað af
Hansínu og
Jens Guðjónssyni
Laugaveg 20b
v/ Klapparstíg
sími 551 8448
Íslenskt handverk
Spariskór
Bankastræti 11 • sími 551 3930
Síðasti dagur
útsölunnar
er í dag, þriðjudag, kl. 13-18
Verið velkomin
Rauðagerði 26, sími 588 1259.
Verkalýðsfélag
Vestfirðinga
Verk-Vest
Auglýsir eftir tillögum að félagsmerki.
Hugmyndir þurfa að berast til skrifstofu félagsins,
Pólgötu 2, Ísafirði fyrir 15. desember nk.
Heitið er 100.000 króna verðlaunum fyrir bestu
tillöguna. Áskilinn er réttur til að skipta þeirri
upphæð á fleiri en eina tillögu eftir mati stjórnar
félagsins.
Nafn tillögumannsins berist með tillögu í lokuðu
umslagi merktu „Tillaga Verk-Vest“.