Morgunblaðið - 26.11.2002, Síða 52

Morgunblaðið - 26.11.2002, Síða 52
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 ÞRIÐJUDAGUR 26. NÓVEMBER 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK. „ÞAÐ er heldur að þorna þarna uppi og menn telja nú minni líkur á því að fá stóra skriðu hérna niður,“ sagði Tryggvi Harðarson, bæj- arstjóri Seyðisfjarðar og fulltrúi í almanna- varnanefnd, í gær. Þá hafði nefndin aflétt rúm- lega tveggja sólarhringa hættuástandi sem ríkt hefur í bænum vegna skriðufalla úr Botna- brúnum, rétt ofan við bæinn. Fengu þrjátíu íbúar tíu húsa við Austurveg því að fara heim til sín á ný eftir að hús þeirra voru rýmd á föstudag. Morgunblaðið/RAX Hættuástandi aflétt á Seyðisfirði  Fólki leyft/4 RÍKI og sveitarfélög hafa kostað um 850 milljónum króna á núvirði til minkaveiða á síðustu 45 árum, samkvæmt gögnum Veiðistjóraembættisins. Róbert Stefáns- son, forstöðumaður Náttúrustofu Vestur- lands, segir að allt að 30 milljónum kr. sé varið á ári í minkaveiðar. Að stærstum hluta er þessi kostnaður vegna verðlauna sem veitt eru minkaveiðimönnum, auk þess sem stundum hafa verið greidd laun og kostnaður vegna minkaveiða. Þrátt fyrir að minkur hafi verið veidd- ur hér á landi frá því fljótlega eftir land- nám hans fyrir um 70 árum hafa þær veiðar ekki skilað þeim árangri sem von- ast var eftir. „Þetta skilar yfirleitt stað- bundnum og tímabundnum árangri. Veið- arnar eru ekkert sérlega markvissar enda hefur veiðistjóri í raun og veru ekki upplýsingar til þess að stjórna veiðunum að einhverju ráði,“ segir hann. „Upphaflega markmiðið var að útrýma honum en ég held að það geri flestir sér grein fyrir því að það er ekki raunhæft markmið lengur. Það er opinbert mark- mið núna að reyna að lágmarka tjónið en það er ekki gert nógu markvisst að mínu mati,“ segir Róbert. Um 850 milljónir til minkaveiða á 45 árum  168 minkar/22 Morgunblaðið/Páll Jespersen LYFJAÚTGJÖLD Tryggingastofnunar ríkisins námu 3.978.293.290 kr. á fyrstu níu mánuðum þessa árs. Á sama tímabili í fyrra námu útgjöldin 3.446.632.904 kr. Jókst kostnaðurinn á þessu ári því um rúmlega 531 milljón kr. á fyrstu níu mán- uðum ársins eða um 15,4%, skv. nýjum tölum sem fengust hjá Tryggingastofnun. Í fjárlagafrumvarpi fyrir næsta ár er gert ráð fyrir að lyfjakostnaður verði 5.003 milljónir kr. Í fjárlögum ársins í ár var gert ráð fyrir að hann yrði 4.973 m.kr., en við umræðu á Alþingi um frumvarpið var samþykkt að draga úr lyfjaút- gjöldum sem næmi 310 millj. kr. á árinu með breytingum á greiðsluþátttöku, smásöluálagn- ingu og hámarksheildsöluverði. Þegar fjárlaga- frumvarpið var lagt fram í byrjun október var talið sýnt að lyfjaútgjöld yfirstandandi árs færu 530 til 680 millj. kr. umfram fjárlög þrátt fyrir þessar aðgerðir. Áætlað hefur verið að útgjöld vegna lyfja í ár verði því á bilinu 5.500 m.kr. til 5.650 m.kr. og er það hækkun um 14 til 17% frá fyrra ári. Komið hefur fram að nú stefni í að þriðjungur af öllum útgjöldum vegna lyfja komi til vegna kaupa á tauga- og geðlyfjum. Hefur notkun á þessum lyfjum aukist ár frá ári síðasta áratug. Samkvæmt tölum heilbrigðisráðuneytisins sem greint var frá nýverið lætur nærri að fjórði hver íbúi landsins noti tauga- og geðlyf. Er útlit fyrir að notendur þessara lyfja og Tryggingastofnun greiði um 4,4 milljarða fyrir slík lyf á þessu ári en á síðasta ári nam þessi kostnaður 3,6 milljörðum. Lyfjakostnaður TR tæpir 4 milljarðar á fyrstu níu mánuðum ársins Lyfjaútgjöldin jukust um 530 milljónir króna - 6   '4! '4$ '4& '4(  6- -6   63     .         < -   = <  NO NO > VEGNA breytinga á kjördæmaskipan, er taka gildi í næstu kosningum, er hugsanlegt að niðurstaða frambjóðenda í prófkjörum segi ekki alla söguna um líkur þeirra á að ná kjöri. Reykjavík á nú 19 þingmenn en í næstu kosningum verða kjördæmin tvö og mun hvort kjördæmið eiga ellefu þingsæti, þar af eru tvö jöfnunarsæti í hvoru kjördæmi. Þar sem þeir flokkar er haldið hafa próf- kjör í Reykjavík hafa einungis haldið eitt prófkjör verður að skipta frambjóðendum niður á kjördæmin tvö. Sjálfstæðisflokkur- inn, er hélt prófkjör um sl. helgi, hyggst varpa hlutkesti um það í hvoru kjördæminu fyrsti maður á lista samkvæmt úrslitum prófkjörsins býður sig fram. Annar maður mun síðan leiða listann í hinu kjördæminu og svo koll af kolli. Séu niðurstöður síðustu kosninga notaðar sem viðmiðun má telja líklegt að Sjálfstæð- isflokkurinn eigi ellefu menn vísa í Reykja- vík. Það er hins vegar engin leið að segja fyr- ir um það fyrirfram í hvoru kjördæminu ellefti maðurinn, sem væntanlega yrði jöfn- unarsæti, myndi lenda. Þetta gerir að verk- um að ekki er hægt að segja til um hvort Katrín Fjeldsted, sem varð í ellefta sæti í prófkjörinu og verður því væntanlega í sjötta sæti í öðru kjördæminu, eða Lára Margrét Ragnarsdóttir, sem var í tólfta sæti og verð- ur því væntanlega í sjötta sæti í hinu kjör- dæminu, er líklegri til að komast á þing ef Sjálfstæðisflokkurinn fær ellefu þingmenn. Bíða niðurstöðu kjörnefndar Í samtali við Morgunblaðið sagðist Katrín ekki hafa hugsað málin með þessum hætti. „Ég held að fólk bíði bara og sjái hvaða nið- urstöður koma frá kjörnefnd,“ segir hún. Sú staða gæti komið upp að Lára Margrét kæmist inn á þing en ekki Katrín, þrátt fyrir að Lára Margrét hafi hlotið lakari kosningu í prófkjörinu. Aðspurð hvort taka ætti tillit til þess við skipan á lista sagði Lára Margrét að sú ákvörðun væri alfarið í höndum kjör- nefndar. Hún gæfi kost á sér í 6. sæti lista í öðru hvoru kjördæminu. Ekki sama hvort sjötta sætið er  Þrír nýliðar/26–27  Róttæk endurnýjun/11  Kristján Pálsson/10 Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík YFIR 30 starfsmönnum Heklu verður sagt upp störfum í kjölfar endurskipu- lagningar á rekstri félagsins. Stefnt er að því að lækka rekstrarkostnað félags- ins um 20% á næsta ári og selja eignir sem ekki tengjast beint rekstri þess. Ákveðið hefur verið að grípa til að- gerða til að snúa rekstri Heklu til betra horfs í kjölfar samdráttar í bílasölu und- anfarin misseri. Starfsfólki Heklu fækk- ar úr 183 í 150 manns. „Þetta var vita- skuld ekki skemmtilegt skref að stíga. En hjá þessum breytingum varð ekki komist,“ segir Tryggvi Jónsson, for- stjóri Heklu. „Við vonum að með þessum aðgerðum sé í eitt skipti fyrir öll búið að koma fyr- irtækinu í það horf að það geti tekist á við framtíðina. Við teljum að með þess- um breytingum og endurskipulagi megi snúa rekstri fyrirtækisins við strax á fyrri hluta næsta árs.“ Jón Magnússon, trúnaðarmaður fé- lagsmanna Verslunarfélags Reykjavíkur hjá Heklu, segir uppsagnirnar vissulega harkalega aðgerð, enda umtalsvert fleiri en gert var ráð fyrir. Alls eru 16 starfs- menn af þeim 33 sem sagt var upp störf- um í VR. Jón segir uppsagnirnar ná til allra deilda. „Uppsagnirnar koma vissu- lega illa við þá sem í þeim lenda en okk- ur hefur verið lofað að ekki komi til fleiri uppsagna en orðið er.“ 33 starfs- mönnum Heklu sagt upp  Skipulagsbreytingar/13 ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.